Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.01.2013, Page 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.01.2013, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.1. 2013 Heilsan skiptir öllu, þetta höfum við oft heyrt og vitum vel. Fólk sem hefur séð fram á heilsumissi, lent í alvarlegum áföllum eða tek- ist á við lífshættulega sjúkdóma veit þetta betur en aðrir. Í blaðinu er rætt við tvær manneskjur sem minna okkur áþreifanlega á mik- ilvægi heilsunnar. Kristján Már Gunnarsson tókst á við sjálfan sig og sinn fíkn- isjúkdóm fyrir nokkrum árum og er nú óþreytandi í að upplýsa aðra um hvernig hægt er að byggja sig upp með réttri næringu. Oftar en ekki veljum við nefnilega mat sem brýtur okkur niður í stað þess að velja næringu sem raunverulega stendur undir nafni og nærir lík- ama okkar og sál. Kristján talar í viðtali um sykur og þá vá sem steðjar að hinum vestræna heimi með aukinni tíðni sykursýki og lífsstílssjúkdóma. Hann vill meina að með því að auka fitu í mataræði og draga úr kolvetnum og sykri megi ná miklum árangri í þeirri baráttu. Sjálfur segist hann hafa hætt alveg að borða sykur, enda sé hann ávanabindandi. Í blaðinu er einnig rifjuð upp ótrúleg saga Ragnhildar L. Guð- mundsdóttur sem næstum missti hönd í fiskvinnsluvél fyrir rúmum þremur áratugum. Færni lækn- isins Rögnvaldar Þorleifssonar varð til þess að Ragnhildur hélt hendinni. Hún lýsir því að þótt sú reynsla að hafa horfst í augu við handarmissi hafi brotið sig niður hafi hún að sama skapi gert hana máttugri að takast á við lífið og afla sér menntunar. Heilsan er það sem máli skiptir og þegar fólk horfist í augu við að missa hana breytist hugarfarið. Í janúar og febrúar ríður heilsubylgja yfir þessa þjóð eins og aðrar. Kannski við reynum að hafa í huga að það er yfirhöfuð ekki sjálfsagt að hafa heilsu – og reynum jafnvel að lengja átakið aðeins þetta árið. RABBIÐ Aðeins lengra Eyrún Magnúsdóttir Þeir voru tígulegir gufustrókarnir sem stigu upp til himins yfir Reykjavík í gærmorgun. og blöstu við ökumönnum þegar þeir lögðu á Ártúnsbrekkuna í bítið. Ef að líkum lætur áttu þeir upptök sín í Hellisheiðarvirkjun, jarðvarmavirkjuninni á sunnanverðu Hengilssvæðinu. Hellisheiðarvirkjun nýtir jarðvarma á sunnanverðu Hengilssvæðinu til framleiðslu á rafmagni og heitu vatni. Framleiðslugeta virkjunarinnar er 303 MW af rafmagni og 133 MW af heitu vatni. Raforkan frá Hellisheiðarvirkjun fer í gegnum tengivirki Landsnets á 220 KV spennu inn á háspennulínur, sem liggja um virkjanasvæðið. Leið heita vatnsins frá virkjuninni er 16 km löng og liggur um land Ölfuss, Mosfellsbæjar og Reykjavíkur að geymum Orkuveitunnar á Reynisvatnsheiði. Heitavatnslagnirnar eru grafnar í jörðu meðal annars til að minnka umhverfisáhrif. AUGNABLIKIÐ Morgunblaðið/Styrmir Kári LÖND Á HIMNI? HIMINNINN YFIR HÖFUÐBORGINNI MINNTI EINNA HELST Á LANDAKORT Í GÆRMORGUN ÞEGAR GUFUSTRÓK- ARNIR FRÁ HELLISHEIÐARVIRKJUN LÉTU Á SÉR KRÆLA MEÐ AFGERANDI OG SJÓNRÆNUM HÆTTI. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. Útgefandi Óskar Magnússon Ritstjórar Davíð Oddsson, Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal Umsjón Eyrún Magnúsdóttir, eyrun@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hvað? Tónleikar. Hvar? Munnharpan í Hörpu. Hvenær? Sunnudag kl. 20.30. Nánar? Stórsveitin flytur blandaða efnisskrá. Stjórnandi Sigurður Flosason. Stórsveit Reykjavíkur Hvað? Kvikmynd. Hvar? Bíó Paradís. Hvenær? Laugardag kl. 18 og 20, sunnudag kl. 15, 18 og 20. Nánar? Heimildamynd sem fær 5 stjörnur í dómi í Morgunblaðinu um það þegar bændur í Suður-Þingeyj- arsýslu sprengdu stíflu í Laxá við Mý- vatn sumarið 1970. Hvellur í Mývatnssveit Í fókus VIÐBURÐIR HELGARINNAR Hvað? HM í handbolta. Hvenær? Sunnudag kl. 16.15. Nánar? Bein útsending á Stöð 2 Sport. Upphitun hefst u.þ.b. klukkutíma áður. Baráttan um HM-gullið Hvað? Körfubolti. Hvar? Keflavík, Grindavík og Stykk- ishólmi. Hvenær? Laugardag og sunnudag Nánar? Undanúrslit bikarkeppni kvenna laugardag kl. 15, Snæfell – Keflavík. Undanúrslit bikark. karla sunnudag kl. 15, Keflavík – Grinda- vík og kl. 19.15, Snæfell – Stjarnan. Undanúrslit í körfubolta Hvað? Tónleikar. Hvar? Tónlistar- húsinu Hörpu Hvenær? Sunnudag kl. 16. Nánar? Sinfóníuhljómsveit tónlistar- skólanna er skipuð 90 tónlistarnem- endum og er samstarfsverkefni ís- lenskra tónlistarskóla. Stjórnandi: Guðmundur Óli Gunnarsson. Skólasinfónían Hvað? Tónleikar. Hvar? Eldborgarsalur Hörpu. Hvenær? Laugardag kl. 19.30. Nánar? Yndislega Eyjan mín – 40 árum síðar þar 23. janúar 1973 er minnst. Stefán Hilmarsson, Magni, Eyþór Ingi, Þór Breiðfjörð, Sigga Beinteins, Mar- grét Eir og Gréta Salome flytja margar af ástsælustu perlum Vestmanneyinga ásamt hljómsveit og kór. Yndislega Eyjan mín * Forsíðumyndina ...

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.