Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.01.2013, Page 26
26 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.1. 2013
Heimili og hönnun
OPNU
NART
ÍMI
UM H
ELGIN
A
LAU.
10-18
SUN.
13-18
VERT
UVEL
KOMI
N/N
H Ú S G AG N A H Ö L L I N • B í l d s h ö f ð a 2 0 • Re y k j a v í k • s í m i 5 5 8 1 1 0 0 O P I Ð V i r k a d a g a 1 0 - 1 8 , l a u g a rd . 1 0 - 1 8 o g s u n n u d . 1 3 - 1 8
TSÖLULO
LOKAHEL
íbúðinni, sem hann stækkaði yfir í rýmið þar sem kyndi-
klefinn var ásamt öðru litlu herbergi. Litla salernið er
ennþá við innganginn en Orri er núna búinn að innrétta
einstaklega smekklegt baðherbergi. Herbergið er langt
og mjótt en stórir speglar og glermósaíkflísar láta það
virka stærra. Þar er stór sturta og skemmtileg löng inn-
rétting sem Orri hannaði en hann vinnur á arkitekta- og
verkfræðistofu þar sem hann hefur lært flestar hefð-
bundnar innréttingabrellur. Margt í íbúðinni er endurnýtt
eða ber vott um nýtni. „Ég er með óþol fyrir inn-
kaupum. Af hverju ekki alveg eins nota eitthvað gamalt
eða bara það sem til er?“
Alheimurinn á fataskápnum
Fyrir framan baðherbergið er fataskápurinn, eða nánar
tiltekið veggur með hirslum úr IKEA, slám, skúffum og
fleiru. Hann hefur fundið góða lausn til að gera þetta að
sínu. Til að loka fyrir er hann búinn að hengja upp
gluggatjöld, fleka á rennibraut. Hann er búinn að föndra
við þetta og sameina tvo fleka í einn til að fá færri og
stærri fleti. Á strigann prentaði hann stjörnuþokumynd
úr Hubble-sjónaukanum en þetta er einstaklega flott
lausn. „IKEA-vörurnar eru eins og legó; það er er ekk-
ert gaman að byggja bara eftir teikningunum,“ segir
Orri.
Ekkert sjónvarp er í íbúðinni enda segist Orri hafa
nóg annað að gera. Hann er til dæmis að gera upp
gamla fjallahjólið sitt, sem er farið að líta vel út og
sómir sér ágætlega sem stofustáss. Hann nýtur lífsins í
miðbænum, á ekki bíl en er stoltur eigandi mótorhjóls.
Hann vinnur á Skólavörðustíg og fer flestra sinna ferða
gangandi. „Ég vil búa í borg og hafa tilfinningu fyrir
því. Hér er mikil þjónusta og það er skemmtilegra að
hafa mannlíf í kringum sig,“ segir hann.
Baðherbergið er langt og mjótt en stórir speglar stækka rýmið.
Hurðin er rennihurð. Innréttinguna hannaði Orri og setti upp.
Myndin sem Orri prentaði á fleka sem hylja fataskápinn er úr Hubble-stjörnusjónaukanum.
Svefnherbergið opnast inn í næsta rými og þannig helst birtan
flæðandi um allt rýmið. Orri vill hafa snyrtilegt í kringum sig.