Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.01.2013, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.1. 2013
Matur og drykkir
E
rtu mikill kokkur? „Já, ég hef mjög gaman af elda-
mennsku. Það er nauðsynlegt að geta bjargað sér,“
segir hann og segist reka minni til að áhuginn hafi
byrjað strax í bernsku við að fylgjast með bróður
hans, sem er virkilega góður í að elda ítalska rétti. Jóhannes
segir að það sem honum finnist skemmtilegast við að kokka
sé að prófa eitthvað nýtt. Ertu alltaf að prófa eitthvað nýtt?
„Já, oftast, og sem betur fer eru stelpurnar bæði mjög svo
áhugasamar um nýja rétti og þolinmæðin ein þótt kvöldmatur
verði ekki tilbúinn fyrr en klukkan hálftíu. Svava galdrar iðu-
lega fram eitthvað mun sniðugra fyrir yngstu stelpurnar ef
tilraunamatreiðslan skapar slíkan vanda.“
Finnst þér gaman að halda matarboð? „Já, mjög svo, það
hefur komið fyrir að nokkrar helgar í röð voru undirlagðar af
matarboðum.“ Nú ertu með stóra og mannmarga fjölskyldu,
þrjár stelpur, 6 mánaða, 19 mánaða og 8 ára, eru þær orðnar
heimavanar í veislum?
„Já, heldur betur, þær eru allar mjög svo áhugasamar um
eldamennsku og hún Katla er sérstaklega hjálpsöm. Það er
alltaf mikið líf í eldhúsinu hjá okkur, sama hvort það er
veisla eða bara verið að elda venjulegan kvöldmat.“
Ferðu alveg eftir uppskriftum eða leikurðu af fingrum
fram?
Ég fer sjaldan eftir uppskriftum. Það eru þó nokkrar upp-
skriftir sem ég hef ekki viljað breyta, eins og t.d. mango
chutney-laxinn hennar Svövu, sem og karrí-kjúklingurinn
hennar og eplakakan hennar mömmu.“
Er eitthvert hráefni öðru fremur sem þér finnst skemmti-
legt?
„Smjör, það er ómissandi og líka svo gott á allt.“
Í þetta matarboð fengum við góðvin okkar Róbert ásamt
Þorra syni hans. Slegið var upp í þriggja rétta veislu og ekki
dugði að slaka á það kvöldið.
MATGÆÐINGAR Í STANGARHOLTI
Alltaf að prófa eitthvað nýtt!
Gestirnir nutu matarins sem heimilisfaðirinn
hafði undirbúið af alúð. Frá vinstri eru Róbert
Róbertsson, Aldís Jóhannesdóttir, Svava
Sigurðardóttir, Margrét Jóhannesdóttir,
Jóhannes Magnússon, Margrét Jóhannesdóttir,
Þorri Róbertsson og Unnur Hrefna Jóhannsdóttir.
HJÚIN SVAVA SIGURÐARDÓTTIR OG JÓHANNES MAGNÚSSON HAFA GAMAN AF ÞVÍ AÐ HALDA MATARBOÐ ÞRÁTT FYRIR MANNMARGT HEIMILI
Í ÞRÖNGU HÚSNÆÐI. JÓHANNES SÁ UM ELDAMENNSKUNA AÐ ÞESSU SINNI OG BAUÐ GESTUM FJÖLBREYTTAN MATSEÐIL.
Eftir Unni H. Jóhannsdóttur
Yngstu heimilismeðlimirnir sýndu matnum mismikinn áhuga.
Morgunblaðið/Eva Björk
Matseðill
Forréttur
Lax í beikonklæðum,
Aðalréttur
Lambainnanlæri á kartöflubeði
ásamt héraðstómötum
Eftirrétturinn
súkkulaðikaka með skemmtilegu
leyndarmáli í lokin.
Rauðvín
Framingham Pinot Noir 2009,
Marlborough, Suðurey, Nýja-
Sjáland.
Létt en margslungið vín.
Skemmtilega fjölbreyttur andi
og ilmur af kirsuberjum og vori í
skógi. Bragðið er létt en ákveðið
og góð fylling. Lítil sýra og keim-
ur af hindberjum og kryddum
leika við mann í hverjum sopa.