Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.01.2013, Page 40
40 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.1. 2013
Föt og fylgihlutir
V
orið og sumarið verður línulaga. Helstu tísku-
hönnuðir heims hafa gefið tóninn á tískupöll-
unum undanfarin misseri og það þarf enginn
að velkjast í vafa um hvernig tolla má í tísk-
unni þegar daginn fer að lengja. Fjárfestu í röndum.
Röndóttum flíkum; peysum, skyrtum, buxum, pils-
um og kjólum bregður fyrir í tískutímaritum og
stjörnurnar eru þegar farnar að spóka sig um í
röndóttum spjörum; oftast svörum og hvítum eða
dökkbláum og hvítum – ýmist með lóðréttum og
láréttum strikum.
Rendurnar eru breiðari en oft áður þegar
randatískan hefur verið á kortinu. Af frægum
stjörnum sem halda upp á þetta fallega
mynstur má nefna Claudiu Schiffer, Kim
Kardashian, Katie Holmes og Victoria
Beckham. Þess má geta að konungur
poppsins; Elvis Presley, átti teinótt
jakkaföt.
M
ar
c
Ja
co
bs
s
um
ar
2
01
3
AFP
TÍSKUSUMARIÐ SEM Í VÆNDUM ER
Að vera í
teinóttu
Blazer-jakki úr Zöru. 18.995 kr.
Ba
lm
ai
n
vo
r
og
s
um
ar
2
01
3
AFP
D
ol
ce
&
G
ab
ba
na
v
or
o
g
su
m
ar
2
01
3
AFP
Víður kjóll úr Zöru. Verð: 11.995 kr.
„Ef þessar áberandi konur hefðu ekki látið sjá
sig í fötunum okkar hefði fólk aldrei veitt okk-
ur svona mikla athygli,“ segir fatahönnuðurinn
Ingvar Helgason í viðtali við tískuvefritið The
Cut í vikunni. Ingvar lýsir í viðtalinu þeim
áhrifum sem það hafi haft á fatamerki sitt og
sambýliskonu sinnar Susanne Ostwald, Ost-
wald Helgason, að áhrifamiklar konur í tísku-
heiminum skyldu klæðast fötunum þeirra.
Nefnir hann sérstaklega tvær konur sem til-
heyra hópi sem er þekktur í heimi tískunnar
sem „rússneska mafían“, þær Miroslövu Duma,
tískuskríbent og fyrrverandi ritstjóra rússneska
Harper’s Bazaar, og Önyu Ziourovu, tískurit-
stjóra hjá Tatler í Rússlandi. Báðar eru þær
taldar í hópi þeirra sem hvað mest áhrif hafa á
götutísku, en í grein The Cut um Ostwald
Helgason er þessum rússnesku gyðjum götu-
tískunnar þakkað fyrir að hafa komið merkinu
á kortið.
„Þetta var algjör tilviljun, eins og allt annað,“
segir Ingvar Helgason í viðtalinu. Duma hafi
séð hönnun Ostwald Helgason á tískuvikunni í
París á síðasta ári eftir að samstarfskona þeirra
hafði fengið nokkrar flíkur að láni, en sú þekkti
Dumu. Duma heillaðist af flíkunum og hafði í
kjölfarið samband við Ostwald Helgason og
vildi fá að klæðast þeirra hönnun. Eftir að
Duma og Ziourova sáust klæddar flíkum frá
hönnunarmerkinu á myndum þekktra ljós-
myndara sem birta myndir sínar á tískusíðum
tímarita og tískubloggum fóru hjólin að snúast
hjá Ostwald Helgason. Vel hefur gengið að
selja hönnunina í Bandaríkjunum og Ostwald
Helgason-merkið hefur vakið athygli tísku-
bloggara sem keppst hafa um að ausa merkið
lofi. „Við værum ekki hér í dag ef ekki væri
fyrir þær,“ segir Ingvar um Dumu og Ziurovu
að lokum.
MIROSLAVA DUMA OG ANYA ZIOUROVA
Gyðjur götutískunnar komu
Ostwald Helgason á kortið
Miroslava Duma í Ostwald Helgason.