Morgunblaðið - 21.02.2013, Side 1
F I M M T U D A G U R 2 1. F E B R Ú A R 2 0 1 3
Stofnað 1913 43. tölublað 101. árgangur
VIÐAMESTA
SÝNING BORGAR-
LEIKHÚSSINS
RÍÐA EKKI
FEITUM HESTI
FRÁ SVINDLINU
FYNDIN BÓK UM
SAMVISKUBIT
UNGRAR KONU
VIÐSKIPTABLAÐ AÐ STÖKKVA EÐA EKKI 10MARY POPPINS 42
Ásgeir Trausti tekur við verðlaunagrip sem hann hlaut á Íslensku tónlistarverðlaununum í gærkvöldi en hann og
píanóleikarinn Víkingur Heiðar Ólafsson voru ótvíræðir sigurvegarar kvöldsins með fern verðlaun hvor. Ásgeir
Trausti var kjörinn flytjandi ársins auk þess sem frumraun hans, Dýrð í dauðaþögn, var valin hljómplata ársins í
flokki dægurtónlistar. Þá var hann valinn bjartasta vonin og vinsælasti flytjandinn í netkosningu á tónlist.is.
Hljómsveitin Retro Stefson hlaut þrenn verðlaun, þar á meðal fyrir besta lag ársins, lagið „Glow“. »44
Dýrðin var Ásgeirs Trausta
Morgunblaðið/Ómar
Íslensku tónlistarverðlaunin afhent í Hörpu í gærkvöldi
Hörður Ægisson
hordur@mbl.is
Útlánasafn Íbúðalánasjóðs er líklega ofmetið um
miklu hærri upphæðir en áætlun IFS greiningar
og starfshóps stjórnvalda um stöðu og horfur
sjóðsins gerði ráð fyrir. Eignatjón Íbúðalánasjóðs
gæti numið á bilinu 86-129 milljörðum króna, að
því er fram kemur í greiningu sérfræðinga á fjár-
málamarkaði sem Morgunblaðið hefur undir
höndum. Niðurstöður IFS og starfshópsins, sem
voru birtar í lok síðasta árs, sögðu að útlánasafn
sjóðsins væri ofmetið um 40 milljarða.
Reynist greining sérfræðinganna rétt, en hún
hefur verið kynnt á fundum hjá fjölmörgum fjár-
sammála um að í henni gæti síður en svo of mik-
illar svartsýni gagnvart þeim vanda sem Íbúða-
lánasjóður glímir við. Þvert á móti sé hún í sam-
ræmi við aðra útreikninga sem sérfræðingar
innan fjármálafyrirtækja hafa gert um stöðu
sjóðsins.
Enn syrti í álinn hjá Íbúðalánasjóði þegar al-
þjóðlega lánshæfismatsfyrirtækið Moody’s til-
kynnti í gær að lánshæfismat sjóðsins yrði lækkað
niður í ruslflokk – úr Baaa3 í Ba1 – með stöðugar
horfur. Lægri lánshæfiseinkunn er sögð endur-
spegla miklar líkur á frekari fjárstuðningi stjórn-
valda til að styðja við veika stöðu Íbúðalánasjóðs.
Vantar yfir 100 milljarða
Líklegt eignatjón Íbúðalánasjóðs 86-129 milljarðar Starfshópur stjórnvalda
taldi lánasafnið ofmetið um 40 milljarða Moody’s sendi sjóðinn í ruslflokk
MGæti þurft yfir »Viðskipti
málastofnunum á síðustu vikum, er ljóst að rík-
issjóður þyrfti að leggja sjóðnum til meira en 100
milljarða á næstu árum til viðbótar við þá 13 millj-
arða sem stjórnvöld samþykktu að veita honum í
árslok 2012. Ríkið þurfti ennfremur að leggja
Íbúðalánasjóði til 33 milljarða á árinu 2011.
Viðmælendur Morgunblaðsins sem starfa á
fjármálamarkaði og hafa séð kynninguna eru
Ríkissjóður gæti þurft að
leggja Íbúðalánasjóði til yfir
100 milljarða til viðbótar við
þá 13 milljarða sem honum
voru veittir í árslok 2012.
Hópur lykil-
starfsmanna
Straums fjárfest-
ingabanka, um
tíu talsins, keypti
30% hlut í fyr-
irtækinu við lok
síðasta árs af
ALMC sem áður
átti fyrirtækið að
fullu, að sögn
Péturs Einars-
sonar, forstjóra bankans. ALMC er
gamli Straumur.
Hann segir jákvætt að íslenskir
starfsmenn eigi hlut í fyrirtækinu
og þar með séu hagsmunir erlendra
eigenda fjárfestingabankans og
starfsmanna tvinnaðir saman.
»Viðskipti
Starfsmenn eignast
30% í Straumi
Pétur Einarsson,
forstjóri Straums.
Boðið verður upp á fjölbreytta
listviðburði á árinu í tilefni þess að í
ár eru 70 ár liðin frá því að Ísland
og Rússland tóku upp stjórnmála-
samband. Meðal listamanna sem
koma til landsins er Vladímír
Spivakov, stjórnandi kammer-
hljómsveitarinnar The Virtuosos of
Moscow, en rætt er við sendiherra
Rússlands um málið í blaðinu í dag.
Ríkin tvö hafa gert með sér ýmsa
samninga á síðari árum og má þar
m.a. nefna nýjan ferðamálasamn-
ing sem greiðir fyrir beinum flug-
ferðum til Rússlands. Þá má geta
þess að sl. föstudag voru lokadrög
að samningi um alþjóðlegar ætt-
leiðingar milli Íslands og Rússlands
send til Rússlands. »18
Rússnesk menning í
öndvegi á afmælinu
Listunnandi Andrei V. Tsyganov, sendi-
herra Rússa á Íslandi, í bústað sínum.
Morgunblaðið/Kristinn
–– Meira fyrir lesendur
FYLGIR MEÐ
MORGUNBLAÐINU
Í DAG
Ólíklegt er talið að möguleg kaup
fjárfestahóps, sem meðal annars
samanstendur af hluthöfum MP
banka og Framtakssjóði Íslands, á
hlut kröfuhafa í Arion banka eða Ís-
landsbanka nái fram að ganga fyrr
en það liggur fyrir hvernig staðið
verður að nauðasamningum Glitnis
og Kaupþings. Samkvæmt heimild-
um Morgunblaðsins er þó ekki úti-
lokað að sala á öðrum hvorum bank-
anna til fjárfestahópsins geti orðið
hluti af þeirri heildarlausn sem
Seðlabankinn vill ná fram varðandi
krónueignir erlendra kröfuhafa.
Ásgeir Jónsson, lektor í hagfræði
og efnahagsráðgjafi GAMMA, segir
hættu á fjármálabólu vegna þeirra
krónueigna sem gætu farið í umferð
við uppgjör þrotabúanna. Því segir
hann „lykilatriði“ að semja um mikl-
ar afskriftir á krónueignum kröfu-
hafa og þannig draga saman efna-
hagsreikninga fjármálakerfisins og
minnka peningamagn í umferð.
hordur@mbl.is »Viðskipti
Óvissa Hluthafar MP vilja kaupa
hlut í Arion eða Íslandsbanka.
Vill fyrst
sjá heild-
arlausn
Óvíst um kaup fjár-
festa á hlut í banka