Morgunblaðið - 21.02.2013, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 21.02.2013, Blaðsíða 11
Morgunblaðið/Kristinn legar spurningar sem tengjast samviskubiti aðalpersónunnar. „Hún telur sig vera að gera góð- verk með því að yfirgefa mann sem er dauðvona og auk þess giftur. Það er jú brot á öllum samfélagssátt- málum að vera í sambandi við gift- an mann. Af virðingu við konuna hans sem hann hefur verið giftur í tuttugu ár, þá lætur hún sig hverfa og gefur henni eftir réttinn til að vera með honum í dauðastríðinu. Hún telur það vera samfélagslega rétta ákvörðun. En hún er ekki endilega að gera þessum ástvini sínum gott, því hún fer án allra skýringa. Hún bregst honum, því kannski hélt hún á vissan hátt í honum lífinu. En svo fer hún að efast um hversu rétt þessi ákvörð- un hafi verið og fær djúpstætt sam- viskubit – kannski var ekkert góð- verk að láta sig hverfa. Er hægt að koma svona fram við deyjandi?“ Stúlkan telur sér auk þess trú um að samband hennar við manninn hafi ekki verið framhjáhald af því það var ekki líkamlegt samband. „Í framhaldi af því getum við líka velt fyrir okkur hvort netsambönd nú- tímans séu framhjáhald eða ekki. Með fjölbreyttari samskiptaleiðum eru hinar skýru línur víða komnar á skrið. Gráa svæðið er orðið svo risastórt, það er eiginlega þoka all- staðar.“ Vill losna undan lostanum Stúlkan í sögunni, Alexandra Flask, vill refsa sér af því henni finnst hún hafa brugðist í ástarsam- bandinu platónska. „Hún vill slátra samviskubitinu sem nagar hana, með því að slasa sig, af því þá mun allur fókusinn færast yfir á slasaðan líkamann. Hún telur sig líka losna þannig undan líkamlegum löng- unum, enginn losti muni þvælast fyrir henni og henni verði ekki fært að gera neinn ósóma.“ Hún hefur þá innbyggðu hugmynd að fátt fari vel í lífinu. Henni hefur lærst að mörg hjónabönd fari í vaskinn þó allt líti vel út í byrjun, flest fólk sem við treystum svíki okkur á endanum, og við deyjum öll að lokum. „Hún hefur fullkomið kaldhæðnisviðhorf gagn- vart farsælum endalokum, „happy ending“, álítur þau hreinlega ekki vera til. Og því veltir hún fyrir sér í fullri alvöru að flýta fyrir skipbrot- inu, halda með hinum óvænta endi.“ Kvenlíkaminn rennur út Sigurbjörg kemur líka í bókinni inn á hugmyndir um barneignir. „Konur hafa ekki allan tímann í heiminum til að eignast afkvæmi, tíðahvörfin verða jú á miðjum aldri og það eru ákveðin endalok. Sumum konum finnst líkami þeirra „einskis nýtur“ eftir að þær hætta að vera frjóar. Til hvers geti þá kvenlík- aminn verið? Tískubransinn sendir líka út þau skilaboð að um leið og tvö aukakíló hafa sest á líkama kvenna eða á honum sjást merki öldrunar, þá sé hann ekki lengur gjaldgengur – hann rennur út. Sem er hrikalegt, því um miðjan aldur eiga konur jú eftir allt sitt seinna tímabil í lífinu. Alexandra Flask tekur í raun alls- konar samfélagsreglur og hömlur og sparkar í þær, með því að neita að láta samfélagið ákveða alla hluti fyrir sig.“ Sigurbjörg veltir þannig í bókinni upp ýmsum samfélags- legum spurningum, sem bæði tengj- ast andlegu hliðinni og þeirri líkam- legu. Aðalpersónan á til að mynda góða vinkonu sem einnig býr í Barcelóna og lifir mjög skrautlegu ástarlífi. „Sú er í einhverskonar sambandi þar sem póllinn er tekinn út frá þörfum en ekki reglum. Í vestrænum nútímasamfélögum notar fólk líkama hvors annars grimmt og mörgum finnst í góðu lagi að vera í líkamlegum afþreying- arsamböndum. Ætli þessi bók fjalli ekki öðrum þræði um hvernig er að vera til í nútímasamfélagi.“ Barcelona Hin sögufræga kirkja Santa Maria del Mar, í Born-hverfinu í Barcelona, kemur talsvert við sögu í skáldsögunni Stekk. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2013 Krónan Gildir 21.-24. febrúar verð nú áður mælie. verð Grísakótelettur ................................................ 995 1.469 995 kr. kg Grísahakk ....................................................... 679 849 679 kr. kg Grísagúllas/grísasnitsel ................................... 1.049 1.498 1.049 kr. kg Krónu kjúklingur, ferskur ................................... 765 859 765 kr. kg Krónu bl. kjúklingabitar .................................... 628 698 628 kr. kg Krónu kjúklingaleggir ....................................... 698 789 698 kr. kg Nóatún Gildir 22.-20. febrúar verð nú áður mælie. verð Ungnautagúllas, kjötborð ................................. 1.998 2.498 1.998 kr. kg Ungnautasnitsel, kjötborð ................................ 1.998 2.897 1.998 kr. kg Grísalundir, kjötborð ........................................ 1.998 2.598 1.998 kr. kg ÍM kjúklingabringur .......................................... 2.198 2.598 2.198 kr. kg SS Grand Orange helgarsteik ............................ 2.398 2.998 2.398 kr. kg Barbarie andarlærleggir ................................... 1.198 1.498 1.198 kr. kg Myllu möndlukaka ........................................... 557 748 557 kr. stk. Þín verslun Gildir 21.-24. febrúar verð nú áður mælie. verð Nauta fillé, kjötborð ......................................... 3.998 4.694 3.998 kr. kg Nauta innra læri, kjötborð ................................ 2.998 3.998 2.998 kr. kg Nauta gúllas, kjötborð ..................................... 2.169 2.894 2.169 kr. kg Ísfugl kjúklingabringur ...................................... 2.279 2.849 2.279 kr. kg Pepsi 4x2 l...................................................... 898 1.192 898 kr. pk. Hälsans kök kjúkl.bitar, 375 g .......................... 689 875 1.837 kr. kg Lambi WC pappír, hvítur, 6 rl. ........................... 539 749 539 kr. pk.Morgunblaðið/Kristinn RENAULT KANGOO DÍSIL EYÐSLA 4,9 L / 100 KM* VINSÆLIR ENDA SPARNEYTNIR ATVINNUBÍLAR RENAULT TRAFIC DÍSIL EYÐSLA 6,9 L / 100 KM* RENAULT MASTER DÍSIL EYÐSLA 8,0 L / 100 KM* E N N E M M / S ÍA / N M 5 6 5 6 4 *E y ð s la á 10 0 k m m ið a ð v ið b la n d a ð a n a k s tu r. BL ehf. Sævarhöfða 2 / 525 8000 Bílahúsið / Reykjanesbæ / 421 8808 – Bílasalan Bílás / Akranesi / 431 2622 Bílaverkstæði Austurlands / Egilsstöðum / 470 5070 – Bílasala Akureyrar / 461 2533 www.renault.is RENAULT – Í LIÐI MEÐ ATVINNUREKENDUM Í 100 ÁR. Það er ekki að undra að Renault sé stærstur á sviði sendibíla í Evrópu. Eftir meira en 100 ár í bransanum vita þeir hjá Renault hvað skiptir máli þegar bíllinn er vinnustaðurinn þinn: áreiðanleiki, sveigjanleiki og ekki síst þægindi. TRAFIC STUTTUR VERÐ FRÁ: 3.418.327 KR. ÁN VSK. 2,0 DÍSIL - 115 HÖ VERÐ: 4.290.000 KR. M. VSK. MASTER MILLILANGUR VERÐ FRÁ: 4.292.821 KR. ÁN VSK. 2,3 DÍSIL - 125 HÖ VERÐ: 5.390.000 KR. M. VSK. KANGOO II EXPRESS VERÐ: 2.541.833 KR. ÁN VSK. 1,5 DÍSIL - 90 HÖ VERÐ: 3.190.000 KR. M. VSK.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.