Morgunblaðið - 21.02.2013, Síða 18

Morgunblaðið - 21.02.2013, Síða 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2013 VIÐTAL Baldur Arnarson baldura@mbl.is Fjöldi rússneskra listamanna mun koma til landsins í ár í tilefni þess að 70 ár eru liðin síðan Ísland og Rúss- land tóku upp stjórnmálasamband. Meðal listamanna sem koma til lands- ins er Vladímír Spivakov, stjórnandi kammerhljómsveitarinnar The Vir- tuosos of Moscow, en hann er meðal þekktustu tónlistarmanna Rússlands. Mun Spivakov stýra hljómsveitinni í Hörpu. Það er Andrey V. Tsyganov, sendi- herra Íslands á Rússlandi, sem upp- lýsir blaðamann um þetta og hvernig til standi að setja upp sýningu á verk- um meistara Jóhannesar S. Kjarvals í Marmarahöllinni í St. Pétursborg í sumar. Íslenskir áhugamenn um myndlist munu eiga hægt um vik að sjá verkin ytra því 1. júní næstkom- andi hefst nýr kafli í flugsögu ríkjanna með því að Icelandair hefur beint flug til borgarinnar sem kennd er við Pétur mikla. Má m.a. þakka það nýjum ferða- málasamningi milli ríkjanna, að sögn Tsyganovs, sem útskýrir hvernig ferðalög milli ríkjanna hafi hingað til kallað á millilendingu í öðru landi. Þá verði sýning á ljósmyndum Sig- urjóns Péturssonar og Þóru Hrannar Njálsdóttur sett upp í Moskvu, nánar tiltekið myndir þeirra úr bókinni Að- ventu á Fjöllum. Umfjöllun á jákvæðum nótum Sendiherrann segir mikinn áhuga á Íslandi í Rússlandi. „Eldgosið í Eyjafjallajökli í apríl 2010 jók áhuga Rússa á Íslandi. Tímasetningin er því góð. Sjálfur varð ég sendiherra Rúss- lands á Íslandi í mars 2010 og fylgdist því vel með því sem var sagt um Ís- land á rússneskum vefsíðum. Um- fjöllunin var í einu orði sagt mjög já- kvæð. Ég minnist þess satt að segja ekki að hafa lesið eina einustu nei- kvæða grein,“ segir Tsyganov. Sendiherrann er mikill áhugamað- ur um sígildar listir og rifjar upp upp- lifun sína af opnunartónleikum í Hörpu 4. maí árið 2011. „Tónleikarnir voru áhrifaríkir. Ég tók sérstaklega eftir því hversu vel ís- lensku áhorfendurnir kunnu að meta tónlistina. Það sama gerði ég á tón- leikum hljómsveitarstjórans Genna- díjs Rosdestvenskíjs með Sinfón- íuhljómsveit Íslands í Hörpu. Íslendingar eru auðsjáanlega vel búnir undir hámenningarlega at- burði. Píanóleikarinn Denis Matsuev var líka ánægður með viðtökurnar þegar hann spilaði hér í nóvember 2011. Eftir tónleikana sagði hann mér hversu ánægður hann væri með að geta spilað í Reykja- vík fyrir svo þroskaða áheyrendur. Viðtökurnar hafa því verið góðar og þess vegna langaði okk- ur til að bjóða upp á tónlistarflutning í hæsta gæðaflokki á þessu ári,“ segir Tsyganov og vísar til komu Spivakovs og sveitar hans síðar á árinu. Heyra má á sendiherranum að fleira sé í bígerð og fæst hann til að upplýsa að sendiráðið muni meðal annars standa fyrir menningarhátíð þar sem haldið er upp á jakútíska menningu. Þá muni það setja upp sýningu á myndskreyttum rúss- neskum bókum með þýðingum á Ís- lendingasögunum og efna til rúss- neskrar kvikmyndahátíðar. Sendiherrann útskýrir því næst hvernig unnið hafi verið að ýmsum samningum sem greiða muni fyrir frekari samskiptum og samvinnu ríkjanna. Von hans sé að þeir muni treysta vináttubönd þjóðanna enn frekar. Gagnkvæm samhygð sé milli þegna ríkjanna. Rússnesk menningarhátíð Morgunblaðið/Kristinn Listunnandi Andrey V. Tsyganov, sendiherra Rússlands á Íslandi, er mikill áhugamaður um æðri listir. Hann ber íslenskum tónlistarunnendum vel söguna.  Haldið upp á 70 ára afmæli stjórnmálasambands Íslands og Rússlands með listviðburðum á árinu  Heimsfrægur stjórnandi stýrir kammerhljómsveit í Hörpu  Íslensk myndlist sýnd í Rússlandi Vladímír Pútín Rússlandsforseti lét þau orð falla í síðustu viku að Rússar mundu í auknum mæli beita öðrum aðferðum en vopnavaldi til að auka áhrif sín í heiminum á næstu árum. Spurður hvernig önnur ríki muni verða þessarar stefnu vör segir Tsyganov að stórveldin eigi orðið það samtvinnaðra hagsmuna að gæta að vopnaskak til að treysta völd og áhrif heyri orðið sögunni til. Það ýti undir þessa þróun að svarthvít heimsmynd kalda stríðsins sé liðin undir lok. Samskipti á menn- ingarsviðinu séu dæmi um leiðir til að byggja brýr. Spurður hvort hann telji að út- breiðsla netsins í Rússlandi muni hafa áhrif á þróun lýðræðis í landinu segir sendiherrann að opin skoðana- skipti netsins hafi þegar haft sín áhrif í Rússlandi. Pútín fylgist vel með netinu „Pútín forseti fylgist t.d. með því sem sagt er um ástandið í landinu á netinu. Þar sér hann milliliðalaust hvað fólkið skrifar um hann og ríkis- stjórnina, án þess að upplýsingarnar séu síaðar af aðstoðarmönnum og starfsmönnum ráðuneyta.“ Tsyganov leggur síðan áherslu á að netið bjóði þeirri hættu heim að geta kynt undir andúð á tilteknum trúarhópum, líkt og Rússar hafi séð dæmi um á síðari árum. Aðspurður hversu mikinn áhuga rússnesk stjórnvöld sýni þróuninni á norðurslóðum – einkum opnun sigl- ingaleiða og hagnýtingu málma og jarðefnaeldsneytis – segir Tsyganov þau hyggjast verja sem svarar 726 milljörðum kr. í uppbyggingu inn- viða í Norður-Rússlandi. Fjárfest- ingunni sé ætlað að tryggja að Rúss- ar geti sem best nýtt þau tækifæri sem opnun siglingaleiða og nýting ýmissa náttúruauðlinda feli í sér. Hins vegar sé of snemmt að segja nokkuð til um hversu mikil áhrif hlýnunar verði í heimshlutanum. Vopnavaldið hluti af liðinni tíð  Rússar boða friðsamlega utanríkisstefnu Undir öldum Rússneski kjarn- orkukafbáturinn Júrí Dolgoruky. AFP Tsyganov hóf feril sinn í rússnesku utanríkisþjónustunni árið 1976 þegar Leonid Brezhnev var aðal- ritari kommúnistaflokksins. Ferill hans hélt áfram eftir að Sovét- ríkin liðu undir lok og var sendiherrann meðal annars diplómatískur ráðgjafi Vla- dímírs Pútíns á árunum 1999-2000, þegar sá síðarnefndi var for- sætisráðherra Rússlands. Tsyganov kom að undirbúningi leiðtogafundar Reag- ans og Gorbatsjovs í Höfða í Reykjavík árið 1986, hann var þá við störf í Genf. Leiðtogafundinn ber að sjálf- sögðu á góma í samtalinu við sendiherrann sem lýsir yfir þeirri skoðun sinni að samkomulag Rússlands og Atlantshafs- bandalagsins í Reykjavík í maí 2002 hafi jafnvel verið meiri áfangi. En á fundinum tóku gömlu erkifjendurnir úr kalda stríðinu upp samstarf í varnarmálum. Var ráðgjafi Pútíns VIÐBURÐARÍKUR FERILL SENDIHERRA Vladímír Pútín

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.