Morgunblaðið - 21.02.2013, Blaðsíða 19
FRÉTTIR 19Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2013
Héraðsdómur Reykjaness hefur
dæmt rússneskan karlmann á fer-
tugsaldri í tólf mánaða fangelsi fyr-
ir að flytja til landsins 300 grömm
af kókaíni. Maðurinn kom til lands-
ins 12. nóvember sl. frá París og
fundu tollverðir fíkniefnin í úlpu-
vasa hans.
Maðurinn játaði sök en sagðist
hafa verið burðardýr og neyddur til
að fara í ferðina. Hann hefði hvorki
skipulagt né fjármagnað ferðina en
ætlað að greiða spilaskuldir með
ágóðanum.
Þessu mótmælti ákæruvaldið
harðlega og benti á að maðurinn
hefði margsinnis komið til landsins
áður og meðal annars sent peninga
hingað í þeim tilgangi að kaupa
hótel. Engin gögn hefðu verið lögð
fram um að aðrir hefðu komið að
skipulagningu ferðarinnar og frá-
sögn um spilaskuldir væri ótrú-
verðug.
Dómurinn féllst á rök ákæru-
valdsins og taldi að framburður
mannsins um að hann hefði verið
burðardýr væri ótrúverðugur.
Frásögnin
ekki talin
trúverðug
Dæmdur fyrir
smygl á kókaíni
Morgunblaðið/Ómar
Gunnar Bragi Sveinsson og Ás-
mundur Einar Daðason ásamt fleiri
þingmönnum Norðvesturkjördæmis
hafa lagt fram þingsályktunartillögu
þess efnis að Alexandersflugvöllur á
Sauðárkróki verði varaflugvöllur
fyrir Keflavíkurflugvöll, Reykja-
víkurflugvöll og Akureyrarflugvöll.
„Reynslan sýndi okkur það þegar
Eyjafjallajökull gaus að það geta
komið upp aðstæður þar sem þörf er
á varaflugvelli nær stóru flugvöllun-
um á suðvesturhorninu. Í dag þarf að
keyra langar vegalengdir með fólk í
rútum frá Egilsstöðum til Reykja-
víkur ef sambærilegar aðstæður
koma upp. Með þessu væri vega-
lengdin stytt verulega og kostnaður
vegna rútuflutninga gæti minnkað
mikið,“ segir Gunnar Bragi og telur
því ýmsar hagnýtar ástæður fyrir
því að byggja Alexandersflugvöll
upp sem varaflugvöll fyrir Reykjavík
og Keflavík. Þá segir hann augljóst
að slíkur flugvöllur muni þjóna
Akureyri vel sem varaflugvöllur og
tryggja og treysta þá mikilvægu
starfsemi sem þar er rekin í sam-
bandi við ferðaþjónustu og flug al-
mennt.
Eyjaflug hóf nýlega reglulegt far-
þegaflug á Sauðárkrók og að þeirra
sögn gengur áætlunarflugið vel og
gert er ráð fyrir að það muni verða
enn betra í sumar með fjölgun ferða-
manna yfir sumarið.
Varaflugvöll á Sauðárkróki
Morgunblaðið/ÞÖK
Flug Alexandersflugvöllur á Sauðárkróki byggður upp sem varaflugvöllur.
Lagt er til að Alexandersflugvöllur á Sauðárkróki verði
varaflugvöllur fyrir Reykjavík, Keflavík og Akureyri
Tollgæslan lagði
hald á rétt tæpan
lítra af sterum í
fljótandi formi í
síðustu viku.
Flaska var send
frá Hong Kong í
póstsendingu en
á fylgiseðli með
henni stóð að
innihaldið væri hnetuolía.
Sendingin var stíluð á karlmann á
þrítugsaldri sem er búsettur á höf-
uðborgarsvæðinu. Hann var hand-
tekinn í kjölfarið og hefur hann við-
urkennt að hafa ætlað að selja
sterana. Telst málið upplýst.
Áður hafði tollgæslan lagt hald á
tæki og tól til að steypa steratöflur
og loka ampúlum sem notaðar eru
undir stera í sölu. Sterar eru gjarn-
an blandaðir allt að til helminga áður
en þeir eru seldir, þannig að magnið
sem lagt var hald á gæti numið allt
að 2.000 ampúlum.
Sterarnir voru
merktir sem
hnetuolía
Fyrir eftirlætis
manneskjuna í þínu lífi
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
1
2-
0
24
6
Glæný og ljúffeng konudagsostakaka
bíður þín í næstu verslun