Morgunblaðið - 21.02.2013, Page 22
Tugþúsundir manna tóku þátt í mótmælum í
Aþenu og fleiri borgum Grikklands í gær gegn
aðhaldsaðgerðum stjórnvalda. Allsherjarverk-
fall, hið fyrsta á þessu ári, olli miklum truflunum
á samgöngum og þjónustu sjúkrahúsa. Mótmæl-
in voru skipulögð af samtökum launþega hjá op-
inberum aðilum en einnig í einkageiranum. Gert
er ráð fyrir að samdráttur verði í efnahagnum á
þessu ári, sjötta árið í röð. Stjórn Antonis Sam-
aras forsætisráðherra segir óhjákvæmilegt að
samþykkja kröfur erlendra lánardrottna um
harkalegan niðurskurð opinberra útgjalda.
Grikkir mótmæla harkalegu aðhaldi
AFP
22 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2013
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Fram kom í vitnaleiðslum í máli hlauparans
Oscars Pistorius í Suður-Afríku í gær að ná-
grannar hefðu heyrt „skothvelli, óp og síðan
fleiri skothvelli“ frá húsi hans um nóttina
þegar unnusta hans, Reeva Steenkamp, dó.
Einnig hefði heyrst mikill hávaði vegna rifr-
ildis frá klukkan tvö til þrjú en Steenkamp
var skotin til bana um fjögurleytið.
Pistorius er ákærður fyrir að hafa myrt
unnustu sína á heimili þeirra í síðustu viku.
Sjálfur segist hann hafa talið að innbrots-
þjófur væri á ferð og um hafi verið að ræða
slys. Það þótti styrkja nokkuð vörn Pistorius
í gær að lögreglumaðurinn Hilton Botha
sagði engar mótsagnir vera í lýsingu hlaup-
arans á atburðarásinni.
Botha sagði að umræddur nágranni
hefði talið að ópin sem hann heyrði hefðu
verið frá konu. En það þótti að sögn BBC
Engar mótsagnir í frásögn Pistorius
Þykir styrkja vörn fatlaða hlauparans í rannsókninni vegna dauða unnustunnar en nokkur
fyrirtæki eru nú þegar hætt að nota hann í auglýsingum sínum þótt dómur hafi ekki fallið
AFP
Beygður Pistorius í réttarsal í Pretoríu í gær.
Hann hefur oft brostið í grát í vitnaleiðslunum.
draga úr trúverðugleika vitnanna að mað-
urinn sem sagðist hafa heyrt rifrildi var að
sögn Botha staddur á svölum í um 600 metra
fjarlægð frá húsi Pistorius en sá þar ljós. Síð-
ar breytti Botha þó tölunni og sagði nú
manninn hafa verið í um 300 metra fjarlægð.
Sjálfur segir Pistorius að ekki hafi verið um
neinar deilur að ræða, hann hafi verið sof-
andi þar til hann heyrði þrusk sem hann taldi
vera frá þjófi. Hann hafi þá staulast fram án
þess að setja á sig gervifæturna. En Botha
segir sárin á líkinu benda til að það sé ekki
rétt, skotin hafi komið úr meiri hæð en svo.
Fyrirtæki segja skilið við Pistorius
Steenkamp var inni á örlitlu, lokuðu
baðherbergi þegar Pistorius skaut hana.
Verjendur bentu á að hún hafi reynst vera
með tóma þvagblöðru sem renndi stoðum
undir frásögn Pistorius um að hún hefði ekki
verið að flýja hann heldur farið á salernið.
Einnig kom fram að ekki voru nein merki um
slagsmál á líkinu. Dómþingi í málinu var í
gær frestað þar til í dag en tekist er á um það
hvort láta eigi íþróttamanninn lausan gegn
tryggingu. Er hugsanlegt að niðurstaða fáist
í dag.
Pistorius, sem er 26 ára, fæddist bækl-
aður og missti báða fætur í æsku, keppti við
góðan orðstír á Ólympíuleikunum í London.
Hann segist hafa elskað unnustu sína heitt
og sambandið hafi verið afar gott, hann syrgi
hana ákaft. Steenkamp var fyrirsæta, þótti
afar fríð og var mjög vinsæl. Lögreglumað-
urinn Botha sagði að Pistorius hefði áður
verið handtekinn fyrir líkamsárás á heimili
sínu en gat ekki tilgreint hvenær. Aldrei var
lögð fram kæra vegna árásarinnar.
Pistorius hefur hlaupið á gervifótum frá
íslenska stoðtækjafyrirtækinu Össuri sem
notar hann í kynningu. Franska snyrtivöru-
fyrirtækið Clarins ætlar nú að hætta að birta
auglýsingar með hlauparanum og fleiri fyrir-
tæki hafa yfirgefið hann.
Forseti Túnis,
Moncef Mar-
zouki, átti í gær
bráðafundi með
stjórnmálaleið-
togum til að
ræða stöðuna eft-
ir skyndilega af-
sögn Hamadis
Jebalis forsætis-
ráðherra á
þriðjudag. Sjálfur vill Jebali að
stjórn óháðra sérfræðinga taki við.
Komið hefur til blóðugra mót-
mæla eftir morðið á einum þekkt-
asta leiðtoga stjórnarandstæðinga
á vinstrivængnum, Chokri Belaid,
6. febrúar. Fjölskylda hans hefur
kennt stjórnarflokki Jebalis, En-
nahda, um morðið en enginn hefur
gengist við því. kjon@mbl.is
Marzouki forseti
kannar möguleika
á stjórnarmyndun
Moncef Marzouki
TÚNIS
Hugsanlegt er að orsök útbreiddra
sjúkdóma eins og offitu, sykursýki
og sumra krabbameina sé í ríkara
mæli en álitið hefur verið ýmis
efnasambönd í manngerðum hlut-
um, segir á vef Dagens Nyheter.
Algengara hefur verið að nefna
efni í mat í þessu sambandi. Vitnað
er í nýja skýrslu SÞ og Alþjóðaheil-
brigðisstofnunarinnar, WHO, þar
sem segir að erfðaeiginleikar geti
ekki skýrt aukna tíðni þessara sjúk-
dóma. Höfundar hennar nefna sem
líklega orsakavalda PCB, einnig
ýmis eld-tefjandi efni, einnig blý og
kvikasilfur. kjon@mbl.is
Hættuleg efni í
algengum hlutum
SKÝRSLA SÞ OG WHO
Samtök franskra
gyðinga sögðu í
gær að árásum
og hótunum í
garð fólks úr
röðum gyðinga
hefði fjölgað um
58% frá því að
hryðjuverkamað-
ur réðst á gyð-
ingaskóla og
myrti þrjú börn
og þrjá hermenn í fyrra. Gyð-
ingaleiðtoginn Richard Prasquier
sagði svo komið að gyðingar þyrftu
nú vernd þegar þeir „fara í skóla,
koma saman eða biðja“. kjon@mbl.is
Árásum á gyðinga
fjölgar mikið
Ráðist er einnig á
grafreiti gyðinga.
FRAKKLAND
Á PARKETI OG FLÍSU
M 20-30% AFSLÁTTUR
TILBOÐSDAGAR
Dalvegi 10-14 ▪ 201 Kópavogur
Sími 595 0570 ▪ www.parki.is