Morgunblaðið - 21.02.2013, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2013
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Þeir sem sér-þekkingu hafa
og hagsmuna eiga
að gæta fá alla
jafna nægan tíma
til að veita um-
sagnir um frum-
vörp, ekki síst þeg-
ar mikið er í húfi. Þegar
undirstöðuatvinnuvegur þjóð-
arinnar er í spilinu ákveða
stjórnarflokkarnir hins vegar
að gefa aðeins um viku til að
vinna umsagnir og þegar
kvartað er undan þessu segir
forystumaður stjórnarliða í
málaflokknum að gagnrýnin sé
stormur í vatnsglasi.
Þetta eru ámóta sannfær-
andi viðbrögð og hjá forystu-
manni stjórnarliða í stjórnar-
skrármálinu, sem heldur því
fram að enginn efnislegur
ágreiningur sé um það mál. Þar
er ágreiningurinn sem sagt
einnig stormur í vatnsglasi.
Svona tal þjónar auðvitað
engum tilgangi en sýnir vel að
stjórnarliðar eru algerlega
búnir að missa stjórn á að-
stæðum á þingi og
reyna nú að breiða
yfir þá staðreynd
að allt er þar í bull-
andi ágreiningi um
helstu mál og eng-
in leið að þau fáist
afgreidd, að
minnsta kosti ekki með eðlileg-
um hætti.
En þó að tíminn til að vinna
umsagnir við fiskveiðistjórn-
arfrumvarpið sé allt of skamm-
ur hafa einhverjar umsagnir
þegar borist þingnefndinni,
enda vita þeir sem myndu
þurfa að búa við löggjöfina hve
mikið er í húfi.
Almennt er ágætur sam-
hljómur í umsögnunum að því
leyti að þær eru mjög gagn-
rýnar á frumvarpið. Það helsta
sem skilur á milli er hvort
þetta frumvarp er talið ill-
skárra eða enn verra en það
sem ríkisstjórnin bar síðast á
borð fyrir þingið. En breytir
það einhverju þegar samstaða
er um að málið er stór-
skaðlegt?
Áhöld eru um hvort
frumvarp um stjórn
fiskveiða er enn
verra en fyrra frum-
varp eða illskárra}
Stórskaðlegt frumvarp
Oft hafafréttaskýr-endur í
Evrópu afskrifað
Silvio Berlusconi í
ítölskum stjórn-
málum. Fyrir síð-
ustu kosningar
fluttu helstu blöð á norðan-
verðu meginlandinu og handan
Ermarsundsins reglubundið
fréttir, sem sagðar voru byggð-
ar á skoðanakönnunum um að
Berlusconi myndi fá hörmulega
útreið í kosningum. Úrslitin
urðu hins vegar á þann veg að
engu var líkara en skoðana-
kannanirnar hefðu verið tekn-
ar á ritstjórnarskrifstofunum
en ekki suður á Ítalíu.
Nú eru nýjar kosningar
framundan. Og Berlusconi
ákvað óvænt að skella sér í
slaginn, þótt hann sé kominn
vel á áttræðisaldur. Hann hef-
ur fengið bærilegan byr, en þó
er fjarri því útséð um að það
dugi honum til að komast í lyk-
ilstöðu á ný.
Í upphafi kosningabarátt-
unnar sagði Mario Monti, for-
sætisráðherrann, sem Brussel
valdi og sendi með flugpósti til
Rómar, að Evrópusambandið
hefði áhyggjur af því ef Berlus-
coni kæmist aftur til áhrifa.
Monti hefði betur ekki misst
þetta út úr sér því fylgi Berlus-
conis jókst verulega þegar í
stað. En nú eru ráðamenn í
Þýskalandi teknir
að vara kjósendur
á Ítalíu við að
styðja Berlusconi í
þingkosningunum
um helgina. Wolf-
gang Schäuble
fjármálaráðherra
reið á vaðið í samtali við ítalska
tímaritið l’Espresso í síðustu
viku, þar sem hann sagðist ráð-
leggja ítölskum kjósendum að
gera ekki þau mistök aftur að
kjósa Berlusconi. Westerwelle,
utanríkisráðherra Þýskalands,
hefur einnig verið með lítt dul-
búnar viðvaranir til ítalskra
kjósenda.
Ekki þarf að efast um að
þessir tveir ráðherrar þýsku
ríkisstjórnarinnar telja sig
hafa lög að mæla og að endur-
koma Berlusconis í valdsæti í
Róm gæti gert Brussel og
Berlín erfiðara að halda lífi í
björgunaraðgerðum evrunnar.
Samt ættu þeir í sjálfumgleði
sinni að geta gert sér grein
fyrir því, að utanaðkomandi
afskipti af kosningum mælast
hvergi vel fyrir. Jafnvel á Ís-
landi, þar sem ESB veitir ólög-
lega hundruð milljóna til áróð-
urs fyrir stefnu, sem aðeins
einn burðugur stjórnmála-
flokkur stendur fyrir hér, gæti
það mútufé fremur orðið mál-
stað Samfylkingarinnar til
bölvunar en gagns, þegar upp
verður talið.
Reynslan sýnir að
menn ættu að fara
varlega við að hafa
vit fyrir kjósendum
í öðrum löndum}
Brussel, Berlín
og Berlusconi
F
ulltrúar í stjórnlagaráði hafa lengi
haft hátt um það að þeir náðu sátt
um tillögur að nýrri stjórnarskrá
án þess að takast á. Þetta þykir
þeim mjög til eftirbreytni, en
gleyma vísvitandi að geta þess að tillögurnar
voru svo óburðugar og óbrúklegar að færustu
sérfræðingar hafa gert alvarlegar athugasemd-
ir við þær.
Fulltrúar Bjartrar framtíðar og einstaka
stjórnmálamenn í öðrum flokkum tala svo fjálg-
lega um þörfina á stjórnmálum án átaka. Þeir
telja að allir flokkar eigi að stunda friðsamleg
stjórnmál og frábiðja sér átök – svona rétt eins
og stjórnlagaráðsfulltrúarnir sem hófu víst
fundi sína með því að syngja saman og luku
þeim sennilega einnig með söngli. Allir í kór að
syngja sama lagið. Viljum við virkilega að
stjórnmálin verði þannig?
Það er lágmarkskrafa að þeir sem leggja út á braut
stjórnmála hafi pólitíska sýn og skýra hugmyndafræði.
Stjórnmálamenn þurfa að búa yfir vissum sveigjanleika,
öðruvísi er víst ekki hægt að mynda ríkisstjórn tveggja eða
fleiri flokka. Stjórnmálamenn eiga hins vegar ekki að veita
magnafslátt af stefnu sinni vegna þess eins að það sé svo
óæskilegt að stunda átakastjórnmál.
Ríkisstjórn hvers tíma þarf aðhald og reynslan sýnir að
þær eru ekki færar um að veita sér þetta aðhald sjálfar. Þá
kemur að stjórnarandstöðunni. Það er hennar að standa
vaktina, benda á það sem betur má fara og ef nauðsynlegt
er á hún að hamast á ríkisstjórninni. Ríkis-
stjórnir leiðast svo auðveldlega út á villigötur,
eins og dæmin sanna, og þá er það ekki hlut-
verk stjórnarandstöðu að verða meðvirk og
skunda á samningafund við ríkistjórnina til að
halda pólitískan frið.
Stjórnmálamenn í ólíkum flokkum geta átt
afar vinsamleg persónuleg samskipti en þeir
eiga líka að geta tekist harkalega á um málefni.
Þar eiga menn rétt á því að fá að ganga vask-
lega fram og tala af þunga. Það er ekki hægt að
ætlast til að þeir hlaupi á næsta fund með póli-
tískum andstæðingum þar sem báðir veita stór-
felldan afslátt af skoðunum sínum þannig að úr
verður sérkennileg moðsuða sem engu skilar.
Það lýsir pempíuskap að kveina og jesúsa sig
í hvert sinn sem íslenskir stjórnmálamenn tak-
ast harkalega á. Stjórnmálamaður sem hefur
hugsjón í ákveðnum málum hlýtur að fylgja sannfæringu
sinni. Hann tekur kannski stundum sterkt til orða í póli-
tískri umræðu en á líka rétt á því. Hann þarf samt að
þekkja mörkin og tala til dæmis ekki eins og Björn Valur
Gíslason, þingmaður Vinstri grænna, sem hefur sérhæft
sig í dónaskap, sem fáir vildu kveðið hafa.
Það er ekkert rangt við að menn takist á um hugmyndir.
Slík átök eru nauðsynleg í lýðræðisþjóðfélagi. Hættulegra
er ef menn hætta að takast á og ríkisstjórn og stjórnarand-
staða renna saman og verða að einum massa. Þá er ekki
lengur skoðanaágreiningur, heldur fremur aumlegt lýð-
ræði. kolbrun@mbl.is
Kolbrún
Bergþórsdóttir
Pistill
Nauðsynleg átakastjórnmál
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjórar:
Davíð Oddsson Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Útgefandi:
Óskar Magnússon
FRÉTTASKÝRING
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Þingsályktunartillaga SivjarFriðleifsdóttur, þing-manns Framsóknarflokks-ins, um forvirkar rann-
sóknarheimildir lögreglu var
samþykkt úr allsherjar- og mennta-
málanefnd Alþingis í síðustu viku og
var málið tekið á dagskrá þingsins til
síðari umræðu í gærkvöldi. Um-
ræðunni var þá frestað vegna óska
þingflokksformanns VG.
Málið er eðlis síns vegna um-
deilt en forvirkar rannsóknarheim-
ildir ganga lengra en almennt tíðk-
ast á Íslandi í dag. Munurinn er
fyrst og fremst fólginn í því að í dag
er kveðið á um það í lögum um með-
ferð sakamála að lögregla skuli hve-
nær sem þess er þörf að hefja rann-
sókn út af vitneskju eða grun um að
refsivert brot hafi verið framið. Með
forvirkum rannsóknarheimildum er
miðað við að hefja rannsókn áður en
glæpur er framinn í þeim tilgangi að
koma í veg fyrir brot.
Skipulögð glæpastarfsemi
Eðli og umfang skipulagðrar
glæpastarfsemi er breytt frá því
sem áður var og telja því margir
eðlilegt að mæta þeirri þróun með
auknum rannsóknarheimildum lög-
reglu líkt og víða hefur verið gert á
Norðurlöndum. Rannsóknin beinist
þá fyrst og fremst að atferli sem tal-
ið er ógna almenningi, öryggi ríkis-
ins og sjálfstæði þess. Lögreglu-
yfirvöld á Norðurlöndum telja að
þessar heimildir hafi verið ómetan-
legar í baráttunni sinni gegn skipu-
lagðri glæpastarfsemi, mansali,
fíkniefnainnflutningi og hryðju-
verkaógn. Í greinargerð með þings-
ályktunartillögunni er m.a. bent á að
nýlega hafi lögreglan í Danmörku og
Svíþjóð komið í veg fyrir fyrirhugað
fjöldamorð á starfsfólki Jyllands-
posten vegna slíkra rannsókn-
arvinnu sem forvirkar rannsókn-
arheimildir veittu lögreglu.
Mat ríkislögreglustjóra
Í mati lögreglunnar á skipu-
lagðri glæpastarfsemi og hættu á
hryðjuverkum frá því í mars 2010 er
talið að ein af afleiðingum hrunsins
haustið 2008 sé aukin starfsemi
glæpasamtaka en í matinu segir:
„Erfitt efnahagsástand og mikið at-
vinnuleysi mun á næstu árum setja
mark sitt á þá skipulögðu glæpa-
starfsemi sem haldið er uppi á Ís-
landi. Umskiptum þessum fylgir að
nýir möguleikar munu skapast fyrir
afbrotamenn.“
Þá er einnig horft til aukinnar
hörku í handrukkun, skipulögðum
innbrotum og innflutningi og fram-
leiðslu fíkniefna. Lögreglan hefur
því bent á það ásamt m.a. Ríkis-
endurskoðun að hér vanti forvirkar
rannsóknarheimildir.
Hætta á misnotkun
Jón Þór Ólason, lektor við laga-
deild Háskóla Íslands, segir að huga
þurfi að þáttum eins og friðhelgi
einkalífs sem nýtur verndar stjórn-
arskrárinnar og Mannréttinda-
sáttmála Evrópu. „Það hafa komið
upp mál á Norðurlöndum þar sem
sýnt hefur verið fram á að hægt sé
að misnota heimildirnar í óæskileg-
um tilgangi,“ segir Jón en hann
bendir á að tilgangur og markmið
heimildanna verði að vera skýr.
„Eins og þetta hefur verið lagt
fyrir hér á landi er tilgang-
urinn að rannsaka og sporna
við skipulagðri glæpastarf-
semi.“ Jón telur eðlilegt að
umræða verði um það
hversu langt megi og
eigi að ganga í rann-
sóknarheimildum og
að löggjöfin um þær
verði síðan skýr.
Forvirkar rannsókn-
arheimildir ræddar
Morgunblaðið/Ernir
Lögreglan Forvirkar rannsóknarheimildir tíðkast víða í nágrannalönd-
um Íslands og er krafa hér á landi að taka upp slíkar heimildir.
Siv Friðleifsdóttir, þingmaður
Framsóknarflokksins, telur það
afar mikilvægt fyrir öryggi
borgaranna að lögreglan hér á
landi fái sambærilegar heimildir
og gengur og gerist annars
staðar á Norðurlöndunum. „Það
er fráleitt að lögreglan á Íslandi
skuli ekki hafa sömu rannsókn-
arheimildir og þekkist víðast
hvar í Evrópu og Norðurlöndum.
Þess vegna er mikilvægt að við
hefjum þá vinnu að skoða með
hvaða hætti við getum tekið
upp forvirkar rannsóknarheim-
ildir,“ segir Siv en leggur
þó áherslu á að standa
þurfi mjög vel að málinu
og gæta að öllu eftirliti
með framkvæmd slíkra
heimilda og að lög-
gjöfin um þær verði
skýr. Hún býst við
því að meirihluti sé
fyrir málinu á Al-
þingi.
Krefst öflugs
eftirlits
RANNSÓKNARHEIMILDIR
Siv
Friðleifsdóttir