Morgunblaðið - 21.02.2013, Síða 39
ÍSLENDINGAR 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2013
Úr frændgarði Karenar Sævarsdóttur
Karen
Sævarsdóttir
Sigríður Sigurðardóttir
húsfr. á Hnjóti
Magnús Árnason
b. á Hnjóti
Kristjana Magnúsdóttir
húsfr. í Keflavík
Sigurþór Guðfinnsson
útgerðarm. í Keflavík
Guðfinna Sigurþórsdóttir
fyrrv. skrifstofum. í Keflavík
og þrefaldur
Íslandsmeistari í golfi
Þorgerður Þóroddsdóttir
húsfr. í Keflavík
Guðfinnur Eiríksson
útgerðarm. í Keflavík
Kristín Sigríður Halldórsdóttir
húsfr. á Hallsstöðum
Guðbrandur Jónsson
b. á Hallsstöðum í Dölum
Vigdís Guðbrandsdóttir
húsfr. í Keflavík
Sævar Breiðfjörð Sörensson
fyrrv. rafveitustj. í Keflavík
Gróa Davíðsdóttir
saumakona í Stykkishólmi
Valentínus Oddsson
sjóm. í Stykkishólmi
Ólafur Magnússon
b. á Hnjóti í Örlygshöfn
Egill Ólafsson
b. og safnvörður á Hnjóti
Magnús
Eiríksson
tónskáld og
tónlistarm.
Eiríkur
Ólafsson
loftskeytam.
í Rvík
Ingibjörg Eiríksdóttir
húsfr. í Grænumýri á
Seltjarnarnesi
Sigurður
lóðs á
Breiðafirði
Hafsteinn
Sigurðsson
tónlistarkennari
í Stykkishólmi
Sören Valentínusarson
skipstj. og seglasaumari
í Stykkishólmi
Oddur Valentínusarson
hafsögum. í Stykkishólmi
þá að kenna golf hér á landi, var
íþróttastjóri hjá Golfklúbbi Suð-
urnesja um skeið, var viðskiptastjóri
hjá DHL á Íslandi en hóf störf við
Landsbankann árið 2011 og hefur
starfað þar síðan. Þá hefur hún starf-
rækt fyrirtækið Einfalt golf, rekur
þar golfkennslu og þjálfun og heldur
úti vefsvæðinu www.einfaltgolf.is
Karen hefur starfað með FKA, Fé-
lagi kvenna í atvinnurekstri og tekið
þátt í félagsstarfi GS. Hún æfði og
keppti í körfubolta með ÍBK og varð
Íslandsmeistari með yngri flokkum
þar.
Stórkostlegur íþróttaferill
Karen er sigursælust íslenskra
kvenna í golfi frá upphafi. Hún hóf að
æfa golf er hún var fimm ára, hóf að
keppa á golfmótum er hún var sex
ára, tók þátt í sínu fyrsta Íslandsmóti
stúlkna tíu ára, 1983, og lenti þá í
öðru sæti en varð Íslandsmeistari
stúlkna 1984-90, eða sjö ár í röð. Hún
varð golfmeistari Íslands í kvenna-
flokki 1989-96, eða átta ár í röð, Ís-
landsmeistari í holukeppni 1988,
1991-92 og 1994, meistari GS 1989-96
og golfmeistari Suðurnesja í kvenna-
flokki 1987-88. Þá varð hún í 2. sæti
einstaklinga á NM kvenna á Graf-
arholtsvelli 1992, í 3. sæti á NM
kvenna í Noregi 1990 og í 2. sæti ein-
staklinga á NM stúlkna á Jaðarsvelli
1991. Karen varð fyrst íslenskra
kvenkylfinga til að spila 72 holur und-
ir 300 höggum. Hún lék með landsliði
Íslands í golfi 1988-96 en hætti þá
sjálf vegna þátttöku í atvinnu-
mennsku í Bandaríkjunum á árunum
1996-98:
„ Það var auðvitað spennandi og
sérstök upplifun að reyna fyrir sér í
atvinnumennskunni í Bandaríkj-
unum. Ég lék um skeið á Futures
Tour og tók þátt í mótaröðum víða
um Bandaríkin. En það var strangur
skóli og afar fjárfrek iðja. Samt hefði
ég ekki viljað missa af þessari
reynslu.“
Karen er íþróttamanneskja af lífi
og sál: „Ég hef haft áhuga á íþróttum
frá því ég man eftir mér og sá áhugi
einskorðast ekki við golfið. Ég spila
auðvitað ennþá smá golf en nýt þess
mest þegar öll fjölskyldan er með.
Körfuboltinn er í miklu uppáhaldi og
ég fylgist vel með San Antiono Spurs
í NBA-deildinni en þeir eru mitt lið
frá því ég bjó í San Antonio í sjö ár.
Ég hlusta svo einnig mikið á tónlist
og hef áhuga á að elda góðan mat, hef
t.d. verið að þreifa mig áfram í sushi-
gerð.“
Fjölskylda
Karen er gift Heiði Björk Frið-
björnsdóttur, f. 19.12. 1987, viðskipta-
fræðingi. Foreldar hennar eru Frið-
björn Júlíusson og Sveinbjörg
Gunnlaugsdóttir.
Synir Karenar og Heiðar Bjarkar
eru Sören Cole K. Heiðarson, f. 5.9.
2006, og Victor Nóel K. Heiðarson, f.
6.11. 2011.
Bróðir Karenar er Sigurþór Sæv-
arsson, f. 21.4. 1968, rafvirki í Reykja-
nesbæ.
Foreldrar Karenar eru Sævar Sör-
ensson, f. 20.10. 1935, fyrrv. rafveitu-
stjóri Keflavíkurbæjar, og Guðfinna
Sigurþórsdóttir, f. 29.5. 1946, fyrrv.
skrifstofumaður í Keflavík, fyrsti Ís-
landsmeistari kvenna í golfi, 1967, og
síðan tvívegis Íslandsmeistari.
10 ára Karen þegar sigurferill
hennar var að hefjast.
Jörundur Brynjólfsson alþingis-
maður fæddist á Starmýri í Álfta-
firði eystra 21.2. 1884. Hann var
sonur Brynjólfs Jónssonar, bónda
þar, og k.h., Guðleifar Guðmunds-
dóttur húsfreyju.
Brynjólfur var sonur Jóns, b. í
Geithellnum Einarssonar, af
Presta-Högnaætt, og Hildar
Brynjólfsdóttur, systur Þorsteins,
langafa Brynjólfs Ingólfssonar
ráðuneytisstjóra.
Guðleif var dóttir Guðmundar, b.
á Starmýri Hjörleifssonar sterkra
Árnasonar sem var annar Hafnar-
bræðra.
Meðal barna Jörundar og fyrri
konu hans, Þjóðbjargar Þórðar-
dóttur kennara, var Haukur,
skólastjóri Bændaskólans á Hólum
sem lést 2002, en sonur Jörundar
og seinni konu hans, Guðrúnar
Helgu Dalmannsdóttur húsfreyju,
var Gaukur, prófessor og doktor í
lögum, hæstaréttardómari, dómari
við Mannréttindadómstól Evrópu
og fyrsti umboðsmaður Alþingis.
Jörundur lauk búfræðiprófi frá
Bændaskólanum á Hvanneyri
1906, kennaraprófi frá Kenn-
araskóla Íslands 1909 og stundaði
nám við Kennaraháskólann í
Kaupmannahöfn 1911-12. Hann
var kennari í Nesjahreppi 1907-
1908, við Miðbæjarskólann í
Reykjavík 1909-19, var bóndi í
Múla í Biskupstungum 1919-22, í
Skálholti 1922-48 og í Kald-
aðarnesi í Flóa 1948-63.
Jörundur sat í bæjarstjórn
Reykjavíkur 1916-19, var skipaður
í verðlagsnefnd og kosinn í bjarg-
ráðanefnd, var yfirskoðunarmaður
landsreikinga, síðar ríkisreikninga
1917-25 og 1937-63. Þá sat hann í
Norðurlandaráði.
Jörundur var kjörinn á þing fyr-
ir Alþýðuflokkinn 1916 og var því
fyrsti þingmaður jafnaðarmanna
1916-19. Hann söðlaði síðan um og
sat á þingi fyrir Framsóknarflokk-
inn í Árnessýslu 1923-56.
Jörundur var forseti sameinaðs
þings 1953-1956. Hann lést í hárri
elli 3.12. 1979.
Merkir Íslendingar
Jörundur
Brynjólfsson
103 ára
Ólöf Sigurrós Ólafsdóttir
95 ára
Kristján Þorgeirsson
90 ára
Árni Guðmundsson
Guðný O Halldórsdóttir
Kristján Guðmundsson
85 ára
Ragnar Hermannsson
Sigurborg Gísladóttir
80 ára
Arnþór Kristján Jónsson
Gerður Erla Tómasdóttir
Helgi Ármann Alfreðsson
Sigríður Guðmundsdóttir
Sigurgeir Garðarsson
70 ára
Helga A. Ingimundardóttir
60 ára
Andrea Gosselyn
Haraldsson
Elías Ólafsson
Hálfdán Jónsson
Helga Rósa Guðjónsdóttir
Oddný Indíana Jónsdóttir
Pétur Ólafur Hermannsson
Ragnar Duerke Hansen
Unnur María
Hjálmarsdóttir
Þóra Guðjónsdóttir
Þórir Sveinsson
50 ára
Arnaldur Þór Jónasson
Árni Þór Arnþórsson
Birgitta Hrönn
Sæmundsdóttir
Eiríkur Sveinbjörn
Reynisson
Elín Björg Ingólfsdóttir
Emilía Guðgeirsdóttir
Hallgerður Inga
Gestsdóttir
Helgi Guðbjörn Júlíusson
Ingimundur Bjarnason
Jóhann Ingi Jóhannsson
Jóna Björg Antonsdóttir
Karl Einarsson
Þórarinn Ólason
Þórunn Alexandersdóttir
40 ára
Baldur Snorrason
Björn Snorrason
Einar Guðmann
Örnólfsson
Gunnar Th. Sigurðsson
Helga Rúna Péturs
Kjartan Páll Magnússon
Kolbrún Ívarsdóttir
Sigfús Aðalsteinsson
Sigurgeir Pálsson
Úlfar Þór Davíðsson
30 ára
Aðalsteinn Sigurðsson
Elísabet Hjálmarsen
Ólafsdóttir
Halldór Fannar
Sigurfinnsson
Magnús Kjartan Eyjólfsson
Pétur Pétursson
Svanborg Sif
Sigurjónsdóttir
Til hamingju með daginn
30 ára Sverrir fæddist og
ólst upp í Reykjavík, lauk
hagfræðiprófi frá HÍ og er
sérfræðingur hjá slita-
stjórn Landsbankans.
Maki: Díana Dúa Helga-
dóttir, f. 1979, nemi.
Börn: Viktor Steinn, f.
21.2. 2008, og Unnur
Amalía, f. 11.10. 2011.
Foreldrar: Unnur Sverr-
isdóttir, f. 1959, lögfræð-
ingur í Reykjavík, og
Bergsteinn Georgsson, f.
1959, d. 2009, lögmaður.
Sverrir
Bergsteinsson
30 ára Sigríður ólst upp í
Kópavogi, stundar nú MA-
nám í kennslufræðum við
Menntavísindasvið HÍ.
Maki: Kristján Þórir Krist-
jánsson, f. 1979, pípu-
lagningamaður.
Synir: Styrmir Snær, f.
2005, og Brynjar Emil, f.
2007.
Foreldrar: Guðmundur
Jón Halldórsson, f. 1954,
húsasmiður, og Kolfinna
Ottósdóttir, f. 1956,
starfsm. við Skógarbæ.
Sigríður Heiða
Guðmundsdóttir
30 ára Sigþór ólst upp í
Skagafirði, er vélsmiður
að mennt og er bílstjóri,
búsettur á Krithóli.
Maki: Guðrún Ólafsdóttir,
f. 1976, skólaliði.
Dóttir: Rebekka Ósk, f.
2012.
Foreldrar: Sigurlaug Ey-
rún Sigurbjörnsdóttir, f.
1966, skólaliði, og Sveinn
Árnason, f. 1959, sjómað-
ur (fósturfaðir). Faðir:
Sigurður Leó Snæland
Ásgrímsson, f. 1954.
Sigþór Smári
Sigurðsson
Hægt er að senda
mynd og texta af
nýjum borgara eða
brúðhjónum af slóðinni
mbl.is/islendingar
eða á netfangið
islendingar@mbl.is
Börn og
brúðhjón
Eyfi Kristjáns spilar fyrir
gesti á laugardags- og
sunnudagskvöld
Rómantískur kvöldverður á Einari Ben
Konudagshelgin 22. - 24. febrúar.
Borðapantanir í síma 511-5090
Jarðskokkasúpa með ristuðum
hnetum og ástaraldin
Pönnusteikt bleikja með
smjörsteiktum strengja-
baunum, snjóbaunum,
hægelduðum hvítlauks humar
og jarðaberja froðu
Lítil gjöf frá starfsfólki
Einars Ben
Hægeldað nautafillet með
béarnaise kremi, fondant
kartöflu, stökku rótargrænmeti
og bordelaise sósu
Dökk súkkulaðimús með hvít-
súkkulaðifroðu og hindberjum
kr. 6.800 á mann