Morgunblaðið

Date
  • previous monthFebruary 2013next month
    MoTuWeThFrSaSu
    28293031123
    45678910
    11121314151617
    18192021222324
    25262728123
    45678910

Morgunblaðið - 21.02.2013, Page 40

Morgunblaðið - 21.02.2013, Page 40
40 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2013 Stórhöfða 17 | Sími 577 5555 | veggsport.is Komdu með í gott form Frír prufurtími Opnir tímar: Cross bells þriðjudaga og fimmtudaga, kl 12.00 og 17.15 laugardaga, kl. 10.00 Styrkir alla vöðva líkamans. Spinning mánudaga, miðvikudaga og föstudaga, kl 12.00 og 17.15 Mikill hraði og brennsla. Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Allt hópsamstarf rennur fram sem lygnt fljót. Um leið og þú rannsakar hvers- dagslegan hlut, verður hann áhugaverður. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú finnur til glaðværðar og bjartsýni sem nýtist vel til þess að ná árangri í nánast hverju sem er. Þú munt hitta einhvern sem er á sömu bylgjulengd og þú sjálfur. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Láttu ekki freistast til þess að eyða fé þínu í hluti, sem þú þarft ekkert á að halda. Raðaðu hlutunum eftir mikilvægi þeirra. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú þarft að leggja málin vandlega niður fyrir þér ef þú ætlar að ná þeim árangri sem þú stefnir að. Reiknaðu fólk út og farðu leiðina þar sem hindranirnar eru fæstar. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú ert svo kappsamur að sólarhring- urinn dugar þér ekki til að koma öllu því í verk sem þú vildir. Það getur reynst erfitt að snúa blaðinu við þegar deilur um viðkvæm málefni hafa farið úr böndunum. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þegar taka þarf stórar ákvarðanir er best að taka eitt skref í einu. Gættu þess bara að halda utan um þína nánustu eins og þeir gera um þig. 23. sept. - 22. okt.  Vog Einhvern tímann verður þú að hætta að hafa áhyggjur af því hvort eitthvað sé satt, rétt eða það gangi upp og láta bara vaða. Kvöldinu er best varið heimavið. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Láttu það ekki hvarfla að þér að kasta til höndunum við verk þín því þú færð þau bara í hausinn aftur. Nú eru skilyrði hag- stæð til þess að þú framkvæmir hlut sem þú hefur lengi ætlað þér. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Gætir þú haft betra starf? Hug- myndir þínar um auknar tekjur eiga rétt á sér. Mál sem tengjast menntun barna, útgáfu og fjölmiðlun munu einnig ganga vel. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þótt þú hljótir ekki verðlaunin, mun það gefa þér margt í aðra hönd að hafa átt hlut að máli. Dagurinn hentar vel til að gera ferðaáætlanir með einhverjum nánum. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þið hafið þörf fyrir tilbreytingu og ættuð því að bregða út af vananum og gera eitthvað óvenjulegt í dag. Bíddu ekki eftir öðrum heldur taktu strax til þinna ráða. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú ert kappsamur, sem er gott en enginn árangur fæst með rökræðum eins og staðan er nú. Þú þarf ekki að gera eitthvað áberandi eða meiriháttar til að falla í kramið. Steinunn P. Hafstað ákvað aðlífga upp á fésbókarsíðuna sína, sem sumir höfðu sagt að væri orðin leiðinleg. „Í stuttu máli ætla ég að segja ykkur frá hundalífinu sem ég lifi og gef mér fyrirfram að í lok mánaðarins munið þið e.t.v. hugsa að kannske sé svona líf ein- hvers virði.“ Hún stóð við það 1. febrúar og skrifaði: „Hvar skal byrja, hvar skal standa? Bragi leysir brátt úr vanda … Bólfélagi bætir allt á breyskum stundum. Finnst nú kannske sumum svalt að sinna hundum! Ráðskona húsbóndans á þessu heimili datt illa á betri höndina á svelli í fyrradag, sem hulið var ný- föllnum snjó. Við illan leik og skerta meðvitund komst konu- kindin inn í rúm, búin að æla af sársauka, vinda um hendina bakstri með arnicu beint frá París og draga draumaprinsinn uppí. Sama, þótt hún hljóðaði, hann hringaði sig bara og bjóst til svefns, sem sagði meir en mörg orð. Sumir hefðu kannske kallað á lækni eða fengið sér eina róandi. 11 klukkutímum seinna vaknaði konan alheil að heita má. Spurning hvort sinnti hinu þarna!“ Daginn eftir hélt Steinunn áfram skemmtilegum skrifum sínum á fésbókinni: „Götur okkar löngu lagðar liggja um heiminn vítt og breitt. Skondnar reynslusögur sagðar, sumar kannske um ekki neitt! Undin og snúin fórum við fram úr í morgun, gutum hornauga hvort til annars og hugsuðum örugglega bæði: „Gott væri nú að fá morgunverð í rúmið í dag.“ Á göngutúr okkar um nágrennið stuttu seinna fannst konunni þau vera smækkuð mynd af sólkerfinu. Hún var jörðin, hann tunglið, sem alltaf fer sömu braut kringum hana og alltaf fara þau sama hringinn um sólina, sem er heimilið þeirra. Hann vill hafa þetta svona, og henni hefur lærst, að jafnvægi hans byggist á regluverki sem þessu. Auðvitað fannst henni þetta „hundleiðinlegt“ í fyrstu, en er nú smám saman orðið ljóst, að þetta er það sem kallað er „hundalíf“ og finnst auðvitað sjálfsagt, að þeir, sem þetta lesa, fái ekki alveg strax að vita, hvernig sá skilningur kviknaði.“ Pétur Blöndal pebl@mbl.is Vísnahorn Af kveðskap, fésbók og sannkölluðu hundalífi Í klípu „ÞRÍR KRAKKAR, FULLT STARF, KVÖLD- SKÓLI OG SVO ÞJÁLFAR HÚN KÖRFU- BOLTALIÐ STÚLKNA. ÞAÐ ER EKKI NEMA VON AÐ HÚN SÉ TOGUÐ OG TEYGÐ.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÉG GERI RÁÐ FYRIR AÐ ÞÚ VITIR AÐ MAMMA KALLAR ÞIG SPÓALEGG ÞEGAR ÞÚ HEYRIR EKKI TIL.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... samband eins og okkar. FLJÓTT, SPURÐU SIGL- INGAFRÆÐINGINN HVAR VIÐ ERUM! GET ÞAÐ EKKI, HANN VAR AÐ HÆTTA! MJÁ! KVAK! KVAK! MUUUUUUU! GAGGALA GAGGALA GÓÓÓ! EKKI SEGJA UPP VINNUNNI ÞINNI.Víkverji fylgdist á sínum tímafurðu lostinn með afrekum Michaels Jordans á körfuboltavell- inum. Hann lék með Chicago Bulls og honum virtist ekkert ómögulegt. Jordan lék fyrst í NBA árið 1984. Eins ólíklegt og það kann að virðast í ljósi sögunnar var hann valinn þriðji í nýliðavalinu það árið. Houston Rockets og Portland Trailblazers áttu fyrsta valrétt og köstuðu upp á hvort veldi á undan. Hvorugt liðið hafði Jordan í huga. Houston valdi fyrst og tók miðvörðinn Hakeem Olajuwon, sem átti eftir að setja sitt mark á deildina og gerði lið sitt tvisvar að meisturum. Portland valdi Sam Bowie, sem hafði staðið sig vel í háskóla. Valið hljómaði ef til vill skynsamlega á þeim tíma, en hefur síðar verið kallað mestu mistök sög- unnar í nýliðavalinu í NBA. Chicago átti þriðja val og tók Jordan. Árið 1986 skoraði Jordan 63 stig gegn Boston Celtics í úrslitakeppninni. Eftir leikinn, sem Boston reyndar vann, sagði Larry Bird, leikmaður Celtics, að hann hefði ekki talið að nokkur leikmaður gæti náð slíkri frammistöðu gegn sér og félögum sínum: „Ég held að þetta sé guð dulbúinn sem Michael Jordan.“ x x x Jordan vann ekki fyrsta meist-aratitilinn í NBA fyrr en 1991, sitt sjöunda tímabil í deildinni. Bulls unnu þrisvar í röð, en þá tók Jordan þá undarlegu ákvörðun að snúa sér að hafnabolta. Hann gerði engar rósir á hafnaboltavellinum, en hélt út í rúmt ár. Einu og hálfu tímabili síðar ákvað hann að snúa aftur. Chi- cago varð ekki meistari það árið, en næstu þrjú árin eftir það, 1996, 1997 og 1998, náði Jordan í meistaratitla og urðu þeir því alls sex. Margir velta því fyrir sér hvort meistaratitl- arnir hefðu orðið átta hefði hann lát- ið útúrdúrinn í hafnaboltann eiga sig. x x x Jordan er nú meðeigandi liðsinsCharlotte Bobcats. Hann mun stundum taka þátt í æfingum liðsins og var haft eftir nýliða í liðinu að hann myndi enn geta skilað sínu í NBA og skorað tíu stig í leik. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Lofsöngur Maríu. Og María sagði: Önd mín miklar Drottin og andi minn gleðst í Guði, frelsara mínum. (Lúkasarguðspjall 1:46-47)

x

Morgunblaðið

Gerð af titli:
Flokkur:
Gegnir:
ISSN:
1021-7266
Tungumál:
Árgangar:
111
Fjöldi tölublaða/hefta:
55740
Skráðar greinar:
3
Gefið út:
1913-í dag
Myndað til:
30.09.2024
Skv. samningi við Árvakur útgáfufélag Morgunblaðsins er ekki hægt að sýna efni frá síðustu þremur árum Morgunblaðsins í almennum aðgangi á Tímarit.is.
Útgáfustaðir:
Ritstjóri:
Vilhjálmur Finsen (1913-1921)
Þorsteinn Gíslason (1921-1924)
Jón Kjartansson (1924-1947)
Valtýr Stefánsson (1924-1963)
Sigurður Bjarnason frá Vigur (1963-1970)
Matthías Johannessen (1959-2000)
Eyjólfur Konráð Jónsson (1960-1974)
Styrmir Gunnarsson (1972-2008)
Ólafur Þ. Stephensen (2008-2009)
Davíð Oddsson (2009-í dag)
Haraldur Johannessen (2009-í dag)
Útgefandi:
Félag í Reykjavík (1924-1947)
Árvakur (1947-í dag)
Efnisorð:
Lýsing:
Dagblað. Fréttir og greinar um innlend sem erlend málefni.
Styrktaraðili:
Fylgirit:

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue: 43. tölublað (21.02.2013)
https://timarit.is/issue/370922

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.

43. tölublað (21.02.2013)

Actions: