Morgunblaðið - 21.02.2013, Side 42
42 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2013
„Vínarklassík á norðurhjara“ er yf-
irskrift tónleika sem verða í Ak-
ureyrarkirkju í kvöld kl. 20. Þar
leikur Tígulkvartettinn strengja-
kvartetta nr. 2 í G dúr eftir W.A.
Mozart og nr. 1 í F dúr eftir L. van
Beethoven. Einnig verður leikið
Lundúnatríó eftir J. Haydn. Kvart-
ettinn skipa þau Zsuzsanna Bitay á
fiðlu, Tomasz Kolosowski á fiðlu,
Pawel Kolosowski á víólu og Ásdís
Arnardóttir á selló. Gestur á tón-
leikunum er Petrea Óskarsdóttir
þverflautuleikari.
Tónar Tígulkvartettinn leikur í kvöld.
Vínarklassík á
norðurhjara
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Þegar ég leikstýrði Galdrakarlinum
í Oz í fyrra var ég sannfærður um að
þetta yrði ekki stærra, en það
reyndist hægt,“ segir Bergur Þór
Ingólfsson sem leikstýrir söng-
leiknum Mary Poppins sem frum-
sýndur verður á stóra sviði Borg-
arleikhússins annað kvöld kl. 20.
Vísar hann til þess að Mary Poppins
er viðamesta og flóknasta sýningin
sem Borgarleikhúsið hefur nokkru
sinni ráðist í. Alls eru 50 manns á
sviðinu, þ.e. 15 leikarar, 17 manna
kór og dansarar Íslenska dans-
flokksins, 10 manna hljómsveit og
fjögur börn, auk þess sem mikill
fjöldi starfsmanna tekur þátt á bak
við tjöldin.
Spurður hvort eitthvað hafi komið
sér á óvart í uppsetningarferlinu
hugsar Bergur sig vel um og svarar
svo: „Ég verð að viðurkenna að það
kom mér á óvart að það skyldi vera
hægt að setja upp svona stóra og
flókna sýningu hjá litlu leikfélagi í
Reykjavík. Ég efaðist reyndar aldrei
um það þegar vinnuferlið fór af stað
að þetta væri hægt, en eftir á er ég
samt hissa að þetta hafi í raun geng-
ið upp. Það er magnað að við skulum
eiga alla þessa flottu leikara, söngv-
ara og dansara. Svo ekki sé minnst á
tæknifólkið sem leysir á einfaldan
hátt brellur sem kosta fjárlög ís-
lensku þjóðarinnar í stóru leikhús-
unum á West End og Broadway,“
segir Bergur.
Nýstárlega uppeldisaðferðir
Í samtali við Morgunblaðið segist
Bergur hvorki hafa lesið bækurnar
um Mary Poppins sem barn né held-
ur lesið þær fyrir börnin sín. „Það er
hins vegar æðislegt að fá að kynnast
henni á fullorðinsaldri. Bæði leik-
gerðin og bækurnar birta mjög
skemmtilega sálfræðistúdíu um
þennan töfraþerapista sem kemur
og reynir að binda fjölskyldu saman
sem átt hefur við andlega vannær-
ingu og tengslaskort að stríða,“ seg-
ir Bergur og tekur fram að vinsældir
barnfóstrunnar megi vafalítið skýra
með uppeldisaðferðum hennar sem
þóttu mjög svo nýstárlegar þegar
bækurnar komu fyrst út. „Ég býst
nú við að það sem hafi gert hana
svona skemmtilega á sínum tíma sé
sú uppreisn við þáverandi uppeldis-
aðferðir sem höfundur kynnir.
Þannig vill Mary Poppins frekar
verðlauna börnin fyrir góða hegðun
en að refsa þeim fyrir slæma. Auk
þess leggur hún mikla áherslu á
mikilvægi ímyndunaraflsins,“ segir
Bergur og tekur fram að sú áhersla
sé í samhljóman við sýn hans sem
listamanns. „Við þurfum á sögum
halda til jafns við mat og drykk, ann-
ars verðum við vannærð og getum
ekki kallað samskiptin á milli okkar
menningu.“
Aðspurður segist Bergur hafa
byrjað að undirbúa uppsetninguna
fyrir níu mánuðum þegar honum
bauðst verkefnið. Segist hann m.a.
hafa kynnt sér leikgerðina í þaula,
lesið vel allar bækurnar átta um
Mary Poppins eftir Pamelu Lyndon
Travers sem út komu á árunum
1934-1988 og horft á Disney-
kvikmyndina með Julie Andrews í
aðahlutverki frá árinu 1964.
Þurft að ganga milli klaustra
„Internetið er stórkostlegt, en án
þess hefði ég þurft að ganga á milli
bókasafna í klaustrum í Evrópu í
fjögur til fimm ár til að leita að mér
upplýsinga,“ segir Bergur og tekur
fram að hann hafi óspart nýtt sér
Google-leitarvélina og Youtube til
þess að undirbúa sig.
„Síðan tóku við mikilvæg samtöl
við listræna stjórnendur sýning-
arinnar,“ segir Bergur og tekur
fram að hann hafi eytt þremur mán-
uðum í að leita að rétta danshöfund-
inum, Lee Proud, og leikmynda-
hönnuðinum, Petr Hloušek, en
uppfærsla Borgarleikhússins er ekki
svonefnd pakkasýning, þannig að
allt útlit sýningarinnar og dansatriði
eru ný af nálinni. „Það var ótrúleg
heppni að finna þá og fá til liðs við
okkur, en þeir eru fáránlega færir
og flottir hvor á sínu sviði,“ segir
Bergur og lýkur jafnframt lofsorði á
Maríu Ólafsdóttur sem hannar bún-
inga sýningarinnar. „Hún vinnur allt
af mikilli natni og hugar að öllum
smáatriðum sem lyfta sýningunni
um nokkra flokka í gæðum.“
Felst þá lykillinn að góðri upp-
setningu í því að velja rétta sam-
starfsfólkið til liðs við sig?
„Já, tvímælalaust. Ég myndi segja
að ég hafi verið kominn ansi langt
með sýninguna þegar ég var búinn
að fá listræna stjórnendur um borð
og velja leikhópinn. Gott samstarf
felst í því að geta átt í samtali, treyst
fólki og að þurfa ekki að vera eigandi
hugmyndanna heldur gera fólki
kleift að vinna vinnuna sína.“
„Æðislegt að fá að kynnast
henni á fullorðinsaldri“
Söngleikurinn Mary Poppins frumsýndur á stóra sviði Borgarleikhússins annað kvöld kl. 20
Leikstjórinn Bergur Þór Ingólfsson segir lykilatriði að velja rétta samstarfsfólkið til liðs við sig
Ljósmynd/Grímur Bjarnason
Svífandi Jóhanna Vigdís Arnardóttir fer með hlutverk barnfóstrunnar Mary Poppins og dansar hér glöð í bragði með hópi sótara.
Trjáklippingar
Trjáfellingar
Stubbatæting
Vandvirk og snögg þjónusta
Sími 571 2000 | hreinirgardar.is