Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.02.2013, Side 16
*Ekki þarf að fara langt frá London til að upplifa enska sveitarómantík eins og hún gerist best »18Ferðalög og flakk
Namaste! Það verður seint sagt að höfuðborg Indlands, Delhi, hafi heillað
okkur. Á götum borgarinnar ríkir ringulreið og mikil fátækt blasir við. Í of-
análag voru mikil mótmæli í borginni sem leiddi til þess að við eyddum
gamlárskvöldi á ódýru hótelherbergi þar sem við snæddum ristað brauð
með frönskum kartöflum. Á nýársdag flugum við til Kerala-héraðs á suð-
vesturströnd Indlands. Héraðið er um margt sérstakt, þar klæðast karl-
menn síðu pilsi og kommúnistum er reglulega falin stjórn héraðsins í lýð-
ræðislegum kosningum. Við dvöldum fyrst í borginni Kochin hvar við
rákumst meðal annars á hótel sem rekið er af íslenskri konu. Því næst héld-
um við upp í fjöllin þar sem við gengum um plantekrurnar í Munnar og
létum æskudraum rætast og fórum í reiðtúr á fílsbaki. Nú erum við komin
aftur að ströndinni og næsta mál á dagskrá er fundur við mitt eigið sjálf
undir vikulangri leiðsögn jóga ashram í höfuðstað héraðsins Trivandrum.
Kveðja, Páll Eiríkur og Petra Granholm. Páll Eiríkur og Petra Granholm ferðast þessar vikurnar um Indland. Á fílsbaki í Munnar.
Reiðtúr á fílsbaki
Indland hefur lengi verið
draumaland þeirra hjóna.
PÓSTKORT F
RÁ INDLAND
I
Hvað heillaði þig við bæinn Visby?
„Visby er ótrúlega skemmtilegur miðaldabær sem hvílir inn-
an veggja myndalegra virkisveggja sem standa enn. Bærinn
innan múrsins er blanda af miðaldabyggingum og rústum frá
Hansatímabilinu og nokkurra alda gömlum litríkum skandinav-
ískum húsum. Ég skokkaði í kringum múrinn og svaf eina nótt
í fangelsi sem búið er að breyta í hostel. Ég og þáverandi kær-
asti minn fengum sitthvora kojuna í fangaklefa sem er kannski
ekki ýkja rómantískt enda færðum við okkur strax daginn eftir
yfir á aðeins meira lúxushótel. Það sem er svo krúttlegt við
þennan bæ er að þar er allt í göngufæri á steinlögðum strætum
og fullt af sætum kaffihúsum og veitingastöðum. Á sumrin er
þetta mjög vinsæll áfangastaður meðal Svía en þeir koma til
Visby til að fara á ströndina og slaka á í sumarfríinu.“
Lumarðu á góðum ráðum fyrir ferðalanga
sem vilja skoða sig um á Gotlandi?
„Á Gotlandi er hægt að sigla um á kanó, fara í hellaskoðun,
útreiðartúra, heimsækja stærsta safn Svíþjóðar undir berum
himni, spila golf, ferðast með gufulest, fara í bátaferðir eða í
sund í upphitaðri útisundlaug og margt fleira. Í annarri viku
ágúst er haldin árleg miðaldarahátíð frá sunnudegi til sunnu-
dags þar sem gestir hátíðarinnar klæðast miðaldabúningum,
skemmta sér og sækja ýmsa leika sem tíðkuðust á miðöldum.
Sannkallað ævintýri fyrir börnin. Á henni eru líka alls kyns
uppákomur, bæði leikverk og tónleikar sem og sérstakur mið-
aldamarkaður þar sem höndlað er með alls kyns varning.“
Lentirðu í einhverjum hremmingum í ferðinni?
„Held að þetta sé ein af fáum ferðum sem ég hef farið í án
þess að lenda í neinum hremmingum. Mér hefur tekist að fara
á klósett í skýjakljúfi í New York og sturta úrganginum niður á
neðri hæðina, ég hef verið rænd í Suður-Frakklandi og verið elt
af mafíu í Vínarborg. Þessi ferð var hins vegar bara krúttleg,
það eina sem gerðist var að við misstum af ferjunni til baka yf-
ir á meginlandið og þurftum að gista aukanótt. Það telst ekki til
mikilla hremminga í mínum bókum,“ segir Elín að lokum.
FERÐASAGA FRÁ VISBY
Svaf í
fangelsi
í Svíþjóð
ELÍN ARNAR, RITSTJÓRI VIKUNNAR, Á GÓÐAR
MINNINGAR FRÁ KRÚTTLEGA SMÁBÆNUM VISBY
Á GOTLANDI SEM HÚN HEIMSÓTTI Í FYRRA.
Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is
Einhverra hluta vegna eru
hrútastyttur víðsvegar
um bæinn Visby. Elín stillti
sér upp við eina þeirra.