Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.02.2013, Side 34
T
ölvur verða sífellt fyrirferðarmeiri í
okkar daglega lífi. Það þarf því eng-
an að undra að margir telja að inn-
an skamms verði það jafn sjálfsagt
að læra forritun í grunnskóla og annað
tungumál. Í millitíðinni er eðlilegt að spyrja
hvort við hin, sem ekki fengum neina
kennslu í forritun í skóla, ættum að kynna
okkur möguleikana sem standa okkur til
boða. Af hverju ekki? Það er nefnilega hægt
að komast ansi langt, án þess að skrá sig í
háskólanám í tölvunarfræði. Á undanförnum
árum hefur sprottið upp fjöldi vefsíðna þar
sem hægt er að læra grunninn í mörgum al-
gengustu forritunarmálum samtímans með
gagnvirkum æfingum og leikjaívafi. Slíku
sjálfsnámi í forritunarmáli má líkja við
tungumálanám með linguaphone, líkt og
margir kannast við. Hér eru nokkrar vefsíð-
ur, námskeið og námsbrautir sem geta hjálp-
að flestum af stað með að læra algengustu
forritunarmál vefsins, s.s. HTML/CSS, Java,
Ruby eða Python, svo eitthvað sé nefnt, og
byggja ofan á það þegar fram í sækir. Eina
skilyrðið er að vera sæmilega fær í ensku.
Code Academy (Frítt)
Vinsælasta síðan sem kennir forritun er lík-
lega Codeacademy.com. Þar má með til-
tölulega einföldum hætti læra undir-
stöðuatriðin í að byggja vefi, gera leiki eða
búa til símaforrit með gagnvirkum hætti og
léttum æfingum. Notendur lesa sér til um
lítinn hluta forritunarmálsins í einu, og fá
svo að láta reyna á skilninginn með því að
nota hann áður en lengra er haldið. Þannig
er byggt ofan á þekkinguna stig af stigi.
Hjá Code Academy er hægt að læra HTML/
CSS, Python, Ruby og JavaScript. Fyrir
byrjendur getur verið sniðugt og gaman að
skoða Code Year, þar sem notendum gefst
færi á að strengja heit fyrir árið og hægt
er að fylgjast með framgangi sínum og tala
við aðra sem eru í sömu sporum.
Learn Street (Frítt)
Líkt og Code Academy býður Learn-
street.com upp á gagnvirkt umhverfi og æf-
ingar sem líkjast leikjum. Notendur geta val-
ið sér misþung viðfangsefni, svo sem að
smíða hinn vinsæla Hangman-leik, eða búa
til reiknivél. Learn Street kennir Python,
Ruby og JavaScript. Þá er hægt að finna
vísbendingar þegar hlutirnir flækjast eða fá
hjálp í gegnum netspjall eða Twitter.
Team Tree House
Auk þeirra forritunarmála sem þegar hafa
verið nefnd býður Team Tree House upp á
námskeið í fleiri forritunarmálum, auk nám-
skeiða í gerð forrita fyrir iOS Apple- og
Android-símastýrikerfin. Talsvert er lagt upp
úr kennslu með aðstoð myndbanda. Team
Tree House býður upp á fjölda ókeypis
námskeiða, en krafist er greiðslu fyrir sum
þeirra.
Code School
Hjá Code School er hægt að nálgast mörg
námskeið í bæði forritun, vefhönnun og
snjallsímaforritun. Nemendur borga áskrift-
argjald sem er 25$ á mánuði og geta þá
tekið eins mikið af námskeiðum og þeir
vilja. Þá er hægt að skrá hópa saman, t.d.
fjölskyldur eða vinnuhópa og læra þannig í
hóp.
EINFALT AÐ LÆRA AÐ KÓÐA MEÐ AÐSTOÐ ÝMISSA VEFSÍÐNA
Lærðu að elska kóða
HEFUR ÞIG ALLTAF DREYMT UM AÐ LÆRA FORRITUN? Í DAG ER ÞAÐ LEIKUR EINN AÐ LÆRA FORRITUN
MEÐ AÐSTOÐ FJÖLDA VEFSVÆÐA SEM HJÁLPA ÞÉR AÐ STÍGA FYRSTU SKREFIN Í FORRITUN.
Sveinn Birkir Björnsson sveinnbirkir@gmail.com
*Græjur og tækniVilborg Arna pólfari með meiru hefði ekki getað verið án símasambands á suðurpólnum »36