Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.02.2013, Qupperneq 48
48 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.2. 2013
menntirnar sínar á Kindle lesbretti og iPad
sem hann kallar pödduna og hafi verið fljótur
að tileinka sér samfélagsmiðla svo sem blogg-
ið og Facebook. Hann hefur alltaf átt í prýði-
legu sambandi við tækninýjungar og var
fyrstur þingmanna til að nota tölvu á skrif-
stofum Alþingis. Þegar rafmagnsritvélin hans
varð ónýt bað hann um að í stað þess að fjár-
festa í nýrri fengi hann að kaupa tölvu sem
kostaði þá það sama. Heima átti hann Apple
2c tölvu og þekkti því undratólið. „Menn voru
nú ekki fljótir til, en féllust á þetta með því
skilyrði að ég skrifaði skýrslu um hvernig
mætti nýta þessa nýju ritvinnslutækni á
þinginu. Skömmu seinna keypti Alþingi tölvu-
kerfi sem sprakk reyndar eftir ár og þá var
farið yfir í IBM tölvur. Bráðlega vildu allir
þingmenn fá eigin tölvu til umráða enda þótti
þetta rosalega flott. Forgangsröðunin varð að
vera einhver; í hvaða röð þingmenn fengju
gripinn, það varð hálfgert stöðutákn að hafa
skjá á skrifborðinu en sú regla var höfð á að
þeir sem hefðu ekki ritara, heldur skrifuðu
allt sjálfir, ættu að vera í forgangi.“
Ýmislegt stendur Eiði nærri, bæði eftir að
hafa starfað lengi hjá Ríkisútvarpinu og -sjón-
varpinu, sem þingmaður og sendiherra. „Já,
ég skrifa um eitt og annað og þetta eru
kannski stundum bara nokkrar málsgreinar,
ekki langlokur.“ Enda er góð umræða ekki
endilega spurning um að vera langorður og
nefnir Eiður þar sem dæmi Alþingi. „Alþingi
hefur sett dálítið ofan vegna þess að menn
hafa misst tökin á umræðunni. Meðan norska
þingið kláraði umræðuna um EES-samning-
inn á nokkrum dögum stóð umræðan hér á
sínum tíma í margar vikur. Þingið þyrfti að
ákveða fyrirfram hvað á að verja miklum tíma
í að ræða stór mál. Hvort þingið ætli að taka
40 eða 10 klukkustundir í það og þá mætti
skipta þeim tíma milli flokkanna eftir stærð
þeirra. Flokkur sem hefur 25 prósent þing-
manna fengi þannig 25 prósent af tímanum.
Norska þingið gerir þetta – að ákveða fyr-
irfram hversu mikill tími fari í hvert mál. Nú
er stutt eftir af þinginu en samt eru á þriðja
hundrað mál sem bíða afgreiðslu. Það mun
aldrei gerast neitt af viti meðan umræðan er
svona óskipulögð.Þess vegna lenda góð mál í
útideyfu.“
Það er ekki hægt að hitta Mola-Eið án þess
að ræða hans hjartans mál, íslenska tungu.
Eiður segir að meðal áhyggjuefna hans þessa
dagana sé svokölluð nefnifallssýki, sem honum
þyki vera að sækja í sig veðrið. Sögn sem
stýrir þolfalli eða þágufalli er látin taka með
sér nefnifall. „Undirliggjandi vandinn í þessu
er hræðsla við beygingar og það er eins og
tilfinningin fyrir beygingum orða sé minni.
Það skiptir miklu máli að það sem fólk er að
lesa, svo sem texti fjölmiðla, sé vandað. Text-
inn sem maður skrifaði hér á árum áður var
yfirfarinn áður en hann var settur fram, hvort
sem var á Alþýðublaðinu eða í Ríkissjónvarp-
inu.. Maður hefur svolítið á tilfinningunni að
það vanti upp á þetta í dag, sérstaklega á vef-
miðlunum og að þar sé hver blaðamaður nær
alveg á eigin vegum og njóti lítillar leiðsagnar.
Auðvitað breytist íslensk tunga, hún er lifandi
fyrirbæri. Hún breytist af því að lífið breytist.
En okkur á ekki að vera sama um það hvern-
ig hún breytist og við eigum að reyna að hafa
hönd í bagga með því hvernig tungan þróast.
Þessar breytingar gera það að verkum að við
þurfum alltaf að vera að búa til ný orð á öll-
um sviðum og nýyrðasmíði skiptir því afar
miklu máli.“
Eiður er fyrrverandi aðalræðismaður Ís-
lands í Færeyjum og nefnir að hann hafi haft
einkar gaman af því að fylgjast með mál-
verndarstarfi þar. „Ágætur vinur minn og
fræðimaður í færeyskri tungu, Jóhan Hendrik
W. Poulsen, hefur smíðað mikið af nýyrðum.
Einhvern tímann kom ég að honum á skrif-
stofunni þar sem hann var að lesa Morg-
unblaðið. Hann sagði við mig að hann væri á
höttunum eftir nýjum orðum og þetta er það
sem við eigum að vera að gera. Færeyingar
láta sér afar annt um sína tungu og hafa farið
svipaðar leiðir í ýmsum nýyrðum og við. Tölva
heitir telda og þyrla heitir það sama hjá þeim
og okkur, tyrla.. Að sjálfsögðu þykir þeim svo
ýmislegt mjög kyndugt í okkar máli á sama
hátt og við hlæjum að orðum hjá þeim. Mér
þótti gaman að sjá í færeysku blaði fyrirsögn-
ina „Venjarin sakkaður“ sem þýddi „Þjálf-
arinn rekinn“. Þess má geta að í Þórshöfn í
Færeyjum var og er kannski enn verslun sem
heitir Gellan. Það er ekki fiskbúð heldur er
þar seldur fatnaður fyrir konur. Önnur versl-
un þar af sama tagi heitir Drósin. Þeir eru
góðir, Færeyingar!“
Engan þarf að undra að Eiður hafi sterkar
skoðanir á dagskrárgerð og blaðamennsku.
Sérstaklega á sínum gamla vinnustað, Rík-
issjónvarpinu. Hann segir að þar sem stofn-
unin sé þjóðareign sé það réttur og hlutverk
fólks að benda á það sem betur má fara í
þeim höfuðstöðvum. Hann hefur ekki farið
leynt með vonbrigði sín með dagskrárgerð
sjónvarpsins eins og lesendur hans hafa tekið
eftir.
„Mér finnst stofnunin hafa brugðist. Ég er
mjög ánægður með efnið á Rás1 en sjón-
varpið hefur mér fundist þróast út í að vera
hálfgerð vídeóleiga og íþróttaefnið skipar full-
stóran sess. Það ætti að vera á sérstakri rás.
Meðan okkur eru sýndir rándýrir afþreying-
arþættir svo sem Dans, dans, dans, vanrækir
sjónvarpið að sýna okkur efni um sögu og
samfélag. Hvenær sáum við síðast innlenda
leiksýningu eða tónleika, – sígilda tónlist? Ég
hef eins og ótalmargir aðgang að norrænu
stöðvunum, þýskum og frönskum og þar sér
maður allt aðrar áherslur. Fræðsluþættir um
sögu síðustu aldar eru daglegt brauð. Erlenda
fréttaskýringaþætti úr samtímanum sjáum við
nær aldrei. Ég hef áhyggjur af því að yngri
kynslóðirnar á Íslandi viti ekkert hvað gerðist
á liðinni öld eða í heiminum yfirleitt. Viti til
dæmis ekkert um þær hörmungar sem nas-
isminn, kommúnisminn og fasisminn leiddu yf-
ir þjóðir.“
Eiður telur að það að taka aftur upp Út-
varpsráð gæti verið til bóta. „Útvarpsráð var
hálfgert dagskrárráð og ég sæi fyrir mér að
inn í það ráð gæti líka valist fólk héðan og
þaðan úr þjóðfélaginu. Mér finnst stundum
eins og það sé ekkert hugsað út í hvaða ald-
urshópur það er sem situr fyrir framan sjón-
varpið hverju sinni. Fínar kvikmyndir eru oft
settar á dagskrá klukkan hálftólf þegar tals-
verður hluti þjóðarinnar er farinn að sofa.
Mér finnst eins og strengurinn við þjóðina
hafi slitnað. Núverandi stjórn Ríkisútvarpsins
hefur afskaplega lítið um dagskrána að segja
og einn útvarpsstjóri, hversu góður sem hann
er, getur aldrei stýrt svona stórri og fjöl-
breyttri menningarstofnun svo vel sé. En ég
þykist skynja það að núverandi stjórn Rík-
isútvarpsins vilji breytingar en það er kannski
hver að nöldra í sínu horni. Ég nöldra í mínu
horni og gagnrýni og ég veit að Ríkisútvarpið
hefur mikið af fínu fólki í vinnu en það þarf
að breyta ansi miklu. En svo ég gleymi því
ekki að hrósa þá er ég oftast ánægður með
fréttatímana og Kastljósið auk þess sem ég
hef gaman af Útsvari. Öllu því sem gerir ein-
hverjar kröfur til áhorfenda. Einnig horfi ég á
Kiljuna, Landann og Silfur Egils.“
Mola-Eiður viðurkennir þó að auðvitað
hljóti að vera mikið efni í sjónvarpi sem höfði
ekki til allra áhorfenda. „Það kemur nú fyrir
að maður heyrir eitthvað eins og „Pabbi...!“
frá börnunum sem eru stundum ósammála því
sem ég er að segja. Nafni minn og dótt-
ursonur sagðist til dæmis vera algerlega
ósammála mér um Hraðfréttir.“ Eiður skrifaði
fyrr á árinu pistil þar sem hann bað Kast-
ljóssmenn í fullri vinsemd um að hætta að
misbjóða áhorfendum með Hraðfréttahorninu.
„Ég fékk alveg að heyra það frá honum. Börn
og barnabörn eru ekkert feimin við að segja
mér ef þeim finnst ég vera að gera einhverja
Moli 1114: „„Ég ætla að soga í mig the spirit of Breiðholt,“ sagði
Jón Gnarr, borgarstjóri í Reykjavík, við hlustendur í fréttum
Ríkisútvarpsins (21.1.2013). Hversvegna talar borgarstjórinn ekki
við okkur á íslensku? Svo hoppaði hann út í sundlaug í öllum föt-
unum. Erum við ekki að kvarta yfir því að erlendir ferðamenn fari
ekki í sturtu áður en þeir gangi til laugar? Hversvegna er verið að
segja fólki að fara í sturtu, þegar borgarstjórinn hoppar í laugina í
öllum fötum og kannski líka á skítugum skónum? Ja, hérna.“
Moli 1106: „„Ég lét þá fífla mig hvað eftir annað,“ er haft eftir
handboltamanni á visir.is (13.1.2013). Þetta er greinilega hið
versta mál. Sögnin að fífla þýðir nefnilega að fleka eða ginna til
kynmaka. Líklega átti maðurinn við að hann hefði verið hafður
að fífli hvað eftir annað, en það er annar handleggur.“
Moli 1099: ,,Í fréttum Stöðvar tvö (2.01.2012) var sagt um flug-
skeytaárás á bensínstöð í Damaskus (ekki dáMaskus, eins og sagt
var með enskri áherslu) að skotið hefði verið einu loftskeyti á
stöðina. Orðið loftskeyti hefur fasta merkingu í íslensku, það er
ekki flugskeyti eða eldflaug. Loftskeytastöðin á Melunum var til
að mynda ekki vopnabúr, heldur fjarskiptastöð.“
Moli 1075: „Fyrirsögn á visir.is (30.11.2012): Útvarpsþættinum
Harmageddon tímabundið vikið úr starfi. Hvernig er hægt að
víkja útvarpsþætti úr starfi? Eru útvarpsþættir ráðnir til starfa? Í
fréttinni kemur fram að umsjónarmönum þáttarins hefur tíma-
bundið verið vikið úr starfi.“
Moli 921: „Frétt á mbl.is (30.5.2012): Flytja þurfti reiðhjólamann
á slysadeild Landspítala eftir að bifhjólamaður ók á hann við
Víkurvegsbrú á Vesturlandsvegi á sjöunda tímanum í kvöld. Orð-
ið reiðhjólamaður var einnig notað í fyrirsögn fréttarinnar. Hvað
er að hinu hefðbundna orði hjólreiðamaður? Um annað í frétt-
inni má sitthvað fleira segja! Rétt er að geta þess að orðskrípinu
reiðhjólamaður var seinna breytt í hjólreiðamaður. En bif-
hjólamaðurinn lifði breytinguna af!“
Brot af því besta
* „Ég veit að ég er dómharður. Og ég hef reynt eftir því sem ég eldist að sitjaá mér og hugsa ekki eftir stutt kynni: „Þetta er nú alveg ómögulegur mað-ur.“ Það var eiginlega eitt ákveðið atvik, eða ákveðin reynsla, sem breytti þessu. “
20–70%
AFSLÁTTUR
AF ÖLLUM VÖRUM
NEMA FERÐATÆKJUM
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
13
00
77 ISA-
ÚTSA
LA
ELLIN
GSEN
ALLAR
VÖRUR FRÁ
DEVOLD
MEÐ 20%
AFSLÆTTI
SNOWLINE
KEÐJUBRODDAR
7.192 KR.
VERÐ ÁÐUR 8.990 KR.