Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.02.2013, Side 49

Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.02.2013, Side 49
3.2. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 49 gloríu.“ Að því sögðu má geta þess að Eiður lætur í ljós að hann telji góða fjölskyldu vera það sem gefi lífinu gildi en konuefninu sínu, Eygló Helgu Haraldsdóttur, kynntist hann 19 ára gamall og hafa þau verið saman síðan. Þannig rættist ekki voðaleg stjörnuspá sem Eiður las í afmælisdagabók sem ungur drengur en hún varð honum talsvert áhyggjuefni þegar hann var krakki og ung- lingur. Þar stóð að samskipti hans við hitt kynið myndu ekki ganga þrautalaust og því ylli skapgerðin. Veit að ég er dómharður „Ég viðurkenni að ég er að eðlisfari svolítið óþolinmóður. Ég vil láta hlutina ganga hratt og ég reyni að hafa ekki neitt hangandi yfir mér. En kannski hef ég líka lært það af lífinu að vera ekki allt of fljótur að dæma fólk því ég veit að ég er dómharður. Og ég hef reynt eftir því sem ég eldist að sitja á mér og hugsa ekki eftir stutt kynni: „Þetta er nú al- veg ómögulegur maður.“ Það var eiginlega eitt ákveðið atvik, eða ákveðin reynsla, sem breytti þessu. Ég var búinn að sitja sem þingfréttaritari í tvo vetur og hlusta á þing- ræður og þingmenn voru, eins og þeir eru, misáheyrilegir. Þar var einn þingmaður sér- staklega sem mér fannst ekki áheyrilegur og bara heldur leiðinlegur þingmaður. Ég var búinn að móta með mér þá skoðun að þetta væri sennilega óskemmtilegur maður almennt en þekkti hann samt ekki nokkurn skapaðan hlut. Svo fór ég í blaðamannaferðalag og í ferðahópnum er þessi maður og skemmst er frá því að segja að skemmtilegri ferðafélaga hef ég varla haft. Við urðum góðir kunningjar upp frá því og ég man að einhvern tímann var hann áheyrandi í þinginu og hlustaði á þegar ég flutti líklega lengstu þingræðu sem ég hef flutt um Ríkisútvarpið, en þá var verið að afnema einkarétt Ríkisútvarpsins. Hann hældi mér mikið fyrir ræðuna og það þótti mér vænna um en flest annað sem sagt var við mig í þinginu. Þetta var Þórarinn Þór- arinsson, lengi ritstjóri Tímans, útvarpsráðs- maður og þingmaður.“ Þrátt fyrir að Eiður hafi látið af störfum er hann með margt á prjónunum. Hann þarf að rjúka á Rótarýfund eftir viðtalið og einu sinni í mánuði hittir hann gamla félaga sína úr MR og einnig gamla vinnufélaga. Klassísk tónlist á ríkan sess í hans lífi og hann sækir tónleika í Hörpu auk þess sem hann er í gönguhópi. „Það kemur alltaf eitthvað sem fyllir dagana. Og núna fann ég mér nýja fjöl, eftir að ég hætti að vinna, með molana og mér líður ágætlega með það. En hversu lengi ég held áfram, það veit guð einn. Ég geri engar áætl- anir, meðan ég held heilsu og sæmilega fullu viti þá held ég þessu eitthvað áfram. Ég tek hvern dag fyrir sig. Nei, ég hef nú ekki hugs- að mér að búa til pening úr molunum. Mér finnast þetta vera dægurflugur og ekki eiga heima á bók. En það er þá annarra að dæma um það.“„Það kemur alltaf eitthvað sem fyllir dagana. Og núna fann ég mér nýja fjöl, eftir að ég hætti að vinna, með molana.“ 30–50% AFSLÁTTUR AF SCOTT VÖRUM – FULLT HÚS ÆVINTÝRA REYKJAVÍK • Fiskislóð 1 • Sími 580 8500 • mánud.–föstud. 10–18 • laugard. 10–16 AKUREYRI • Tryggvabraut 1-3 • Sími 460 3630 • mánud.–föstud. 8–18 • laugard. 10–16 • ellingsen.is ALLAR VÖRUR FRÁ SKOGSTAD MEÐ 40% AFSLÆTTI A.M.K. 25% AFSLÁTTUR AF VÖRUM FRÁ DIDRIKSONS OPIÐ SUNNUDAG KL. 12–16 Í REYKJAVÍK VERÐ ÁÐUR 36.990 KR. 19.990 KR. COLUMBIA TALUS GÖNGUSKÓR KK OG KVK 30% AFSLÁT TUR AF ÖLLU M SOREL-S KÓM VERÐ ÁÐUR 69.990 KR. 49.990 KR. MERIDA CROSSWAY YELLOWSTONE REIÐHJÓL 20–50% AFSLÁT TUR AF ÖLLUM VEIÐI- VÖRUM 20–50% AFSLÁT TUR AF ÖLLUM SKOTVE IÐI- VÖRUM

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.