Morgunblaðið - 05.04.2013, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 05.04.2013, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 5. A P R Í L 2 0 1 3  Stofnað 1913  78. tölublað  101. árgangur  STIMPLAR OG BLÝANTAR VERÐA AÐ VOPNUM Á GÖNGU- SKÍÐUM YFIR VATNAJÖKUL SMÁFORRIT FYRIR YNGSTU BÖRNIN Á SPJALDTÖLVU LÍF Í VÍÐÁTTUNNI 20-21 FÆR Í NÚTÍMATÆKNI 10LEIKSÝNINGIN BLAM! 55 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Ástand þorskstofnsins er gott, að því er fram kemur í niðurstöðum stofnmælingar botnfiska, svokallaðs vorralls. Útvegsmenn vonast til að aflamark í þorski verði aukið. Stofnvísitala þorsks mældist há og eru vísitölur þessa árs og þess síðasta þær hæstu í aldarfjórð- ung. Niðurstöðurnar eru mjög í samræmi við fyrra stofnmat Hafrannsóknastofnunarinnar. stofnsins. Vonast hann til að kvótinn verði aukinn í samræmi við áætlanir Hafrannsóknastofnunar- innar frá því í júní í fyrra. Þá var gert ráð fyrir að auka mætti kvótann í haust í tæp 220 þúsund tonn. Ýsukvótinn var minnkaður í fyrra. Friðrik seg- ir vonbrigði að ekki skuli hafa mælst meira af ýsu. „Við vorum að vonast til að ýsan næði sér á skrið,“ segir Friðrik. MMikið af þorski í sjónum »2 „Fiskurinn er að stækka og þorskurinn kominn í meðalþyngd,“ segir Jóhann Sigurjónsson, for- stjóri Hafró. Stofnvísitala ýsu er svipuð og verið hefur í vorralli frá 2010 og því mun lægri en var í nokkur ár þar á undan. Þorskkvótinn var aukinn um 19 þúsund tonn við upphaf núverandi fiskveiðitímabils og er 196 þúsund tonn, að ráði vísindamanna. Hafró kynnir mat sitt á stofninum og veiðiráðgjöf í júní. Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, segir að niðurstöður vorrallsins staðfesti styrk þorsk- Kvótinn verði aukinn  Mikið af þorski á Íslandsmiðum en bið á að ýsustofninn rétti úr kútnum  LÍÚ vonast eftir að þorskkvótinn verði aukinn í tæp 220 þúsund tonn Vorstemning er komin í fólk eftir hlýindin að undanförnu. Margir að vinna í görðum. Í gær var fólk að sleikja sólina á Austurvelli. Hætt er við að einhverjir hrökklist aftur inn því spáð er kólnandi veðri. Þó verður 2-7 stiga hiti í höfuðborginni í dag en skýjað og skúrir eða slydduél síðdegis. Búist er við dálítilli snjókomu eða éljum um helgina. Frost verður næstu daga norðanlands og austan, mest í innsveitum. Morgunblaðið/Ómar Kaldara verður í veðri næstu daga Borgarbúar farnir að sleikja sólina á Austurvelli Bandaríkjamenn grípa til varúðar- ráðstafana í ljósi stigvaxandi hótana Norður-Kóreumanna að sögn tals- manns í Hvíta húsinu í gærkvöldi „Við okkur blasir kunnuglegt hegðunarmynstur N-Kóreumanna, hryggilegt en kunnuglegt,“ sagði talsmaður Hvíta hússins í viðtali við AFP fréttaveituna í gærkvöldi. Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri SÞ, biðlaði til N-Kóreu um að breyta um stefnu og hvatti deiluaðila til að setjast að samningaborðinu. „Kjarn- orkuógn er ekki leikur. Þeir hafa gengið of langt í málflutningi sín- um,“ sagði Ban. »26 Bandaríkjamenn grípa til varúðarráðstafana  Framkvæmdastjóri SÞ áhyggjufullur AFP Her N-kóreskir hermenn á gangi. Skúli Hansen skulih@mbl.is Katrín Júlíusdóttir, varaformaður Samfylking- arinnar og fjármálaráðherra, segist undrast vinnubrögð bæjarstjórnar Reykjanesbæjar sem í fyrrakvöld sendi frá sér ályktun um að ekki hefði verið staðið við loforð um að gætt yrði jafnræðis á milli Helguvíkur og Bakka. Að sögn Katrínar sendi hún bæjarstjórninni drög að samkomulagi, sambærilegu því sem gert var um Bakka, um Helguvík í síðustu viku. Þá segist hún ekki vita hvað vaki þarna fyrir mönnum. „Það sem mér dettur helst í hug er að menn séu þarna ekki að hugsa um hag sveitarfélagsins heldur um hag síns flokks,“ segir Katrín og bætir við: „Ef menn óttast að þessu verði ekki fylgt eftir verða einhverjir aðrir flokkar en minn að svara fyrir það, vegna þess að það er algjörlega ljóst að með svona samkomulagi við sveitarfélagið værum við að skuldbinda okkur til þess að láta það verða að raunveruleika og það væri mjög erfitt fyrir ný stjórnvöld að horfa framhjá því.“ Fyrri yfirlýsingar sviknar Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanes- bæjar, segir enn eina viljayfirlýsinguna ekki duga til enda hafi fyrri yfirlýsingar verið sviknar. „Um leið og verið er að senda út ein- hverja hugmynd um viljayfirlýsingu, sem við höfum ekki talið vera það sem við erum að ræða, kemur skýr yfirlýsing frá formanni Vinstri-grænna um þeir lýsi yfir andstöðu við álver í Helguvík. Þannig að það er ekki til neins að halda þessum leik áfram,“ segir Árni og bætir við að innihald samkomulagsins sé annað sorgarefni. Hann bendir á að þetta yrði styrkur upp á 150 milljónir og möguleiki á um 800 milljóna víkjandi láni til samanburðar við um 800 milljóna víkjandi lán til Bakka auk um þriggja milljarða í einhvers konar styrki. „En þetta er líka einungis viljayfirlýsing á móti lög- um og viljayfirlýsing ríkisstjórnar sem hefur ekki staðið við neinar fyrri yfirlýsingar sínar.“ Harðar deilur um Helguvík  Katrín segist hafa sent drög að samkomulagi M„Þetta er sorgarsaga“ »6 Þeir sem tóku áhættuna græddu  Bændur sem tóku lán í erlendri mynt fyrir hrun standa betur í dag en þeir sem tóku verðtryggð lán í íslenskum krónum á sama tíma. Þegar erlendu lánin voru færð niður í kjölfar dóma var leiðrétt- ingin færð sem tekjur. Það veldur því að nú verða bændur sem þess nutu að borga tekjuskatt af leið- réttingunni. »12 Morgunblaðið/RAX „Ég vil vinna kosninguna á réttum forsendum, ekki vegna mistaka við framkvæmd. Þótt þetta sé leiðinlegt mál fyrir félagið er gott að ákveðið var að taka á því og gera það vel,“ segir Ólafur G. Skúlason sem kosinn var formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga í formannskjöri sem nú hefur verið ógilt. Gengið verður til kosninga að nýju og reiknar Ólafur með að verða í framboði. Einu atkvæði munaði á honum og næsta frambjóðanda í kjörinu sem fram fór í síðasta mán- uði. Ólafur segir að margir gallar hafi verið á atkvæða- greiðslunni. Komið hafi í ljós að lög félagsins séu ekki nógu skýr um fram- kvæmd kosninga og úrvinnslu þegar upp komi vafaatriði. »2 Vil vinna kosninguna á réttum forsendum  Endurtaka þarf kosningu formanns Ólafur Guðbjörn Skúlason
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.