Morgunblaðið - 05.04.2013, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 2013
elsis verið á dagskrá allt frá árinu
1960 þegar Valdimar Stefánssyni,
þáverandi sakadómara, var falið
að gera tillögur að nýju fangelsi
við Úlfarsá. Þau áform urðu hins
vegar að engu eins og fleiri í
gegnum tíðina.
„Þetta er stór dagur. Menn hafa
verið með þetta á prjónunum í um
hálfa öld. Síðan hefur ótrúlegur
fjöldi álitsgerða og undirbúnings-
nefnda verið settur á laggirnar en
það er fyrst núna sem við stígum
þetta skref,“ sagði Ögmundur.
Páll sagði í samtali við Morgun-
blaðið eftir athöfnina að með nýja
fangelsinu yrðu fangelsismál á Ís-
landi færð fram í nútímann.
„Auk þess að fjölga plássum er
þetta öruggara og við höfum fleiri
gæsluvarðhalds-einangrunarrými
svo þetta hjálpar lögreglunni líka.
Fangelsið er styttra frá dómstól-
unum og aksturinn á milli minnk-
ar þá,“ sagði hann.
Litla-Hraun áfram
þungamiðjan í kerfinu
Við opnun fangelsisins á
Hólmsheiði verður gæslu-
varðhaldsdeild í fangelsinu á
Litla-Hrauni einnig lögð niður og
aðstaða hennar tekin undir af-
plánun. Þrátt fyrir uppbygg-
inguna á Hólmsheiði segir Ög-
mundur að Litla-Hraun verði
áfram þungamiðjan í íslenska
fangelsiskerfinu.
„Þar munum við halda áfram að
byggja upp en það var orðin mjög
brýn nauðsyn að fá fangelsi hér á
höfuðborgarsvæðið,“ sagði hann.
Fangelsin færð til nútímans
Fyrsta skóflustungan að nýju fangelsi á Hólmsheiði tekin í gær Fangelsi hefur ekki verið byggt
í landinu í 140 ár Tímamót í sögu fangelsismála á Íslandi, að mati innanríkisráðherra
Fangelsi á Hólmsheiði
Rauðavatn
Hólmsheiði
Langavatn
Reynisvatnsheiði
Þjóðvegur 1
Rauðhólar
Ha
fra
va
tn
sv
eg
ur
Norðlinga-
holt
Almanna-
dalur
Stór-
skyggnir
Re
yk
ja
ví
k
Kó
pa
vo
gu
r
Spennistöð
Fangelsislóð
Í ræðu sinni eftir skóflustungu-
athöfnina sagði Páll Winkel,
fangelsismálastjóri, að hann
vonaðist til þess að innanríkis-
ráðherra sæi til þess að komið
yrði á fót safni um fangelsismál
og réttarfarssögu í Hegningar-
húsinu í miðbænum þegar
starfseminni þar verður hætt.
Ögmundur Jónasson, innan-
ríkisráðherra, sagði í samtali
við Morgunblaðið, að sér litist
vel á hugmynd fangelsis-
málastjóra.
„Ég hef verið sama sinnis
sjálfur. Mér fyndist mjög æski-
legt að koma á fót safni þarna,
hugsanlega í hluta hússins. Ég
tek undir með fangelsis-
málastjóra að safn væri góður
kostur,“ sagði ráðherrann.
Safn væri
góður kostur
HEGNINGARHÚSIÐ
Skannaðu kóðann
til að sjá mynd-
skeið frá athöfn-
inni á Hólmsheiði.
Morgunblaðið/Júlíus
Stunga Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra tekur fyrstu skóflustunguna að nýju fangelsi á Hólmsheiði.
Tölvuteikning/Arkís
Nýbygging Tölvuteiknuð mynd sýnir hvernig fangelsið mun líta út.
SVIÐSLJÓS
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
„Þetta er stórkostlegur dagur.
Það er ótrúlegt að þetta sé að ger-
ast núna. Við erum ákaflega glöð
að geta lokað þessum gömlu fang-
elsum sem eru rekin á heilbrigðis-
undanþágu,“ sagði Páll Winkel,
fangelsismálastjóri, eftir að Ög-
mundur Jónasson, innanríkis-
ráðherra, hafði tekið fyrstu skóflu-
stunguna að nýju gæsluvarðhalds-
fangelsi á Hólmsheiði í gær.
Sjálfur talaði innanríkisráðherra
um tímamót í sögu fangelsismála
hér á landi við þetta tækifæri.
„Nýr kafli er hafinn í fangelsis-
sögu Íslands með því skrefi sem
við stígum í dag. Við viljum að
föngum verði tryggð örugg og vel
skipulögð afplánun við aðstæður
sem hvetja þá til þess að þeir geti
tekist á við vanda sinn og snúið til
betri vegar,“ sagði Ögmundur.
Jarðvegsframkvæmdir hefjast í
næstu viku en útboð vegna fang-
elsisins sjálfs fer fram í vor. Þá
stendur nú yfir opin samkeppni
um listskreytingar í fangelsinu en
henni lýkur þann 17. maí. Til
stendur að nýja fangelsið hefji
starfsemi sína haustið 2015 en
áætlaður kostnaður við byggingu
þess er á bilinu 2,5-2,8 milljarðar
að sögn ráðherrans.
Hegningarhúsið
reist árið 1875
Nýja fangelsið leysir af hólmi
Hegningarhúsið við Skólavörðu-
stíg, sem hefur verið rekið á heil-
brigðisundanþágu undanfarin ár
eins og kom fram í máli fangelsis-
málastjóra, og fangelsið í Kópa-
vogi. Á Hólmsheiði verða 56
fangarými með sérstakri deild fyr-
ir kvenfanga og aðstaða fyrir af-
plánun skemmri fangelsisrefsinga
og vararefsinga. Gert er ráð fyrir
að byggingin verði um 3.700 fer-
metrar að flatarmáli.
Byggingin markar tímamót en
þetta verður í fyrsta skipti í 140
ár sem fangelsisbygging er reist
hér á landi. Sú síðasta var Hegn-
ingarhúsið en það var tekið í notk-
un árið 1875 og er barn síns tíma
að sögn fangelsismálastjóra.
Fangelsið á Litla-Hrauni var upp-
haflega byggt sem Sjúkrahús
Suðurlands en hætt var við þau
áform. Landsstjórnin keypti bygg-
inguna árið 1929 og breytti í fang-
elsi.
Síðan hefur bygging nýs fang-
A1988 hf.
Aðalfundur A1988 hf. verður haldinn föstudaginn
19. apríl nk. að Korngörðum 2, Reykjavík,
og hefst kl. 9:00.
Á dagskrá fundarins verða venjuleg aðalfundarstörf skv. 13 gr.
samþykkta félagsins og tillaga um breytingu á 19. gr. samþykkta
um fjölda stjórnarmanna.
Dagskrá fundarins, endanlegar tillögur og ársreikningur mun
liggja frammi á skrifstofu félagsins að Korngörðum 2 hluthöfum
til sýnis 7 dögum fyrir aðalfund.
Tillögur frá hluthöfum sem bera á upp á aðalfundi þurfa að
berast stjórn eigi síðar en 14 dögum fyrir aðalfund.
Framboðsfrestur til stjórnar rennur út 12. apríl nk. kl. 12:00.
Framboðum skal skila skriflega til stjórnar A1988 hf. á skrifstofu
félagsins, Korngörðum 2, 104 Reykjavík. Upplýsingar um fram-
boð til stjórnar félagsins skulu vera aðgengilegar hluthöfum á
skrifstofu félagins eigi síðar en 2 dögum fyrir aðalfund.
Fundargögn og atkvæðaseðlar verða afhent hluthöfum á aðal-
fundardaginn frá kl. 8:45 á fundarstað.
Reykjavík, 5. apríl 2013.
Stjórn A1988 hf.
Skjálftavirkni á Tjörnesbrotabelt-
inu, við Grímsey, minnkaði hratt í
gær. Sérfræðingar Veðurstofu Ís-
lands taka þó fram að ekki sé víst
að hrinunni sé að ljúka og telja rétt
að búast við að önnur stór jarð-
skjálftahrina komið í kjölfarið og
færist jafnvel til suðausturs, í átt að
Tjörnesi eða Öxarfirði.
Virknin hleypur á milli tveggja
jarðskjálftaþyrpinga, um 15 km
austur af Grímsey og um 30 km
suðaustur af eyjunni. Engir stórir
skjálftar hafa komið frá því á
þriðjudagskvöld. Enn er í gildi yf-
irlýsing um óvissustig vegna jarð-
skjálftanna.
helgi@mbl.is
Búast má við nýrri hrinu
Belti Jarðskjálftarnir eru í tveimur þyrpingum og stefna inn í Öxarfjörð.
Dregur hratt úr
jarðskjálftavirkni
við Grímsey