Morgunblaðið - 05.04.2013, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 2013
BAKSVIÐ
Skúli Hansen
skulih@mbl.is
Það eru íbúum Reykjanesbæjar
gríðarleg vonbrigði að ekki skuli
hafa verið gætt jafnræðis á milli
stuðnings við Helguvík og Bakka
eins og forystumenn Samfylkingar-
innar lofuðu þegar frumvarp um
Bakka var lagt fram fullskapað á
Alþingi, að því er fram kemur í
ályktun sem meirihluti bæjarstjórn-
ar Reykjanesbæjar samþykkti í
fyrrakvöld með átta atkvæðum frá
bæjarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins
og Framsóknarflokksins.
„Þessu máli var greinilega aldrei
ætlað að verða að frumvarpi þó að
það væri búið að gefa út yfirlýsingar
af hálfu forsvarsmanna Samfylking-
arinnar um að það skyldi jafnræði
gilda,“ segir Árni Sigfússon, bæj-
arstjóri Reykjanesbæjar, og bætir
við: „Enda ekki samstaða um það í
ríkisstjórninni frekar en annað.“
Hann bendir á að mestu vonbrigðin
séu þau að menn hafi haft vænt-
ingar til þess að lagt yrði fram
frumvarp um málið á Alþingi.
„Þetta er svona ámátlegt andvarp
sem þetta endar í gagnvart okkur
og er ömurlegur viðskilnaður í
þessu máli,“ segir Árni.
Óskuðu eftir sérstökum lögum
Að sögn Árna óskaði sveitarfélag-
ið eftir sérstökum lögum um Helgu-
vík, þegar núverandi ríkisstjórn tók
við völdum, til að styrkja uppbygg-
ingu hafnarinnar vegna fjölmargra
en ekki einungis kísilvers og álvers.
Því hafi hins vegar verið hafnað.
„Þá tók við stöðugleikasáttmáli
sem var undirritaður 2009. Þar var
Helguvík nefnd til sögunnar og átti
að gera góða hluti. Það átti þá að
standa með okkur í því en það varð
ekkert úr þeim sáttmála. 2010 skrifa
30 þingmenn undir frumvarp um
stuðning við Helguvík en það komst
ekki í gegnum nefndir þingsins,“
segir Árni og bætir við að reynt hafi
verið aftur að leggja fram frum-
varpið árið 2011 en það hafi ekki
tekist.
„Þetta er sorgarsaga sem þessu
fylgir. Við erum hins vegar bjartsýn
á að það takist að snúa þessu við en
það þarf nýja ríkisstjórn og það þarf
stjórnmálaöfl sem eru hlynnt þessu
verkefni en þau eru ekkert of mörg
í dag,“ segir Árni.
Í ályktun bæjarstjórnarinnar er
meðal annars bent á að bæjar-
fulltrúar Samfylkingarinnar hafi
með sérstakri bókun á síðasta bæj-
arstjórnarfundi sagt að vinnubrögð
um Helguvík væru dæmi um „vand-
aðan undirbúning og þrotlausa
vinnu þingmanna Samfylkingarinn-
ar“, vísað í skýrar yfirlýsingar for-
manns Samfylkingarinnar um að
jafnræði skuli gilda á milli iðnaðar-
svæða og landsvæða auk þess að
halda því fram að fjármögnun frá
ríkinu til hafnaruppbyggingar væri
loks í höfn.
Þá er í ályktuninni bent á að mið-
að við frumvarpið um Bakka þýddi
þetta fjárstyrki til Helguvíkur
vegna hafnarframkvæmda, lóða-
gerðar, þjálfunarstyrkja og vega-
gerðar fyrir á fjórða milljarð króna.
Samningar komnir
„Það eru náttúrlega komnir fjár-
festingarsamningar við bæði álver
og kísilver en þeir sneru ekki að því
með hvaða hætti ríkið ætlaði að
styrkja og styðja við bakið á okkur í
þeirri fjárfestingu sem við höfum
farið í,“ segir Árni.
Aðspurður hvort umræddir fjár-
festingarsamningar séu enn í gildi
segir hann: „Fjárfestingasamning-
arnir gilda um álverið en það hafa
náttúrlega orðið breytingar á þátt-
takendum í kísilverinu, þannig að
það kann vel að vera að það þurfi að
taka upp einhver mál aftur þar en
þar eru fjárfestingarsamningar sem
liggja að baki.“
Árni bendir þó á að það sé mikið
fagnaðarefni að málið skuli hafa
komist þetta langt fyrir norðan og
segir hann íbúa Reykjanesbæjar
mjög ánægða fyrir hönd Norðlend-
inga en þeir telji hins vegar að það
gefi augaleið að það ætti þá að
styrkja þeirra eigin stöðu.
„Þetta er sorgarsaga“
Bæjarstjórn Reykjanesbæjar sendi frá sér harðyrta ályktun um Helguvík Segja að því hafi verið
lofað að jafnræðis yrði gætt milli Helguvíkur og Bakka „Ömurlegur viðskilnaður í þessu máli“
Morgunblaðið/RAX
Álverið í Helguvík Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, segir Reykjanesbæ hafa óskað eftir sérstökum lögum um Helguvík þegar núverandi ríkis-
stjórn tók við völdum. Bæjarstjórnin telur að jafnræðis hafi ekki verið gætt. „Þessu máli var greinilega aldrei ætlað að verða að frumvarpi,“ segir Árni.
Lögreglustjórinn
á Hvolsvelli og
almannavarna-
nefnd Rangár-
valla- og V-
Skaftafellssýslu
hefur ákveðið að
aflétta óvissu-
stigi af Heklu frá
og með deginum
í dag. Þetta kom
fram á facebook-
síðu lögreglunnar á Hvolsvelli.
Þar segir að þetta sé gert til sam-
ræmis við ákvörðun Veðurstof-
unnar um að færa viðvörunarstig
Heklu af gulu niður í grænt hvað
varðar flugumferð. Áfram verður
þó fylgst með fjallinu sem fyrr.
Óvissustigi al-
mannavarna aflétt
Jarðhræringar voru í
Heklu í nokkra daga.
Akstur á höfuðborgarsvæðinu,
mældur í þremur mælisviðum
Vegagerðarinnar, reyndist 1,8 pró-
sentum minni í mars en í sama mán-
uði í fyrra. Hjá Vegagerðinni leiða
menn líkur að því að umferðin hafi
að einhverju marki færst út á land
enda jókst umferðin á hringveg-
inum mikið í mars. „Frá áramótum
hefur umferðin á höfuðborgar-
svæðinu hinsvegar aukist nokkuð
eða um 2,5 prósent og er útlit á
þessari stundu fyrir að umferðin í
ár aukist um 2-3 prósent,“ segir í
umfjöllun Vegagerðarinnar.
Minni umferð á höf-
uðborgarsvæðinu
Frábært úrval af skóm
áótrúlega góðu verði!
kr.10.900
aðeins
kr.12.900
aðeins
aðeins
kr.6.900aðeins
kr.8.900
OUTLET-SKÓR | FISKISLÓÐ 75 | 101 REYKJAVÍK
Opið: mán-fös 13-18 & lau 12-16 sími: 514 4407
Stelpu skór
St. 27-35
Herra skór
St. 39-48Herra skór
St. 41–48
Dömu skór
St. 36–41
„Við erum búin að vera núna und-
anfarinn mánuð að reyna að fá for-
svarsmenn Reykjanesbæjar til að
koma að borðinu og vinna með
okkur að samkomulagi um hvaða
forsendur við hefðum í þessu
frumvarpi, af því að þegar menn
kláruðu Bakka þá var það byggt á
samkomulagi á milli ríkisins og
sveitarfélagsins fyrir norðan,“
segir Katrín Júlíusdóttir, fjár-
málaráðherra og varaformaður
Samfylkingarinnar, spurð út í
fyrstu viðbrögð við ályktun bæjar-
stjórnar Reykjanesbæjar.
Að sögn Katrínar sendi hún bæj-
arstjórninni drög að samkomulagi
um Helguvík í síðustu viku. „Síðan
heyri ég ekkert annað en það að
þeir ætli að skoða þetta og svo sé
ég þessa bókun í gær [fyrradag],
þannig að ég verð að segja alveg
eins og er að ég er dálítið undrandi
á þessum vinnubrögðum að þiggja
ekki, eins og mér heyrist þeir vera
að gera, að ljúka samkomulagi við
ríkið um það hvernig ríkið komi að
uppbyggingu á þessu svæði,“ seg-
ir Katrín. Aðspurð segir hún að um
sé að ræða sambærilegt sam-
komulag og gert var um Bakka.
Undrandi á vinnubrögðum
SEGIST HAFA SENT DRÖG AÐ SAMKOMULAGI
Katrín
Júlíusdóttir
Árni
Sigfússon
Hæstiréttur hefur staðfest gæslu-
varðhaldsúrskurð yfir karlmanni
sem grunaður er um kynferðisbrot
gegn 15 ára stúlku. Gæsluvarðhaldið
rennur út í dag og ákvörðun um
framlengingu liggur ekki fyrir.
Í greinargerð lögreglustjóra höf-
uðborgarsvæðisins, sem vitnað er til
í gæsluvarðhaldsúrskurðinum, segir
að lögregla hafi verið kölluð til
snemma kvölds 28. mars síðastlið-
inn. Þá hafi stúlka og piltur verið í
miklu uppnámi og sagst hafa orðið
fyrir árás og frelsissviptingu. Stúlk-
an, sem er 15 ára, greindi einnig frá
því að hún hefði verið beitt kyn-
ferðisofbeldi.
Stúlkan greindi svo frá að árás-
armaðurinn hefði þvingað hana til
að setja pappírsbút undir tunguna,
líklega LSD. Hann hefði beitt hana
ofbeldi með því að taka í hnakka
hennar, sett hnéð á bak hennar og
sagt henni að afhenda peninga.
Maðurinn hefði slegið hana og hótað
að drepa og einnig hefði hann reynt
að setja MDMA kristalla ofan í
hana, en hún náð að frussa þeim út
úr sér.
Þá hefði hann þvingað hana til að
afklæðast, káfað á henni og stungið
fingrum í leggöng hennar. Hann
hefði einnig kastað stúlkunni til,
hent í hana vog og stungið hana með
penna í andlit og brjóst. Því næst
hefði hann hellt yfir hana vökva.
Eftir það hefði hann sleppt henni.
Stúlkan bar sjáanlega áverka eftir
átökin
Maðurinn var handtekinn og við-
urkenndi að hafa slegið til stúlk-
unnar. Kvaðst hann hafa orðið
reiður vegna peninga sem hann tel-
ur að hún hafi stolið af sér.
Í úrskurðinum segir einnig að
árásarmaðurinn sé á reynslulausn
frá 8. nóvember 2012 næstu 2 árin
og eigi hann óafplánaða 350 daga af
eftirstöðvum refsingar.
Þvingaði stúlku til að
innbyrða vímuefni
Hæstiréttur staðfesti gæsluvarðhald
Morgunblaðið/Kristinn
Hæstiréttur Í úrskurðinum segir að
árásarmaðurinn sé á reynslulausn.