Morgunblaðið - 05.04.2013, Qupperneq 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 2013
AÐALFUNDUR
Dagskrá
1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt
18. gr. samþykkta félagsins.
2. Tillaga um heimild félagsstjórnar til kaupa
á eigin hlutum samkvæmt 55. gr.
hlutafélagalaga.
3. Önnurmál, löglega upp borin.
Dagskrá, endanlegar tillögur og ársreikningur
félagsins munu liggja frammi á skrifstofu
félagsins, hluthöfum til sýnis, tveimur vikum fyrir
aðalfund. Enn fremur er hægt að nálgast gögnin á
vefsíðu félagsinswww.hbgrandi.is.
Framboðsfrestur vegna stjórnarkjörs rennur út
fimm dögum fyrir upphaf aðalfundar. Upplýsingar
um frambjóðendur til stjórnar verða birtar eigi
síðar en tveimur dögum fyrir aðalfund.
Atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent á
fundarstað frá kl. 16:30.
Óski hluthafar eftir að ákveðin mál verði tekin til
meðferðar á aðalfundinum, þarf skrifleg beiðni um
það að hafa borist félagsstjórn með nægjanlegum
fyrirvara, þannig að unnt sé að taka málið á
dagskrá fundarins.
Hluthafar sem ekki geta mætt á fundinn en
hyggjast gefa umboð, þurfa að gera það skriflega.
Stjórn HBGranda hf.
Aðalfundur HBGranda hf. verður haldinn
föstudaginn 19. apríl 2013 í matsal
félagsins á Norðurgarði í Reykjavík og
hefst hann kl. 17:00.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
G
R
A
69
65
1
04
/1
3
www.rita.is Ríta tískuverslun
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Vorbolir
Mikið úrval
Margir litir
Röng mynd með
grein
Þau mistök urðu við vinnslu blaðsins
í gær að mynd af Þorsteini Sæ-
mundssyni stjörnufræðingi birtist
með grein Þorsteins Sæmundssonar
rekstrarfræðings, sem skipar 3. sæti
á lista Framsóknarflokksins í SV-
kjördæmi.
Til glöggvunar birtast hér myndir
af þeim báðum og eru hlutaðeig-
endur beðnir velvirðingar.
LEIÐRÉTT
Þorsteinn
Sæmundsson
stjörnufræðingur.
Þorsteinn
Sæmundsson,
rekstrarfræðingur.
Ingvar P. Guðbjörnsson
ipg@mbl.is
„Mér finnst full ástæða til þess að
skoða af fullri einurð að taka eitt-
hvert gjald á
svona ferða-
mannastöðum til
þess að geta við-
haldið göngustíg-
um, salernum og
þess háttar,“ seg-
ir Ísólfur Gylfi
Pálmason, sveit-
arstjóri Rangár-
þings eystra,
spurður um af-
stöðu sína til
þeirra hugmynda að taka upp gjald
á vinsælum ferðamannastöðum.
Rangárþing eystra rekur við
Seljalandsfoss salerni fyrir ferða-
menn og kostar til um tveimur millj-
ónum króna á ári vegna þess en hef-
ur ekki nema óbeinar tekjur á móti.
Fjölda vinsælla ferðamannastaða
má finna í sveitarfélaginu, sem dæmi
má nefna Þórsmörk, Fimmvörðu-
háls og Skógafoss.
„Ég hef sjálfur ekki neina patent-
lausn á því – það er líka dýrt að vera
með menn yfir sumarið á þessum
fjölsóttu ferðamannastöðum, eins og
við Seljalandsfoss, Skógafoss og svo
framvegis. Ég hef kannski ekki
lausnina en það er alveg kominn tími
til að skoða það af mikilli alvöru að
við fáum eitthvað til þess að geta við-
haldið þessum stöðum,“ segir Ísólf-
ur.
Hann segir að starfsmenn sveitar-
félagsins hafi nú síðast í morgun far-
ið að Seljalandsfossi til að vinna þar
við lagfæringar á göngustígum og
fleiru enda mikil ferðamannaumferð
nú að sögn Ísólfs.
Einkaaðilar reki þjónustuna
„Við höfum verið að fá örlítið úr
framkvæmdasjóði ferðamála, en
þeir peningar duga mjög skammt í
þessum efnum. Við fengum 3 millj-
ónir núna til að deiliskipuleggja við
Seljalandsfoss. Deiliskipulag á þess-
um svæðum er forsenda þess að
hægt sé að byggja upp þjónustu og á
margan hátt er miklu eðlilegra að
einstaklingar reki þá þjónustu held-
ur en sveitarfélög,“ segir Ísólfur.
Hann segir hugmyndir um að
sveitarfélögin sjálf standi í gjald-
heimtu á vinsælum ferðamannastöð-
um flóknar í framkvæmd og ítrekar
að hann hafi enn ekki séð lausn sem
henti í þessum málum. Það sé í raun
stórmál að fara að manna þessa staði
til að innheimta þessi gjöld.
Telur ástæðu til gjaldtöku
á ferðamannastöðum
Sveitarstjóri segir brýnt að finna lausn á viðhaldskostnaði
Morgunblaðið/RAX
Ferðamenn Rangárþing eystra rekur salerni fyrir ferðamenn við Seljalandsfoss
og er rekstrarkostnaðurinn á ári um 2 milljónir kr. en engar tekjur koma á móti.
Ísólfur Gylfi
Pálmason
Rannsóknardeild lögreglunnar á
Akranesi óskar eftir upplýsingum
um ferðamann sem fannst látinn í
Dritvík á Snæfellsnesi þann 28.
mars. Talið er að hinn látni sé
franskur og hafi dvalið á landinu í
u.þ.b. mánuð. Meðfylgjandi er ljós-
mynd af honum. Þeir sem telja sig
geta gefið upplýsingar sem hjálpa til
við að bera kennsl á manninn eru
beðnir um að hafa samband við lög-
regluna á Akranesi í síma 4440111.
Óska eftir
upplýsingum
Ferðamaðurinn er talinn franskur