Morgunblaðið - 05.04.2013, Page 10

Morgunblaðið - 05.04.2013, Page 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 2013 María Ólafsdóttir maria@mbl.is T ækninni fleygir fram og blessuð börnin virðast sum kunna betur á spjaldtölvur og snjall- síma en foreldrarnir. Þetta nýta Soffía Gísladóttir og Helga Einarsdóttir sér en þær hafa í sameiningu hannað smáforrit fyrir börn á aldrinum 1-5 ára þar sem þau læra stafina, orð, tölustafi, liti og fleira. Skrautlegir stafir og tölur Soffía segir þægilegt fyrir yngri börn að læra myndrænt og hægt sé að nýta forritin til að krakkar á leik- skólaaldri læri stafrófið fyrr. Stafirnir og tölurnar eru skreyttar með augum og munnum en hverjum staf fylgir teikning af ein- hverju sem byrjar á sama staf, t.a.m. kemur G upp á skjáinn og síðan Gír- affi. En hvort tveggja er lesið upp þannig að barnið geti hermt eftir. Nálgast má stafrófs- og tölu- stafaleikina á vefsíðunni www.soffia. net en þar má einnig lesa sögur af ævintýrum Soffíu. Karakters sem þær Helga og Soffía hafa hannað og sameinar leik og fræðslu. En leiki frá þeim stöllum má einnig nálgast ókeypis sem smáforrit fyrir Android snjallsíma á Play, Google Store. Notkun forritanna fer eftir aldri barnsins. Smellt er á lyklaborðið fyr- ir þau yngstu en Helga vinnur nú að því að þróa forritin þannig að þau yngstu geti smellt á hvaða takka sem er á lyklaborðinu og þá komi fram næsta mynd. „Fyrir krakka sem eru að læra að tala er líka sniðugt að heyra hljóð- in. En tveggja ára og upp úr sér mað- ur að þau geta verið sjálf í símanum eða spjaldtölvunni,“ segir Soffía. „Já það liggur við að þegar maður komi inn á kaffihús sitji annað hvert barn og noti spjaldtölvu. Þetta er ný kyn- slóð,“ bætir Helga við. Vantaði íslenskt efni Hugmyndin að smáforritunum kviknaði hjá Soffíu þegar hún sat með dóttur sína, sem þá var tæplega eins árs, í fanginu við tölvuna og horfði á ýmis Youtube myndbönd með ensku efni þar sem börnum eru kenndir stafirnir. Dóttirin var því byrjuð að geta sagt stafina á ensku í þann mund sem hún fór að tala eins árs gömul en gat ekki þulið íslensku stafina upp á sama máta. Þannig sá Soffía að vöntun væri á slíku efni á íslensku og ákvað því að hefjast handa við að búa til aðgengi- legt forrit fyrir börn. Soffía byrjaði á að teikna upp staf- rófið og teikna svo einfalda grafík í kring. En þær Helga eru sammála um að hafa efnið einfalt og ekki yfir- fullt af áreiti líkt og fyrir- finnst í mörgu sem börnin leika sér í. „Við lítum á forritin þannig að sniðugt sé að geta gripið í þau í og með eiginlegu námsefni. Þetta er ekki beint heimalær- dómur eða eitthvað sem börnin þurfa að gera heldur frekar tilbreyting og eitthvað skemmtilegt. Þannig tengjum við saman leik og skemmt- un,“ segir Helga. Líkt og áður sagði hafa þær nú þegar búið til sögupersónuna Soffíu og stefna á að búa til fleiri persónur og skapa þannig stærri söguheim í kringum fræðsluna þegar fram líða stundir. En leikirnir eru nú til bæði á íslensku og ensku. Fyrsti fundur í Krónunni Þær Soffía og Helga stunduðu báðar nám við Margmiðlunarskól- ann á hvor á sínum tíma og eru nú heimavinnandi með lítil börn. En Soffía stundaði einnig nám í myndlist við Mynd- listarskóla Reykjavíkur. Leiðir þeirra lágu sam- an í gegnum sameigin- legan vin á Face- book en Soffía auglýsti þar eft- ir samstarfs- félaga sem væri einnig í fæð- ingarorlofi. Þær segja það skemmtilega tilviljun að sama dag og Helga sendi Soffíu skilaboð á Facebook hittust þær af tilviljun í Krón- unni. „Ég þekkti hana af myndum á Facebook og vatt Börnin læra stafi og tölur á spjaldtölvu Yngsta kynslóðin er jafnvel færari en hinir fullorðnu í nútímatækni enda eru börn oftast fljót að tileinka sér nýja hluti. Þær Soffía Gísladóttir og Helga Einarsdóttir hafa búið til smáforrit fyrir börn á aldrinum 1-5 ára þar sem þau læra stafina, orð, tölustafi, liti og fleira. Hugmyndin er að fræðslan sé skemmtileg og á einföldu formi en með forritunum geta börnin lært bæði enska og íslenska stafrófið. Ef þig vantar alfræðiorðabók um poppstjörnu landans, Pál Óskar, er til- valið að skoða nýju síðuna hans, pall- oskar.is. Aðdáendur verða þó að gæta þess að geta gefið sér tíma í verkið því það er auðvelt að gleyma sér yfir gömlum hljóð- og myndbands- upptökum. Einn skemmtilegasti link- urinn á síðunni er tímalínan en þar má fylgja poppgoðinu eftir frá fæðingar- árinu til dagsins í dag. Þar eru myndir og myndbandsupptökur í réttri tíma- röð og ef músarbendillinn er dreginn yfir þá birtist viðeigandi skýringar- texti með. „Snillingarnir hjá WEDO hönnuðu heimasíðuna fyrir mig. Ég er samt bara rétt að byrja en ætla að verða eins og Baggalútsmenn og upp- færa síðuna mjög reglulega. Ég á svo mikið af efni og núna eru aðeins um 5% komin inn sem þýðir að ég verð örugglega í 2-3 ára að dæla inn öllu sem ég á,“ segir glamúrprinsinn sígl- aði, Páll Óskar, sem hefur augljóslega verið „fabjúlöss“ frá fæðingu. Vefsíðan www.palloskar.is Lína fyrirmynd Þegar Páll Óskar var 4 ára neitaði hann að láta klippa á sér hárið svo hann gæti safnað í fléttur eins og Lína Langsokkur var með. „Fabjúlöss“ frá fæðingu Stjarna Páll Óskar Hjálmtýsson Þjóðleikur, leiklistarhátíð ungmenna, verður haldinn á morgun, laugardag klukkan 10, í þriðja sinn. Þrjú leikverk voru frumsamin fyrir verkefnið, Hlín Agnarsdóttir skrifaði verkið Perfect, Hallgrímur Helgason samdi leikritið Tjaldið og Salka Guðmundsdóttir er höfundur leikverksins Manstu. Á há- tíðinni sýna sex hópar austfirskra ungmenna uppfærslur sínar á verk- unum en alls taka um 130 manns þátt í hátíðinni í ár. Skrúðganga leggur af stað frá Eg- ilsstaðaskóla klukkan 10, niður að menningarmiðstöðinni Sláturhúsinu þar sem sýningarnar fara fram. Hátíðinni lýkur síðan um kvöldið með kvöldvöku í bragganum við Slát- urhúsið. Þjóðleikur er samstarfsverkefni Þjóðleikhússins og ýmissa menning- armiðstöðva, skóla og leikfélaga á Austurlandi og var áður haldinn árin 2009 og 2011. Í vor verða einnig haldnar Þjóðleikshátíðir á Norður- landi og Suðurlandi. Endilega… …skelltu þér á Þjóðleik Morgunblaðið/Sverrir Höfundur Verk Sölku Guðmunds- dóttur, Manstu, verður sýnt á morgun. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. fi p y j g p C p i ð lh kl lme va netu-vinaigrette og ettasa ati Grafið lam Villibráðar-paté prikmeð pa Bruchetta tarsmeð tvíreyktu hangikjöti, balsamrauðlauk og piparró Bruchetta með hráskinku, balsam nmog grill uðu Miðjarðarhafsgræ - salat skufer ðbo arðameð Miðj kjRisa-ræ með peppadew iluS ajónmeð japönsku m het Hörpuskeljar má, 3 s Frönsk súkkulaðikaka skum/rjóma og fer Vanillufylltar vatnsdeigsbollur arbSúkkulaðiskeljar með jarð Kjúklingur-satay á spjóti með ídýfu Teryaki-lamb á spjóti R sahörpuskel maríneruð á pinna Túnfiskur í sesamhjúp á spjóti m Veitingar fyrir öll tækifæri, stór og smá, fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Markmið okkar er alltaf það sama, glæsilegar veitingar og ómótstæðilegt bragð. Persónuleg og góð þjónusta. Sími 511 8090 • www.yndisauki.is Ævintýri fuglanna er ný sýning í Safnahúsi Borgar- fjarðar í Borgar- nesi sem opnuð verður í dag. Um er að ræða óvenjulega upp- stillingu þar sem fuglar úr náttúru Íslands eru sýndir í mögnuðu um- hverfi. Þemað er farflugið, hin miklu og óskiljanlegu afrek fuglanna sem hafa heiminn undir í ferðum sínum en rata þó alltaf til baka. Í sýningunni er unnið með merkan safnkost Náttúru- gripasafns Borgarfjarðar og þar má sjá ýmsa sjaldgæfa gripi eins og snæuglu og albínóa, auk algengra fugla og sjaldséðra flækinga. Sýning- in er helguð minningu Sigfúsar Sum- arliðasonar (1932-2001) fyrrverandi sparisjóðsstjóra í Borgarnesi. Ævintýri fuglanna Fuglar í fögru umhverfi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.