Morgunblaðið - 05.04.2013, Page 11

Morgunblaðið - 05.04.2013, Page 11
Morgunblaðið/Golli Samstarfskonur Helga Einarsdóttir, og Soffía Gísladóttir með son sinn, Fróða Haraldsson, níu mánaða. mér því upp að henni og spurði hvort hún héti nokkuð Helga?“ segir Soffía og þær gantast með að Helga hafi svolitla stund verið að velta fyrir sér hvaðan hún ætti nú að kannast við þessa konu. Saman hafa þær nú myndað fyrirtækið Lean Laundry í kringum forritin og er karakterinn Soffía þeirra fyrsta samstarfsverk- efni. Loks má geta þess að í Google búðinni geta notendur sett inn ábendingar um forritin og hvetja þær Helga og Soffía notendur til að nýta sér þetta þannig að þær viti hvað sé gott og hvað mætti betur fara. Stafirnir og tölurnar eru skreytt með eyrum og munnum en hverjum staf fylgir teikn- ing af ein- hverju sem byrjar á sama staf. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 2013 lofar góðu fyrir karlmenn 50 ára og eldri Pro•StaminuS „Pro•Staminus er nýtt og gríðar- lega spennandi náttúrulegt efni fyrir karlmenn semhafa einkenni góðkynja stækkunar á blöðruhálskirtli“ segir Gígja Þórðardóttir sjúkraþjálfari og sölu- ogmarkaðsfulltrúi Gengur vel ehf . „Margir karlmenn gefa þessu ekki gaum strax en þrengingin og þrýsting- urinn sem verður á þvagrás af völdum stækkunar kirtilsins geturm.a. leitt til kraftminni þvagbunu, tíðra þvagláta, erfiðleika við að tæmaþvagblöðru og fleira“ segir Gígja. Efnið prófað á 20 íslenskum karlmönnum Gengur vel auglýsti eftir þátttakendum í prufuhóp í útvarpsþættinumHeilsan heim á útvarpi Sögu 22.. janúar s.l. og fengugóðar undirtektir ogfjölmargar fyrirspurnir. Í heildina prófuðu 20karlar á aldrinum43 -80 áraPro•Staminus og er skemmst frá því að segja að u.þ.b. 70% fundu jákvæðar breytingar. Sumir fundumjögmiklar breytingar og aðrirminni en aðallega voru breytingarnar fólgnar í færri klósett- ferðumánæturna, sterkari þvagbunu ogbetri tæminguþvagblöðrunnar. Einn þátt- takendanna fækkaði næturferðum á klósettið úr sex í eina og nokkrir töluðu umað fá ekki eins oft ofur- sterka þvag- látstilfinningu. „Það var frábært að kynnast þessum heiðursmönnumog þeir voru opnir og einlægir í sínum svörumgagnvart málefnum semáður fyrr varminna rætt um.Mér finnst eins og karlmenn séu opnari að tjásigumheilsunaogvera meiravakandi yfireiginvelferð og leita leiða til að látasér líðabeturogþaðer frábært“ segirGígjaog tekur fram að það hafi komið henni þægilega á óvart hversumargir þátttakendanna höfðu leitað til læknis vegna þeirra kvilla semþeir hefðu verið að upplifa. Tíðar klósettferðir trufla nætursvefn Ekkert jafnast á við góðan nætur- svefn og gefur þetta nýja efni karl- mönnumgóða von umbættan svefn og ekki síðurmökumþeirra sem eiga við þetta algenga vandamál að stríða. „Það er þreytandi til lengdar fyrir báða aðila þegar verið er að brölta fram úr rúminu jafnvel mörgum sinnum á nóttu til að pissa því rof á svefni hefur mikil áhrif á hvernig við hvílumst og orka og einbeiting yfir daginn minnkar. Það er því til mikils að vinna að fækka nætur ferðum á klósettið“ segir Gígja og tekur fram að það séumargir þæt- tir sem karlmenn þurfi að huga að áður en farið er að sofa eins og t.d. að drekka ekki mikið fyrir svefn og varast sérstaklega koffeindrykki og áfengi en slíkt getur aukið þvag- framleiðslu. Einfalt – 2 töflur á dag Inntaka á Pro•Staminus ermjög einföld en það þarf einungis 2 töflur á dag, helstmeð kvöldmat og finna flestirmun innan mánaðar en sumir þurfa að gefa sér u.þ.b. 3mánuði til að sannreyna að Pro•Staminus gagnist. „Þetta er algjörlega þessi virði að prófa. Einfalt í notkun, frábær innihaldsefni og til mikils að vinna ef svefninn batnar, klósettferðum fækkar og þvaglát verða skilvirkari“ segir Gígja að lokum. Nánari upplýsingar áwww.gengurvel.is. Pro•Staminus fæst í apótekum, heilsuhúsum, Hagkaup og Fjarðarkaupum Hafnarfirði. Pro•Staminus sameinar hefðir og nýsköpun. Blanda hörfræja, graskersfræja og granatepla ermikilvæg til að halda góðumblöðruhálskirtli og þvaglátum útævina, en talið er að flestir karlmenn finni fyrir einkennumgóðkynja stækkunar blöðruhálskirtils. Algengast er að það gerist eftir að 50 ára aldri er náð, en kemur þó fyrir hjá yngri mönnum líka. Gígja Þórðardóttir Er þvagbunan kraftlítil? Þarftu að pissa oft á nóttunni? AU GLÝ SIN G Þar sem ég ligg á gólfinu með teppi yfir mér og tvo púða undir mér finn ég að það slaknar svei mér þá á öllum líkamanum. Gott ef að þessi jógatími er ekki bara sannarlega að virka. Já, það kom að því að ég dreif mig. Eftir að hafa íhugað (já vandlega úthugs- aður orðaleikur) það í nokkurn tíma að fara í jóga kom að því að ég gerði alvöru úr hugsunum mín- um. Sá ég auglýst fyrir skömmu sérstakt vöðvabólgujóga þar sem einblínt væri á háls, bak og axlir. Þarna voru skilaboðin komin svart á hvítu. Þú skalt í jóga með þína aumu vöðva kona og það strax! Svo ég skráði mig og mætti í fyrsta hádegistímann með opn- um huga og eins mikla slökun og ég gat í huga og hjarta. Ég á nefnilega mjög erfitt með að slaka á því að blessaður hugurinn held- ur sífellt áfram að velta fyrir sér og hugsa um hitt og þetta. Við þetta spennist líkaminn allur upp og heldur að hann eigi að taka þátt í einhverju mikilvægu. Þegar hann á í raun bara að vera að hvíla sig. Í tímunum er lögð áhersla á að lagfæra hið ytra með því sem innra er. Tel ég að slík færni eigi eftir að koma sér mjög vel fyrir ofhugsuð eins og mig. Kennarinn lætur okkur gera ein- faldar teygjur og æfingar (enn sem komið er þarf ég ekki að reyna að teygja fótinn yfir höf- uðið) og á meðan talar hún við okkur í róandi og ljúfum tón. Þetta er ótrúlega orkugefandi í amstri hversdagsins og á eftir líð ég út og áfram út í daginn. Því fylgir mikil æfing að læra að anda rétt (með maganum eins og smábörnin jafnvel þó hann fari út í loftið) og geta sleppt takinu af stressi og áhyggjum. Æfingin er þó sann- arlega á sig leggjandi því ég held að uppskeran verði nokk- uð góð. Með afslöppun í hönd- um og huga óska ég ykkur góðrar helgar og megið þið vera sem mest í núinu. Því ein- mitt þar er best að vera og í raun getum við ekki verið neins staðar annars staðar. Magann bara út Jóga Slakandi og teygjandi fyrir líkama og sál. Því fylgir mikil æfing að læra að anda rétt ofan í maga. Mæja masar maria@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.