Morgunblaðið - 05.04.2013, Page 20

Morgunblaðið - 05.04.2013, Page 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 2013 Endurskoðunarstofan KPMG ehf. og Bréfdúfnafélag Íslands (BFÍ) hafa undirritað styrktarsamning sem felur í sér að KPMG styrkir Ís- landsmót í bréfdúfnakappflugi í sumar. Keppnistímabilið í bréf- dúfnakappflugi hefst 18. maí og verður keppt um hverja helgi til 7. september. Fyrirkomulag bréf- dúfnakappflugs er með þeim hætti að fuglarnir eru keyrðir á keppn- isstað/sleppistað, svo fljúga fugl- arnir til síns heima. Áður en keppni hefst er vegalengd til hvers kepp- anda mæld. Því næst er hver fugl skráður til keppni með því að sér- stakur keppnishringur með inn- byggðri segulrönd er settur á fót hvers fugls og hann svo skráður í keppnisklukku hvers eiganda ásamt vegalengd. Fuglarnir safna stigum og í lok sumars er reiknað út hver hefur safnað þeim flestum og telst vera besti fugl landsins. Leitin að besta fugl- inum hefst í maí Vilhelm R. Sigurjónsson f.h. Bréfdúfna- félags Íslands og Jóhanna Kristín Guð- mundsdóttir markaðsstjóri KPMG. Opin málstofa um beitarmál og landnýtingu verður haldin í ráð- stefnusalnum Heklu, Hótel Sögu, föstudaginn 5. apríl kl. 14.30. Erindi flytja: Anna Guðrún Þór- hallsdóttir, prófessor við Land- búnaðarháskólann, Gústav Ás- björnsson, héraðsfulltrúi hjá Landgræðslunni, og Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, héraðsfulltrúi hjá Landgræðslunni. Málstofan er haldin í tengslum við aðalfund Landssamtaka sauð- fjárbænda sama dag og er hún öll- um opin. Rætt um beitarmál Siðfræðistofnun og læknadeild Há- skóla Íslands efna til hádegismál- stofu um tilraunalækningar og kukl í stofu 101 í Lögbergi í dag, 5. apríl kl. 12.00-13.30. Í kynningu segir að talsvert sé um að sjúklingar leiti til útlanda í dýrar læknismeðferðir sem seldar eru undir yfirskini tilrauna- meðferða. Á málstofunni verður rætt um hvernig megi greina á milli slíkra meðferða, og reynt verður að varpa ljósi á ábyrgð heilbrigðis- starfsmanna og fjölmiðla. Erindi flytja Magnús Karl Magn- ússon, prófessor í lyfja- og eitur- efnafræði við læknadeild HÍ, Helgi Sigurðsson og Róbert Haraldsson, prófessor við heimspekideild HÍ. Fundurinn er öllum opinn. Málstofa um kukl og tilraunalækningar STUTT VIÐTAL Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Hinn 23. mars síðastliðinn lögðu fjór- ir Íslendingar og Norðmaður í sjö daga ferð yfir Vatnajökul. Það voru Ármann Guðjónsson, hópstjóri hjá Nýherja, og André Spica, framhalds- skólakennari og ævintýramaður, sem áttu frumkvæðið að ferðinni, en á undirbúningstímanum bættust þrír í hópinn, hver úr sinni áttinni. Allir, utan André, höfðu starfað innan hjálparsveita og því vanir útivist og fjallgöngum en hugmyndin var að reyna á líkama, þol og andlegan styrk, í glímu við jökulinn á erfiðum árstíma. „Maður er búinn að lesa um svo marga leiðangra sem hafa farið yfir Vatnajökul, sem ýmist hafa heppnast eða misheppnast, þannig að þetta er nokkuð sem mann hefur langað að gera. Ég hef farið upp á Hvannadals- hnjúk, og við allir nema Norðmað- urinn, þannig að við höfðum fengið nasaþefinn af jöklinum og einhvern veginn kallar hann alltaf á mann aft- ur,“ segir Kjartan Long, verkefna- stjóri hjá Byko og einn leiðangurs- manna. Hann segir hópinn hafa verið vel undirbúinn en hver og einn var útbú- inn gönguskíðum og skíðastöfum, bar dagbakpoka með hlífðarfatnaði og nesti á bakinu og dró á eftir sér sleða sem var um 30 kg að þyngd. Stöðufærslur á Facebook „Við undirbjuggum okkur mjög vel og fengum veðurspá á hverjum degi. Annar maður, sem ætlaði með okkur í ferðina en komst svo ekki út af veikindum, var nokkurs konar „camp-manager“, sendi okkur veður- spána og uppfærði facebooksíður Komu í betra formi niður af jöklinum  Fóru á gönguskíðum yfir Vatnajökul  Fundu tófuspor  „Bara þögnin“ Ljósmyndari/Kjartan Long Nestistími F.v.: Dagur Óskarsson, Ármann, André og Arnar Páll Gíslason. Yfir jökulinn á 7 dögum Dagur 1 Jökulheimar-Túngnaárjökull Dagur 2 Túngnaárjökull Dagur 3 Túngnaárjökull-Grímsfjall Dagur 4 Grímsfjall-Vatnajökull Dagur 5 Vatnajökull-Hermannaskarð Dagur 6 Hermannaskarð-Hvannadalshnjúkur Dagur 7 Hvannadalshnjúkur-Hnappavellir Hygea Smáralind 20% afsláttur af möskurum frá Helena Rubinstein Fyrsti maskarinn okkar sem þornar ekki upp Hrífandi augnhár frá fyrsta til síðasta notkunardags Dag eftir dag: Þykkir mikið Grafísk lengd Mikilfengleg sveigja Draumur að nota

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.