Morgunblaðið - 05.04.2013, Side 21
FRÉTTIR 21Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 2013
okkar allra; hver staðan væri. Við
vorum með gervihnattatæki sem
staðsetti okkur á hverjum náttstað
og það svona friðaði ættingjana. Þeir
voru ánægðir með það,“ segir Kjart-
an en símasamband á jöklinum er af-
ar stopult.
Hópurinn var heppinn með veður
og gekk í tvo daga undir heiðskírum
himni allt að Grímsvötnum að sögn
Kjartans en á þriðja og fjórða degi
sáu þeir vart handa sinna skil. Það
var þó umbun fyrir erfiðið þegar birti
inn á milli.
„Jökullinn átti það til að hreinsa
sig alveg og þá sástu allt í kannski
korter og svo varð allt aftur hvítt. Þú
gekkst kannski í sex til átta tíma án
þess að sjá neitt en það skipti engu
máli, því þá opnaðist þessi gluggi og
við sáum niður á öræfi og alla þessa
tinda sem eru þarna uppi,“ segir
Kjartan.
Líf í víðáttunni
Það kom Kjartani og samferða-
mönnum hans mikið á óvart, að í eitt
skiptið þegar létti, svo sást langar
leiðir, komu þeir auga á tófuspor í
drifhvítum snjónum.
„Þetta var stórmerkilegt, þarna á
miðjum jökli,“ segir Kjartan. „Ég tók
nokkrar myndir til að færa sönnur á
mál okkar. Við sáum að refurinn kom
úr norðri og labbaði í suðurátt, þann-
ig að hann er að ferðast þarna á milli.
Ég hef aldrei heyrt um þetta áður, á
miðjum jökli og um miðjan vetur.“
Það var kærkomið að sjá ummerki
um aðra skepnu á jöklinum, segir
Kjartan. „Þarna er ekkert líf; þú
hvorki sérð né heyrir til fugla. Það er
bara þögnin.“
Krosssprunginn
Áður en lagt var í hann segist
Kjartan hafa verið mest uggandi um
veðrið en það voru sprungurnar í
jöklinum sem reyndust leiðangrinum
erfiðastar viðureignar.
„Jökullinn er ekkert sprunginn
fyrr en maður kemur í Hermanna-
skarð, sem er bara rétt áður en mað-
ur kemur að Öræfajökli. Og það kom
okkur svolítið á óvart því við unnum
leiðangurinn upp úr sprungukortum
frá Safetravel, sem Landsbjörg vinn-
ur með, og það var búið að segja við
okkur að við myndum örugglega ekki
sjá mikið af sprungum af því þær
væru allar fullar af snjó á þessum
tíma.“
Inni á Öræfajökli var hins vegar
krosssprungið, segir Kjartan, og það
seinkaði förinni niður. Þá lenti Norð-
maðurinn Spica með annað skíðið of-
an í einni sprungunni og annar leið-
angursmanna fór úr axlarlið, en úr
því var leyst á staðnum.
Allir komu hæstánægðir niður af
jöklinum.
„Þetta er hörkuvinna en ég er bú-
inn að tala við alla strákana í dag og
við erum allir á því að við komum nið-
ur í miklu betra formi, bæði andlega
og líkamlega. Maður finnur það þeg-
ar maður sest aftur við skrifborðið;
ég er orðinn kvefaður og einn sem er
að teikna er aftur kominn með vöðva-
bólgu sem var horfin,“ segir Kjartan.
Sjálfur hafi hann átt við bakmeiðsl að
stríða en líði aldrei betur en þegar
hann hreyfir sig og fer á fjöll.
Ljósmyndari/Ármann Guðjónsson
Ljósmyndari/Ármann Guðjónsson
Næturstaður Fyrstu dagana tvo var sungið og gaman en þegar gerði skaf-
renning fóru menn inn í sig og einblíndu á verkefnið sem var fyrir höndum.
Gönguskíðaferð yfir Vatnajökul
Jökulheimar
(upphaf ferðar)
Grímsfjallaskáli
Hvannadalshnjúkur (tjaldað)
Niður af jökli
Tjaldað
Tjaldað
TjaldaðSpor
eftir ref
VATNAJÖKULL
Breiðabunga
Esjufjöll
Bárðarbunga
Síðuj.
Skeiðarárj.
Skaftafell
Höfn
Hálslón
Grunnkort/Loftmyndir ehf.
Tjaldað
Við Grímsvötn Hópurinn
fór á fætur kl. 6 á morgn-
ana og gekk þar til kl. 18 á
kvöldin en þá var tjaldað,
skjólveggir búnir til og
vatn brætt til drykkjar.
Sími 571 2000 | hreinirgardar.is
Núna er rétti tíminn fyrir
trjáklippingar og grisjun