Morgunblaðið - 05.04.2013, Page 27

Morgunblaðið - 05.04.2013, Page 27
FRÉTTIR 27Erlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 2013 www.boconcept.is X E IN N IX 13 04 00 3 Húsgögnin frá BoConcept sameina framúrskarandi hönnun, gæði, góð verð og óteljandi möguleika. Þú getur notað teikniforritið á www.boconcept.is til að hanna þín eigin húsgögn – sófann, borðið, stólana, skenkinn eða hvað sem hugurinn girnist. Þú smellir einfaldlega á flipann „Design in 3D Home Creator“ undir hverri mynd, byrjar að hanna og reiknar verðið! Skipholt 17 - 105 Reykjavík Sími 588 4699 Fax 588 4696 www.oba.is oba@oba.is Þjónusta til frambúðar..... olivetti Lita-fjölnotatækið D-COLOR MF2604EN Kr. 281.900 Með Olivetti d-Color MF2604EN fjölnota- tækinu má prenta, ljósrita, skanna og senda fax, allt með sama tækinu. Sérlega hentugt fyrir deild innan fyrirtækis. Hagvæmt í rekstri MARS TILBOÐ kr. 249.74 2 Breti, sem var fundinn sekur um að bera ábyrgð á dauða sex barna sinna í eldsvoða í Derby í fyrra, var dæmdur í lífstíðarfangelsi í gær. Eiginkona hans og vinur þeirra hjóna, sem einnig voru fundin sek um að bera ábyrgð á dauða barnanna, voru dæmd í sautján ára fangelsi. Dómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu að faðir barnanna hefði verið höfuðpaurinn í málinu. Ætlunin hefði verið að kveikja í húsinu og bjarga börnunum út úr eldinum til þess að auka líkurnar á því að hann fengi for- ræðið yfir þeim, en hann hafði átt í forræðisdeilu við móður barnanna. Þessi áform fóru út um þúfur með hörmulegum afleiðingum því ekki tókst að bjarga börnunum út úr eldhafinu. Fimm þeirra brunnu inni og sjötta barnið dó á sjúkrahúsi nokkru síðar. LÍFSTÍÐARDÓMUR Í BRETLANDI Varð börnum sínum að bana með íkveikju Að minnsta kosti 57 biðu bana í flóðum og fárviðri sem gekk yfir Argentínu í fyrradag, flestir þeirra í borginni La Plata, sem er um 60 km suðaustan við Buenos Aires. Um tuttugu til viðbótar er saknað í borginni. Hermaður ber hér gamla konu sem var flutt úr byggingu umflot- inni vatni í La Plata. AFP Mannskæð flóð í Argentínu Nöfn þúsunda manna, sem hafa stofnað félög í skattaskjólum, koma fram í tveimur milljónum tölvupósta og annarra gagna sem lekið var í fjölmiðla, að sögn breska dagblaðs- ins The Guardian og franska blaðs- ins Le Monde í gær. Á meðal þeirra er Jean-Jacques Augier, náinn vinur forseta Frakklands, François Hol- lande, og fyrrverandi fjármálastjóri forsetaframboðs hans. Í ljós kom að Augier er hluthafi í tveimur fyrirtækjum sem eru skráð í skattaparadísinni Cayman-eyjum, að því er fram kemur í viðamikilli umfjöllun Le Monde um skatta- undanskot og hlutdeild auðmanna. stjórnmálamanna og einstaklinga tengdra þeim í félögum skráðum í þekktum skattaparadísum. Þetta er enn eitt hneykslið sem kemur upp í tengslum við nána ráð- gjafa forsetans en í síðasta mánuði neyddist fjárlagaráðherra Frakk- lands, Jerome Cahuzac, til að segja af sér þegar rannsókn var hafin á því hvort hann hefði svikið undan skatti með því að fela fé á svissneskum bankareikningum. Ekki bætti úr skák að Cahuzac reyndi að ljúga og sór ásakanirnar af sér. Hann viður- kenndi hins vegar um páskana að fréttirnar væru réttar. Augier, 59 ára, staðfestir við Le Monde að hann eigi hlut í fyrirtækj- unum tveimur og segir að þau hafi verið stofnuð vegna samstarfs við út- lenda athafnamenn. „Það er ekkert ólöglegt við þetta,“ segir Augier í viðtali við Le Monde en blaðið vann að rannsókninni í tengslum við al- þjóðlega stofnun á sviði rannsóknar- blaðamennsku, International Con- sortium of Investigative Journalists. Þetta er stærsta og viðamesta verk- efni sem stofnunin hefur komið að í fimmtán ára sögu sinni en meðal fjöl- miðla sem tóku þátt í rannsókn- inni á skattaskjól- um víða um heim eru Guardian, BBC, The Wash- ington Post, Can- adian Broadcast- ing Corporation (CBC), Süd- deutsche Zeitung og Nord- deutscher Rundfunk auk rúmlega 30 annarra fjölmiðla. Fyrra fyrirtækið, International Bookstores, var stofnað árið 2005 en það var vegna samstarfs Augier við kínverska kaupsýslumanninn Xi Shu. Seinna fyrirtækið var stofnað þremur árum síðar með alþjóðlegum fjárfestum í ferðaþjónustu. Dætur Iliyevs á meðal auðmannanna The Guardian sagði að upplýsing- arnar um auðmennina kæmu fram í tveimur milljónum tölvupósta og annarra gagna sem lekið hefði verið í fjölmiðla. Flest gagnanna vörðuðu félög sem stofnuð hafa verið á Bresku jómfrúaeyjum og Cayman- eyjum. Á meðal þeirra sem nefndir eru í frétt The Guardian um skatta- skjólin er fyrrverandi fjármálaráð- herra Mongólíu, Bayartsogt Sanga- jav, sem íhugar að segja af sér vegna málsins. Tvær dætur Ilhams Iliyevs, for- seta Aserbaídsjans, eru eigendur þriggja félaga sem stofnuð voru í Bresku jómfrúaeyjum. Í gögnunum kemur fram að framkvæmdastjóri félaganna er auðugur kaupsýslu- maður sem hefur gert ábatasama samninga við ríkisvaldið í Aserbaíd- sjan. guna@mbl.s bogi@mbl.is Leyndarmál í skattaskjól- um afhjúpuð  Nöfn þúsunda auðmanna koma fram í gögnum sem lekið var í fjölmiðla Jean-Jacques Augier

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.