Morgunblaðið - 05.04.2013, Page 29

Morgunblaðið - 05.04.2013, Page 29
29 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 2013 Stór stund Páll Winkel fangelsismálastjóri heldur sigri hrósandi á loft skóflunni sem Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra notaði til að taka fyrstu skóflustunguna að nýju fangelsi á Hólmsheiði. Júlíus Tæpur mánuður er til kosninga og upp úr þeim lýkur stjórnmálaferli Jó- hönnu Sigurðardóttur. Sex síðustu árin hefur hún set- ið í ríkisstjórn. Árið 2007 varð hún félagsmálaráð- herra, en undir það ráðu- neyti féll Íbúðalánasjóður. Hún var annar áhrifa- mesti ráðherra Samfylk- ingarinnar. Í ársbyrjun 2009 var Sigmundur Davíð Gunn- laugsson kjörinn formaður Framsókn- arflokksins. Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir hafði átt við alvarleg veikindi að stríða, en það ásamt öðru olli því, að ekki voru forsendur fyrir því að mynda þjóðstjórn til þess að sameina þjóðina í þeim erfiðleikum, sem dunið höfðu yfir með hruninu og eftir það. Það er vafalaust í mínum huga, að ef tekist hefði að mynda þjóðstjórn vær- um við Íslendingar betur settir í dag. Hafist hefði verið handa um atvinnu- uppbyggingu, atvinnuleysi eytt og efnahagur þjóðarinnar styrktur. Það var á þessum tímapunkti sem Sigmundur Davíð Gunnlaugsson sté fram og gerði Jóhönnu Sigurðardóttur að forsætisráðherra hinn 1. febrúar 2009 með stuðningi Framsóknarflokks- ins en Steingrímur J. Sigfússon varð fjármálaráðherra. Kosningar skyldu verða um vorið og sá Sigmundur Davíð það fyrir sér, að Framsóknarflokkur- inn yrði þriðja hjólið undir ríkisstjórn- arvagni Jóhönnu, en þegar til kom þurfti hún ekki á honum að halda, svo að Sigmundur Davíð sat eftir með sárt ennið. En hvað gekk Sigmundi Davíð til? spyrja menn. Fyrst og síðast vildi hann einangra Sjálfstæðisflokkinn, sem hefur verið draumur framsókn- armanna síðan á Jónasar-tímanum. Það hefur valdið því að formaður Framsóknarflokksins hefur ávallt byrj- að á því að leita hófanna um myndun vinstristjórnar, þegar hann hefur feng- ið umboð til myndunar ríkisstjórnar. Og innan Framsóknarflokksins eru raddir um að svo verði enn, fái flokk- urinn meirihluta eftir kosningar með Samfylkingu og Bjartri framtíð. Sigmundur Davíð gerði það að skil- yrði fyrir stuðningi sínum við ríkis- stjórn Jóhönnu að boðað yrði til stjórnlagaþings. Sjálfstæðismenn brugðust hart við og þessari atlögu varð hrundið. Stjórnlaga- ráðið og allur sá ferill var einn samfelldur vand- ræðagangur og áminning um, að stjórnarskrána megi aldrei aftur nota sem skiptimynt, – hún má aldrei verða flýtiverk, pappír sem krotað er í eftir geðþótta. En það var fleira sem hékk á spýtunni. Jóhanna gerði það að ófrávíkjanlegu skilyrði fyrir myndun ríkisstjórnar sinnar að sótt yrði um að- ild að Evrópusambandinu og er engin ástæða til að ætla annað en að Sig- mundur Davíð hefði sest upp í Evr- ópuvagninn með Steingrími J. Sigfús- syni að kosningum loknum, ef Jóhanna hefði þurft á honum að halda. Loks er það ljóst í mínum huga, að þau Jóhanna og Steingrímur hafa gert Sigmundi Davíð grein fyrir áherslum sínum í efnahags- og atvinnumálum áður en hann lýsti yfir stuðningi við ríkisstjórn þeirra. Undir það falla skuldamál heimilanna og sú skjald- borg, sem þeim vinstrimönnum hefur orðið svo tíðrætt um allan valdaferil Jóhönnu Sigurðardóttur en aldrei fundið. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hef- ur sett fyrirsagnir á stefnumál Fram- sóknarflokksins nú fyrir þessar kosn- ingar, en útfærsluna vantar og þess vegna er hægt að skjóta sér undan eft- ir á. Eins og 1. febrúar 2009, þegar hann gerði Jóhönnu Sigurðardóttur að forsætisráðherra til þess að einangra Sjálfstæðisflokkinn, – eins og þau póli- tísku axarsköft hans hafi ekki haft eft- irköst fyrir þjóðina. Eftir Halldór Blöndal » Sigmundur Davíð hef- ur sett fyrirsagnir á stefnumál Framsóknar- flokksins … en útfærsluna vantar og þess vegna er hægt að skjóta sér undan eftir á. Halldór Blöndal Höfundur er fyrrverandi ráðherra. Sigmundur Davíð á að fá að njóta sannmælis Umhverfisvernd er þáttur í milliríkja- samskiptum þar sem ekki er um annað en samstarf að ræða. Ríkin við Eystrasaltið bera öll sögulega ábyrgð á framtíð þess og varðveislu einstaks fjölbreytileika í nátt- úru þess. Samstarf um lagningu Nord Stream-gasleiðsl- unnar er gott dæmi um ávinning- inn af þessari nálgun. Leiðslan á botni Eystrasaltsins getur flutt allt að 55 milljarða rúmmetra af náttúrulegu gasi á ári í að minnsta kosti 50 ár. Þetta er fyrsta verkefnið þar sem löndunum fimm sem eiga efnahagslögsögu þar sem neðan- sjávarleiðslan liggur tókst að finna jafnvægi milli krafna í umhverf- ismálum, jafnt alþjóðlegra sem innan lands. Rúmlega 100 milljónum evra var varið í undirbún- ing rannsóknar á um- hverfisþáttum og á það sér ekki fordæmi í Eystrasaltinu. 40 milljónum evra til við- bótar verður varið í að skipuleggja viðvar- andi eftirlit með allri leiðinni á næstu þremur árum. Efnahagslegar for- sendur réðu ekki að- eins ferðinni í tækni- legum og verkfræðilegum lausnum. Grundvallarmarkmiðið var að fylgja ströngustu umhverf- iskröfum. Áhrifin á umhverfið voru smávægileg, staðbundin og takmörkuð í tíma. Þess utan jók undirbúningurinn undir að leggja leiðsluna verulega við þekkingu okkar á vistkerfi Eystrasaltsins og gerði það aðgengilegt. Ábyrgðartilfinning nútíma- samfélagsins gagnvart umhverfinu fer vaxandi og það er mikilvægt. Þróun nýrrar tækni í orkufram- leiðslu og skilvirk notkun náttúru- auðlinda er orðin mikilvægur afl- vaki hagvaxtar. Sjálfbær þróun tækifæra liggur í umhverfisvænni nýsköpun og grænu hagkerfi. Það er gríðarlega mikilvægt eftir því sem áföll í fjármála- og efnahags- kerfi heimsins verða tíðari. Frumkvöðlar ættu að gegna virkara hlutverki í svæðisbundn- um umhverfisverkefnum á borð við samstarf Suðaustur-Eystra- saltssvæðisins (SEBA). Samstarf ríkja og héraða, sveitarstjórna og viðskiptalífsins, yfirþjóðleg samtök og óháð samtök ættu að leggja áherslu á að ýta undir hagvöxt á svæðinu. Þegar fram í sækir myndi það bæta lífskjörin. Ég er sannfærður um að eigi að tryggja stöðuga þróun Eystra- saltssvæðisins verður það aðeins gert ef umhverfismarkmiðum er fylgt eftir um leið og unnið er að settu marki í efnahagslegum og félagslegum málum. Innleiðing vinnubragða í þágu vistkerfisins er forgangsmál hjá Eystrasalts- ráðinu og Helsinkinefndinni um sjávarvernd í Eystrasaltinu. Eystrasaltsráðið, sem um þess- ar mundir er undir forustu Rússa, verður tuttugu ára á þessu ári. Um leið og ráðið leggur áherslu á langtímamarkmið ætti það að leita nýrra aðferða og leiða til sam- starfs. Ráðið ætti að nýta mögu- leikana til samstarfs hins opinbera og einkageirans, sérstaklega við að fylgja eftir stórum uppbygging- arverkefnum, efla samstarf í nú- tímavæðingu og styðja frum- kvöðlaverkefni millistórra fyrirtækja. Þetta eru þau mál, sem við viljum ræða á leiðtoga- fundi Eystrasaltsríkjanna um um- hverfisvernd í Eystrasaltinu, sem nú hefst í Pétursborg. Það er erfitt að ofmeta tækifær- in í milliríkjasamskiptum til að vernda umhverfið. Ég vona að Pétursborgarfrumkvæðið, sem Rússar hyggjast hleypa af stokk- unum á þessari ráðstefnu, sé rök- rétt viðbót og stuðli að þróun þeirra ferla, sem þegar eru fyrir hendi. Meginmarkmiðið með því er að sameina krafta samfélagsins, stjórnvalda og viðskipta- og fjár- málalífs. Ég vil enn ítreka að öll gerum við okkur grein fyrir því að við er- um hvert öðru háð og munum ekki leysa úr málum heima fyrir án þess að taka með í reikninginn hagsmuni nágranna okkar. Vitaskuld berum við öll ábyrgð á framtíð Eystrasaltsins og fólks- ins, sem býr við strendur þess. Eftir Dmitrí Medvedev » Vitaskuld berum við öll ábyrgð á framtíð Eystrasaltsins og fólks- ins, sem býr við strend- ur þess. Dmitrí Medvedev Höfundur er forsætisráðherra Rússlands. Umhverfið er forgangsmál Eystrasaltsríkjanna á 21. öldinni

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.