Morgunblaðið - 05.04.2013, Page 33
UMRÆÐAN 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 2013
Nýr kafli er nú að
hafinn í sögu Fjórð-
ungssjúkrahússins í
Neskaupstað. Stór
draumur er orðinn að
veruleika. Hollvina-
samtökin með stuðn-
ingi velunnara hafa
fært Fjórðungssjúkra-
húsinu að gjöf 16
sneiða fullkomið sneið-
myndatæki, sem leysir
af hólmi eldra 2ja
sneiða tæki, sem gefið var árið 2005.
Hollvinasamtök Fjórðungssjúkra-
hússins í Neskaupstað hafa staðið
fyrir söfnun til kaupa á þessu tæki og
fengið stuðning víða til kaupanna af
Austurlandi. Þetta nýja tæki er af
gerðinni Optima 520 frá General
Electric. Tækið kostaði hingað kom-
ið og uppsett nálægt 50 milljónum.
Það er nú þegar komið upp en grein-
ing mynda mun fara fram á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á Akureyri. Þetta
setur Fjórðungssjúkrahúsið í Nes-
kaupstað í fremstu röð sjúkrahúsa á
landsbyggðinni með slíkt tæki til
framtíðar. Söfnun tækisins hefur
staðið allt frá árinu 2010. Var með-
fram stóru söfnuninni einnig staðið
að því að kaupa önnur minni tæki til
stofnunarinnar á þessum tíma til að
viðhalda tækjakosti sem best og
mest. Fjórðungssjúkrahúsið í Nes-
kaupstað hefur veitt sérfræðiþjón-
ustu á Austurlandi í áratugi. Þar er
skurðstofa og fæðingardeild, bráða-
móttaka, heilsugæsla og sjúkra- og
hjúkrunardeild og endurhæfingar-
deild. Mikil uppbygging og end-
urnýjun á tækjabúnaði sjúkrahúss-
ins hófst er Hollvinasamtök voru
stofnuð árið 2000. Hafa þau beitt sér
fyrir endurnýjun flestra tækja, sem
snúa að klínískri þjónustu. Sérfræð-
ingar margir hafa komið að þjónust-
unni og slasaðir og bráðveikir sjúk-
lingar hafa fengið aðstoð, sem veitt
hefur verið og þjónusta sjúkrahúss-
ins ávallt til fyrirmyndar. Því er
staða þess sterk til framtíðar og
þjónustan ávallt eins góð og best
verður á kosið, þrátt fyrir þann nið-
urskurð, sem átt hefur sér stað í
heilsugæslu í landinu. Hefur Fjórð-
ungssjúkrahúsið í Neskaupstað ekki
farið varhluta af því. Fyrir hið mik-
ilvæga hlutverk Fjórðungssjúkra-
hússins skiptir mestu að sem best
tæki séu þar til staðar, við allar
greiningar sjúklinga, til að hægt sé
að veita sem besta meðhöndlun
hverju sinni. Þetta vita austfirsk
líknarfélög, einstaklingar og fyrir-
tæki og sérstaklega Norðfirðingar
sem hafa sýnt sjúkrahúsinu einstaka
velvild og staðið vel að endurbótum
með tækjakaupum í gegnum tíðina.
Þetta hefur aukið allt
öryggi til muna við
skoðun bráðatilfella og
réttrar meðhöndlunar í
framhaldi af því. Ljóst
var alltaf að til þess
kæmi að endurnýja
eldra tækið. Í janúar sl.
kom bilun upp í því
tæki og var þá nýja
tækið þegar komið og
beið afhendingar. Var
því eldra tækið þannig
leyst af hólmi eftir
mjög árangursríkan
endingartíma. Má segja að með því
tæki hafi Fjórðungssjúkrahúsið tek-
ið stökkbreytingum, á sínum tíma.
Bæði læknar og sjúklingar hafa notið
þess hvað varðar þjónustu og grein-
ingar, að slíkt tæki var til staðar og
jafnvel bjargað mannslífum. Er því
tilkoma hins nýja fullkomna tækis
enn mikilvægari, þar sem hægt er að
greina með því mun nákvæmar en
með því gamla. Það markaði þó
brautina, ekki aðeins fyrir Fjórð-
ungssjúkrahúsið hér, heldur varð
hvatning fyrir önnur sjúkrahús á
landsbyggðinni að koma sér líka upp
sneiðmyndatækjum með aðstoð vel-
unnara og hins opinbera. Beiðni um
fjármagn til tækjakaupanna var
send fjárlaganefnd Alþingis árið
2010, en því hefur ekki verið svarað.
Rétt er að geta þess að vegna stöð-
ugrar endurnýjunar tækja við Fjórð-
ungssjúkrahúsið hefur tækjakostur
þess verið til fyrirmyndar og læknar
hafa sóst eftir því að koma til starfa
og auðvelt hefur verið að fá lækna og
hjúkrunarfólk til afleysinga eftir
þessa endurnýjun alla. Þá hefur oft
sparast sjúkraflug vegna góðrar
greiningar við bráðatilfelli. Það hef-
ur haft mikinn sparnað í för með sér.
Varðandi eldra tækið þurfti að útbúa
aðstöðu fyrir það tæki sem og ný
röntgen-myndatæki sem voru einnig
gefin á því sama ári. Aðstaðan sem
þá þurfti að útbúa, var gerð af hálfu
ríkisvaldsins og nýtist hún þar
áfram. Þeir hollvinir og stuðnings-
aðilar sem hafa styrkt kaupin á
þessu tæki eru fyrst og fremst stór-
fyrirtæki í Fjarðabyggð, og þar ber
hæst framlag Síldarvinnslunnar h/f
og SÚN í Neskaupstað auk Loðnu-
vinnslunnar h/f á Fáskrúðsfirði og
Alcoa Reyðarfirði, og ýmis samtök
og einstaklingar. Það er því rík
ástæða til að þakka það sem safnast
hefur sem velunnarar og félagsmenn
og fyrirtæki hafa lagt af mörkum til
að gera þetta átak að veruleika. Á
þeim árum sem Hollvinasamtökin
hafa starfað lætur nærri að það fjár-
magn, sem sjúkrahúsinu hefur verið
fært nemi um 140-150 milljónum
með þessu nýjasta framlagi. Hér
sem annars staðar hafa líknar-
samtök, velunnarar og velviljuð fyr-
irtæki á Austurlandi ávallt lagt hönd
á plóg þegar í slík stórverkefni er
ráðist. Það er í raun verðugt um-
hugsunar að ríkisvaldið sem á að sjá
sjúkrahúsum fyrir endurnýjun
tækja og fjármagni til tækjakaupa
skuli ekki leggja lið í slíku stórvirki
sem þessu. Það er því rík ástæða til
að þakka öllum stuðningsaðilum og
velunnurum stuðninginn við þetta
verkefni. Hvet ég íbúa sem víðast á
Austurlandi að skrá sig á netfangið
annathora@hsa.is til að stuðla að
frekari endurnýjun tækja Fjórð-
ungssjúkrahússins okkur öllum til
heilla.
Velunnurum Fjórðungssjúkra-
hússins í Neskaupstað þakkað
Eftir Sigurð Rúnar
Ragnarsson
Sigurður Rúnar
Ragnarsson
» Það er í raun verðugt
umhugsunar að
ríkið, sem á að sjá
sjúkrahúsum fyrir fjár-
magni til tækjakaupa
skuli ekki leggja lið í
slíku stórvirki sem
þessu.
Höfundur er formaður Hollvina-
samtaka Fjórðungssjúkrahússins í
Neskaupstað.
VANDAÐIR ÞÝSKIR
PÓSTKASSAR,
HENGILÁSAR OG
HJÓLALÁSAR.
MIKIÐ ÚRVAL
Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | brynja@brynja.is
Opið virka
daga frá 9-18
og lau frá
10-16 Lykilverslun við
Laugaveginn frá 1919
Frambjóðendur
ræðamálin
Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi
sitja fyrir svörum í Kópavogi.
Fundarstaður:Hlíðarsmári 19, Kópavogi
Fundartími: Laugardagur 6. apríl kl. 10:00 til 12:00
Framsögumenn eru Ragnheiður Ríkharðsdóttir og Friðjón Friðjónsson.
Fundarefni: Skattalækkanir XD, hverjar og hvers vegna.
Góðar veitingar í boði – Allir velkomnir.
Sjálfstæðisflokkurinn í Suðvesturkjördæmi NÁNARÁ 2013.XD.IS
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar greinar
alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota
innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í samskiptum
milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar
sem einnig eru sendar eru á aðra miðla.
Að senda grein
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu
mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn "Senda inn
grein" er valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í
kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að við-
komandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið nóg að slá inn kennitölu notanda
og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólarhringinn.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma
569-1100 frá kl. 8-18.