Morgunblaðið - 05.04.2013, Page 37

Morgunblaðið - 05.04.2013, Page 37
reykinga. Náið samstarf var við skóla landsins, skólastjóra og kennara, og ekki síst voru nem- endur virkjaðir í baráttunni. Rauði þráðurinn í hugsun Þor- varðar var að barátta gegn reyk- ingum unga fólksins ynnist best með baráttu unga fólksins sjálfs. Einnig fékk Þorvarður lækna- nema og aðra í lið með sér. Her- ferðin vakti mikla athygli og ár- angurinn lét ekki á sér standa. Í næstu könnun, sem gerð var árið 1978, kom í ljós að hlutfall nem- enda sem reyktu hafði lækkað á fjórum árum úr rúmum 30% í rúm 20% og árið 1986 var hlut- fallið komið niður í rúm 10%. Óhætt er að segja með skipu- legu tóbaksvarnastarfi meðal grunnskólanema hafi tekist að forða þúsundum ungmenna frá því að byrja að reykja. Eldmóður Þorvarðar og áhugi fyrir velferð landsmanna, ungra sem eldri, var einstakur. Þorvarður var framkvæmda- stjóri Krabbameinsfélags Reykjavíkur í rúma tvo áratugi, frá árinu 1975 til ársins 1997, þegar hann lét af störfum vegna aldurs. Allan sinn starfstíma var hann ötull baráttumaður fyrir tóbaksvörnum, og náði sú bar- átta langt út fyrir raðir skólanna. Hann hafði mikil áhrif á tóbaks- varnalöggjöfina og átti mikinn þátt í þeim merku áföngum sem þar hafa náðst, ekki aðeins á starfstíma sínum heldur miklu lengur. Þorvarður var kjörinn heið- ursfélagi Krabbameinsfélags Reykjavíkur árið 1999, á 50 ára afmæli félagsins, og í heiðursráð Krabbameinsfélags Íslands árið 2001. Þetta eru æðstu viðurkenn- ingar félaganna fyrir framlag til baráttunnar gegn krabbameini. Við þökkum Þorvarði Örnólfs- syni af alhug fyrir samstarfið og vottum börnum hans og fjöl- skyldum þeirra innilega samúð okkar. Fyrir hönd Krabbameins- félags Reykjavíkur, Guðlaug Birna Guðjónsdóttir. Leiðir okkar Þorvarðar Örn- ólfssonar lágu saman þegar við, ásamt öðrum, börðumst fyrir því að frumvarp um bann við tóbaks- auglýsingum næði fram að ganga á síðustu dögum Alþingis vorið 1971. Nokkrum árum síðar, þeg- ar hann hafði tekið við starfi framkvæmdastjóra Krabba- meinsfélags Reykjavíkur og var að hefja herferðina gegn reyk- ingum grunnskólanema, óskaði hann liðsinnis míns við útgáfu- starf. Af því leiddi rúmlega tutt- ugu ára samstarf sem aldrei bar skugga á. Hugmyndir Þorvarðar um nýjar leiðir í baráttunni fyrir betri heilsu vöktu athygli, til dæmis skipuleg fræðsla um skaðsemi reykinga sem miðaðist einkum við tólf ára börn, sem síð- an miðluðu þekkingu sinni til yngri nemenda. Þetta mun vera upphaf jafningjafræðslu hérlend- is. Árangurinn af starfinu í skól- unum var mjög mikill og fullyrða má að mörgum hafi verið bjargað frá því að missa heilsu og líf. Að því kom að þjóðfélagið þurfti að bregðast við svo að enn betri árangur næðist. Það var einkum gert með margvíslegum breytingum á löggjöf og þar lagði Þorvarður sitt af mörkum. Á tímabili voru Íslendingar í for- ystu í heiminum á þessu sviði og til þeirra var litið. Kennarareynsla Þorvarðar og vandvirkni í hvívetna komu að góðum notum og einnig lögfræði- þekking hans. En mestu skipti hugsjónaeldurinn sem aldrei slokknaði. Þegar á móti blés í baráttunni var leitað nýrra leiða og sigur hafðist að lokum. Það var einstakt lán að kynn- ast Þorvarði Örnólfssyni, áhuga hans á að búa æskunni betri heim og fá að leggja honum lið. Blessuð sé minning hans. Jónas Ragnarsson. MINNINGAR 37 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 2013 ✝ Sigurður Kon-ráð Hauksson fæddist á Sauðár- króki 16. ágúst 1956. Hann lést á líknardeild LSH í Kópavogi 24. mars síðastliðinn. Sigurður var elstur af fimm börnum foreldra sinna en þau voru Helga Sigríður Hannesdóttir, f. 1. febr. 1934, d. 6. maí 2006 og Haukur Þor- steinsson, f. 14. janúar 1932, d. 21. september 1993. Systk- ini Sigurðar eru Þorsteinn, f. 1959, kvæntur Birgittu Bjarg- mundsdóttur, Sigríður, f. 1961, d. 2006. Eftirlifandi maki hennar er Þráinn Jens- son og börn Sigríðar eru Stef- án Tjörvi, f. 1979, og Helga Sól, f. 1984, Hrafnhildur, f. 1966, gift Bolla R. Valgarðs- syni og eru börn þeirra Eyja Eydal, f. 1991 og Egill Logi, f. 1998, Vala, f. 1967, maki Arn- ar Bjarnason og börn Völu eru Eymar, f. 2000 og Eydís, f. 2003. Þann 14. ágúst 1993 kvænt- ist Sigurður Björk Helgadótt- ur, f. 24. desember 1957. For- eldrar hennar voru Anna Guðmundsdóttir, f. 30. desem- framkvæmdastjóri hjá Gull Danish Dairy en síðustu tvö árin vann hann í Medina sem framkvæmdastjóri hjá Med- ina Danish Dairy. Einnig vann hann 9 mánuði í Amman í Jórdaníu þar sem hann setti á fót ísverksmiðju og stjórn- aði henni fyrstu mánuðina. Snemma árs 1987 fluttist hann aftur til Danmerkur og hóf störf sem gæðaeftirlits- fulltrúi fyrir Quantier Oats í Evrópu. Meðfram þeirri vinnu hóf hann nám í rekstrarhagfræði í Nakskov Handlesskole en lauk ekki námi þar sem heimþráin greip hann og hann flutti til Íslands. Nokkrum árum eftir heimkomuna skráði hann sig í Endurmenntun í viðskipta- og rekstrarfræði í Háskóla Íslands og lauk þar prófi vor- ið 1992. Árið 1988 hóf hann störf hjá Mjólkursamsölunni í Reykjavík en söðlaði um 10 árum síðar og hóf störf hjá Genís í líftækniiðnaði. Í árs- byrjun 2006 varð hann starfs- maður Matís og setti á stofn verksmiðju í próteinrann- sóknum í Verinu á Sauð- árkróki. Verksmiðjan hlaut nafnið Iceprotein og var hann starfandi þar er sjúk- dómur hans greindist sum- arið 2010 og átti hann ekki afturkvæmt í vinnu. Útför Sigurðar fer fram frá Bústaðakirkju í dag, 5. apríl 2013, og hefst athöfnin kl. 13. ber 1929, d. 8. mars 2010 og Helgi K. Helga- son, f. 7. janúar 1926, d. 12. mars 1994. Börn Sig- urðar og Bjarkar eru Arna Björk, f. 3. júlí 1991 og Magnús Haukur, f. 14. júlí 1997. Sambýlismaður Örnu Bjarkar er Aron Morthens, f. 1990. Sigurður ólst upp á Sauð- árkróki og lauk hinni hefð- bundnu skólagöngu þar. Snemma hafði hann áhuga á mjólkuriðnaði og vann við þá iðngrein í sumarfríum á ung- lingsárum en árið 1975 hóf hann nám í mjólkurfræði hjá Mjólkursamlagi KS á Sauð- árkróki. Vorið 1977 hélt hann til Danmerkur og stundaði nám í Dalum Tekniske Skole í Óðinsvé og lauk fyrst mjólk- urfræðinámi og síðan mjólkurtæknifræði árið 1979. Þar sem ævintýraþráin hafði lengi blundað í Sigurði þá fór hann árið 1980 að vinna í Sádi-Arabíu og dvaldi þar í 6 ár. Fyrstu 4 árin vann hann í borginni Dhahran nálægt Persaflóa þar sem hann vann sem aðstoðar- Nú er upprunnin stundin sem ég vissi að væri óhjákvæmileg, en er búin að kvíða fyrir í rúmlega tvö og hálft ár. Að þurfa að kveðja eig- inmann minn hinstu kveðju. Það var á 54 ára afmælisdegi Sigga sem okkur voru færð vátíðindin og þótt okkur væri tjáð frá upphafi að sjúkdómur hans væri ólæknanleg- ur þá héldum við alltaf í vonina. Sú von fleytti okkur lengi áfram. Æðruleysi hans var ótrúlegt og aldrei reiddist hann örlögum sín- um. Að vísu fannst honum þau óvægin því aðeins nokkrum árum áður hafði systir hans látist úr sama sjúkdómi, aðeins 44 ára göm- ul. Siggi fékk sterk heilsufarsgen í vöggugjöf enda varð honum vart misdægurt fyrstu 50 ár ævi sinnar en þá fór að halla undan fæti. Að fá heilablæðingu aðeins 51 árs og ná ótrúlega góðum bata og síðan krabbamein tveimur og hálfu ári síðan sló hann ekki út af laginu. Hann fór í hverja lyfja- og geisla- meðferðina á fætur annarri og fannst allt á sig leggjandi ef það lengdi samverustundir hans með okkur. Einhvern veginn tókst hon- um að láta meðferðirnar líta út eins þetta væri ekkert mál og það þarf sterkan líkama til að þola yfir 50 lyfjameðferðir á svona skömmum tíma. Aldrei kveið hann meðferð eða að fá niðurstöður og lýsir það honum best er við eitt sinn sátum á biðstofunni og biðum niðurstöðu myndgreiningar. Mér var óglatt af kvíða en hann hagræddi sér í stóln- um, lokaði augunum og fékk sér blund. Mannkostir hans komu allt- af betur og betur í ljós með árun- um. Sem lífsförunautur var hann yndislegur og betri föður hefðu börnin okkar vart geta fengið. Fjölskyldan var í fyrirrúmi og vel- ferð okkar í forgangi hjá honum. Ekki er hægt að minnast Sigga án þess að nefna eldamennskuna hans. Hann var snilldarkokkur og töfraði fram gómsæta rétti með lít- illi fyrirhöfn. Þar sem við vissum að tími okk- ar saman væri takmarkaður þá nýttum við hann vel. Utanlands- ferðirnar okkar og allar myndirnar sem í þeim voru teknar eru dýr- mætar minningar um gleði og gæðastundir. Uppgjöf var ekki til í hans orðaforða enda barðist hann til síðasta andardráttar. Það var óbugaður hugur en örþreyttur lík- ami sem kvaddi lífið á björtum og fallegum sunnudegi, pálmasunnu- degi. Að þurfa að kveðja maka sinn allt of fljótt er erfitt. Söknuðurinn er nístandi en erfiðast er það fyrir börnin okkar að þurfa að kveðja föður sinn svona fljótt. Þeirra er missirinn mestur. Að leiðarlokum er mér efst í huga þakklæti til allra þeirra sem gerðu líf Sigga í sjúkdómsferli hans eins gott og hægt var; læknis hans sem á sinn milda hátt flutti honum hver vátíðindi á fætur öðr- um en sló aldrei á von hans, starfs- fólksins á deild 11B sem við hittum orðið oftar en vini okkar, hjúkrun- arfræðinga Karítasar sem gerðu okkur lífið auðveldara heima við og síðast en ekki síst starfsfólksins á líknardeildinni sem umvafði okkur hlýju og ástúð á erfiðum stundum. Ég kveð með sárum söknuði eiginmann minn með orðunum hvíl í Guðs friði, Siggi minn. Björk. Hetjan Sigurður Hauksson, mágur minn, er fallinn í valinn eftir að hafa barist við krabbamein til hinstu stundar með ótrúlegum baráttuvilja. Ef Siggi var spurður um líðan eða hvað hann segði í dag, var svarið alltaf „ég hef það fínt eða allt fínt“. Samvera með konu sinni og börnum var honum mikilvæg- ust. Fjölskyldan var dugleg að ferðast um landið, fara í tjaldútil- egur og fara á ættarmót norður í Skagafjörð, í nálægð við uppeldis- stöðvar Sigga. Einnig hafa þau hjónin, Björk og Siggi, farið oftar til útlanda en áður og eiga þær ferðir örugglega eftir verða fjöl- skyldunni líka mikilvægar minn- ingar, því þau hafa alltaf verið dug- leg að festa það á mynd sem þeim hefur fundist markverðast. Siggi naut sín vel við matarpottanna enda flinkur að töfra fram gómsæt- an mat. Vonandi getur fjölskyldan haldið þeirri hefð við. Gaman þótti Sigga að fara í veiðiferðir með fé- lögum eða ættingjum og var þá ekki verra að koma með fisk heim. Fjölskyldan á íslenska tík, sem Siggi kallaði „ljónið“, en hún veitti honum góðan félagsskap í veikind- um hans og veitir vonandi konu hans og börnum áfram. Siggi ætl- aði í gegnum veikindin á eljusemi og dugnaði og svo stóð Björk systir mín sem klettur við hlið hans. Siggi og Björk gengu þannig samstíga allt til loka. Guð blessi minningu Sigurðar Haukssonar. Legg ég nú bæði líf og önd, ljúfi Jesús, í þína hönd, síðast þegar ég sofna fer sitji Guðs englar yfir mér. (Hallgrímur Pétursson.) Inga Lára. Það var í byrjun júní 1989, ég að koma með þriðju dóttur mína heim af fæðingardeildinni, sem yngsta systir mín Björk hringir í mig og spyr hvort hún megi koma með vin sinn í heimsókn því hann langi svo til að sjá nýfædda barnið. Hann hafi ekki séð svona ungt barn í tugi ára. Það var þá sem ég sá þennan glæsilega unga vin systur minnar í fyrsta sinn sem síðar átti eftir að verða mágur minn. Gleðin þegar hann fékk að halda á barninu hverfur mér aldrei úr minni. Hann ljómaði. Ég hef aldrei séð mág minn öðruvísi en glaða og jákvæða persónu. Siggi var mikið fyrir börnin sín og heimili. Hann var frábær kokk- ur og hleypti helst engum í mat- argerðina. Sérstaklega var hann snillingur í sósum. Hann hafði gaman af útiveru og fór ófáar ferð- ir með fjölskylduna í útilegu og var þá sofið í tjaldi. Ekki var verra ef hann komst í veiði. Fyrir fimm árum fékk Siggi mágur heilablóðfall 51 árs. Aldrei kvartaði hann yfir örlögum sínum. Hann náði með styrk konu sinn- ar og barna ótrúlegum bata enda mikill baráttumaður. Lífið hefur ekki leikið við þessa fjölskyldu sl. fimm ár. Fyrir tveimur og hálfu ári á afmælinu sínu, 54 ára, fékk Siggi enn eitt áfallið. Hann greindist með krabbamein sem síðar dró hann til dauða. Hann var nýbúinn að fá vinnu í borginni og hlakkaði hann til að vera nær fjölskyldunni og þurfa ekki að eyða vinnuvikunni á Sauðárkróki. Þetta var tvöfalt áfall því hann þurfti í meðferðir og að afþakka þá vinnu sem honum bauðst. Hafði hann verið valinn úr tugum umsækjenda. Enn og aftur sýndi systir mín ótrúlegan styrk í baráttu með sínum manni. Ég hef aldrei kynnst jafn sterkum karl- manni í veikindum sínum og Sigga. Hann barðist eins og ljón allan tím- ann en varð að lúta í lægra haldi um síðir. Allan tímann sagðist Siggi hafa það ágætt. Siggi minn, þú varst algjört kraftaverk. Mikið væri gott ef þeir sem vilja kveðja þetta líf réttu sitt logandi kerti til þeirra sem þrá að lifa leng- ur en eru með útbrunnið kerti. Elsku mágur, ég kveð þig með sárum söknuði. Hvíl í friði. Elsku systir, börn, tengdasonur og aðrir aðstandendur. Ég votta ykkur mína dýpstu samúð. Ykkar María Helgadóttir. Þá skelfur jörð er höfðingjar falla. Þá hefur kvatt okkur, langt fyrir aldur fram, svili minn, vinur og veiðifélagi, Sigurður Konráð Hauksson. Hann kom í fjölskyld- una árið 1989 og fljótlega fór hann að taka þátt í veiðiferðum með okk- ur svilunum og mágum. Við fórum víða og áttum góða daga í íslenzkri náttúru við fegurstu vötn og ár veraldar og þrátt fyrir allar gerðir veðurs var það aðeins til að herða okkur og njóta enn betur. Þegar komið var í hús að kveldi og slakað á, var glatt á hjalla og eins gott að enginn utanaðkomandi hlustaði á okkur. Yndislegir dagar sem ekki verða endurteknir. Djúpavatn á Reykjanesi var staðurinn fyrir pabbana, en þar mættum við með börnin, en mömmurnar Björk og systur hennar fengu frí. Þá hófst fjörið þegar Sigurður mætti með Örnu Björk, Magnús Hauk og loð- dýrið – hundinn Sölku. Þá byrjaði fjörið fyrir alvöru. Börnin uxu svo úr grasi en héldu samt áfram að mæta í Djúpavatn með nýjum fjöl- skyldum, mökum og börnum og miklu fjöri. En Björk og systur hennar fengu ennþá frí. Nú gengur þú með þeim sem á undan eru farnir. En öll eldumst við og að lok- um göngum við veiðifélagarnir saman að nýju og lítum eftir feng- sælum hyljum. Ég votta ykkur, fjölskyldu Sig- urðar, samúð mína og veit að við öll munum leitast við að halda minn- ingu Sigurðar á lofti. Friðrik G. Gunnarsson. Vinur minn og veiðifélagi til margra ára er fallinn frá. Ég kynnt- ist Sigurði í kringum 1990 þegar Björk samstúdent minn og vinkona konunnar kynnti hann fyrir vina- hópnum. Frá fyrsta degi náðum við vel saman og gátum rætt mikið og lengi um þjóðmál og pólitík. Ekki vorum við alltaf sammála, en það gerði umræðurnar bara líflegri og skemmtilegri. Fljótlega uppgötvuð- um við sameiginlega ástríðu sem er stangveiði. Í nokkur ár ræddum við oft um að fara saman í veiðiferð en loks létum við verða af því og fórum saman á Arnarvatnsheiði. Þrátt fyrir dræma veiði í þessari fyrstu ferð okkar náðum við vel saman sem veiðifélagar, báðir óþreytandi við að kanna ný svæði og leita að líklegum veiðistöðum. Langar göngur og löng viðvera við veiði var ekki vandamál. Þegar vandamál komu upp, þá voru lausnir fundnar, en ekki verið að velta sér upp úr vandamálunum. Eitt árið lentum við í því að þurfa að leita að manni sem hafði orðið viðskila við félaga sína, þá var útihitastigið tvær gráð- ur, hann skilaði sér svo eftir marga klukkutíma. Þessar veiðiferðir urðu síðan ár- legur viðburður hjá okkur. Mörk- uðu í raun upphaf sumarsins fyrir okkur. Fljótlega lærðum við vel á Arnarvatnsheiðina og aflinn fór að aukast svo mikið að konum okkar þótti oft nóg um. Á Arnarvatnsheiði hittum við marga ár eftir ár og eignuðumst nýja vini, Eiríkur veiði- vörður var þar fremstur í flokki og alltaf yljaði það hjarta okkar hve fagnandi hann tók ávallt á móti okk- ur. Eftir nokkur ár var ekki nóg fyr- ir okkur að fara eingöngu á heiðina og bættum við þá við annarri veiði- ferð, fórum að fara í sjóbirting aust- ur í Skaftafellssýslu á haustin. Þær ferðir urðu margar og mörkuðu lok sumars hjá okkur. Þetta voru styttri ferðir og aðstæður oft erf- iðar, en alltaf var jafngaman í þess- um ferðum. Sigurður var góður og traustur félagi, sem féll frá alltof snemma. Barátta hans í veikindunum sýndi hversu sterkur maður hann var, aldrei gafst hann upp og alltaf var hann sannfærður um að hann myndi sigra, en sumar orustur er ekki hægt að vinna. Ég er þakk- látur fyrir þau ár sem ég þekkti Sigurð og margar góðar minningar sem ég á. Við hjónin vottum fjölskyldu Sig- urðar, Björk, Örnu Björk og Magn- úsi Hauki, einlæga samúð okkar á þessum erfiðu tímum, megi Guð styðja ykkur og styrkja. Ég kveð kæran vin og veiði- félaga með sorg í hjarta, minning hans mun lifa. Hafliði S. Magnússon. Sigurður Konráð Hauksson Fallin er frá elskuleg amma okkar og kveðjum við hana með söknuði og erum þakklátar að hafa átt hana að. Amma var ynd- isleg í alla staði, jákvæð, skemmtileg og ein sú besta kona sem við höfum kynnst. Við syst- ur eigum æðislegar minningar Inga Margrét Sæmundsdóttir ✝ Inga MargrétSæmundsdóttir fæddist að Minni- Vogum í Vogum, Vatnsleysuströnd, 3. ágúst 1923. Hún lést á Heilbrigðis- stofnun Suðurnesja 21. mars 2013. Útför Ingu Mar- grétar fór fram frá Kálfatjarnarkirkju á Vatnsleysu- strönd, 3. apríl 2013. um hana, hvernig hún laumaði í okkur kandís og ristuðu brauði með jarðar- berjasultu og sagði okkur sögur af dansleikjunum þeg- ar hún var ung og ekki má gleyma þegar hún kenndi okkur á píanóið. Það var yndislegt að alast upp í hús- inu við hliðina á ömmu og afa. Nú síðari ár höfum við notið þess að kíkja til ömmu í kaffi og spjall og var mikið rætt um allt milli himins og jarðar og jafnvel kíkt á einn Leiðarljóssþátt. Nú geymum við systurnar alla svan- ina, nistið og fallegu eyrnalokk- ana hennar sem hún hélt svo upp á. Elsku amma, takk fyrir allar dýrmætu stundirnar sem við átt- um saman. Við elskum þig! Elsku afi, við vitum að þú átt eftir að sakna ömmu mikið en hún er komin á fallegan stað og þú átt okkur að. Undir háu hamrabelti höfði drúpir lítil rós. Þráir lífsins vængja víddir vorsins yl og sólarljós. Ég held ég skynji hug þinn allan hjartasláttinn rósin mín. Er kristallstærir daggardropar drúpa milt á blöðin þín. Æsku minnar leiðir lágu lengi vel um þennan stað, krjúpa niður kyssa blómið hversu dýrðlegt fannst mér það. Finna hjá þér ást og unað yndislega rósin mín. Eitt er það sem aldrei gleymist, aldrei, það er minning þín. (Guðmundur Halldórsson) Jóhanna Ósk Þorsteins- dóttir og Inga Margrét Þor- steinsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.