Morgunblaðið - 05.04.2013, Page 43
sem þið munuð halda áfram að
dreyma og dansa saman.
Blessuð sé minning Dúddýjar.
Þinn tengdasonur,
Jesús.
Elskuleg tengdamóðir mín og
kær vinkona, Guðbjörg Lilja
Guðmundsdóttir, er látin 85 ára
að aldri.
Ég var svo lánsöm að hitta
Braga son hennar og Kristjáns
fyrir 45 árum og verða hluti af
fjölskyldu þeirra, sem tók okkur
Áshildi minni opnum örmum.
Guðbjörg, eða Dúddý eins og
við fjölskyldan kölluðum hana,
var bráðvel gefin kona þó að
skólaganga hennar væri ekki
löng. Hún var vel lesin og gædd
þeirri náðargáfu að segja
skemmtilega frá. Hún lærði bæði
ensku og spænsku með því að
horfa á sjónvarp og lesa erlendar
bækur og tímarit og nutum við
Bragi góðs af tungumálakunn-
áttu hennar þegar við ferðuð-
umst með henni erlendis.
Dúddý var mjög ákveðin og
hafði sterkar skoðanir á mönnum
og málefnum. Dugnaður var líka
einkennandi fyrir hana sem kom
vel í ljós í veikindum hennar sem
hún fór í gegnum með mikilli
reisn. Dúddý vann alla tíð við
hlið Kristjáns og var mjög ósér-
hlífin til vinnu, þau nutu þess að
ferðast, bæði innanlands og er-
lendis, og eyddu löngum stund-
um á sumrin í sumarbústað sín-
um í Skorradal sem þau kölluðu
Litla Bæ. Þar áttu þau yndisleg-
an sælureit sem við fjölskyldan
nutum með þeim og áttum marg-
ar góðar samverustundir.
Ég og Dúddý áttum mjög gott
skap saman þó að við værum að
mörgu leyti ólíkar. Við unnum
saman í 30 ár og bar aldrei
skugga á okkar samband. Ég
hafði alltaf mikla ánægju af því
að vera í kringum hana og ferð-
uðumst við Bragi mikið erlendis
með Kristjáni og Dúddý. Eftir að
Dúddý varð ekkja voru einnig
farnar margar ferðir með henni á
erlenda grundu og höfðum við
Bragi mikla ánægju af þeim ferð-
um. Hún sá alls staðar fegurð,
bæði í stóru og smáu, enda mikill
fagurkeri og smekkmanneskja.
Dúddý var mikill Reykvíking-
ur og þekkti gamla bæinn mjög
vel. Þau Kristján fóru oft í langa
göngutúra um gamla bæinn til að
skoða gömul hús og þá var jafn-
vel skyggnst inn í garða og bak
við hús. Dúddý vildi varðveita
gömlu húsin í Reykjavík og þá
götumynd sem hún þekkti og
fylgdist því vel með skipulags-
málum borgarinnar. Henni
fannst oft of langt gengið í nið-
urrifi á gömlum húsum og ekki
mátti hún heyra minnst á að
flugvöllurinn hyrfi úr Vatnsmýr-
inni.
Hún Dúddý hugsaði vel um
Kristján sinn í veikindum hans
og verður henni aldrei fullþakkað
fyrir að sjá til þess að hann héldi
sínum glæsileika til síðasta dags.
Síðustu níu mánuðir voru
Dúddý mjög erfiðir, aldrei góðar
fréttir eftir að veikindin tóku yf-
irhöndina. Það reyndi mikið á
fjölskylduna að horfa upp á
hvernig líkamleg færni hennar
fór þverrandi í veikindunum en
hún hafði fulla vitsmuni fram á
síðasta dag. Andlát hennar var
mikil líkn fyrir hana og það mátti
vita að Dúddý myndi kveðja á
sinn sérstaka hátt. Fimmtudag-
urinn 14. mars var dánardagur
Kristjáns eiginmanns hennar og
valdi hún að kveðja þann dag,
nánast á sömu mínútu, fimm ár-
um eftir að Kristján kvaddi.
Þetta sýnir hvað þau voru sam-
stiga alla tíð.
Ég vil þakka kærri vinkonu og
tengdamóður öll yndislegu árin
sem ég átti með henni. Farðu í
guðs friði.
Erna Eiríksdóttir,
tengdadóttir og vinkona.
Afi skrifaði eitt sinn:
„Líttu innra með þér og sjáðu
þig eins og þú ert. Finndu sjálfan
þig innra þíns heima, hvort það
sé fallegur skógur eða eyðimörk.
Þótt þú sért einungis aska og
eldur að innan sjáðu fegurðina í
eldinum frá logum eldfjallsins.“
Og er ég nú búin að finna mig,
umvafinn stjörnum þínum og
ljósi sem einungis barnabörn
finna frá afa sínum og ömmu.
Þau skína bjart alls staðar í
kringum mig og lýsa upp minn-
ingar mínar.
En stjörnur deyja og ljós
þeirra dvína og það hefði mátt
halda að stjörnurnar þínar
myndu slokkna líka, en þær
skína einungis bjartar fyrir mér,
nú meir en áður.
Ég vil þakka þér fyrir allt það
góða sem þú hefur gert, sagt og
hugsað og ég lofa þér að ég mun
alltaf einungis vera ég sjálfur.
Takk fyrir allt.
Kristján Jesús.
Elsku Dúddý frænka mín er
dáin. Ég man þegar ég sá Dúddý
fyrst, þá var ég lítil stelpa með
foreldrum mínum í versluninni
Herjólfi, sem þau hjón, Dúddý
og Kristján, ráku ásamt syni sín-
um og tengdadóttur, þeim Braga
og Ernu. Ég man hvað mér
fannst Dúddý falleg, fannst hún
eins og drottning í ævintýri.
Seinna fór ég sjálf að vinna í
Herjólfi í smá tíma og kynntist
betur Dúddý frænku minni,
Kristjáni, Braga, Ernu og börn-
unum þeirra sem hjálpuðu öll til í
versluninni, þá ung að árum.
Dúddý og Kristján giftust ung,
voru falleg hjón og afar sam-
rýnd, en Kristján lést fyrir örfá-
um árum. Mér þótti afar vænt
um Dúddý frænku mína, við náð-
um vel saman og vorum alla tíð
góðar vinkonur og gátum talað
saman um allt milli himins og
jarðar. Við hjónin fengum kon-
unglegar móttökur, með veislu-
borði sem svignaði undan kræs-
ingunum, þegar við komum í
heimsókn til hennar. Síðastliðið
ár átti Dúddý við hrakandi heilsu
að stríða og var hún á spítala. Ég
heimsótti frænku mína og vin-
konu nokkrum sinnum þangað
og bar hún sig vel þrátt fyrir
hrakandi heilsu.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson)
Ég veit að Dúddý er nú á góð-
um stað með Kristjáni sínum. Ég
votta Braga, Maríu og fjölskyld-
um þeirra mína dýpstu samúð.
Ingibjörg Sigurðardóttir.
Í dag kveðjum við föðurömmu
okkar í hinsta sinn. Dúddý
amma, eins og við barnabörnin
kölluðum hana, var einstaklega
glæsileg og vel gefin kona sem
hafði jákvæð áhrif á samferða-
fólk sitt. Amma var fædd og upp-
alin í Reykjavík og var alla tíð
stolt af því að vera Reykvíking-
ur. Það var merkilegt fyrir okkur
barnabörnin að fá að heyra sögur
hennar af uppeldisárunum, fjöl-
skyldunni, fátæktinni og mann-
lífinu sem hafði svo mótandi
áhrif á lífsviðhorf hennar. Amma
hafði mikinn áhuga á málefnum
líðandi stundar og var óhrædd
við að láta skoðanir sínar í ljós.
Hún var hrókur alls fagnaðar í
fjölskylduboðum þar sem þjóð-
málin hafa ætíð verið rædd í
þaula og vorum við systkinin
ekki há í loftinu þegar við fórum
að blanda okkur í þær umræður.
Við lærðum snemma af ömmu að
skoðanaleysi kemur manni ekki
áleiðis og að hver er sinnar gæfu
smiður.
Á tímamótum sem þessum
reikar hugurinn til allra þeirra
góðu samverustunda sem við
systkinin áttum með ömmu og
afa. Helgarnar á Kleppsveginum
þar sem farið var í göngutúra,
sest niður við skák, sippað í for-
stofunni, dansað diskó í sjón-
varpsherberginu og spjallað við
eldhúsborðið. Þær voru einnig
ófáar helgarnar sem við fórum
saman í bústaðinn þeirra í
Skorradal þar sem göngutúrar
og útivera í náttúrunni voru í
miklu uppáhaldi. Á kvöldin var
svo iðulega setið saman yfir spil-
um og þjóðfélagsmálin krufin.
Það var þroskandi fyrir unglinga
að vera þátttakendur í slíkri um-
ræðu og mikilvægur þáttur í því
að móta þá fullorðnu einstak-
linga sem við erum í dag.
Amma var í mörgu ólík sinni
kynslóð, og ekki hin hefðbundna
ömmuímynd, sem gerði hana af-
ar áhugaverða og skemmtilega.
Var hún alla tíð sannur heims-
borgari, hún elskaði að ferðast,
hafði brennandi áhuga á tísku og
fylgdist vel með „stjörnum“ sam-
tímans. Öll höfum við systkinin
átt góðar og eftirminnilegar
stundir með ömmu á erlendri
grundu þar sem við fengum að
kynnast henni enn betur. Gleym-
um við aldrei stundunum með
ömmu og afa á Spáni sem þau
heimsóttu oft. Ferðaáhugi ömmu
hefur smitast til yngri kynslóða í
fjölskyldunni og skipar Spánn og
minningarnar þaðan sérstaklega
stóran sess í lífi okkar allra.
Amma og afi voru glæsileg
hjón og ástin á milli þeirra fór
ekki framhjá nokkrum manni
sem umgekkst þau. Samband
þeirra var til mikillar fyrirmynd-
ar. Á milli þeirra ríkti skilyrð-
islaus umhyggja, ást og virðing
sem kom enn sterkar í ljós eftir
að afi veiktist. Sú vinna og sá
styrkur sem amma sýndi við að
sinna afa var aðdáunarverð og
engu minni var sá styrkur sem
hún sýndi í eigin veikindum síð-
ustu mánuði. Við teljum það
engri tilviljun háð að amma
kvaddi þennan heim nákvæm-
lega fimm árum eftir að afi lést,
nánast upp á mínútu. Fyrir okk-
ur er það merki um hið sterka og
fallega samband sem einkenndi
þeirra hjónaband í rúma sex ára-
tugi.
Amma var okkur einstaklega
góð fyrirmynd. Jákvæðni henn-
ar, glæsileiki og lífsgleði mun
ætíð fylgja okkur.
Elsku amma, hafðu þökk fyrir
allar góðu samverustundirnar.
Guðbjörg Lilja, Styrmir
Þór, Kristján Páll
og Áshildur.
Elskuleg langamma okkar er
látin. Dúddý amma var ekki eins
og flestar langömmur, hún hafði
mikinn áhuga á tísku, naut þess
að klæða sig upp og mætti alltaf í
háum hælum í boð. Þegar við
hrósuðum henni fyrir skóna sem
hún var í sagði hún; „þessa skó
hef ég átt heillengi og eins og þið
vitið elskurnar fer tískan í
hringi,“ og svo hló hún.
Amma hafði ferðast um allan
heim, upplifað margt og þekkti
mjög marga. Hún hafði því frá
mörgu að segja og sagði svo
skemmtilega frá. Við langömm-
ustelpurnar gátum setið og
hlustað á hana tímunum saman
og okkur leiddist aldrei.
Það var virkilega gaman að
heimsækja ömmu og afa á
Kleppsveginn og koma upp í bú-
staðinn þeirra í Skorradal. Þau
vildu gera allt til að skemmta
okkur, alltaf var stutt í hláturinn
og mikið líf og fjör í kringum
þau.
Amma er kona sem við höfum
ávallt litið upp til og okkur
dreymir allar um að líkjast henni
þegar við verðum eldri.
Við kveðjum ömmu með sökn-
uði og munum ætíð minnast
hennar.
Unnur Jóna, Erna Björk,
Steinunn Margrét, Tinna
Sól, Erna María, Birna
Mjöll, Elín og María Ósk.
Það er skrýtið og óraunveru-
legt að Dúddý hafi kvatt fyrir
fullt og allt. Hún hefur verið hluti
af fjölskyldunni frá því að elstu
menn muna. Hún var kornung
þegar hún og Diddi, bróðir
mömmu okkar, Jennýjar, fóru að
vera saman. Dúddý varð eins og
tákn um stöðugleika lífsins, af-
stæði tímans og þráðinn sem
aldrei slitnar. Í samheldnum
systkinahópnum var mikið sam-
neyti og ástríki, en umgengni var
mismikil eftir aðstæðum og tíma-
skeiðum. Mamma var yngst og
bara 11 ára þegar Bragi fæddist
enda þótt einungis sex ár skilji
þær mágkonurnar að. Þær voru
því ekki samferða í barneignum
og barnastússi. En mamma leit
upp til bróður síns og mágkonu,
þau voru einstaklega samhent og
urðu henni kjölfesta, fyrirmynd
og félagsskapur. Í fjölskyldual-
búminu er að finna mynd af
glæsilegu fólki í fínum gleðskap,
það eru Diddi og Dúddý, pabbi
og mamma. Að öðru leyti snúast
bernskuminningar okkar systra
– mín, Sigrúnar og Aldísar – að-
allega um ferðir í búðina þeirra,
Herjólf, sem var eins og hvert
annað konungsríki, fjölskyldan á
heimavelli og tengsl við gesti og
gangandi báru vitni um glettni,
vinskap, heiðarleika og traust.
Nýr kapítuli tók við eftir að
mamma varð ekkja eftir andlát
Jóa stjúpa okkar árið 1992. Ferð-
ir hennar með Didda og Dúddýju
urðu tíðar, í Skorradalinn, á
æskuslóðirnar á Vestjörðum, til
Spánar þar sem hún dvaldi hjá
þeim í góðu yfirlæti – þótt sú
stutta kvartaði stundum yfir
gönguferðunum enda hjónin sér-
lega vel á sig komin. Þau voru
umhyggjusöm, traust og ræktar-
leg og tíminn með þeim í Samfrí-
múrarareglunni var mömmu
mikill styrkur. Enn á ný urðu
kaflaskil þegar Diddi dó fyrir
fimm árum. Þá voru þau bara
þrjú eftir af þessari kynslóð,
mamma, Dúddý og Garðar bróð-
ir mömmu. Mágkonurnar bund-
ust enn sterkari böndum og
kynni okkar systra við Dúddýju
þar með. Það var svolítið eins og
að eignast vinkonu til viðbótar
við fjölskyldumeðlim, eins og að
kynnast upp á nýtt. Það var gam-
an að heyra Dúddýju segja frá
uppvexti sínum og systkinum,
Bræðraborginni sem hún bjó í
sem barn og stendur nú glæsileg
á Bræðraborgarstígnum,
skemmtilega skökk í götumynd-
inni. Saman áttum við einnig
góðar minningar um Eiríku vin-
konu mína og frænku hennar
sem lést langt um aldur fram og
það var heilun og huggun að
heyra Dúddýju tala um hana.
Dúddý var einstök manneskja,
víðsýn og fróð, sérlega skörp og
minnug. Hún hafði mikla réttlæt-
iskennd og ákveðnar skoðanir
sem hún lá ekki á en var á sama
tíma sanngjörn og traust í sam-
ræðum. Hún bar virðingu og um-
hyggju fyrir öðru fólki sem birt-
ist ekki síst í því að í návist
hennar leið manni eins og maður
væri alveg sérstakur. Það er með
virðingu og þakklæti í huga sem
við systurnar og mamma kveðj-
um Dúddýju og sendum Braga,
Maríu og fjölskyldum þeirra
okkar innilegustu samúðarkveðj-
ur.
Þorgerður Einarsdóttir.
Háa skilur hnetti
himingeimur,
blað skilur bakka og egg,
en anda, sem unnast,
fær aldregi
eilífð að skilið.
(Jónas Hallgrímsson)
Það hæfir vel að kveðja hana
Guðbjörgu Lilju (Dúddý) með
niðurlagi kvæðisins Ferðalok eft-
ir listaskáldið góða þegar frændi
minn og sómadrengurinn Krist-
ján Sigfússon (Diddi) kallar hana
til sín á sínum eigin dánardegi
14. mars 2008. Hverju sem fólk
kýs að trúa þá kom kall þeirra
beggja sama dag og sömu stund.
Rétt fimm ár skildu að. Það eru
áreiðanlega vandfundin hjón sem
síðustu þrjár ljóðlínurnar eiga
betur við en þau Diddi og Dúddý
svo samrýmd og samhent sem
þau voru á langri lífsgöngu.
Dúddý tengdist stórri ætt er
hún, tæplega átján ára, giftist
frænda mínum Kristjáni Páli
Sigfússyni þann 23. júní 1945.
Ætt hans hefur lengi verið kennd
við Litlabæ í Skötufirði við Ísa-
fjarðardjúp sem þá var eitt fjöl-
mennasta kot á þeim slóðum en
er nú virðulegt safn sem hefur þá
sérstöðu að hafa aldrei verið
höfðingjasetur en er í dag lifandi
minning um hvernig alþýðufólk
sótti lífsbjörg í greipar Ægis og
framfleytti sér fremur af auðæf-
um hafsins en því litla sem landið
gaf. Það er því ekki tilviljun að
Diddi og Dúddý komu sér upp
unaðsreit í Skorradal og skírðu
hann Litlabæ.
Það hæfði Dúddý vel að tengj-
ast manni með þessar rætur því
bæði voru þau af fólki komin þar
sem arfurinn var dyggðir og
mannkærleiki fremur en verald-
legur auður. Saman ráku þau um
árabil matvöruverslunina Herj-
ólf í Skipholti. Á þeim árum
stóðu eigendur sjálfir í verslun,
þekktu sína viðskiptavini og hvað
þeim hentaði, leiðbeindu og að-
stoðuðu við vöruval. Herjólfur
varð því miðpunkturinn í tilver-
unni sem sameinaði fjölskylduna.
Ekki þarf neinn að undra að
Diddi hafi orðið hrifinn af þessari
ungu konu. Hún var stórglæsileg
en hafði að auki þá mannkosti til
að bera sem hann var sjálfur al-
inn upp við í foreldrahúsum. Eig-
inleikum hennar er vel lýst með
orðunum hreinskiptni og heiðar-
leiki. Dúddý var ekki fyrir að
fara í launkofa með skoðanir sín-
ar. Hún bar lof á það sem henni
fannst lofsvert en gagnrýndi
tæpitungulaust það sem var að
hennar mati ósæmandi. Það er
því ekki ofmælt að hún hafi verið
ímynd hins sanna og heiðarleika.
Við eigum aðeins góðar minn-
ingar um samverustundir með
þeim sómahjónum, fyrst á Ísa-
firði á okkar heimili en síðustu
árin við eldhúsborðið á Klepps-
veginum. Alltaf hressti það and-
ann að hitta og ræða við Dúddý
eins og að vera í hlýjum sunn-
anvindi. Hennar verður sárt
saknað og að leiðarlokum send-
um við Salbjörg þeim Braga,
Ernu, Maríu og Jesus ásamt öll-
um vandamönnum innilegar
samúðarkveðjur og biðjum góð-
an Guð að varðveita minninguna
um þessa mætu konu.
Ólafur Bjarni Halldórsson.
Það var táknrænt að andlát
Dúddýjar varð nákvæmlega á
sama tíma og manns hennar,
Kristjáns frænda míns Sigfús-
sonar, fyrir fimm árum. Atvikið
minnir okkur sem þekktu þau á
hve samrýnd þau voru alla tíð,
ástfangin til hinsta dags og trygg
hvort öðru. Þau voru alltaf sam-
an; unnu saman, áttu sameigin-
leg áhugamál, ferðuðust og nutu
lífsins glæsileg bæði tvö. Dúddý
bauð til veislu í tilefni stórafmæl-
is fyrir nokkrum árum og sté í
pontu og ávarpaði veislugesti í
leikandi léttum dúr en hún
gleymdi einu og fór því aftur að
ræðustólnum; hún gleymdi að
tala beint til mannsins síns sem
þá var orðinn sjúklingur, en sat
og horfði á konu sína aðdáun-
araugum, og segja honum að hún
elskaði hann. Líkt henni sem
alltaf var svo kjörkuð og áræðin.
Það hefði mátt heyra saumnál
detta þegar hún tjáði sig, svo
áhrifaríkt var augnablikið. Þessu
gleymi ég ekki. En gamansemin
var ekki langt undan. Í þessari
sömu veislu sagðist hún hafa hó-
að okkur saman til að fá að vera
með okkur sjálf því því yrði öðru-
vísi farið við jarðarför hennar.
Ég kynntist Dúddý fyrir
margt löngu þegar ég, ung að ár-
um, réð mig í eina af verslunum
Silla og Valda í Reykjavík en þar
var Kristján maður hennar versl-
unarstjóri og hún við afgreiðslu-
störf. Þar nutu hjónin sín vel,
voru vinsæl og lipur innanbúðar
enda ráku þau sjálf í kjölfarið
verslun um langt árabil. Þau
voru bráðskemmtilegt sam-
starfsfólk og vissu nákvæmlega
hvað okkur unga fólkinu kom
best.
Dúddý var glæsileg kona á
velli, ákveðin og stóð oft föst á
sínu en að sama skapi orðheppin
og sagði skemmtilega frá. Hún
hafði mikla útgeislun og var hlát-
urmild sem smitaði út frá sér
enda oft glatt á hjalla hjá okkur í
búðinni og ekkert var okkur
óviðkomandi í umræðunni um líf-
ið og tilveruna. Gegnum árin gát-
um við Dúddý alltaf rifjað eitt-
hvað skemmtilegt upp frá
gamalli tíð og hlegið saman þeg-
ar við hittumst. Það gerðum við
einnig þegar ég heimsótti hana
undir það síðasta þó af veikum
mætti væri.
Sá góði vinskapur sem skap-
aðist í búðinni forðum daga á
milli okkar Dúddýjar og Krist-
jáns risti djúpt, var ástríkur og
hefur haldist allar götur síðan,
bæði við þau hjónin og börnin
þeirra. Fyrir það er ég óendan-
lega þakklát. Ég kveð nú þessa
mætu konu og votta Braga, Mar-
íu Önnu og fjölskyldum þeirra
innilega samúð.
Halldóra Sigurgeirsdóttir.
Nú þegar ég kveð frænku
mína Dúddý, eins og hún var
kölluð, langar mig að minnast
hennar í nokkrum orðum. Dúddý
var nefnd Guðbjörg í höfuðið á
ömmu okkar Guðbjörgu Guð-
mundsdóttur en var alltaf kölluð
Dúddý. Við vorum systkinabörn
og ólumst upp í nábýli, þar sem
fjögur systkini bjuggu ásamt
fjölskyldum sínum í þremur hús-
um á Bráðræðisholtinu. Þrjár
systur og einn bróðir, sem var
faðir minn. Amma okkar, Guð-
björg, bjó í sama húsi og við vor-
um eins og ein stór fjölskylda.
Það var gaman hjá okkur krökk-
unum og við Dúddý lékum okkur
saman ásamt hinum frændsystk-
inunum í móunum í kring, á tún-
unum og á fiskistæðunum þar
sem fiskurinn var þurrkaður.
Margar skemmtilegar og góðar
minningar eru frá þessum tíma.
Seinna fluttum við í austurbæinn
og alltaf hélst sambandið á milli
fjölskyldnanna.
Ég minnist Dúddýar með sinn
létta og fallega hlátur. Alltaf svo
hlý og góð. Dúddý giftist ung
Kristjáni Sigfússyni sem var allt-
af kallaður Diddi. Ég minnist
þess hvað brúðkaupið var flott og
þau svo fín og glæsileg. Dúddý
og Diddi voru alla tíð mjög sam-
rýnd hjón og áttu svo vel saman.
Ég vil þakka Dúddý fyrir góð-
ar stundir og vináttu í gegnum
öll árin. Hennar er sárt saknað,
en minningin lifir. Guð veri með
þér Dúddý mín. Ég votta Braga,
Maríu og fjölskyldum þeirra
samúð mína.
Þín frænka,
Ruth Petersen
Sigurhannesdóttir.
MINNINGAR 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 2013
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Sverrir
Einarsson
Kristín
Ingólfsdóttir
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Suðurhlíð 35, Reykjavík • Símar 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is
Alúð - virðing - traust
Áratuga reynsla
Vaktsími:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Allan sólarhringinn