Morgunblaðið - 05.04.2013, Page 45

Morgunblaðið - 05.04.2013, Page 45
fólk og taka því eins og það var og skjólstæðingar hennar nutu góðs af því. Hún barðist gegn fordómum, hræsni og stétta- skiptingu og var sjálf einstök fyrirmynd í þeim efnum. Þó að mér fyndist stundum frelsishug- myndirnar ganga helst til langt gengu þær upp í hennar tilfelli. Börnin hennar komu vel fyrir og virtust alveg laus við þá ringulreið og agaleysi sem ég hélt að fylgdi þessu mikla frelsi. Hún mætti þeim af skilningi og þess vegna gengu þessar að- ferðir upp hjá henni. Tóta hafði upplifað ýmsa erf- iðleika í lífinu og var ekki efnuð af veraldlegum gæðum en aldr- ei fann ég fyrir biturleika. Fyrir rúmum tveimur árum hafði Tóta fundið ástina og það var einstaklega gott að sjá hana með góðum manni. Steinn er skapandi, sérstakur og skemmtilegur eins og Tóta var og þau hæfðu hvort öðru mjög vel. Ég hitti Tótu síðast rétt fyrir jólin þegar sjúkdómsgreiningin var ekki komin á hreint en Tótu leið illa í hendinni og víðar. Hún var búin að fara á milli lækna og grunaði ýmislegt og ég sá að hún var kvíðin. Ég hafði frétt að hana vantaði gullfiskagler- kúlu og það vildi svo heppilega til að ég var með eina slíka í geymslunni, ég fór með hana til hennar en hún gaf mér í staðinn kertastjaka með kerti og poka fullan af gæðatei. Tóta vildi allt- af gefa á móti og núna þykir mér afar vænt um að eiga þess- ar gjafir og hef ég kveikt ótal sinnum á Tótukerti eftir að hún veiktist. Aldrei hefði mig grun- að að þessi jólaheimsókn ætti eftir að verða síðasta skiptið sem við hittumst. Veikindin ágerðust svo ótrúlega hratt og áður en ég vissi af var orðið of seint að heimsækja hana og ég eftirlét hennar nánustu að eiga með henni síðustu stundirnar. Ég votta Steini, Birni Mána, Erlu, Urði og öðrum aðstand- endum alla mína samúð. Tóta mun alltaf lifa í minningu þeirra sem hana þekktu! Kristjana Knudsen. Elsku hjartans Tóta mín var afskaplega góðhjörtuð og kær- leiksrík og markaði spor í hjörtu þeirra sem hana þekktu. Tóta var 12 ára þegar ég fædd- ist, þá bjuggu foreldrar mínir hjá ömmu og afa í Bjarghúsum. Tóta passaði mig mikið fyrstu árin í lífi mínu og hefur alltaf átt hluta í mér. Ég var ung þeg- ar hún flutti að heiman en hún passaði upp á samskiptin með því að senda mér fjöldann allan af bréfum, kortum og teikning- um alla tíð. Það var alltaf mikil tilhlökkun þegar Tóta var vænt- anleg heim í sveitina, hún gaf manni oft eitthvað fallegt en best var að hún gaf manni allan þann heimsins tíma til að spjalla og spyrja hana um heima og geima. Hún var alveg sérstaklega listræn og margt fallegt til eftir hana. Hvort sem það voru fullorðnir eða börn þá heilluðust allir af Tótu, hún gaf svo mikið af sér og leikskóla- kennarinn var svo sannarlega hennar rétti starfsvettvangur. Tóta eignaðist yndisleg börn sem eru falleg að innan sem ut- an eins og mamma þeirra. Fyrir rúmum tveimur árum kynntist hún Steini, þau áttu margt sam- eiginlegt og reyndist hann henni afar vel í veikindum hennar. Ég er innilega þakklát fyrir allar stundirnar sem ég og fjöl- skylda mín áttum með Tótu og ég mun svo sannarlega gera mitt allra besta til að passa upp á gullmolana hennar sem hafa misst svo mikið. Elsku Björn Máni, Urður, Erla, Jói, Steinn, amma og aðrir ættingjar og vinir, minningin um yndislega manneskju lifir í hjörtum okkar allra. Minning þín er mér ei gleymd; mína sál þú gladdir; innst í hjarta hún er geymd, þú heilsaðir mér og kvaddir. (Káinn) Þín frænka, Guðrún Kristín Eiríksdóttir. Fuglarnir syngja fegurst á vorin, svo hefur það verið und- anfarna daga og sól hækkað á lofti. Skjótt skipast veður í lofti, myrkvað ský sorgar grúfir yfir, litla systirin Tóta hefur lokið lífsgöngunni ótímabært fráfall eftir hetjulega baráttu við ólæknandi krabbamein síðustu vikur. Á erfiðum tímum er litið til baka, minningar um glað- vært barn í hópi sex eldri systk- ina á æskuheimili okkar í Bjarghúsum, eru okkur dýr- mætur fjársjóður sem hefur fylgt okkur út í lífið. Hún hafði sérstöku hlutverki að gegna, eignaðist mág þriggja ára, með þeim tókust vináttu- og kær- leiksbönd, sem þau ein áttu fyr- ir sig, í huga hans var hún alltaf „Tóta litla“. Móðursystir varð hún fimm ára, eignaðist keppi- naut um hylli ömmu og afa og tók því af einstakri geðprýði, eins og henni einni var lagið. Nýlega rifjaði hún upp þegar litli frændinn kom til sumar- dvalar, fylgdi hann afa sínum hvert fótmál og varð hann hlut- skarpari í samkeppninni um að passa kengjaboxið í girðinga- vinnu, snéri hún sér þá að öðru svo lítið bæri á. Tóta bar mikla umhyggju og kærleika fyrir litla frænda, snáðinn var ekki orðinn læs, hún vildi upplýsa hann um gang mála í sveitinni, iðin við að teikna dýrin og ann- að fréttnæmt og sendi honum í myndskreyttum umslögum. Tóta var afar listræn, teikn- aði, skrautritaði og málaði. Eiga margir samferðamenn listsköp- un hennar af ýmsu tagi. Skóla- ganga var eins og tíðkaðist á uppvaxtarárunum, auk þess var æskuheimilið með mömmu í far- arbroddi opið fyrir hvers konar fræðimennsku sem víkkaði sjón- deildarhringinn. Tóta fór í framhaldsskóla í Reykjavík, á þeim tíma bjó hún hjá okkur hjónum, fullvaxta með framtíðarsýn ungrar konu á leið út í lífið. Hún fór ekki troðnar slóðir, náttúrubarn, kærleiksrík, fordómalaus og æðrulaus. Hún var mikill grúsk- ari og þegar tímar liðu þróaðist með henni húmanismi, sem hafði áhrif á lífsgildi og skoð- anir. Hún varð leikskólakenn- ari, fræðimennska var henni eðlislæg og sinnti hún störfum af fagmennsku, áræðni og fram- sýni. Samstarf við foreldra var henni eiginlegt. Tóta eignaðist fjölskyldu, miðlaði börnum sínum þremur kærleika, háttvísi og fegurð sem einkennir þau. Steinn kom inn í líf hennar fyrir fáum árum, áttu þau góðan tíma og féllu áhuga- mál og lífssýn saman sem eitt. Síðustu vikur og mánuðir hafa verið erfiður tími, jafnframt lærdómsríkir, gefandi og þrosk- andi. Steinn fékk sig lausan frá vinnu til að annast ástina sína síðustu vikur á Líknardeildinni í Kópavogi. Ýmsir höfundar voru henni hugleiknir eins og Steinn Stein- arr, sem hún vitnaði oft til. Eitt af uppáldskvæðum hennar voru „ Einræður Starkaðar“ Einars Benediktssonar, nokkurskonar lífsmottó: Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt, sem dropi breytir veig heillar skálar. Þel getur snúist við atorð eitt. Aðgát skal höfð í nærveru sálar. Ég ásamt fjölskyldu minni þakka elsku litlu systur sam- fylgd og leiðsögn alla tíma. Hvíl í friði, minningin lifir. Guðrún Jónsdóttir. MINNINGAR 45 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 2013 ✝ Jón Rafn Jóns-son fæddist á Einifelli í Stafholt- stungum þann 12. apríl árið 1932, þar sem hann ólst upp. Hann lést á Heil- brigðisstofnun Vesturlands á Akranesi 26. mars 2013. Foreldrar hans voru Jón Jónsson og Sigríður Halldóra Jónsdóttir frá Einifelli, og var hann eina barn þeirra. Sem ungur maður hafði Rafn mikinn hug á að læra eitthvað, og þá helst einhvers- konar listnám. En svo varð úr að hann fór í smíðaskóla einn vetur að Hólmi í Vestur-Skaftafells- sýslu, en þar komu margir ungir menn af öllu landinu. Þar urðu þeirra fyrstu kynni, Þórunnar Árnadóttur og Rafns. Eftir að skólanum lauk fluttu þau upp í Borgarfjörð og bjuggu þar og störfuðu við búskap að Einifelli Rangárvallasýslu, þar sem þau bjuggu til ársins 1972 þegar þau svo fluttu í Borgarnes. Í Borgarnesi starfaði Rafn í mörg ár við uppsetningu og við- hald á sjálfvirkum mjaltakerf- um, sem voru að ryðja sér til rúms á þessum árum hjá bænd- um í Borgarfirði og vestur í sveitum. Hann vann einnig mörg haust við sauðfjárslátrun í Borgarnesi, þar sem hann kynntist mörgu góðu fólki. Hann var eins og áður er sagt mjög listhneigður og málaði hann margar myndir og all- mikið eftir pöntunum. Hann samdi einnig nokkur lög sem hafa verið spiluð við mörg tæki- færi. Skáldsögur hefur hann skrifað nokkrar og var ein með- al annars gefin út í Heima er best sem framhaldssaga, Perlur í mold. Afkomendur eru orðnir allmargir, eða eins og fram er komið sjö börn. Einnig eru 23 barnabörn á lífi, 24 barna- barnabörn og eitt barnabarna- barnabarn. Útförin fer fram frá Borgar- neskirkju í dag, 5. apríl 2013, kl. 11. og fleiri bæjum eins og tíðkaðist á þeim tíma. Bjuggu þau á Hafþórsstöðum í Norðurárdal í eitt ár, en fluttu svo að Hermundarstöðum í Þverárhlíð árið 1963 og voru þá komin fjögur börn í heiminn, sem áttu eftir að verða sjö talsins. Þau eru: Jón Einar, f. 1955. Maki Jónína Ísleifsdóttir. Sigríður Kristín, f. 1956. Maki Einar Hannesson. Anna Eygló, f. 1958. Maki Sveinn Gunnar Eð- varðsson. Kári Þór, f. 1962. Maki Guðbjörg Dagný Þórð- ardóttir. Erlingur Smári, f. 1964. Maki Unnur Margrét Karlsdóttir. Kolbrún Alma, f. 1966. Maki Hafliði Ólafur Gunn- arsson. Júlíus Árni, f. 1967. Maki Helle Larsen. Árið 1970 fluttu Rafn og Þór- unn að bænum Húsum austur í Elsku Rabbi afi minn, mér finnst svo óraunverulegt að þú sért ekki hérna hjá okkur leng- ur. Veikindi þín voru það sem tók þig frá okkur öllum, allri þessari stóru fjölskyldu sem þú skilur eftir þig, og henni ömmu. Stutt var baráttan en erfið var hún, fyrir alla. Ég áttaði mig ekki á því hvað veikindin voru al- varleg. En svo varðstu veikari og það var ekki fyrr en á spít- alanum nokkrum dögum áður en þú kvaddir sem ég áttaði mig á því hversu alvarlegt ástandið var. Allar stundirnar sem við eyddum niðri í kjallara, þú varst alltaf að sýna mér eitthvað nýtt á hverjum degi þegar ég kom til ykkar ömmu. Svo allar sögurnar sem þú sagðir mér þegar ég var hjá ykkur þegar skólinn byrjaði ekki fyrr en eftir hádegi. Hefðin var að borða hádegismat hjá ömmu og afa áður en skólinn byrjaði. Erfitt er að sjá svona hraustum og sterkum manni hraka svona fljótt beint fyrir framan sig, sá sem hefur alltaf verið þarna til staðar fyrir mann. Verð að viðurkenna það að tilhugsunin lætur bara tárin renna niður kinnarnar. Þú varst alltaf til staðar og ert það enn, vegna þess að ég trúi því að þú sért þarna uppi að fylgjast með okkur öllum. Þær minningar sem standa upp úr eru allir þeir klukkutímar og mínútur sem ég gat setið á gólfinu heima í Höfðaholtinu og hlustað á þig og jafnveg Pálma bróður með þér þarna líka að spila lögin ykkar, og fleiri góð lög, á harmónikurnar. Að sjá þig spila fékk mig alltaf til þess að brosa vegna þess að það geislaði svoleiðis af þér gleðin og ham- ingjan þegar þú tókst upp nikk- una. Þetta var nokkuð sem þú elskaðir að gera, ásamt mörgu mörgu öðru. Ég á eftir að sakna þín mjög mikið og ég held það verði mjög skrítið að fara í næsta 17. júní-boð, að hafa eng- an afa til þess að faðma og knúsa. Síðustu áramót þegar ég kom heim til ykkar ömmu varst þú sá sem ég faðmaði fyrst og óskaði gleðilegs nýs árs og þakk- aði þér fyrir öll þau gömlu góðu, og ég stend við það afi minn. Ég þakka þér fyrir öll þau góðu ár sem ég átti með þér. Það er rosalega erfitt að kveðja svona góðan mann, sem vildi aldrei neinum neitt illt og gerði allt til þess að koma brosi á sorg- mætt andlit. Ég veit það að þú og Ebbi afi minn og Dídí amma eruð þarna uppi að fylgjast með mér. Þau hafa tekið vel á móti þér, það efast ég ekki um. Við munum öll hugsa um ömmu fyrir þig, þú veist að hún er í góðum höndum hjá okkur. Hún á líka eftir að sakna þín jafn sárt og ég á eftir að sakna þín. Þú verður alltaf með mér. Elska þig að ei- lífu. Ég vil nota þetta tækifæri og þakka þeim hjúkrunarfræðing- um og læknum á spítalanum á Akranesi sem hugsuðu vel um afa minn og ég vil líka þakka fjölskyldunni minni, vinum og samstarfsfélögum fyrir allan þann stuðning og þá umhyggju sem þeir hafa veitt mér og mín- um, þið eruð algjörar hetjur. Ó, blessuð vertu, sumarsól, er sveipar gulli dal og hól og gyllir fjöllin himinhá og heiðarvötnin blá. Nú fossar, lækir, unnir, ár sér una við þitt gyllta hár, nú fellur heitur haddur þinn á hvíta jökulkinn. (Páll Ólafsson) Anna Margrét Sveinsdóttir. Daginn áður en við Ása Sig- urlaug fórum til Tenerífe fórum við heim til Rabba og Tótu til að kveðja þau og fá fréttir af heilsu- fari hans, þá átti hann að fara til Reykjavíkur í aðgerð sem hafði tekist vel að sögn kunnugra. Ég átti alls ekki von á því þegar við fórum út að ég myndi skrifa minningargrein um þennan vin minn stuttu eftir að við komum að utan. Hann andaðist 26.3. á Sjúkrahúsi Akraness. Rafn Jónsson var hár maður og sterk- ur og hélt sér vel þó orðinn væri áttræður. Hann hafði mikla ánægju af harmonikkuleik og spilaði sjálfur allvel og samdi lög sem hafa oftast verið spiluð á fundum félagsins. Hann var mjög listrænn, málaði fínar myndir sem hanga á veggjum á heimili hans. Hann var mjög handlaginn, gerði upp gamla dráttarvél og var flinkur við allt sem hægt var að gera í hönd- unum. Við Ása erum búin að þekkja þau hjón lengi áður en við fluttum í Borgarnes og þá fyrst á skemmtun hjá Félagi harmonikkuunnenda Vestur- lands sem haldið var í Þverár- rétt en hann var þá formaður fé- lagsins. Eftir að við fluttum í Borgarnes kom hann stundum í heimsókn og við til þeirra, var þá oft tekin fram harmonikka og tekið lagið. Rabbi var góður maður og vinur vina sinna, ég sá hann aldrei skipta skapi, alltaf jafn rólegur og þægilegur. Hann var lengi formaður Félags harm- onikkuunnenda Vesturlands og bar ótakmarkaða umhyggju fyr- ir því félagi enda voru allir fund- ir haldnir á heimili þeirra Tótu þótt hann væri hættur for- mennsku og voru veitingar þeirra líkt og væri afmæli eða fermingarveisla. Í haust stóð jafnvel til að félagið yrði lagt niður því enginn vildi taka við formennsku, þá kom hann til mín og bað mig að taka að mér formennskuna, hann skyldi að- stoða mig eins og hann gæti ef með þyrfti. Hann átti alls ekki von á því að hann færi svona fljótt í sitt langa ferðalag. Við Ása Sigurlaug sendum Tótu, börnum og öðrum aðstandend- um innilegar samúðarkveðjur. Guð blessi minningu Rafns Jóns- sonar. Einar Óskarsson, Ása Sigurlaug Halldórsdóttir. Nú í dag, þegar þau tímamót blasa við að einn meðal bestu vildarvina minna hefur nú kvatt mannlífið, minnist ég í huganum sjónmyndar sem hverfur ekki þó árin líði. Dagurinn sem þessi sjónmynd vísar til er 8. júní 1965, upphafsdagur bændafarar Borgfirðinga um Suðurland á því vori. Meðal ferðalanga var hár maður og burðamikill, sjáanlega gæddur skarpri athyglisgáfu og viðleitni til að njóta sem best alls þess sem ferðalagið hafði upp á að bjóða. Það er reyndar alveg augljóst að ekki verður fjallað um lífs- hlaup og hæfileika Rafns Jóns- sonar að neinu ráði í þeim línum sem til umráða eru hér. Æsku- sveitinni unni hann mjög þó at- vikin réðu því að bóndastaðan yrði ekki hlutskipti hans til allr- ar framtíðar og að hann leitaði þá á önnur mið. Smíðahæfni hans, einkum á sviði málma, var svo ótvíræð að hann varð eftirsóttur til þess háttar verkefna. Slíkt kom sér meðal annars vel er hann var starfsmaður mjólkureftirlits í rúman áratug. Þá bjó hann einn- ig yfir eftirtektarverðu listfengi á ýmsum sviðum sem einkum voru listmálun, samning laga og sagnagerð. Myndverk hans voru litauðug, oftast af þjóðlegri rót þar sem leitast var við að laða fram og varðveita einkenni gam- alla horfinna bæja eftir minni eða myndum. Ungur lærði Rafn að leika á harmoniku en hélt þeirri íþrótt naumast við óslitið þar til hann tók þráðinn upp að nýju löngu síðar. Gerðist hann ótrauður for- göngu- og liðsmaður félags þess er hlaut heitið Harmonikuunn- endur Vesturlands og gegndi þar ýmsum störfum, þar á meðal formennsku. Um langt árabil hafa þau Þórunn skotið skjóls- húsi yfir skemmtifundi harmon- ikumanna jafnhliða aðalfundi við mikla rausn og vinsældir. Rafn hefur samið allnokkur harmon- ikulög sem hlotið hafa afbragðs viðtökur þar sem þau hafa verið tekin til flutnings. Ótalin er þá skáldsagnagerð hans, sem kallaði hugmyndaflug hans fram á víðan völl, því sögur hans gerast bæði í sveit og sjáv- arbyggð. Samning lengri sagna hans hófst líklega fyrir alvöru þegar hann var að verða hálf- fimmtugur og hélt áfram langt fram eftir ævi hans. Hér skulu einungis nafngreindar þrjár af mun fleiri sögum, en þær eru: Vagga norðursins, Flóttinn til frelsis og Perlur í mold. Hefur hin síðastnefnda ein komið út á prenti enn sem komið er. Um jarðfræðileg efni og fjöl- mörg önnur fyrirbæri náttúr- unnar þótti Rafni gott að ræða, og þar naut sín vel glöggskyggni hans á margt sem ýmsum öðrum er hulið. Um dularmögn al- heimsins las hann sér til af mikl- um áhuga og ekki á allra færi að fylgja honum eftir væri um slík- ar ráðgátur rætt. Ég kveð þennan eftirminni- lega mann og góða vin með hlý- hug og þökk fyrir yndisstundir sem ekki verða tölum taldar um áratuga skeið. Og Þórunni, sem staðið hefur sem hetja dagsins í lífi Rafns, ber hið mesta hrós. Henni og allri hennar fjölmennu fjölskyldu færi ég samúðar- kveðjur með ósk um góða daga. Bjarni Valtýr Guðjónsson. Jón Rafn Jónsson ✝ Útför föður okkar, tengdaföður, afa og lang- afa, STEFÁNS GUÐMUNDSSONAR, Túni, Flóa, sem lést fimmtudaginn 28. mars, fer fram frá Selfosskirkju laugardaginn 6. apríl kl. 13.30. Jarðsett verður í Hraungerðiskirkjugarði. Jóhann Stefánsson, Þórunn Sigurðardóttir, Ragnheiður Stefánsdóttir, Guðjón Á. Luther, Guðmundur Stefánsson, Guðrún H. Jónsdóttir, Hafsteinn Stefánsson, Guðfinna S. Kristjánsdóttir, Vernharður Stefánsson, Auður Atladóttir, Jónína Þ. Stefánsdóttir, Halldór Sigurðsson, Bjarni Stefánsson, Veronika Narfadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ KNÚTUR BJARNASON bóndi, Kirkjubóli í Dýrafirði, verður jarðsunginn frá Þingeyrarkirkju laugar- daginn 6. apríl kl. 14.00. Bjarni Guðmundsson, Ásdís B. Geirdal, Gunnar Guðmundsson, Gíslína Lóa Kristinsdóttir, Guðmundur Gr. Guðmundsson, Hildur Inga Rúnarsdóttir, Sigrún Guðmundsdóttir og fjölskyldur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.