Morgunblaðið - 05.04.2013, Síða 54
54 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 2013
STOFNAÐ1987
M
ál
ve
rk
:
Ú
lf
ar
Ö
rn
einstakt
eitthvað alveg
Ú r v a l e i n s t a k r a m á l v e r k a o g l i s t m u n a e f t i r í s l e n s k a l i s t a m e n n | Sk ipholt 50a Sími 581 4020 | www.gal ler i l i s t . i s
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Framandverkaflokkurinn Kviss
búmm bang, í samvinnu við Leik-
félag Akureyrar, frumsýndi í gær
leiksýninguna Lög unga fólksins í
Hlíðarbæ í Hörgársveit. Verkið er
þátttakendaverk í anda leikflokks-
ins, þar sem allir taka þátt á sínum
forsendum og enginn leikhúsgestur
er skilinn útundan. Kviss búmm
bang samanstendur af listakonunum
Evu Björk Kaaber, Evu Rún
Snorradóttur og Vilborgu Ólafs-
dóttur. „Við fengum þær til að koma
hingað til þess að vinna að þemanu
Hvað er að vera unglingur? Þær
fóru þá leið að taka þetta út frá
þeirri manndómsvígslu sem ferming
er,“ segir Ragnheiður Skúladóttir,
leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar.
Núningur á milli æviskeiða
Í verkinu fékk leikhópurinn 20
krakka á fermingaraldri til að taka
þátt í uppsetningunni. „Þau minna
okkur á hvernig það var að vera ung-
lingur og að heimsækja þann kraft
sem er til staðar á þessum unglings-
árum,“ segir Ragnheiður.
Hún segir unglinga geta kennt
hinum sem eldri eru margt. Þeir séu
opnir fyrir nýjungum og ekki með
fyrirfram gefnar hugmyndir um
hluti. ,,Það er sagt að þegar þú ert
kominn í fullorðinna manna tölu,
þarftu að kunna inn á ákveðna kóða
og hegðun. En er það svo sjálf-
gefið?“ spyr Ragnheiður.
Upphaf samstarfs LA og Kviss
búmm bang má rekja til þess þegar
þær stöllur úr Kviss búmm bang
voru fengnar í vinnustofu í nóvem-
ber. „Þar var rýnt í það hvað það var
að vera ungur. Þær langaði að skoða
það hvernig er að vera á þessum
millibilsaldri þar sem ríkir núningur
á milli æviskeiða, á milli þess að vera
barn og fullorðinn. Þá er fólk að upp-
götva sjálft sig og storkar þeim gild-
um sem hinir eldri hafa,“ segir
Ragnheiður.
Áhorfendur fá kökuhlaðborð
Þátttakendaleikhús felur í sér
eins og nafnið gefur til kynna að
áhorf-endur eru hluti af verkinu.
Áhorf-endur taka þátt í ákveðnum
verkefnum sem þarf að leysa eða
inna af hendi. Annaðhvort í hóp eða
einn með sjálfum þér. „Það er boðið
upp á kökuhlaðborð og þú tekur þátt
í því eins og hver annar gestur í
fermingarveislu. Hver og einn fær
sinn unga leiðbeinanda sem vísar
veginn í gegnum verkið. Það eru því
engir áhorfendur í raun, aðeins þátt-
takendur,“ segir Ragnheiður.
Þrjátíu gestir komast á hverja
sýningu en einungis verða sex sýn-
ingar í heild. Uppselt er á fjórar
þeirra en sýningar fara fram á
fimmtudögum og föstudögum.
Krakkarnir sem taka þátt í sýn-
ingunni hafa ekki endilega reynslu
af leiklist þó sumir geri það. „Þetta
eru frábærir krakkar og allt hefur
gengið mjög vel,“ segir Ragnheiður.
Kviss búmm bang er orðið þekkt
út fyrir landsteinana fyrir fram-
andgerð verk sín og vinnu-brögð.
Þær hafa sýnt á stórhátíðum á borð
við Listahátíðina í Vínarborg og Bal-
tic Circle í Helsinki auk þess að
koma fram á New Baltic Dance í Vil-
níus og Bonus Festival í Héde í
Frakklandi. Nýlega voru þær valdar
til að taka þátt í verkefninu Global
City. Local City sem hátíðir á borð
við Spielart í München og LIFT í
London standa að.
Öllum er boðið að taka þátt í veislunni
Leiksýningin Lög unga fólksins hef-
ur verið sett upp í Hlíðarbæ Ferm-
ingarveisla sem áhorfendur taka þátt í
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Frá lokaæfingu Lög unga fólksins er þátttakendaverk í anda Kviss búmm bang. Í því taka allir þátt á sínum for-
sendum og enginn leikhúsgestur er skilinn útundan. Áhorfendum er boðið í fermingarveislu.
Alþjóðlega tónlistarakademían hlaut
hæsta styrk eða 1,2 milljónir króna
þegar úthlutað var fyrr í vikunni úr
Ýli, tónlistarsjóði Hörpu fyrir ungt
fólk. Alls var úthlutað 4,5 milljónum
króna til tíu tónlistarverkefna sem
fram munu fara í Hörpu á árinu, en
áður hefur Ýlir styrkt Nótuna,
uppskeruhátíð tónlistarskóla, og
Músíktilraunir þannig að samtals
nemur stuðningur Ýlis við tónlistar-
verkefni í Hörpu í ár alls 6,2 millj-
ónum króna.
Meðal þeirra tónlistarverkefna
sem tilkynnt var í vikunni að fengju
styrk eru tónlistarhátíðin Wacken
Metal Battle á Íslandi, útgáfu-
tónleikar Agent Fresco, barnamenn-
ingarhátíðin Upptaktur, raf-
tónleikar til heiðurs Biogen,
lokatónleikar Stelpur rokka, raf-
tónleikar ungra tónskálda sem og
tónleikar þar sem leikið verður á
langspil og hljóðfærið kynnt.
Í tilkynningu kemur fram að
markmið Ýlis sé að ýta undir fjöl-
breytt tónlistarlíf í Hörpu, styðja
ungt tónlistarfólk og veita því tæki-
færi til að koma fram í húsinu. Alls
bárust sjóðnum á fimmta tug um-
sókna frá listamönnum, hljóm-
sveitum, hópum og félagasamtökum
um stuðning við verkefni sín og
áform um tónleikahald í Hörpu.
Meðal þeirra þátta sem stjórn sjóðs-
ins leit til við afgreiðslu umsókna var
hvernig verkefnið nýtti möguleika
Hörpu sem tónlistarhúss, mögu-
leikar þess til að höfða til nýrra
áheyrandahópa og hvernig það nýtt-
ist ungu og efnilegu tónlistarfólki.
Tíu tónlistarstyrk-
ir veittir úr Ýli
Morgunblaðið/Júlíus
Tónlistarhúsið Ýlir styrkir ungt
fólk til tónleikahalds í Hörpu.
Myndlistarhátíðin Sequences VI
hefst með opnun sýningar Gretars
Reynissonar Áratugur í Ný-
listasafninu og Artíma á Skúlagötu
28
í kvöld kl. 20, en Gretar er heið-
urslistamaður hátíðarinnar í ár.
Á sama tíma verða opnaðar sýn-
ingar Mörtu Wilson I Have become
my own worst fear og Sigrúnar
Hrólfsdóttur Líkan í Listamönnum
á Skúlagötu 32-34. Klukkan 22 verð-
ur haldin sérstök opnunargleði á
Kex hosteli, en þar treður upp
Magnús Logi Kristinsson.
Hátíðin stendur til 14. apríl nk. en
þetta er í sjötta sinn sem hún er
haldin. Á hátíðinni er sjónum beint
að tímatengdri myndlist eins og
gjörningum, hljóð- og myndbands-
verkum. Á þriðja tug listamanna
tekur þátt í aðaldagskrá hátíð-
arinnar auk þess sem fjöldi lista-
manna tekur þátt í utandagskrá
hennar. Meðal listamanna sem sýna
á hátíðinni í ár eru Guido van der
Werve en sýning hans Nummer
Veertien, home verður opnuð í
Kling & Bang á Hverfisgötu 42 á
morgun kl. 17, Ragnheiður Gests-
dóttir en sýning hennar Loco Mo-
tion verður opnuð hjá Myndhöggv-
arafélaginu í Reykjavík á
Nýlendugötu 15 á morgun kl. 20,
Tumi Magnússon en sýning hans 4
Times to The Shop verður opnuð í
Hverfisgallerí á Hverfisgötu 4 nk.
sunnudag kl. 15, Curver Thorodd-
ssen en sýning hans The Fine And
Delicate Art of Archival Processing
verður opnuð í Gallerí Dverg á
Grundarstíg föstudaginn 12. apríl
kl. 20 og Erla Silfá Þorgrímsdóttir
en hljóðverkið hennar Passion
Hymns: Bootleg verður flutt í Bíó
Paradís á Hverfisgötu 54 nokkrum
sinnum meðan á hátíðinni stendur.
Allar nánari upplýsingar um há-
tíðina og dagskrá hennar má nálg-
ast á vefnum sequences.is.
Sequences sett í sjötta sinn
Heiðurslistamaður Gretar Reynisson er heiðurslistamaður Sequences í ár.
Þrjár sýningar
verða opnaðar í dag