Morgunblaðið - 05.04.2013, Qupperneq 57

Morgunblaðið - 05.04.2013, Qupperneq 57
MENNING 57 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 2013 KVIKMYNDAÚRVALIÐ ER Í SAMBÍÓUNUM ÁTOPPNUM Í ÁR KYNNTUÞÉRMÁLIÐ Á EGILSHÖLLÁLFABAKKA G.I.JOE:RETALIATION3D KL.3:20-5:40-8-10:20 G.I. JOE:RETALIATION2D KL.3:30 G.I. JOE:RETALIATIONVIP KL.3:20-5:40-8-10:20 SIDEEFFECTS KL.3:20-5:40-8-10:30 ÓFEIGURGENGURAFTUR KL.5:50-8-10:10 JACKTHEGIANTSLAYER3D KL.8-10:30 THECROODS ÍSLTAL3D KL.3:40-5:50 THECROODS ÍSLTAL KL.3:40-5:50 DEADMANDOWN KL.8-10:20 KRINGLUNNI SIDEEFFECTS KL. 5:40 -8 -10:20 ÓFEIGURGENGURAFTUR KL. 5:50- 8 - 10:10 JACK THEGIANT SLAYER 3D KL. 10:40 OZ:GREATANDPOWERFUL 3D KL. 5:20 - 8 G.I. JOE:RETALIATION3DKL. 5:30 -8 -10:30 SIDEEFFECTS KL. 8 -10:20 ÓFEIGURGENGURAFTURKL.5:50-8 JACKTHEGIANTSLAYER KL.3D:82D:10:10 DEADMANDOWN KL.10:30 OZ:GREATANDPOWERFUL 3DKL.5:30 THECROODS ÍSLTAL3D KL.5:50 NÚMERUÐ SÆTI KEFLAVÍK G.I.JOE:RETALIATIONVIP KL.8 SIDEEFFECTS KL.10:20 ÓFEIGURGENGURAFTUR KL.5:50-8-10:10 THECROODS KL.5:50 AKUREYRI SIDEEFFECTS KL. 8 -10:10 ÓFEIGURGENGURAFTUR KL. 6 -8 -10:10 JACKTHEGIANTSLAYER 3D KL.5:50 NICHOLAS HOULT - EWAN MCGREGOR STANLEY TUCCI - IAN MCSHANE 88/100 CHICAGO SUN-TIMES –R.R. FRÁBÆR ÍSLENSK GAMANMYND  H.S. - MBL FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA! EIN FLOTTASTA SPENNUMYND ÁRSINS THE NEW YORK TIMES LOS ANGELES TIME WALL STREET JOURNAL TIME STÓRKOSTLEG ÆVINTÝRAMYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA MEÐ ÍSLENSKU TALI Í 2D OG 3D NÝJASTA MYND STEVEN SODERBERGH í Menntaskólanum í Reykjavík fyrir 10. bekkinga og forráðamenn þeirra verður laugardaginn 6. apríl kl. 14-16. Allir eru hjartanlega velkomnir. Opið hús Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Breska tónlistarhátíðin All Tomor- row’s Parties (ATP) verður haldin hér á landi í sumar, 28.-29. júní, í gömlu herstöðinni á Ásbrú í Kefla- vík. Hátíðin var fyrst haldin í Bretlandi árið 2000, stofnuð af tónleikaskipu- leggjandanum Barry Hogan. Há- tíðin hefur verið haldin víða um heim og viðburðir henni tengdir og þekktar hljóm- sveitir séð um listræna stjórnun hennar, m.a. Nick Cave & The Bad Seeds, My Bloody Valentine, Port- ishead og Sonic Youth. Um 20 hljóm- sveitir koma fram á hátíðinni hér á landi, íslenskar og erlendar, og hefst dagskrá beggja daga kl. 18. Hverjar þessar hljómsveitir eru verður til- kynnt 16. apríl nk. Hátíð og íbúð „Þegar hátíðin var stofnuð var hún hugsuð sem svar við stærri há- tíðum þar sem væru tugir þúsunda manna, hún átti að vera lítil og nánd- in mikil. Hún hefur alltaf farið fram í strandbæjum á Englandi, fjarri þéttri byggð,“ segir Tómas Young, framkvæmdastjóri ATP hér á landi. Hátíðin hafi alltaf verið haldin á sumarleyfisstöðum fyrir Breta og sé sérstök að því leyti að gestir fái íbúð til afnota með aðgöngumiðunum. „Við ætlum að gera það líka hér á Ís- landi, bjóða upp á það en það verða ekki allir miðarnir með íbúð. Ásbrú, gamla varnarliðssvæðið, býður upp á þetta því það er töluvert mikið þar af ónýttu íbúðarhúsnæði,“ segir Tómas. Sem fyrr segir hafa ýmsar hljóm- sveitir séð um listræna stjórnun ATP og valið hljómsveitir á hátíð- ina, sem er heldur óvenjulegt fyrir- komulag, en fyrirmyndin var sótt í hátíð sem hljómsveitin Belle and Sebastian stóð fyrir árið 1999, Bow- lie Weekender. Stjórnendur ATP sjá hins vegar sjálfir um val á þeim hljómsveitum sem fram koma hér á landi líkt og gert hefur verið áður þegar viðburðir ATP hafa farið fram á nýjum stöðum, m.a. í Japan. Hver er hljómsveitin? Tómas segir sex til átta erlendar hljómsveitir koma fram og 10-12 ís- lenskar. „Inni í þessum erlendu nöfnum er einn „headliner“ og sú hljómsveit er mjög stór, stærri að umfangi en allar aðrar,“ segir Tóm- as og iðar í skinninu að fá að til- kynna hvaða hljómsveit það er. Miðasala er hafin á hátíðina, fer hún fram á atpfestival.com og segir Tómas að margir kaupi miða án þess að vita hverjir komi fram á henni. Hátíðin sé þekkt vörumerki í tónlistargeiranum, fólk treysti því að boðið verði upp á góða dagskrá og miðar með gistingu hafi þegar selst á hátíðina hér á landi. „Svo er staðsetningin náttúrlega aðalmálið hjá okkur,“ bætir Tómas við og seg- ir stjórnendur hátíðarinnar hafa kolfallið fyrir henni. „Þeim fannst þetta svo flottur staður og flott hug- mynd að vera á yfirgefnum NATO- velli.“ Tónleikar hátíðarinnar verða haldnir á tveimur sviðum, stærra sviðið verður í Atlantic Studios, sem er í gömlu flugskýli sem breytt var í kvikmyndaver, og minna sviðið í Offiseraklúbbnum. Andrew’s Thea- ter verður einnig nýtt, kvikmyndir sýndar og boðið upp á ýmsa við- burði. Ljósmynd/Leigh Johnson Stuð Bandaríska indíhljómsveitin Yeah Yeah Yeahs á fljúgandi ferð á einni af hátíðum All Tomorrow’s Parties. Ein hljómsveit sem er stærri en allar aðrar  All Tomorrow’s Parties verður haldin á Ásbrú í júní Tómas Young Herbergi 9 nefnist sýning á nýjum verkum Siggu Bjargar Sigurðar- dóttur sem opnuð verður í ÞOKU í dag kl. 17. „Furðudýr og aðrar kynjaverur í ýmsum athöfnum hafa lengi verið viðfangsefni Siggu Bjargar. Verurnar eru oft á tíðum frekar ógeðfelldar og óhugnanlegar en á sama tíma er hægt að skynja eitthvað mannlegt við þær. Margar þeirra eru stórar og loðnar með lík- amshluta úr hlutföllum og búa þær í sínum eigin heimi sem gæti verið í annarri vídd. Oft er ekki alveg ljóst hvað er á seyði en líkamsvessar og vandræðaleg atvik koma iðulega við sögu. […] Blásið hefur verið lífi í karaktera og táknmyndir sem taka á móti áhorfandanum í formi skúlp- túra. Á veggjunum má sjá teikn- ingar sem unnar hafa verið út frá völdum þáttum í sögunum. Með inn- setningunni brúar hún bilið á milli hennar myndheims og okkar heims,“ segir í tilkynningu. Út er komin bókin 9 Fingers, sem samanstendur af níu myndasögum eftir listakonuna. „Sumar sagnanna innihalda söguþráð á meðan aðrar snúast um senur. Lesandinn fær að kynnast ákveðnum karakterum bet- ur eins og frönskum kassa sem á við bagalegt vandamál að stríða og hár- kúlunni Smith sem er ekki öll þar sem hún er séð. Þótt margar af sög- unum fjalli um eitthvað óþægilegt eða hræðilegt eru þær fullar af kald- hæðni og húmor sem hefur einkennt fyrri verk Siggu Bjargar.“ Sýningin er hluti af utandagskrá Sequences og stendur til 12. maí. Loðið Furðuverur listakonunnar eru oft og tíðum frekar ógeðfelldar. Sigga Björg sýnir Herbergi 9 í ÞOKU „Við erum mjög spennt yfir komu ATP til Íslands. ATP hef- ur sterka tengingu við Ísland og hljómsveitirnar sem munu koma fram tryggja það að þetta verður ógleymanlegur viðburður. Ísland er fallegt land og það er heiður að vinna með frábærum skipuleggj- endum þar og á svona ein- stökum stað eins og fyrrver- andi NATO-herstöðin í Keflavík er,“ er haft eftir stofnanda ATP, Barry Hogan, í tilkynningu frá skipuleggj- endum hátíðarinnar hér á landi. Viðburðir á vegum ATP hafa verið haldnir víða um heim allt frá stofnun hátíðar- innar og íslenskir tónlistar- menn og hljómsveitir komið fram á henni, m.a. Sigur Rós, múm, Mugison og Botnleðja. Einstakur staður ATP Á ÍSLANDI Mugison Hefur leikið á ATP. Íslensku barnabókaverðlaunin verða ekki veitt í ár. Í tilkynningu frá Forlaginu kemur fram að dóm- nefnd Íslensku barnabókaverð- launanna hafi rýnt vel í þau átján handrit sem bárust í samkeppnina að þessu sinni en ekkert þeirra þótti henta sem verðlaunasaga og því verða verðlaunin ekki veitt í ár. Höfundar geta sótt handrit sín á skrifstofu Forlagsins næstu tvo mánuði. „Íslensku barnabókaverðlaunin hafa verið veitt árlega frá 1986, að undanskildum árunum 1999 og 2005 þegar sama var uppi á ten- ingnum og nú,“ segir m.a. í tilkynn- ingunni. Næsti skilafrestur í sam- keppnina verður í byrjun næsta árs. Að Íslensku barnabókaverðlaun- unum standa auk Forlagsins fjöl- skylda Ármanns Kr. Einarssonar rithöfundar, Barnavinafélagið Sumargjöf og IBBY á Íslandi. Íslensku barnabókaverðlaunin ekki veitt

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.