Morgunblaðið - 05.04.2013, Blaðsíða 60
FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 95. DAGUR ÁRSINS 2013
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 4190 I-PAD ÁSKRIFT 4190
1. Óska upplýsinga um látinn mann
2. Ég er skíthræddur við þetta
3. Látin í bíl sínum í marga daga
4. Í hættu í briminu við Reynisfjöru
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Myndlistarmaðurinn Ragnar Kjart-
ansson er meðal þeirra sem sýna
verk sín á sjónlistahátíðinni Sequen-
ces sem hefst í dag. Ragnar mun á
sunnudaginn opna sýningu á sjálfs-
myndum sem hann málaði í einu af
herbergjum hótelsins, herbergi 413.
Verkin mun hann sýna innan um mál-
verk þekktra, íslenskra listmálara
sem prýða jarðhæð hótelsins. »54
Morgunblaðið/Einar Falur
Sýnir sjálfsmyndir
málaðar á Hótel Holti
ÚÚ 6, sjötta
spunaplata sjálf-
stæðu hljóð-
verkaútgáfunnar
Úslands, er komin
út. Á spunaplöt-
unum koma sam-
an tónlistarmenn
sem hafa ekki
unnið saman áður
og taka upp hljóðrit sem fer óbreytt á
netið og síðan á plötu. Úsland gefur
út spunaplötu á mánaðarfresti og
verða þær á endanum 12. Meðal
þeirra sem leika á ÚÚ 6 eru Agnar
Már Magnússon píanóleikari og Fred
Lynn Jacques sem leikur á bouzouki.
Spunaröð Úslands
hálfnuð með ÚÚ 6
Í ár eru 20 ár liðin frá því Margrét
J. Pálmadóttir og konur úr kórskóla
Kramhússins stofnuðu Kvennakór
Reykjavíkur. Af því til-
efni verða haldnir
hátíðartónleikar í
Eldborg í Hörpu, 7.
apríl og hefjast kl. 15.
Sex kvennakórar
koma þar saman
og syngja, um
400 konur.
Um 400 konur syngja
saman í Eldborg
Á laugardag Austan og norðaustan 5-13 m/s, en hægari NA-
lands. Dálítil snjókoma eða él SV-til á landinu og við NA-ströndina,
Á sunnudag Hæg breytileg átt og bjartviðri, en skýjað og él V-
lands. Hiti breytist lítið.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austan og norðaustan 5-13, hvassast NV-til.
Skúrir eða él á S- og SV-landi, dálítil él NA-lands. Frost 0 til 8 stig
VEÐUR
Þýska handknattleiks-
félagið Wetzlar rifti í gær
samningi sínum við Kára
Kristján Kristjánsson fyrir
að spila með íslenska lands-
liðinu í Slóveníu í fyrrakvöld
á meðan hann var skráður í
veikindaleyfi hjá félaginu.
Kári mun hinsvegar hafa
talið sig í fullum rétti til að
taka þátt í leiknum eftir að
hafa óskað eftir því við
lækni Wetzlar að verða tek-
inn af sjúkralistanum. »2
Kári taldi sig vera
í fullum rétti
Birna Berg Haraldsdóttir, landsliðs-
kona í handknattleik og leikmaður
Fram, á von á tilboði frá sænska fé-
laginu Sävehof. Birna æfði með liðinu
á dögunum og Svíarnir vilja í kjölfarið
fá hana í sínar raðir. „Ég
er bjartsýn á að ég fari
til Svíþjóðar,“ segir
Birna en útilokar ekki
að fara til Zwickau í
Þýskalandi, ásamt
Þorgerði Önnu
Atladóttur úr Val.
»1
Birna bjartsýn á
samning í Svíþjóð
KR-ingar jöfnuðu metin í einvíginu
gegn deildarmeisturum Grindavíkur í
undanúrslitum Dominos-deildar karla í
körfuknattleik í gær. KR-ingar sýndu
allar sínar bestu hliðar gegn Suður-
nesjamönnum á heimavelli sínum í
Frostaskjólinu og uppskáru 18 stiga
sigur, 90:72. Liðin hafa þar með unnið
sinn leikinn hvort en vinna þarf þrjá
leiki til að komast í úrslitaeinvígið. »4
KR-ingar fóru illa með
Grindvíkinga
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Jón Heiðar Gunnarsson
jhg@simnet.is
„Við vorum nýbúnir að þrífa Turn-
inn í Kópavogi í fyrra þegar brjálað
öskufall gekk yfir. Við urðum því að
þrífa hann allan aftur,“ segir Arnar
Þorsteinsson, framkvæmdastjóri
AÞ-Þrifa. Hann segir öskuna vera
atvinnuskapandi því það hefur verið
nóg að gera í utanhússþrifum frá
því að Eyjafjallajökull gaus. „Þetta
er erfið drulla því hún situr föst í
gluggapóstum og listum. Við erum
mikið að sópa hús að utan, skafa
gler og þrífa klæðningar, bæði hjá
fyrirtækjum og í heimahúsum,“
segir Arnar. Hann hvetur fólk til að
fylgjast vel með veðurspánni því
vindáttin skiptir gríðarlega miklu
máli í sambandi við öskufallið.
Askan leynist víða
Sex til tíu manns sjá um að þrífa
hús að utanverðu hjá fyrirtækinu en
askan skapar einnig atvinnutæki-
færi innandyra. „Við finnum fyrir
auknu álagi í ræstingum innandyra
því askan nær að smeygja sér inn
um glugga og dyr ef fólk gleymir að
loka.“
Arnar mælir þó ekki með að fólk
loki öllum gluggum heima hjá sér
því það getur leitt til móðu- og
rakasöfnunar innandyra. „Það eru
engar töfralausnir til og það er
nauðsynlegur fylgifiskur þess að
eiga húsnæði að þrífa það
vel.“
Lítil kreppuáhrif
Arnar hefur mikla
reynslu af hreingerningum
en hann hefur starfað við
þær í rúm ellefu ár. Hann
er ánægður í starfi og sér
ekki fram á að hætta í
bráð. „Ég horfi björtum
augum til framtíðar þrátt
fyrir að margir góðir að-
ilar séu einnig á markaðnum og
samkeppnin mikil. Það þarf alltaf að
þrífa og það er ekki hægt að láta
hluti grotna niður þótt það komi
kreppa.“
Ekki fyrir lofthrædda
Það taka við stór verkefni hjá
Arnari og félögum eftir helgi en þá
þrífa þeir turnana í Kópavogi og
Borgartúni ásamt stórhýsinu sem
hýsir Grand hótel. Þegar því er lok-
ið hefjast þeir handa við að þrífa
Hörpu. „Það er stórkostleg frels-
istilfinning að þrífa hús í 50 metra
hæð. Tilfinningin er svipuð og við
falhlífarstökk en maður hefur að
sjálfsögðu meiri tíma til að njóta út-
sýnisins. Ég mæli ekki með þessu
fyrir lofthrædda,“ segir Arnar.
„Stórkostleg frelsistilfinning“
Askan skapar
fjölda starfa í
gluggaþvottinum
Morgunblaðið/Golli
Gluggaþvottur Samúel Alexandersson, gluggaþvottamaður hjá AÞ-þrifum, að störfum í Garðabæ í gær.
„Þetta er mikið vandamál enda
loðir drullan föst við gluggana,“
segir Arnar Hallsson, rekstr-
arstjóri Turnsins í Kópavogi.
„Ég hlakka til að sjá bygg-
inguna skínandi hreina í
næstu viku því það sést
mikið á henni eftir
vetrartímann.“
Bjarni Geirsson,
viðhaldsstjóri á
Grand hóteli, tek-
ur í svipaðan streng. „Það berst
mikið ryk og drulla inn á hótelið
þegar vindáttin er óhagstæð. Gler-
þakið okkar er stundum eins og
kartöflugarður ef öskufallið kemur
beint í kjölfarið á rigningu,“ segir
Bjarni. Báðar byggingarnar, Grand
hótel og Turninn, eru þrifnar að ut-
anverðu tvisvar á ári. Það þurfa að
vera mjög sérstakar veðurfars-
aðstæður til að hægt sé að þrífa
þær að vetrarlagi.
Glerið eins og kartöflugarður
HÁHÝSIN ÞRIFIN EINU SINNI TIL TVISVAR Á ÁRI
Turninn í Kópavogi