Morgunblaðið - 17.04.2013, Síða 1

Morgunblaðið - 17.04.2013, Síða 1
M I Ð V I K U D A G U R 1 7. A P R Í L 2 0 1 3  Stofnað 1913  88. tölublað  101. árgangur  MAÐURINN Á BAK VIÐ GRÍMUNA STÓRKOSTLEG ORKA Í TÓNLISTINNI FÓLK KEMUR MEÐ GÓÐA ORKU INN Í FLUGVÉLINA TECTONICS 38 LISTAKOKKUR OG FLUGFREYJA 10LADDI LENGIR LÍFIÐ 41 Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is „Það er búið að vera gríðarmikið að gera á Læknavaktinni í allan vetur og sennilega bara aldrei eins mikið frá upphafi. Yfirleitt er nú kannski farið að draga úr ásókn á þessum tíma en það bara er ekki að gerast núna,“ seg- ir Gunnlaugur Sigurjónsson, fram- kvæmdastjóri lækninga á Lækna- vaktinni. Þrátt fyrir að vor sé nú víða í lofti virðast hinar ýmsu umgangs- pestir enn gera landanum lífið leitt. „Það er heilmikið af loftvegasýk- ingum að ganga, mikið af almennum öndunarfærasýkingum, og svo sér maður jú einn og einn sem er með þessi klassísku inflúensueinkenni,“ segir Gunnlaugur. Þá segir hann marga hafa haft samband símleiðis vegna magapesta og að hand-, fót- og munnsjúkdómur hafi verið að ganga á leikskólunum. Tilfellum streptó- kokkasýkinga hafi einnig fjölgað und- anfarið. Gunnlaugur segir að aukið álag á Læknavaktinni megi að hluta til rekja til álags annars staðar í heil- brigðiskerfinu, þar sem vaktin sé nokkurs konar yfirfall á kerfinu. Þá segir hann síðdegisvaktirnar hjá heilsugæslustöðinni í Árbæ, þar sem hann starfar sem heimilislæknir, einnig mjög annasamar. Inflúensan í hægri rénun „Ég hef heyrt töluvert mikið sagt frá veikindum í mínum hópi,“ segir Lúðvík Ólafsson, lækningaforstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, en engar tölur liggi fyrir um aðsókn á síðdegisvöktunum. Hann segist þó vita til þess að mik- ið álag hafi verið á heilsugæslustöðv- unum vegna smitsjúkdóma undan- farnar vikur, m.a. vegna langvinnra kvefpesta og iðrasýkinga. Haraldur Briem sóttvarnalæknir segir inflúensuna í hægri rénun en menn hafi orðið varir við breytingar síðustu vikur. „Við höfum tekið eftir því að þetta voru nú mest inflúensa A, gamli svínainflúensustofninn, H1N1, og þessi hefðbundni A-stofn, H3N2, sem voru algengastir framan af en svo hefur inflúensustofn B svolítið verið að sækja í sig veðrið á lokasprett- inum. Ekki mikið en maður sér að það er svolítil sveifla yfir á hann,“ segir Haraldur. Umgangspestir valda enn álagi  Gríðarmikið að gera á Læknavaktinni í allan vetur  Yfirfall á kerfinu Morgunblaðið/Sverrir Fyrri hluti aprílmánaðar var óvenjuþurr í borginni með tilheyrandi ryki og óþrifum á rúðum. Það var því ærið verkefni sem beið gluggaþvottamannsins sem hékk í köðlum utan á Grand Hóteli í gær. Framundan er hins vegar aukin væta í kortunum og sjálfsagt vonast landsmenn eftir auknum hlýindum. Morgunblaðið/Golli Væta framundan eftir þurrkatíð Guðni Einarsson gudni@mbl.is Útflutningsverðmæti makrílafurða frá Ís- landi undanfarin þrjú ár er samtals meira en 60 milljarðar króna. Þar er um að ræða frystan makríl til manneldis, mjöl og lýsi. Árið 2011 fékkst mjög gott verð fyrir makrílafurðir á mörkuðum, bæði fyrir frystan makr- íl til manneldis og eins mjöl og lýsi. Það ár var slegið aflamet í makríl og mikil aukning varð á frystingu afurða til manneldis. „Ég vona að markaðirnir verði þokkalegir,“ sagði Gunnþór Ingvason, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað, þeg- ar hann var spurð- ur hvernig hann mæti horfurnar á þessu ári. Hann sagði þó erfitt að spá um það fyrr en eftir sjávarútvegssýninguna í Brussel sem haldin verður í næstu viku. Þar munu kaupendur og seljendur makrílafurða hitt- ast. Búið er að gefa út reglugerð um stjórn makrílveiða íslenskra fiskiskipa 2013. Helsta breytingin frá hliðstæðri reglugerð sem gefin var út í fyrra er að kvótinn er nú 15% minni en þá. Heimildir flestra skipa- tegunda minnka í samræmi við það. Undantekningin er sú að kvóti báta sem veiða makríl á króka verður nú 3.200 tonn eða nærri fjórfalt meiri en í fyrra. M Vaxandi verðmæti »4 60 millj- arðar úr makríl  Kvóti krókabáta fjórfaldast á milli ára Makríll » Útbreiðsla makríls hefur stóraukist í ís- lenskri lögsögu. » Íslensk skip mega alls veiða 123.182 tonn af makríl á vertíð- inni í sumar. » Það er 15% minna en í fyrra  Þrír létust og 176 manns fengu meðferð á bráðadeildum eftir sprengingarnar í Boston í fyrra- kvöld, 17 þeirra eru sagðir enn í lífs- hættu. Átta ára drengur, sem beið eftir föður sínum við marklínuna, var eitt fórnarlambanna. Enginn hefur lýst tilræðinu á hendur sér. Einu sprengjurnar sem fundust voru þær tvær sem sprungu við lokamark hlaupsins. Svæðið hefur verið kembt í leit að vísbendingum og öryggisráðstafanir hafa verið hertar í borginni. »2 og 21 Þrír látnir og 17 lífs- hættulega slasaðir Boston Blóm voru lögð við öryggishlið í gær til að minnast hinna látnu. AFP  „Þetta er sanngjarnt verð fyrir eintakið,“ sagði Sverrir Kristinsson, fasteignasali og bókasafnari, en Guðbrandsbiblía sem rituð var 1584 seld- ist fyrir 75 þúsund danskar krónur eða rúmar 1,5 millj- ónir íslenskar í uppboðshúsinu Bruun og Rasm- ussen í Danmörku í gær. Sverrir áætlar að kaupandinn þurfi að greiða um 2,2 milljónir með gjöldum, ef bókin yrði flutt til lands- ins. Þetta er þriðjungur af söluverði Guðbrandsbiblíu sem seld var í fyrra en það ku hafa verið frábært eintak. Biblían seldist á ríflega 1,5 milljónir  Skíðamaður, sem var fararstjóri fjögurra bandarískra skíðamanna, lenti í snjóflóði við Sauðanes norð- an Dalvíkur á sjöunda tímanum í gærkvöldi. Skíðamennirnir höfðu verið fluttir á þyrlu upp fjallið og var fararstjórinn að kanna að- stæður þegar flóðið féll. Hann var fluttur slasaður með skíðaþyrlunni til aðhlynningar á sjúkrahúsi á Akureyri. Að sögn lög- reglu var hann með meðvitund all- an tímann og ekki í lífshættu. Flóð- ið var stórt að sögn lögreglu, um 100 metra breitt, og var lokað fyrir umferð um veginn um Ólafsfjarðar- múla í um þrjár klukkustundir meðan verið var að ryðja hann. Skíðamaður lenti í flóði við Sauðanes Flóð Sauðanes er þekkt flóðasvæði.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.