Morgunblaðið - 17.04.2013, Síða 4

Morgunblaðið - 17.04.2013, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 2013 Guðni Einarsson gudni@mbl.is Gunnþór Ingvason, framkvæmda- stjóri Síldarvinnslunnar í Neskaup- stað, tók saman úr tölum Hagstof- unnar hve miklu var landað af makríl og hvert útflutningsverð- mæti makrílafurða var á árunum 2007-2012. Þar er um að ræða fryst- an makríl til manneldis, mjöl og lýsi. Eins og sést á meðfylgjandi skýr- ingarmynd hefur umfang makríl- veiðanna og verðmæti afurðanna vaxið ár frá ári. Verðmætið er gefið upp í krónum hvers árs. Gengi krón- unnar hefur sveiflast mikið á þessu árabili og ber að hafa það í huga hvað varðar heildarútflutningsverð- mætið og útflutningsverðmæti hvers tonns. Árið 2011 sker sig úr að ýmsu leyti. Þá fékkst mjög gott verð fyrir makrílafurðir á mörkuðum, bæði fyrir frystan makríl til manneldis og eins mjöl og lýsi. Þetta ár var slegið aflamet í makríl og mikil aukning varð á frystingu afurða til mann- eldis. Í fyrra þyngdust markaðirnir og einnig dró úr heildarafla. Búið er að gefa út reglugerð um stjórn makrílveiða íslenskra fiski- skipa 2013. Helsta breytingin frá hliðstæðri reglugerð sem gefin var út í fyrra er að kvótinn er nú 15% minni en þá. Heimildir flestra skipa- tegunda minnka í samræmi við það. Undantekningin er sú að kvóti báta sem veiða makríl á króka verð- ur nú 3.200 tonn eða nærri fjórfalt meiri en upphafskvóti þeirra var í fyrra. Þá er makrílveiðitíma króka- báta skipt þannig að veiða á 1.300 tonn í júlí og 1.900 tonn frá 1. ágúst til ársloka. Það er gert með tilliti til þess að makríll verði genginn á grunnslóð og að krókabátar fái tæki- færi til að veiða makríl á sínum heimamiðum við landið, að sögn Jó- hanns Guðmundssonar, skrifstofu- stjóra í atvinnuvega- og nýsköpun- arráðuneytinu. Makríll Makrílveiðar hafa reynst vera mikil búbót fyrir þjóðarbúið á undanförnum árum. Aukin vinnsla til mann- eldis hefur aukið útflutningsverðmætið. Vonir standa til þess að markaðir verði þokkalegir á þessu ári. Vaxandi verðmæti  Reglugerð um makrílveiðar 2013 gefin út  Kvótinn 15% minni en í fyrra  Makrílkvóti krókabáta aukinn á þessu ári Verðmæti makrílafurða 30 25 20 15 10 5 0 Ve rð m æ ti FO B (m a. kr .) 180.000 160.000 140.000 120.000 100.000 80.000 60.000 40.000 20.000 0 Landað m agn (tonn)/ Verðm æ ti(kr/tonn) 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2,4 5,2 7,2 11,8 26,6 22,2 36.257 112.352 120.850116.164 153.358 144.899 66.683 kr. 46.538 kr. 61.667 kr. 97.867 kr. 173.527 kr. 153.347 kr. Makrílveiðar 2013 » Heildarkvótinn er 123.182 tonn eða 15% minni en 2012. » Skip án aflareynslu sem veiða fyrir vinnslu í landi fá nú 6.703 tonna kvóta. » Vinnsluskip fá 25.976 tonna kvóta og skip sem veiddu mak- ríl í flottroll og nót á árunum 2007-2009 fá 87.303 tonn. Rúnar Pálmason runarp@mbl.is Sendinefnd á vegum ÖSE, Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu, er nú hér á landi vegna kosninga til Al- þingis sem fara fram eftir tíu daga. Tilgangurinn er m.a. að fylgja eftir um mánaðargamalli skýrslu ÖSE en þar er að finna nokkrar athugasemd- ir við framkvæmd og reglur sem gilda um þingkosningarnar. Sendinefndin kom hingað á mánu- dag og átti m.a. fund með embættis- mönnum í utanríkiráðuneytinu í gær. Fundahöld halda áfram í dag. Síðast var sendinefnd frá ÖSE hér á landi í lok febrúar og í skýrslu sem hún birti í lok mars er m.a. bent á að þótt stjórnmálaflokkum sé heimilt að tilnefna fulltrúa til að fylgjast með talningu atkvæða sé heimild óháðra félaga eða alþjóðlegra sam- taka til eftirlits ekki tryggð með lög- um. ÖSE hafi lagt til árið 2009 að þessu yrði breytt. Þá kemur fram að nokkrir hafi bent á að misræmi væri í reglum um meðmælendur framboða á milli kjör- dæma og að hvergi væri að finna samræmdar leiðbeiningar hvernig staðið skyldi að söfnun undirskrifta. Í skýrslu ÖSE frá í mars eru at- hugasemdir við misvægi atkvæða ítrekaðar. Misvægið er sagt töluvert, jafnvel þótt Norðvesturkjördæmi missi nú einn þingmann sem færist yfir til Suðvesturkjördæmis. ÖSE gerði einnig athugasemdir við að í lögum væri ekki með skýrum hætti mælt fyrir um verkaskiptingu við framkvæmd kosninganna og reglur um val í kjörstjórnir væru óskýrar. ÖSE fylgist með kosningunum  Önnur sendinefndin á þessu ári  Ítrekaði athugasemdir við misvægi Morgunblaðið/Golli Fundur Tatyana Bogussevich, Jorge Fuentes, formaður nefndarinnar, og Rasto Kuzel við upphaf fundar í utanríkisráðuneytinu í gær. Sendinefnd ÖSE mun meta hvort kosningarnar standist viðmið ÖSE og hvort stjórnvöld uppfylli alþjóð- legar skuldbindingar sínar. Sér- staklega verður lagaleg umgjörð kosninganna könnuð, fjármögnun stjórnmálaflokka og framboða og umfjöllun fjölmiðla um kosninga- baráttuna. Í skýrslunni frá í mars var m.a. bent á að fáar reglur giltu um um- fjöllun fjölmiðla og sá tími sem ætlaður væri til kosningabaráttu væri ekki afmarkaður. Þá hefðu sumir viðmælendur ÖSE lýst yfir áhyggjum af því að ný framboð fengju ekki næga kynningu. Nefndin mun ekki fylgjast kerf- isbundið með talningu atkvæða en mun fara á nokkra kjörstaði til að fylgjast með framvindu kosning- anna. Nefndin mun vera að störfum hér til 30. apríl og von er á skýrslu hennar um tveimur mánuðum síð- ar. Verða hér fram yfir kjördag FYLGJAST MEÐ FJÖLMIÐLAUMFJÖLLUN Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Bensínverð hefur lækkað verulega að undanförnu en ástæðuna má rekja til lækkunar á heimsmark- aðsverði og sterkara gengi krón- unnar, að sögn Magnús Ásgeirs- sonar, innkaupastjóra eldsneytis hjá N1. Fyrirtækið lækkaði verð á elds- neyti um þrjár krónur í gær en frá lokum febrúar hefur það lækkað um tæpar 22 krónur. „Þetta er afar sérstakt núna. Ef það er eitthvað sem maður getur sagt að sé eðlilegt á markaði þá vær- um við frekar að sigla inn í hæsta verð ársins en það er ekki að gerast. Það virðast vera efnahagslegar aðstæður úti í hinum stóra heimi sem valda lækkun á heimsmarkaðs- verðinu,“ segir Magnús og nefnir hagtölur í Bandaríkjunum sem voru verri en menn höfðu vænst. Þá hafi gengi krónunnar gagnvart dollara styrkst um átta krónur frá því í lok febrúar. Honum finnst þó ekki líklegt að verðið haldi áfram að lækka. „Það er náttúrulega mikið gleði- efni þegar verðið lækkar svona en svo er að sjá hver þróun gengisins verður, það er alltaf mikil óvissa í kringum hana. Mér finnst ekki lík- legt að þetta haldi áfram þó að það geti verið að krónan verði svona áfram. Ég hef ekki trú á því að verð- ið á heimsmarkaði haldi áfram að lækka svona mikið þó að það gæti lækkað eitthvað í viðbót og að það sé mjög æskilegt út af fyrir sig svo að það lifni yfir atvinnumálum í heiminum,“ segir Magnús. Ekki búist við því að eldsneyt- isverð haldi áfram að lækka  Styrking krónu og lækkun á heimsmarkaði lækkar verðið Dæla Bensínverð hefur lækkað. VIÐ VILJUM VITA MÖGULEG INNGANGA ÍSLANDS Í EVRÓPUSAMBANDIÐ SNÝST UM HAGSMUNI ALMENNINGS – UM LÍFSKJÖR – UM FRAMTÍÐ. KLÁRUM VIÐRÆÐURNAR OG SJÁUM SAMNINGINN. JAISLAND.IS

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.