Morgunblaðið - 17.04.2013, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 2013
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
„Við erum mjög spenntir fyrir þessu
og ég held að rafbílar séu að verða
raunhæfur kostur. Við erum búnir að
gera okkur vonir um að selja ein-
hverja tugi bíla á fyrstu 4-6 mán-
uðunum,“ segir Loftur Ágústsson,
markaðsstjóri bílaumboðsins BL, um
væntingar fyrirtækisins til sölu á raf-
bílum á næstunni.
BL undirbýr nú pöntun á fyrstu
rafbílunum af gerðinni Nissan Leaf og
eiga þeir að koma til landsins í júlí.
Elko, í samstarfi við rafbílafyrirtækið
Even hf., auglýsti í gær bíla af sömu
tegund til sölu.
Loftur segir erfitt að átta sig á
áhuganum á rafbílum hér á landi og
menn fari sér hægt til að byrja með.
„Við erum ekkert of stórtækir í
áætlunum með þennan bíl. Frekar
jarðbundnir í takt við tíðarandann.
Hins vegar þegar maður sér tækifær-
in í því að þessi bíll er eins og eðlilegur
fólksbíll í umgengni og verðið á við
venjulega sjálfskiptan bíl þá er það
ekki orðið erfitt að telja sér trú um að
það sé raunverulegur kostur að eiga
svona bíl og nota til allra daglegra
nota hér á Reykjavíkursvæðinu,“ seg-
ir hann.
Það sem stendur helst í vegi fyrir
rafbílavæðingu hér á landi sem stend-
ur er efnahagsástandið að sögn Lofts.
Um leið og það taki betur við sér og
fólk fari að huga að því að endurnýja
bíla á nýjan leik hafi hann trú á því að
rafbílar verði valkostur.
„Mig grunar að þetta sé nær en
mann grunar. Það er öruggt mál að
það er markaður fyrir þessa bíla.“
Aðstæður vænlegar á Íslandi
Gísli Gíslason er framkvæmdastjóri
Even hf. Fyrirtækið á von á því að fá á
næstunni indverskan rafbíl, e2o, og
segir Gísli að hann geti orðið ódýrasti
bíllinn á markaðnum. Þá sé von á bíl
með um 500 kílómetra drægni í sum-
ar.
Hann telur mikinn áhuga á rafbíl-
um á Íslandi en framboðið hafi hins
vegar verið lítið. Stjórnvöld hafi gert
stórkostlega hluti í að liðka til fyrir
sölu á þeim en umboðin hafi verið sein
að taka við sér. Oft hafi menn einblínt
á ökudrægni rafbíla en stór hluti
þeirra sem búi á höfuðborgarsvæðinu
aki hins vegar aldrei yfir mörkum raf-
bílanna dags daglega. Aðstæður hér
séu fullkomnar.
„Ísland fellur undir öll skilyrði sér-
fræðinga fyrir rafbílavæðingu. Við er-
um með græna ódýra orku og dýrt
bensín, eyjasamfélag og stærsti hluti
fólksins er á Reykjavíkursvæðinu. Svo
erum við í kjörloftslagi fyrir rafhlöður,
því besta sem hægt er að hugsa sér.
Við ættum að vera í fararbroddi í raf-
bílavæðingunni,“ segir Gísli.
AFP
Rafhlaða David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, virðir fyrir sér raf-
hlöðu í Nissan Leaf-rafbíl. Byrjað er að framleiða bílana í Evrópu.
Verðum í fararbroddi
rafbílavæðingarinnar
Umboð vonast til að selja tugi rafbíla á næstu mánuðum
Raf- og tvinnbílar á Íslandi
Heimild: Umferðarstofa
Rafmagnsbílar í umferð
Bensín/ Bensín/ Dísel/
Rafmagn Raf.tengill* Rafmagn Rafmagn Alls
Fólksbifreið (M1) 804 19 1 31 855
Hópbifreið II (M3) 1 1
Sendibifreið (N1) 1 1
Samtals 804 19 1 33 857
Nýskráningar
Fólksbifreið (M1) Bensín /Rafmagn Fólksbifreið (M1) Bensín /Raf.tengill*
Fólksbifreið (M1) Dísel /Rafmagn Fólksbifreið (M1) Rafmagn
Hópbifreið II (M3) Rafmagn Vörubifreið I (N2) Rafmagn
180
160
140
120
100
80
60
40
20
0
2008
(samt. 123)
2009
(samt. 19)
2010
(samt. 31)
2011
(samt. 68)
2012
(samt. 192)
2013
(samt. 55)
123
19
29
68
163
38
2 9 10 71
17
1 1
*Hægt að hlaða rafgeyma með því að stinga í samband við húsarafmagn.
Metrostav as og
Suðurverk hf.
áttu lægsta boð í
gerð Norðfjarð-
arganga. Boðið
hljóðaði upp á
tæplega 9,3 millj-
arða króna.
Næstlægsta boð
kom frá Ístaki
hf., upp á 9,9
milljarða og þriðja boð frá ÍAV hf.
og Marti Contractors ltd. upp á rétt
tæpa 10,5 milljarða króna.
Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á
9 milljarða og 547 milljónir króna.
Lægsta boð er því 97,3 prósent af
áætluðum verktakakostnaði.
Buðu 9,3 milljarða
króna í gerð Norð-
fjarðarganga
Frá Neskaupstað
Stóriðjan mengaði mest árið 2008;
eða nýtti um 11% af losunarheimild-
um Kyoto-bókunarinnar á gróður-
húsalofttegundum, fyrir fimm ára
tímabil, 2008-2012. Þetta kemur fram
í skýrslu Umhverfisstofnunar um los-
un gróðurhúsalofttegunda á Íslandi
frá árinu 1990 til 2011.
„Ástæðan fyrir þessari miklu losun
árið 2008 er rakin m.a. til þess að
Fjarðaál var nýtekið til starfa og
Norðurál nýbúið að stækka, einnig
var töluverð eldsneytisnotkun t.d. í
byggingarframkvæmdum og vega-
samgöngum. Við bjuggumst við
þessu,“ segir Birna Sigrún Hallsdótt-
ir, verkfræðingur hjá Umhverfis-
stofnun. Síðan þá hefur losunin dreg-
ist saman um 13%. Það má rekja m.a.
til betri framleiðslustýringar í álver-
um og samdrætti í efnahagslífinu frá
2008. Birna bendir á að hægt sé að
hluta til að lesa í stöðuna í efnahags-
kerfinu með því að skoða losun. Hins
vegar hefur verið náð að aftengja
samspilið milli hagvaxtar og losunar.
„Við erum ánægð með útkomu
skýrslunnar. Allt stefnir í að Ísland
geti uppfyllt skuldbindingar sínar um
losunarheimildir Kyoto-bókunarinn-
ar fyrir tímabilið 2008 til 2012,“ segir
Birna.
Hins vegar var losun á hvern íbúa á
Íslandi, árið 2011, meiri en meðatal
ríkjanna á EES-svæðinu. Ástæðuna
fyrir því segir Birna meðal annars þá
að Íslands sé stórt og vegalengdirnar
tiltölulega langar, sem kalla á vega-
framkvæmdir og akstur. Einnig komi
miklir toppar þegar gangsett sé til
dæmis heil ný verksmiðja.
thorunn@mbl.is
Losun hefur minnkað mikið
Íslendingar munu halda sig innan marka um losun gróðurhúsalofttegunda
Stóriðjan nýtti um 11% af losunarheimildum Kyoto-bókunarinnar árið 2008
Gróðurhúsalofttegundir
» Losun þeirra hefur aukist
um 26% frá 1990.
» Dregist saman um 13% frá
2008.
» Minnkað um 4% frá 2010 og
má einkum rekja þá minnkun
til minni losunar frá álfram-
leiðslu og frá fiskiskipum.
Loftur Ágústsson, markaðsstjóri
BL, segir að 2.300 Nissan Leaf-
rafbílar hafi verið seldir í Noregi á
síðasta ári. Það nemi allt að tveim-
ur prósentum af heildarbílasölu í
landinu. Ennfremur hafi bíllinn
verið sá mest seldi í sumum bæj-
arfélögum eins og Þrándheimi.
Norsk stjórnvöld hafi greitt götu
rafbíla með því að fella niður gjöld
eins og hérlendis. Þá sé þar fjöldi
hleðslupósta og rafbílar fái að aka
á akreinum fyrir almennings-
samgöngur.
Fá að aka á sérakreinum
NISSAN LEAF MIKIÐ SELDUR Í NOREGI
Hvöt, félag sjálfstæðiskvenna, og Heimdallur bjóða til
fundar um stöðu húsnæðismála og tillögur Sjálfstæðis-
flokksins um nýjar leiðir til að auðvelda fyrstu íbúðakaup.
Hvöt & Heimdallur 2013.XD.IS
Staður: Naustið Vesturgötu,miðvikdag 17. apríl kl. 20
Framsögumenn: Teitur Björn Einarsson, frambjóðandi til alþingis,
Ásgeir Jónsson, efnahagsráðgjafi hjá Gam
Management og lektor við Háskóla Íslands.
Fundarstjóri: Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir,
formaður Heimdallar.
Fyrsta íbúðin
„Mér finnst skemmtilegt að tala í
hvert einasta skipti. Mér finnst bæði
mjög gaman að hitta fólk og gaman
að miðla þessari reynslu. Að mörgu
leyti er þetta draumastarf því ég er
að uppfylla drauminn minn. Ég er að
framkvæma það sem ég hef lengi
stefnt á og þetta fer fram úr mínum
björtustu vonum,“ segir Vilborg
Arna Gissurardóttir, pólfari og fyr-
irlesari, en hún hefur skipað sér sess
meðal eftirsóttustu fyrirlesara
landsins um þessar mundir.
Hún er þétt bókuð og heimsækir
mörg fyrirtæki, skóla og félaga-
samtök. Viðbrögðin og ásóknin hef-
ur komið henni á óvart. Aðspurð
segist hún ekki gera upp á milli hópa
en yngra fólkið kemur oft með líf-
legar og áhugaverðar spurningar.
„Þetta snýst ekki eingöngu um að
ég sé að segja frá því hvað ég er
gera. Heldur kemur oft fólk til mín
og segir mér hvað það langi til að
gera. Það hefur mikil áhrif á mig. Ég
hvet einmitt fólk til segja frá draum-
um sínum og markmiðum. Það er
erfiðara að hætta við ef maður er bú-
inn að segja frá því,“ segir Vilborg.
„Ég er uppbókuð út apríl og í maí
legg ég af stað í næsta leiðangur.
Stefnan er sett á hæsta fjall Norður-
Ameríku, sem heitir Denali. Eftir
það mun ég koma heim og halda
nokkra fyrirlestra svo stefni ég bara
á að vera á fjöllum,“ segir Vilborg.
Hún leggur þó ekki af stað einsömul
á Denali, líkt og síðast heldur verður
Sigurður Bjarni Sveinsson ferða-
félagi hennar. Fjallið er gjarnan
kallað kaldasta fjall heims. Hæsti
tindur þess skagar 6.194 metra yfir
sjávarmál.
Fram úr björtustu
vonum pólfarans
Fólk á að segja frá draumum sínum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fyrirlestur Vilborgu þykir ávallt
skemmtilegt að halda fyrirlestur.