Morgunblaðið - 17.04.2013, Side 15

Morgunblaðið - 17.04.2013, Side 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 2013 Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Leggja þarf aukna áherslu á heimaþjónustu fyrir þá sem þurfa mest á henni að halda og hverfa frá þeirri þróun að félagsleg heimaþjónusta felist fyrst og fremst í þrifum. Þetta segir Berg- lind Magnúsdóttir, forstöðumaður Heimaþjónustu Reykjavíkur, en hún segir þörfina fyrir heimaþjón- ustu og heimahjúkrun munu fara stigvaxandi á næstu árum, samfara fjölgun aldraðra. Morgunblaðið sagði á dögunum frá doktorsverkefni Sigurveigar H. Sigurðardóttur, dósents í fé- lagsráðgjöf við Háskóla Íslands, en þar kom m.a. fram að tæp 60% aldraðra sem búa í heimahúsi þarfnast aðstoðar við eina eða fleiri athafnir daglegs lífs og um þriðjungur þeirra fær aðeins óformlega aðstoð, þ.e. frá ættingj- um eða vinum, en 4% fá eingöngu aðstoð frá formlegum aðilum, þ.e. í formi heimaþjónustu eða heima- hjúkrunar. Berglind segir Reykjavíkurborg hafa leitast við að fara sömu leið og farin hafi verið á hinum Norð- urlöndunum, þ.e. að veita meiri þjónustu og fleiri tímum til þeirra sem eru elstir og veikastir. Hér- lendis hafi of mikil áhersla verið lögð á að veita þrifþjónustu, jafn- vel þeim sem enn eru fullfrískir, sem hafi gert það að verkum að margir hafi verið að fá litla þjónustu. Fjölskyldan hafi líka hlutverk „Ég held að við megum passa okkur á því að taka ekki léttari verkefnin frá fjölskyldunni en við þurfum hins vegar líka að passa okkur á því að þegar vandinn er orðinn mikill þá verðum við [Heimaþjónustan] að geta tekið við. Ekki öllu en mesta þunganum,“ segir Berglind. Hún segir mikilvægt að bæði aldraðir og aðstandendur þeirra finni til öryggis gagnvart heima- þjónustunni og því að hinn aldraði komist inn á hjúkrunarheimili þegar heimaþjónustan dugi ekki lengur til. Berglind segir almennt fáar kvartanir berast varðandi heima- þjónustuna og að unnið sé að því að bæta gæði þjónustunnar í takt við það meginmarkmið að fólk búi eins lengi í heimahúsi og mögulegt er. „En við þurfum að leggja til meira fjármagn í heimahjúkrun og félagslega heimaþjónustu til að geta gefið enn frekar í og til að geta brugðist við fjölgun aldraðra,“ segir hún. „Við erum á réttri leið en við megum hvergi gefa eftir.“ Berglind segir að mörgu að hyggja varðandi þjónustuna en til að mynda sé erfitt að ímynda sér að komandi kynslóðir muni sætta sig við að fá böðun aðeins einu sinni í viku, líkt og boðið er upp á í dag. Meiri aðstoð til handa eldra og veikara fólki Morgunblaðið/Heiddi Þjónusta 80% beiðna um heimahjúkrun koma frá Landspítalanum.  Of mikil áhersla verið lögð á þrif- þjónustuna Ögmundur Jónasson innanríkisráð- herra kynnti í ríkisstjórn í gær hug- mynd um að efnt verði til hug- myndasamkeppni um framtíð Hegningarhússins við Skólavörðu- stíg í Reykjavík. Framkvæmdir við fangelsisbyggingu á Hólmsheiði eru að hefjast og þegar nýtt fang- elsi tekur til starfa er m.a. gert ráð fyrir að fangelsisstarfsemin í Hegn- ingarhúsinu verði aflögð. Ögmundur segir marga aðila hafa komið fram með hugmyndir um hvernig nýta beri þetta gamla og sögufræga hús, eins og Lands- samband lögreglumanna, Fanga- varðafélagið, arkitektar, húsfrið- unarfólk og fleiri. Til að byrja með verði efnt til opinnar hugmynda- samkeppni um notkun hússins. Að fengnum tillögum yrðu þær faldar starfshópi ýmissa aðila til frekari úrvinnslu. Spurður hvað honum finnist per- sónulega að eigi að fara fram í Hegningarhúsinu segir Ögmundur: „Ef ég á að leyfa mér að hafa skoðun á því, þá nefni ég það sem ég hef oft teflt fram, að þarna verði safn en hugsanlega einhver blanda af veitingahúsarekstri og safni. Það fyndist mér ekki slæmur kostur, en menn kunna að finna einhverjar snjallari leiðir. Margir horfa til þess að húsið verði einhvers konar gátt inn í fortíðina, þannig að við glötum ekki tengslum við hana.“ Einnig var það rætt í ríkisstjórn í gær hvort ríkið hefði áfram eign- arhald á húsinu eða hvort eðlilegt væri að Reykjavíkurborg kæmi þar að málum. bjb@mbl.is Morgunblaðið/Þorkell Hegningarhúsið Innanríkisráðherra vill fá hugmyndir um framtíð hússins. Safn og veitingar í Hegningarhúsinu? KYNNTU ÞÉR BMW X LÍNUNA NÚ ER RÉTTI TÍMINN WWW.BMW.IS Þú ert í leit að ævintýrum, við erum í leit að tæknilegri fullkomnun. Allar aðstæður eru kjöraðstæður fyrir BMW XDrive fjórhjóladrifskerfið. Þótt veðrið sé óútreiknanlegt er akstursánægjan í X línunni eitthvað sem þú getur treyst á.         E N N E M M / S ÍA / N M 5 7 4 8 9 BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is Bílahúsið Reykjanesbæ www.bilahusid.is 421 8808 Bílasalan Bílás Akranesi www.bilas.is 431 2622 Bílasala Akureyrar Akureyri www.bilak.is 461 2533 Bílaverkstæði Austurlands Egilsstöðum www.bva.is 470 5070 X LÍNAN Í TAKT VIÐ TÍMANN

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.