Morgunblaðið - 17.04.2013, Síða 20
20 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 2013
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Marokkómenn eru nú bálreiðir
Bandaríkjamönnum sem sækja það
hart að fulltrúar Sameinuðu þjóð-
anna fái að rannsaka mannréttinda-
brot í Vestur-Sahara sem Mar-
okkómenn hernámu á áttunda
áratugnum. Mannréttindasamtök og
sendimenn SÞ hafa sakað Mar-
okkómenn um að pynta V-Sahara-
menn sem berjast gegn hernáminu.
Frakkar styðja Marokkó en
Bretar styðja kröfur sjálfstæðis-
hreyfingar V-Saharamanna, Pol-
isario, um að SÞ taki upp eftirlit með
mannréttindabrotum á svæðinu.
Vestur-Sahara er á norðvestur-
strönd Afríku, sunnan við Marokkó.
Helmingur íbúanna, sem eru um
hálf milljón, er í útlegð. Auðug fiski-
mið eru við landið og talið að olía sé á
hafsbotni. Einnig er geysimikið af
fosfati í landinu og sennilega ýmsir
málmar.
Rannsaki réttindabrot
Marokkómenn sakaðir um pyntingar í V-Sahara
Hernámu landið með ólöglegum hætti 1973
Lítil þjóð undir oki
» Engin ríki viðurkenna yfir-
ráð Marokkó á svæðinu og al-
þjóðadómstóllinn í Haag úr-
skurðaði þau ólögleg árið 1975.
» Þegar Marokkó og Mári-
tanía lögðu landið undir sig
1973 hófu íbúarnir uppreisn.
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Jarðskjálfti sem mældist 7,5 stig reið
yfir suðausturhluta Írans í gær um
klukkan 15.14 að þarlendum tíma og
fannst víða um Miðausturlönd og
Indland. Vitað var um fimm sem létu
lífið í Pakistan og fréttastofur vitn-
uðu í íranska ríkissjónvarpið sem
sagði að 40 hefðu látið lífið, hugs-
anlega mörg hundruð. En aðrir emb-
ættismenn sögðu að ekki væri vitað
til þess að nokkur hefði dáið enda
væri það langt frá þéttbýli.
Fjarskiptasamband rofnaði á
svæðinu sem er mjög fjöllótt og til-
tölulega fámennt. En þar eru mörg
hundruð fátæk þorp og húsin eru oft
úr veikburða leirsteinum. Rauði
hálfmáninn í Íran sagði að þegar
hefðu 20 leitarflokkar og þyrlur ver-
ið send á vettvang. Upptök skjálft-
ans voru nálægt borginni Khash við
landamærin að Pakistan, í rúmlega
80 km fjarlægð norður af Saravan í
Sistan Balúkistan-hérað, á um 18 km
dýpi. AFP-fréttastofan sagði skjálft-
ann hafa verið 7,5 stig en BBC 7,8
stig. Um 180 þúsund manns búa í
Khash en 250 þúsund í Saravan,
skemmdir munu hafa verið litlar í
síðarnefndu borginni.
Skjálftinn fannst vel í milljóna-
borgunum Karachi og Quetta í Pak-
istan. Skrifstofuhús voru yfirgefin í
Abu Dhabi og Dubai við Persaflóa og
þar söfnuðust þúsundir manna sam-
an fyrir utan skýjakljúfa. „Það eru
allir á götunum, það ríkir fát,“ sagði
heimildarmaður í Dubai. Háar bygg-
ingar svignuðu í Nýju Delí, höfuð-
borg Indlands.
Harður jarð-
skjálfti í Íran
Óljóst hve margir létu lífið
Jarðskjálfti í Íran
Í R A N
Upptök
skjálftans
Pa
ki
st
an
Af
ga
ni
st
an
TúrkmenistanKaspía-
haf
Persa-
flói
Oman-
flói
Aserbaídsjan
Írak
Sádi-
Arabía
Katar
SAF Óman
Tehran
Andstæðingar sósíalistans Nicolas Maduros, starfandi
forseta Venesúela, velta ruslatunnum í höfuðborginni
Caracas á mánudagskvöld. Lögreglan beitti táragasi
gegn hundruðum stúdenta, fólk barði potta og pönnur
til að láta í ljós óánægju sína með stjórnvöld. Ráðamenn
sögðu í gær að sjö stuðningsmenn Maduros hefðu fallið
og tugir særst í átökunum. Alls hefðu 135 verið hand-
teknir. Kjörstjórn hefur lýst Maduro rétt kjörinn for-
seta landsins en hann hlaut samkvæmt opinberum töl-
um nauman meirihluta atkvæða, 50,7%, sl. sunnudag.
Andstæðingur hans, Henrique Capriles, krafðist end-
urtalningar og sagði að svik hefðu verið í tafli. Fyrstu
viðbrögð Maduros, sem er arftaki Hugo Chavez er lést
úr krabbameini, voru að taka vel í í tillöguna um end-
urtalningu. En honum snerist fljótt hugur og segir nú
að úrslitin muni standa.
Sigri Maduros í forsetakosningum mótmælt í blóðugum óeirðum
AFP
Nokkrir sagðir fallnir í Venesúela
Sunnuhlíð 12, Akureyri, sími 462 1415
www.tonabudin.is
Síðumúla 20, Reykjavík, sími 591 5340
www.hljodfaerahusid.is
Z-Brautir og gluggatjöld
Faxafeni 14 - 108 Reykjavík - S. 525 8200 - z.is
Úrval - gæði - þjónusta
Allt fyrir
gluggana
á einum
stað
Mælum,
sérsmíðum
og setjum upp