Morgunblaðið - 17.04.2013, Síða 25

Morgunblaðið - 17.04.2013, Síða 25
UMRÆÐAN 25 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 2013 I. Maður var nefndur Pétur Ólafsson (1887- 1960) togarasjómaður, bróðir Guðmundar Ólafssonar er gaf KR allar eigur sínar og bjó að Garðastræti 11. Þeir bræður voru frá Bakka í Skil- mannahreppi í Borg- arfirði. Pétur var kvæntur Sigríði Helgadóttur (1876- 1940), sem hafði verið vinnukona hjá afa mínum, Haraldi Níelssyni, pró- fessor (1868-1928). Pétur var lengst af með Þórarni Olgeirssyni hinum kunna togaraskipstjóra (1883-1969). Nú deyr Sigríður árið 1940 og bjó Pétur eftir það með ráðskonu, Ástu að nafni, ættaðri úr Hornafirði aust- ur. Nú deyr Pétur árið 1960 og arf- leiðir Ástu ráðskonu að öllum eigum sínum, Hverfisgötu 65 með. II. Hverfisgata 65 var talin eitt minnsta hús í Reykjavík, 61,2 fer- metrar. En hús eldast og þak ryðg- ar, því tönn tímans vinnur sitt verk, þar sem regn og stormur setja sitt mark á húsin. Því var það, að Ásta tekur eftir því, að þakið er farið að leka og hún á engan að í bænum, sem gæti gert við þaklekann. Þá er það einn morguninn að hún vaknar og man draum sinn greinilega: Pét- ur hennar gamli húsbóndi segir við hana í draumnum: „Talaðu við Leif.“ Hún hringir í Völund, þar sem grein- arhöfundur starfaði og ber upp bón sína um þakviðgerð. Leifur hefur samband við Hafstein Sigurðs- son, sem sá um viðhald fasteigna hans og dag- inn eftir koma þeir Haf- steinn og félagi hans og nýtt þakjárn komið á að kveldi. III. Menn hafa lengi deilt um, hvað taki við að loknu þessu lífsskeiði. Ég hefi ávallt talið að lífsskeið okkar hér á jörðinni sé að- eins áfangi á langri þroskabraut, þar sem einn áfangi taki við af öðrum, þar til fullkomnum þroska sé náð. Ég er fæddur árið 1927 og er því á 86. aldursári. Síðustu árin hef ég oft- lega dvalið á sjúkrahúsum, þar til ég lenti hér á Grund. Læknar segja mér, að ég hafi dáið í 15 sekúndur á einu sjúkrahúsinu, en ég man ekki eftir neinu úr þeirri ferð yfir landa- mærin. Flestir tala um tvo heima, jarðlíf og framhaldslíf, en ef við náum nægjanlegum þroska, þá ættu þessir heimar að geta unnið saman eins og við þaklekann að Hverf- isgötu 65. Þakviðgerðin á Hverfisgötu 65 Eftir Leif Sveinsson Leifur Sveinsson » Læknar segja mér, að ég hafi dáið í 15 sekúndur á einu sjúkra- húsinu, en ég man ekki eftir neinu úr þeirri ferð yfir landamærin. Höfundur er lögfræðingur. Á síðasta ári áttu 48,2% heimila erfitt með að ná endum sam- an. Vöruverð hækkaði jafnt og þétt allt árið og minna og minna fékkst fyrir þús- undkallinn í dag- vöruverslunum. Flest- ar hækkanirnar má annars vegar rekja til sífellt hækkandi op- inberra gjalda, sem fráfarandi ríkisstjórn hefur purk- unarlaust lagt á nauðþurftir heim- ilanna, og hins vegar lélegs gengis íslensku krónunnar gagnvart er- lendum gjaldmiðlum sem notaðir eru til vöruinnkaupa frá útlöndum. Allur þessi kostnaður hefur síðan áhrif á vísitöluna sem aftur hefur áhrif á lánin okkar. Stjórnvöld virðast ekki hafa nokk- urn áhuga á ört vaxandi dýrtíð sem hefur komið afar illa við buddu al- mennings. Starfsfólki er aftur á móti stöðugt fjölgað í víðfeðmum eftirlitsiðnaði stjórnvalda, sem hefur þær starfs- skyldur að kröfu stjórnvalda og valdbeitingar ESB að passa upp á að boðum og bönnum frá Brussel sé fylgt eftir. Þess er vel gætt að sem flestar neysluvörur frá löndum utan ESB endi í hæsta tollflokki, beri nógu há vörugjöld og einn hæsta virðisaukaskatt í heimi eingöngu til þess að vöruverð verði nógu hátt og skili sem flestum krónum í ríkiskass- ann. Ég hef margsinnis upplifað að ef tollverðir eru í vafa um hvernig eigi að flokka tiltekna vöru þá er hún yfirleitt sett í hæsta mögulega toll- flokk. Til hvers? Til þess eins að dagvaran skili sem mestum tekjum til ríkisins á kostnað neytandans. Það er sorgleg staðreynd að 40%- 45% af smásöluverði stórs hluta neysluvara eru opinber gjöld, þ.e.a.s. ef varan er flutt inn frá Banda- ríkjunum. Eftirlitsiðn- aðurinn sér til þess að amerískar neyt- endavörur megi ekki vera ódýrari en ESB- vörur. Þetta gildir um mikilvægar neysluvör- ur almennings eins og t.d. bleiur, dömubindi, tannbursta, munnskol, þvottaefni og hand- sápur, vörur sem bera 15% til 20% toll og 25,5% virðisaukaskatt. Nú hefur sykurskatturinn hans Steingríms J. bæst við og leiðir til mikillar hækkunar á matvöru. Fyr- irslátturinn er tannskemmdir ungs fólks. Væri ekki meira vit í því að lækka opinberar álögur á tann- bursta og tannkrem? Hvers vegna eru ekki felldir niður skattar af heilsuvörum eins og tannburstum og tannkremi og af hverju má ekki leggja 7% virðisaukaskatt á þær í stað 25,5%? Við hjá Kosti erum stöðugt að glíma við hið opinbera til þess að lækka ofurtolla, vörugjöld og draga úr ofmönnuðum og dýrum opinber- um eftirlitsiðnaði til að lækka vöru- verð til fólksins. En án sýnilegs árangurs. Þetta minnir mig jafnan á spænsku söguhetjuna Don Quixote sem barðist við vindmyllu án þess að geta stöðvað spaða hennar. Það var sama hve oft hann réðst á mylluna – áfram snerust blöð hennar. Svona er glíman við eftirlitsiðnaðinn og áfram birtast auglýsingar um mannaráðn- ingar til MAST. Þar virðist enda- laust vanta fólk í vinnu til að passa að við förum eftir reglum ESB, sem við Íslendingar erum ekki einu sinni hluti af og ég vona að aldrei gerist! Hvorki neytendur né matvöru- verslun landsmanna geta beðið miklu lengur eftir því að nauðsynja- vörur lækki verulega í verði til að létta undir með heimilunum. Það eru sjálfsögð mannréttindi. Nýverið sýndu bræðurnir í Mela- búðinni hvert smásöluverð gæti ver- ið ef opinbera gjaldtökufarganinu yrði létt af neytendavörum. Þeir buðu einn laugardag 30-40% lægra smásöluverð í búðinni í nokkrar klukkustundir. Viðskiptavinir létu þetta tilboð ekki fram hjá sér fara og upplifðu vöruverð eins og það er í Bandaríkjunum og Evrópu. Tóku frambjóðendur til Alþingis eftir þessu? Það kemur í ljós þegar ný ríkisstjórn tekur hér við innan skamms. Ný stjórn verður að taka til hendi og létta álögur á íslenska neytendur. Ástandið getur ekki orð- ið verra en hjá „norrænu velferð- arstjórninni“ sem nú er að hrökklast frá og skilur landið eftir sem rjúk- andi rúst. Einelti eftirlitsiðnaðarins gagn- vart Kosti ríður ekki við einteyming. Þegar ég var að ljúka við þessa grein kom eftirfarandi bréf frá MAST: „Komið þið sæl. Við landamæraeft- irlit á sendingu; EREY21023USORFW045, gámanr. EIMU 450545 2, innflytjandi Kostur Lágvöruverslun ehf., kom í ljós var- an: „Bertolli-Alfredo Sauce“. Af merkingum vörunnar að dæma þá inniheldur varan mikið magn mjólk- urafurða (ost o.fl.) Út frá merk- ingum vörunnar þá er ekki hægt að ákvarða hlutfall mjólkurafurðanna í vörunni, þ.a. MAST fer fram á að innflytjandi leggi fram gögn frá framleiðanda vörunnar sem sýni hlutfall mjólkurafurða í vörunni. Varan var tekin í vörslu MAST þar til þessar upplýsingar liggja fyrir. Alls 255 kg net. / 600 krukkur. Með kveðju, Haukur Bragason, sérfræð- ingur Inn- og útflutningsskrifstofa MAST.“ Hvað næst? Hvers á almenningur að gjalda? Eftir Jón Gerald Sullenberger »Eftirlitsiðnaðurinn sér til þess að amer- ískar neytendavörur megi ekki vera ódýrari en ESB-vörur. Jón Gerald Sullenberger Höfundur er eigandi Kosts. F A G M E N N S K A A L L A L E I Ð Skeifan 3 E-F • 108 Reykjavík • Sími 581 2333 • rafver.is Sláttutraktorar Ýmsar útfærslur mosatætarar, jarðvegstætarar, laufblásarar, kantskerar. Garðsláttuvélar Rafmagns- eða bensíndrifnar Úðabrúsar 1-20 ltr. Með og án þrýstijafnara Einnig Sláttuorf Rafmagns- eða bensíndrifnar Keðjusagir Rafmagns- eða bensíndrifnar Hekkklippur Rafmagns- eða bensíndrifnar Þýsk gæðatæki sem auðvelda þér garðvinnuna Gerðu garðverkin skemmtilegri

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.