Morgunblaðið - 17.04.2013, Page 38

Morgunblaðið - 17.04.2013, Page 38
38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 2013 Stórhöfða 17 | Sími 577 5555 | veggsport.is Þú borgar 3 mánuði en færð 5 Kort sem gildir til 15. sept. á aðeins kr. 23.900,- Skvass - körfubolti spinning - krossfitt ketilbjöllur - tækjasalur Allt á einum stað Vertu í formi í sumar „Hvað ætlar þú að verða?“ er yf- irskrift tónleika kammerhópsins Nordic Affect sem fram fara í Þjóð- menningarhúsinu í kvöld kl. 20. Á tónleikunum verður sjónum beint að tónlistarkennslu á barokktímanum. „Verður flakkað víða um álfuna og komið við á Ítalíu, í Frakklandi, Bretlandi og Þýskalandi.Við sögu koma geldingar, skólar og ráðríkir foreldrar í bland við að leikin verða verk eftir Cima, Locatelli, J.S. Bach, Geminiani, C.P.E. Bach og Hotte- terre,“ segir m.a. í tilkynningu. Flytjendur á tónleikunum eru þau Halla Steinunn Stefánsdóttir fiðlu- leikari, Georgia Browne þverflautu- leikari, Sigurður Halldórsson selló- leikari og Guðrún Óskarsdóttir semballeikari. Kynning milli verka er í höndum Höllu Steinunnar, en hún er listrænn stjórnandi NoA og þáttastjórnandi Girnis, grúsks og gloría, þáttar um tónlist fyrri alda á Rás1. Nordic Affect hefur verið starfræktur frá árinu 2005, en hann var á dögunum tilnefndur til Tónlist- arverðlauna Norðurlandaráðs. Hóp- urinn er þekktur fyrir framsækni í nálgun og verkefnavali en NoA hef- ur á tónleikum sínum flutt allt frá danstónlist 17. aldar til spennandi raftónlistar samtímans. Framundan hjá NoA er hljóðritun á nýjum geisladiski með verkum eftir íslensk kventónskáld. Framsækni Kammerhópurinn Nordic Affect, sem hefur verið starfræktur frá árinu 2005, er þekktur fyrir framsækni í nálgun og verkefnavali. „Geldingar og ráðríkir foreldrar“  Nordic Affect í Þjóðmenningarhúsinu Wolffs sé einn tónlistarmaður leið- andi en í öðrum margir. Hann hafi skrifað fjölda opinna verka þar sem engin hljóðfæraskipan sé gefin og sum verka hans krefjist afar stórs hóps flytjenda. „Það eru margar áhugaverðar, félagslegar aðstæður sem skapast í tónlist hans sem eru hluti af sögu verksins og frásögn. Það er heillandi að fylgjast með fólki flytja þessa tónlist því maður veit aldrei hvað gerist næst. Það er ein- hver stórkostleg orka í henni,“ segir Volkov. Í öllum sölum og öðrum rýmum Dagskrá hátíðarinnar er viða- mikil. SÍ mun m.a. flytja verk eftir Eyvind Kang, Jessiku Kenney, Hildi Guðnadóttur, Önnu Þorvaldsdóttur, Atla Ingólfsson, Þráin Hjálmarsson og Guðmund Stein Gunnarsson og meðal einleikara með sinfóníu- hljómsveitinni verða píanóleikarinn Víkingur Heiðar Ólafsson og Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Tectonics, tónlistarhátíð Sinfón- íuhljómsveitar Íslands, hefst á morg- un í Hörpu og stendur í þrjá daga, til og með 20. apríl. Hátíðin hóf göngu sína í fyrra að frumkvæði Ilans Vol- kovs, listræns stjórnanda hátíð- arinnar og aðal- stjórnanda SÍ. Tectonics er í til- kynningu lýst sem vettvangi tónlistarlegra til- rauna, tilrauna sem fram- kvæmdar séu af einstaklega fjöl- breyttum hópi flytjenda úr ýms- um geirum tónlistarinnar. Fram- úrstefnufólk starfi með hefðbundinni sinfóníuhljómsveit, atvinnumenn með áhugamönnum og nemendur með reyndum tónskáldum. Volkov segir aðaláhersluna lagða á tónlist á hátíðinni þó aðrar listgreinar komi við sögu og styðji við tónlistina, m.a. myndlist. Fer sínar eigin leiðir Bandaríska tónskáldið Christian Wolff verður heiðursgestur hátíð- arinnar í ár og verða mörg verka hans flutt á henni, m.a. nýlegt kammerverk, Dijon, sem hann mun leiða með píanóleik. Wolff mun einn- ig taka þátt í spunaverkefni með Ey- vind Kang, Skúla Sverrissyni, Jessiku Kenney og Hildi Guðnadóttur. „Christian er eitt af leiðandi sam- tímatónskáldum Bandaríkjanna. Hann var nemandi Johns Cage á sjötta áratugnum en hefur farið sín- ar eigin leiðir í rúm 50 ár,“ segir Vol- kov um Wolff. Sýn hans á tónlist sé afar sérstök og verkin tilraunakennd en um leið einföld. „Hann er tón- skáld sem leitar leiða til að eiga sam- skipti við áhorfendur jafnt sem flytj- endur,“ segir Volkov. Í sumum verka ísraelski klarínettuleikarinn Chen Halevi. Þá verður bandaríski slag- verksleikarinn, tónskáldið og mynd- listarmaðurinn Eli Keszler áberandi; sýnir innsetningu, fremur spuna- gjörning og leikur á tvennum tón- leikum með Duo Harpverk. People Like Us, þ.e. breska listakonan Vicki Bennett, mun standa fyrir kvik- myndagjörningum í samstarfi við ís- lenska tónlistarmenn og rafbassa- leikarinn Skúli Sverrisson verður í ýmsum hlutverkum á hátíðinni. Tónleikar Tectonics verða haldnir í öllum sölum Hörpu sem og í opnum rýmum í húsinu og fyrir utan húsið, m.a. hótelgrunninum vestan við það. Hátíðin verður einnig haldin í Glas- gow, 11. og 12. maí, undir listrænni stjórn Volkovs og á vegum BBC Scottish Symphony Orchestra. Dagskrá og frekari upplýsingar um þá sem koma að hátíðinni má finna á vef hennar, www.tectonics- festival.com. „Maður veit aldrei hvað gerist næst“  Christian Wolff er heiðursgestur Tectonics í ár Morgunblaðið/Rósa Braga Einleikarar Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari og ísraelski klarínettuleikarinn Chen Halevi á æfingu í Hörpu í gær. Þeir leika með SÍ á Tectonics. Ilan Volkov Kammerkór Suðurlands kemur fram á tvennum tón- leikum á Tectonics. Þeir fyrri verða haldnir 18. apríl en þá tekur kórinn þátt í frumflutningi verksins Concea- led Unity eftir Eyvind Kang og Jessika Kenney, ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands og þremur sólóistum. Kenney leggur rödd sína í verkið, Kang leikur á víólu og Skúli Sverrisson á rafbassa. Stjórnandi er Ilan Vol- kov. Seinni tónleikarnir fara fram 19. apríl og verður þá flutt verk eftir Christian Wolff, Wobbly Music, und- ir stjórn Egils Gunnarssonar. Kammerkór Suðurlands hefur starfað frá árinu 1997 undir stjórn stofnanda síns, Hilmars Arnar Agnarssonar, organista í Graf- arvogskirkju. Kórinn hefur verið önnum kafinn síðastliðið ár og rúmlega það, tók þátt í Myrkum músíkdögum í febrúar í fyrra þar sem hann frum- flutti m.a. verk sem ung íslensk tónskáld sömdu fyrir kórinn og söng á Kammertónleikum á Kirkjubæjarklaustri í ágúst í fyrra. Kórinn kom einn- ig fram á tónlistarhátíðinni UNM (Ung Nordisk Musik) í Skálholti í lok ágúst. Plata með kórnum er væntanleg á árinu. Kang, Kenney og Wolff KAMMERKÓR SUÐURLANDS Á TVENNUM TÓNLEIKUM Hilmar Örn Agnarsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.