Morgunblaðið - 11.05.2013, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 11.05.2013, Blaðsíða 47
MESSUR 47Minningar MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MAÍ 2013 Raðauglýsingar Nauðungarsala Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Asparfell 2, 205-1767, Reykjavík, þingl. eig. Ásbjörg Emanúelsdóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, fimmtudaginn 16. maí 2013 kl. 11:00. Baughús 22, 204-1058, Reykjavík, þingl. eig. Halldóra Eldon Sigurðardóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, fimmtudaginn 16. maí 2013 kl. 10:30. Blesugróf 31, 203-8296, Reykjavík, þingl. eig. Ágústa Jóhannsdóttir og Sigurður Sigfús Eiríksson, gerðarbeiðendur Arion banki hf., Íbúðalánasjóður, Orkuveita Reykjavíkur, Reykjavíkurborg og Vátryggingafélag Íslands hf., fimmtudaginn 16. maí 2013 kl. 14:00. Eyjabakki 1, 232-1213, Kjósarhreppi, þingl. eig. þb. Eyjaberg ehf., gerðarbeiðandi Sjóvá-Almennar tryggingar hf., fimmtudaginn 16. maí 2013 kl. 13:30. Freyjubrunnur 2, 230-0550, Reykjavík, þingl. eig. Hörður Harðarson, gerðarbeiðandi Landsbankinn hf., fimmtudaginn 16. maí 2013 kl. 10:00. Sýslumaðurinn í Reykjavík, 10. maí 2013. Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Aðalstræti 9, 229-6395, Reykjavík, þingl. eig. db. Ragnars Þórðar- sonar, gerðarbeiðendur Orkuveita Reykjavíkur og Reykjavíkurborg, miðvikudaginn 15. maí 2013 kl. 13:30. Brekkustígur 6b, 200-0940, Reykjavík, þingl. eig. Bjarni Sævar Geirs- son, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður ogTryggingamiðstöðin hf., miðvikudaginn 15. maí 2013 kl. 14:00. Frakkastígur 7, 200-5095, Reykjavík, þingl. eig. Högni Gunnarsson, gerðarbeiðendur Orkuveita Reykjavíkur, Reykjavíkurborg og Vátryggingafélag Íslands hf., miðvikudaginn 15. maí 2013 kl. 14:30. Gnoðarvogur 50, 202-2911, Reykjavík, þingl. eig. Magnús Sigurðsson og Ragnheiður Þ. Sigurðardóttir, gerðarbeiðandi Arion banki hf., miðvikudaginn 15. maí 2013 kl. 10:30. Hörpugata 13, 202-9118, Reykjavík, þingl. eig. Baldvin Gunnar Árnason, gerðarbeiðandi Frjálsi fjárfestingarbankinn hf., miðvikudaginn 15. maí 2013 kl. 11:00. Langholtsvegur 176, 202-3009, Reykjavík, þingl. eig. Grétar Jón Elfarsson, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður, Orkuveita Reykjavíkur og Reykjavíkurborg, miðvikudaginn 15. maí 2013 kl. 10:00. Miðtún 17, 200-9583, Reykjavík, þingl. eig. Lára Hauksdóttir, gerðar- beiðandi Íbúðalánasjóður, miðvikudaginn 15. maí 2013 kl. 11:30. Skeggjagata 6, 201-1163, Reykjavík, þingl. eig. Jón Þorsteinsson, gerðarbeiðandi Íslandsbanki hf., miðvikudaginn 15. maí 2013 kl. 15:30. Sýslumaðurinn í Reykjavík, 10. maí 2013. AKUREYRARKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur er sr. Hildur Eir Bolladótt- ir. Félagar úr Kór Akureyrarkirkju syngja, organisti er Petra Björk Páls- dóttir. ÁRBÆJARKIRKJA | Fylkismessa kl. 11. Fjölskyldustemming þar sem iðk- endur íþróttafélagins Fylkis taka virk- an þátt. Grillaðar pylsur og meðlæti. ÁSKIRKJA | Útvarpsmessa kl. 11. Sr. Sigurður Jónsson sóknarprestur prédikar og þjónar fyrir altari ásamt Viðari Stefánssyni guðfræðinema. Kór Áskirkju syngur, organisti Magn- ús Ragnarsson. ÁSTJARNARKIRKJA | Vorhátíð sunnudagaskólans. Fjölskylduguðs- þjónusta kl. 11. Sunnudagaskóla- börn og kirkjuprakkarar syngja undir stjórn Hólmfríðar og Bryndísar. Prest- ur er sr. Kjartan Jónsson. Hoppkast- alar og pylsugrill. BESSASTAÐAKIRKJA | Guðsþjón- usta kl. 11. Fermingarbörn og foreldr- ar þeirra eru sérstaklega boðin vel- komin. Kynntir verða fermingardagar næsta árs og skráning. Messa kl. 14. Grétu Konráðsdóttur djákna þakkað starf í þágu safnaðarins. Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir, sr. Friðrik J. Hjartar, sr. Hans Guðberg Alfreðsson og Margrét Gunnarsdóttir djáknak- andídat leiða stundina ásamt Bjarti Loga Guðnasyni organista og Álftane- skórnum. BREIÐHOLTSKIRKJA | Messa á mæðradaginn kl. 11. Sr. Bryndís Malla Elídóttir þjónar fyrir altari. Þór- ey Dögg Jónsdóttir djákni prédikar. Mömmur úr foreldrastarfi kirkjunnar taka þátt í helgihaldinu. Organisti er Örn Magnússon. Hollvinafélagið býð- ur upp á veitingar. BÚSTAÐAKIRKJA | Fjölskyldu- messa í lok vetrarstarfs kl. 11. Sköp- unar- og sumarlög, engla- og barna- kórar kirkjunnar syngja. Grill og leikir. Prestur Pálmi Matthíasson. DIGRANESKIRKJA | Hjólaguðsþjón- usta kl. 11 fyrir alla fjölskylduna í til- efni af átakinu „Hjólað til vinnu“. Vænst er þátttöku allrar fjölskyldunn- ar, og að þeir sem eiga reiðhjól eða hlaupahjól komi á þeim til messu. Prestur sr. Magnús Björn Björnsson. Veitingar. DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11. Sr. Sveinn Valgeirsson prédikar og þjón- ar fyrir altari. Dómkórinn syngur, org- anisti er Kári Þormar. FRÍKIRKJAN Kefas | Lokahóf sunnudagaskólans kl. 11. Grill, leikir, söngur og hoppkastali. FRÍKIRKJAN Reykjavík | Messa kl. 20. Stundin er í umsjón sr. Hjartar Magna Jóhannssonar. Barnakór Frí- kirkjunnar undir stjórn Álfheiðar Björgvinsdóttur og Sönghópur Fríkirkj- unnar leiða sönginn. Tónlistarflutn- ingur djasskvartetts sem skipaður er þeim Gunnari Gunnarssyni organista, Tómasi R. Einarssyni kontrabassa- leikara, Matthíasi Hemstock slag- verksleikara og Ómari Guðjónssyni gítarleikara. GRAFARVOGSKIRKJA | Guðsþjón- usta kl. 11. Sr. Lena Rós Matthías- dóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Kór kirkjunnar syngur, organisti er Há- kon Leifsson. Aðalsafnaðarfundur á eftir. Hádegisverður. GRENSÁSKIRKJA | Morgunmatur kl. 10, bænastund 10.15. Messa kl. 11. Altarisganga. Samskot til SÍK. Messuhópur þjónar. Kórar frá Domus vox syngja undir stjórn Margrétar Pálmadóttur, organisti er Ásta Har- aldsdóttir. Prestur sr. Kristín Páls- dóttir. Kaffi. Hversdagsmessa með Þorvaldi Halldórssyni á fimmtudag kl. 18.10. GRUND dvalar- og hjúkrunar- heimili | Guðsþjónusta kl. 14 í hátíð- arsal. Sr. Auður Inga Einarsdóttir þjónar. Grundarkórinn leiðir söng undir stjórn Kristínar Waage organ- ista. GUÐRÍÐARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Prestur sr. Sigríður Guðmars- dóttir, Kristín Kristjánsdóttir djákna- nemi predikar. Tónlistarflutningur í umsjá Þorvaldar Halldórssonar. Með- hjálpari Aðalsteinn D. Októsson, kirkjuvörður er Lovísa Guðmundsdótt- ir. Aðalsafnaðarfundur á eftir. HAFNARFJARÐARKIRKJA | Fjöl- skylduguðsþjónusta – vorhátíð barna- starfsins kl. 11. Barna- og unglinga- kórar Hafnarfjarðarkirkju leiða söng. Umsjónarmaður barnastarfs er Nína Björg Vilhelmsdóttir djákni, henni til aðstoðar er Margrét Heba. Píanóleik- ari er Anna Magnúsdóttir, organisti er Guðmundur Sigurðsson og prestur sr. Þórhildur Ólafs. Leikir, andlitsmálun og grillaðar pylsur. HALLGRÍMSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Sr. Birgir Ásgeirs- son prédikar og þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum. Félagar úr Mót- ettukórnum syngja, organisti er Hörð- ur Áskelsson. Umsjón með barna- starfi hefur Inga Harðardóttir æskulýðsfulltrúi. HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11. Barnastarf í umsjá Arnars og Sólveig- ar Ástu. Organisti Kári Allansson. Prestur sr. Helga Soffía Konráðsdótt- ir. HJALLAKIRKJA Kópavogi | Guðs- þjónusta kl. 11. Prestur Sr. Sigfús Kristjánsson, organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Félagar úr kór kirkjunnar leiða söng og safnaðarsvör. Sjá hjallakirkja.is. HJÁLPRÆÐISHERINN Reykjavík | Fagnaðarsamkoma kl. 11, fyrir nýja umdæmisstjóra, Dick og Vibeke Krommenhoek. HVALSNESSÓKN | Fjölskyldumessa kl. 17 í safnaðarheimilinu í Sand- gerði. Börn úr æskulýðsstarfi annast messuna eftir vorferð úr Vatnaskógi. HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía | Samkoma og brauðsbrotning kl. 11. Vörður Leví Traustason prédikar. Kaffi. Samkoma á ensku hjá Alþjóða- kirkjunni kl. 14. Samkoma kl. 18. Lof- gjörð og prédikun. INGJALDSHÓLSKIRKJA | Fjöl- skylduguðsþjónusta kl. 11. Lokahá- tíð sunnudagaskólans, TTT-starfsins, barnakórsins og æskulýðsstarfsins. Ýmsar uppákomnur og veitingar. ÍSLENSKA Kristskirkjan | Sam- koma og barnastarf kl. 13.30. Lof- gjörð og fyrirbænir. Böðvar Björgvins- son predikar. Kaffi. KÁLFATJARNARKIRKJA | Árlegur kirkjudagur Kálfatjarnarkirkju kl. 14. 120 ára vígsluafmælis kirkjunnar minnst. 30, 40, og 50 ára ferming- arbörn boðin velkomin. Símon Rafns- son segir ágrip af sögu kirkjunnar. Kór Kálfatjarnarkirkju syngur. Organ- isti er Frank Herlufsen. Birna Rúnars- dóttir leikur á flautu og Jóhann Frið- geir Valdimarsson tenórsöngvari syngur einsöng. Dr. Gunnar Kristjáns- son prófastur prédikar. Dr. Kjartan Jónsson þjónar fyrir altari. Kaffi á eft- ir í Stóru-Vogaskóla þar sem Jóhann Friðgeir syngur einsöng. KÓPAVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11 á mæðradaginn. Sr. Bernharð- ur Guðmundsson prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová, kantors kirkjunnar. KVENNAKIRKJAN | Guðsþjónusta verður í Garðakirkju á Álftanesi kl. 20. Sr. Elína Hrund Kristjánsdóttir prédikar. Kór Kvennakirkjunnar leiðir söng við undirleik Aðalheiðar Þor- steinsdóttur. Kaffi í Króki. LANGHOLTSKIRKJA | Fjölskyldu- messa kl. 11. Sr. Irma Sjöfn Ósk- arsdóttir þjónar. Kórskóli Langholts- kirkju leiðir sönginn undir stjórn Þóru Björnsdóttur söngkennara við undir- leik Jóns Stefánssonar organista. Molakaffi. Með messunni er sunnu- dagaskólastarfinu lokið í vetur. Vorhátíð verður 26. maí. LÁGAFELLSKIRKJA | Guðsþjón- usta kl. 11. Kórinn „Vorboðarnir“ syngur umdir stjórn Páls Helgasonar. Organisti Arnhildur Valgarðsdóttir og prestur sr. Skírnir Garðarsson. LINDAKIRKJA Kópavogi | Sunnu- dagaskóli kl. 11. Messa kl. 20. Kór Lindakirkju syngur undir stjórn Ósk- ars Einarssonar. Dís Gylfadóttir guð- fræðinemi prédikar. Sr. Guðmundur Karl Brynjarsson þjónar fyrir altari. NESKIRKJA | Fjölskylduguðsþjón- usta kl. 11. Vorhátíð sunnudagaskól- ans. Barnakór Neskirkju og Stúlkna- kór syngja undir stjórn Jóhönnu Halldórsdóttur og Steingríms Þór- hallssonar organista. Sr. Örn Bárður Jónsson þjónar fyrir altari. Dagskrá stundarinnar er í umsjón æskulýðs- prests Neskirkju, sr. Sigurvins Lár- usar Jónssonar. NeDó-leiðtogar að- stoða. Boðið upp á pylsur í garði kirkjunnar og Örkin hans Nóa mun standa á túninu sem kastali til að hoppa í. ÓHÁÐI söfnuðurinn | Guðsþjónusta kl. 14 og barnastarf á sama tíma. Kór safnaðarins leiðir sönginn undir stjórn Árna Heiðars Karlssonar. Sr. Pétur Þorsteinsson predikar, með- hjálpari er Petra Jónsdóttir. Aðalsafn- aðarfundur í Kirkjubæ. Maul á eftir. Sjá ohadisofnudurinn.is SALT kristið samfélag | Samkoma kl. 17 í safnaðarheimili Grensás- kirkju. Ræðumaður er Guðlaugur Gunnarsson. SELFOSSKIRKJA | Fermingar laug- ardag og sunnudag, 11. og 12. maí, kl. 11. Kvöldmessa kl. 20 með Svav- ari Knúti. Hugvekja, bæn og lög Svav- ars Knúts. Prestar eru sr. Óskar og sr. Ninna Sif. Sjá selfosskirkja.is. SELJAKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Valgeir Ástráðsson prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Seljakirkju leiðir safnaðarsöng, organisti er Tóm- as Guðni Eggertsson. Aðalfundur safnaðarins á eftir. SELTJARNARNESKIRKJA | Lokahátíð sunnudagaskólans kl. 11. Skólalúðrasveit (yngri deild) Seltjarn- arness leikur undir stjórn Kára Hún- fjörð Einarssonar. Leiðtogar sunnu- dagaskólans ásamt æskulýðsfulltrúa, sóknarpresti og organista þjóna. Pylsuveisla. Fjöl- skyldur hvattar til að koma með börn- um sínum. SÓLHEIMAKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 14 með þátttöku félaga úr Odd- fellowstúkunni Þorfinni karlsefni í Reykjavík. Sr. Gunnar Rúnar Matt- híasson sjúkrahúsprestur predikar og sr. Birgir Thomsen þjónar fyrir altari. Ester Ólafsdóttir organisti leiðir al- mennan safnaðarsöng. Meðhjálparar eru: Eyþór Kristinn Jóhannsson og Erla Thomsen. ÚTSKÁLAKIRKJA | Sameiginleg fjölskyldumessa í safnaðarheimilinu í Sandgerði kl. 17. Sjá Hvalsnessókn. VÍDALÍNSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir predikar og þjónar fyrir altari. Í tilefni mæðra- dagsins verður fjallað um móðurhlut- verkið og kirkjuna sem móður. Lát- inna mæðra minnst. Félagar úr kór kirkjunnar leiða almennan safnaðar- söng undir stjórn organista. Barna- gæsla í safnaðarheimilinu undir stjórn Hjalta Jóns. Boðið upp á kaffi og djús. Sjá gardasokn.is. ORÐ DAGSINS: Þegar huggarinn kemur. (Jóh. 15) Kálfatjarnarkirkja ✝ Guðrún Pálma-dóttir fæddist í Bolungarvík 31. júlí 1925. Hún lést á Sjúkraskýli Bolung- arvíkur 3. maí 2013. Systkini Guð- rúnar voru Sigríður Lovísa, f. 12.4. 1929, d. 23.9. 1944, Gest- ur, f. 25.5. 1930, d. 8.9. 2006, Karvel, f. 13.7. 1936, d. 23.2. 2011, og Kristný, f. 2.9. 1943, d. 11.11. 2012. Guðrún giftist Guðmundi Kristjánssyni 15.11. 1952, d. 23.9. 1987. Foreldrar hans voru B. Kristján Bergsson og Benedikta G. Guðmundsdóttir. Börn Guð- rúnar og Guðmundar eru: 1) Benedikt, f. 15.11. 1951, d. 8.11. 1966. 2) Pálmi Árni, f. 8.7. 1954, maki Lene B. Vestergård, f. 7.8. 1959. Synir þeirra eru Magnús og Jóhann. 3) Kristján Jón, f. 19.11. 1956, maki Drífa Gústafsdóttir, f. 16.8. 1958. Börn þeirra eru Íris Björk, Birgitta og Guðmundur og eitt barnabarn. 4) Jón- ína Elva, f. 16.12. 1962. Börn hennar eru Sandra Dögg og Benedikt og tvö barnabörn. 5) Berg- ur Ingi, f. 3.8. 1964. Guðrún ólst upp í Bolungarvík og gekk í barnaskólann og fór síðar í Húsmæðraskólann á Varmalandi. Lengst af var Guð- rún heimavinnandi og sá um börn og bú en vann um tíma í Kaupfélagi Ísfirðinga Bolung- arvík og síðar í verslun Einars Guðfinnssonar. Útför Guðrúnar fer fram frá Hólskirkju í Bolungarvík í dag, 11. maí 2013, og hefst athöfnin kl. 15. Elsku besta frænka mín. Nú ertu búin að fá hvíldina og þakka ég Guði fyrir að losa þig frá löngum og erfiðum þrautum. Af nógu er að taka þau 59 ár sem ég hef verið þér samferða, mikið og allt gott sem eftir situr, ekki síst tíminn á Sólvöllum sem vinnustúlka, þá 11 ára, að passa Jónínu Elvu og Berg Inga. Þú kenndir mér ýmislegt; lést mig sjóða taubleiurnar í potti á elda- vélinni, svo margskola, og svo var ekki sama hvernig ég hengdi upp, allt átti að vera svo slétt og fellt, teygt vel á öllum saumum. Núna er ég þakklát fyrir öll þessi ár og ekki síst að hafa átt þess kost að vera í svona mikilli nánd við þig seinustu ár lífs þíns sem voru þér svo erfið. Ég er þakklát fyrir að þú skulir vera bú- in að hitta Mumma þinn og Benna, foreldra þína og systkini. Elsku Pálmi, Kristján Jón, Jón- ína Elva, Bergur Ingi og fjölskyld- ur, við sendum ykkur góðar kveðj- ur og megi Guð gefa ykkur styrk í sorg og söknuði. Einnig þakklæti fyrir að hafa átt svo góða mömmu. Þó að kali heitur hver hylji dali jökull ber steinar tali og allt hvað er aldrei skal ég gleyma þér. (Vatnsenda-Rósa) Góður Guð geymi þig og hvíl í friði, elsku frænka mín. Hjartans þakkir fyrir hvað þú varst mér og minni fjölskyldu alltaf góð. Kristín H. Karvelsdóttir. Guðrún Pálmadóttir ✝ Ingibjörg Vil-hjálmsdóttir fæddist á Siglufirði 19. febrúar 1939. Hún lést á heimili sínu 4. maí 2013. Foreldrar henn- ar voru Vilhjálmur Guðmundsson, f. á Þúfu í Skagafirði 30. janúar 1898, d. 18. janúar 1980, og Elín Hermanns- dóttir, f. á Hofsósi 8. apríl 1903, d. 3. september 1983. Systkini Ingibjargar voru Aðalheiður Bára, Klara, Hermann Skarp- héðinn, Kristín Guðrún og Bragi, sem öll eru látin. Eft- irlifandi bræður Ingibjargar eru Guðmundur Jó- hannes og Jón Helgi. Hinn 6. júní 1960 giftist Ingi- björg Friðvini Jónssyni, f. á Daða- stöðum á Reykja- strönd 11. janúar 1932, d. 5. janúar 1999. Þau eign- uðust fimm börn; Elínu Vil- borgu, Jón Sigurð, Heimi Örn, Val Smára og Halldór Frosta. Útför Ingibjargar fer fram frá Hofsóskirkju í dag, 11. maí 2013, kl. 14. Ég hef lesið um ljómandi höllu ofar lágreistum mannanna sölum, fold með iðgrænum blómskrýddum bölum; brátt ég fæ, brátt ég fæ vera þar. Hallelúja, Guðs herskarar syngja, Hallelúja frá jörðunni ómar. Vilji sporin mín vegraunir þyngja veit ég senn, veit ég senn er ég þar. Ég hef lesið um land þar sem enginn lengur þjáist af sjúkdómarstríði, engin styrjaldarangistarkvíði, innan skamms, innan skamms verð ég þar. Hallelúja, þá hjörtu vor fagna Hallelúja, öll vantrú er farin Sérhver freistingarrödd þá mun þagna; þar hjá Guði um eilífð ég er. Ég hef lesið um ljósbjarta skrúða Lífsins kórónu gullinu skærri Dýrð sem allri mannshugsun er hærri; þar ég heima á senn, heima senn. Halelúja, í heilögum anda Hljómar til mín frá eilífðarströndum Ég finn bresta í jarðlífsins böndum Brátt hjá Jesú, hjá Jesú ég er Brátt hjá Jesú, hjá Jesú ég er (Þýð. Jónas Jak.) Með þessum orðum kveð ég mömmu, sem var einstök kona, klettur í lífi mínu. Takk fyrir allt mamma. Valur Smári Friðvinsson. Lífið kemur, lífið fer, líður áfram saga. Margt er nú sem merlar hér, mjög um liðna daga. Kynni munast mörg og góð, meðan tíminn líður. Þér set kveðju í þetta ljóð, þín ný veröld býður. Þó að endi æviskeið, allra það er dómur. Minning varðar liðna leið, ljós og dýrðar hljómur. Um leið og við kveðjum kæra vinkonu okkar sendum við inni- legar samúðarkveðjur til Hall- dórs, Jóns, Elínar, Vals, Heimis og fjölskyldna þeirra. Gunnar, Erla og börn. Ingibjörg Vilhjálmsdóttir á morgun
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.