Morgunblaðið - 11.05.2013, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 11.05.2013, Blaðsíða 36
36 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MAÍ 2013 ✝ Kristjana El-ísabet Sigurðardóttir fæddist á Hof- stöðum í Mikla- holtshreppi 27. mars 1924. Hún lést á Sjúkrahúsinu í Stykkishólmi 29. apríl 2013. Foreldrar henn- ar voru Sigurður Kristjánsson, f. 5. okt. 1888, d. 19. sept. 1969, og Margrét Oddný Hjörleifsdóttir, f. 26. sept. 1899, d. 9. ágúst 1985. Systkini Kristjönu eru: Hjörleif- ur, f. 1919, d. 1989, Kristján Er- lendur, f. 1920, d. 1987, Sigfús, f. 1922, d. 1999, Áslaug, f. 1926, d. 1997, Valdimar, f. 1928, d. 1995, Elín Guðrún, f. 1930, Olga, f. 1932, Magdalena Margrét, f. 1934, Anna, f. 1938, d. 2009, og Ásdís, f. 1941. Kristjana giftist hinn 9. júní Lovísa Birna Björnsdóttir, börn þeirra eru Þráinn Freyr og Mar- grét Guðný. Kristjana ólst upp hjá for- eldrum sínum í Hrísdal í Mikla- holtshreppi við almenn sveita- störf og aðstoð á barnmörgu heimili. Hún gekk í húsmæðra- skólann á Staðarfelli í Dölum veturinn 1945-46 áður en hún stofnaði sitt eigið heimili, fyrst í Böðvarsholti í sambýli við tengdaforeldra sína og síðan í Hlíðarholti í Staðarsveit ásamt manni sínum. Þau hjón bjuggu þar alla sína tíð rausnarbúi ásamt því að vera virk í fé- lagsmálum sveitar sinnar. Krist- jana var formaður og í stjórn Kvenfélagsins Sigurvonar um árabil og tók virkan þátt ásamt manni sínum og öðrum sveit- ungum í uppbyggingu Félags- heimilisins á Lýsuhóli. Þá komu þau Kristjana og Þráinn að end- urbyggingu og umsjón með Búðakirkju, sem var henni mjög hjartfólgin. Kristjana dvaldi hin síðari ár á dvalarheimilinu Jaðri í Ólafsvík. Útför Kristjönu fer fram frá Búðakirkju í dag, 11. maí 2013, og hefst athöfnin kl. 14. 1946 Vigfúsi Þráni Bjarnasyni frá Böðvarsholti, f. 26.2. 1921, d. 4.12. 1995. Foreldrar hans voru Bjarni Nikulásson og Bjarnveig Krist- ólína Vigfúsdóttir. Börn þeirra eru: 1) Bjarni, f. 1947. Maki Sigrún Hafdís Guðmundsdóttir, börn þeirra eru Solveig Björk, Vigfús Þráinn, Guðmundur Grétar og Elísabet Ýr. Barna- börnin eru fimm. 2) Margrét, f. 1949. Maki Jón Eggertsson, börn þeirra eru Kristjana El- ísabet, Vilborg og Jón Þór. Barnabörnin eru níu. 3) Sig- urður, f. 1953. Maki Sigríður Gísladóttir, börn þeirra eru Gísli, Einar, Kristjana Elísabet og Jón Rúnar. Barnabörnin eru fjögur. 4) Vigfús, f. 1959. Maki Ég var ung að árum þegar ég kom í fjölskylduna í Hlíðarholti. Kristjana, tengdamóðir mín, var ákveðin kona og hafði skoðun á flestum hlutum. Hún var dugnað- arforkur og mikil húsmóðir. Krist- jana hafði lifað tímana tvenna og kunni ýmislegt fyrir sér. Á æsku- heimilinu varð hún ómissandi hjálparhella strax barn að aldri, og lærði að breyta mjólk í mat og ull í fat, ásamt öðrum verkum sem til féllu á stóru heimili. Auðvitað hafa uppvaxtarárin markað djúp spor í hennar líf. Börn á þessum tíma, sérstaklega til sveita, lærðu að vinna og taka ábyrgð frá unga aldri. Kristjana passaði alla tíð vel uppá fjölskyldu sína og fylgdist grannt með afkomendunum. Ég eignaðist mitt heimili á næsta bæ við tengdamömmu, þannig að mikill samgangur var alltaf á milli. Þar af leiðandi naut ég bæði leiðsagnar og aðstoðar tengdaforeldra minna. Reyndar þótti mér tengdamamma stund- um full stjórnsöm, en með aukn- um þroska og meiri víðsýni hef ég séð hversu mikið ég lærði af henni og alltaf voru okkar samskipti góð. Í Hlíðarholt var notalegt að koma, Kristjana var gestrisin og tók vel á móti fólki. Hún passaði sérstaklega uppá að búrið væri ávallt fullt af bakkelsi og öðru góð- gæti. Það varð alltaf að vera til nóg, ef gest bæri að garði. Oft bakaði hún stóran stafla af vöffl- um eða pönnukökum, ef einhver skyldi nú líta við. Já, það var ekki í kot vísað hjá þeim Kristjönu og Þráni. Kristjana var alla tíð mynd- arleg í höndunum en í seinni tíð fylgdu prjónarnir henni oftast. Það eru ekki ófáir vettlingarnir og sokkapörin sem hún gerði. Kristjana hafði mikinn áhuga á kirkjum og var dugleg að skoða þær þegar hún ferðaðist um, bæði erlendis og hérlendis. Einu sinni átti ég pláss í sumarbústað í Grímsnesinu, en minn ektamaki komst ekki með þegar til átti að taka. Ég fór með krakkana og við ákváðum að bjóða Kristjönu og Einari að koma þegar leið á vik- una. Veðrið var ofboðslega gott og mikill hiti, nær ólíft að sitja í bíl. En Kristjönu fannst það í lagi og hafði í gegn að við keyrðum vítt og breitt um Suðurlandið og skoðuð- um kirkjur hátt og lágt, við mis- mikinn fögnuð krakkana. Það þurfti engan að undra að Krist- jana tæki ástfóstri við Búðakirkju enda voru þau Þráinn ötul í upp- byggingu hennar. Meðan Krist- jana hafði heilsu til varði hún drjúgum tíma á sumrin í að sinna kirkjunni og leyfa ferðafólki að kíkja inn, aðstoðaði við brúðkaup og aðrar athafnir og passaði vel uppá kirkjuna. Ég veit að henni þótti vænt um þennan merka stað og að hún er ánægð með að vera komin aftur. Ég veit líka að nú mun hún passa uppá kirkjuna sem aldrei fyrr. Góð kona er gengin. Elsku Kristjana, hvíldu í friði. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Sigrún. Nú hefur hún Kristjana, tengdamóðir mín, kvatt þetta líf á 90. aldursári. Hún hafði á langri ævi lagt sinn skerf til samfélags sinnar sveitar og héraðs. Krist- jana var þeirrar gerðar að eftir henni var tekið og hlustað þegar hún talaði. Hún hafði sterkar skoðanir, drift til að koma hlutum í verk og vildi hafa góða reglu á hlutunum. Ég var tvítug þegar ég kom fyrst í Hlíðarholt, alls óvön sveita- störfum, kaupstaðarstúlka norðan úr Skagafirði. Þá nýttust kraftar mínir best í eldhúsinu við hlið hús- móðurinnar. Það var nóg að gera á stóru heimili og gestagangur mik- ill. Þá var gott að vinna með Krist- jönu, skipulögð var hún og mynd- arleg til allra verka. Velferð fjölskyldunnar var henni og Þráni alltaf efst í huga og vildu þau allt á sig leggja til þess að svo mætti vera. Fengu barnabörnin öll að njóta samvista við þau um lengri eða skemmri tíma, þeim til mikils þroska og gleði. Auk þess var alla tíð „í sveit“ í Hlíðarholti stór hóp- ur barna og unglinga sem kynntist þar sveitalífinu, náttúrunni og bú- störfum undir handleiðslu þeirra hjóna. Kristjana og Þráinn voru mjög samhent hjón og gagnkvæm virð- ing ríkti þeirra á milli. Á heimilinu var virk umræða um landsins gagn og nauðsynjar þar sem lífs- sýn þeirra beggja um sjálfstæði og frelsi var undirstaðan. Missir Kristjönu var mikill þegar Þráinn dó og veit ég að hann tekur vel á móti henni núna. Síðustu misseri fór heilsu henn- ar nokkuð að hraka. Þá var gott fyrir okkur fjölskylduna að vita af henni í öruggri umsjá starfsfólks dvalarheimilisins Jaðars í Ólafs- vík. Þar leið henni vel og enduðu mörg símtöl á því að á Jaðri væri gott að vera. Með þessum orðum vil ég kveðja tengdamóður mína. Margs er að minnast Margs er hér að þakka. Guð sé lof fyrir liðna tíð Margs er að minnast Margs er að sakna Guði þerri tregatárin stríð. (Vald.Briem) Blessuð sé minning hennar. Lovísa Birna Björnsdóttir. Við systkinin vorum lánsöm að eiga ömmu og afa á næsta bæ. Það var mikill samgangur á milli bæj- anna og heimsóknir næstum dag- lega. Margt var brallað í Hlíðar- holti og oft á meðan amma hlóð kræsingum á matarborðið lagðist afi á gólfið og lék við okkur. Við fengum oft að laumast í kexskúff- una sem var í uppáhaldi hjá okkur krökkunum, hún var alltaf full af alls konar spennandi góðgæti. Amma passaði alltaf upp á að við borðuðum nóg og bætti óspart á diskana okkar. Amma átti gamlan plötuspilara og við spurðum oft hvort við mættum fá að hlusta á Halla og Ladda af gamalli vínil- plötu og þá var dansað og sungið hástöfum með, alltaf sama lagið. Við fórum oft með ömmu í Búða- kirkju, þar var hennar annað heimili á sumrin. Hún hafði svo gaman af að sýna fólki kirkjuna, enda var hún svo stolt af henni og þótti svo vænt um hana. Það var alltaf skemmtilegt þegar fór að vora og afi og amma komu til að setja kartöflur niður í garðinn sem var í Skaflakoti. Í sauðburðinum fórum við líka oft að hjálpa þeim að marka og sleppa út lömbunum. Við áttum margar góðar stundir saman. Amma var dugnaðarkona og iðin við að prjóna og sá til þess að okkur vantaði aldrei sokka, vettlinga og húfur. Við barnabörn- in munum örugglega öll eftir kluk- kuprjónuðu lambhúshettunum og engar tvær eins á litinn. Þær voru óslítandi en bæði vinsælar og mik- ið notaðar. En núna eru prjónarn- ir hennar ömmu þagnaðir. Við vorum heppin að eiga svona frá- bæra ömmu sem við umgengumst mikið og getum yljað okkur við góðar og skemmtilegar minning- ar. Hvíldu í friði, elsku amma. Solveig Björk, Vigfús Þrá- inn, Guðmundur Grétar og Elísabet Ýr. Nú þegar amma okkar hefur kvatt í hinsta sinn eru þær margar minningarnar sem leita á hugann. Við systkinin vorum þeirrar gæfu aðnjótandi að vera mikið hjá ömmu og afa í Hlíðarholti. Já, það er vart hægt annað en að nefna þau bæði svo samstíga voru þau í öllu sem þau tóku sér fyrir hendur á lífsleiðinni. Amma í sveitinni, eins og við köllum hana alltaf, var elsta systirin í stórum systkina- hópi frá Hrísdal. Þar þurfti hún ung að taka ábyrgð og aðstoða á heimilinu og segja má að henni hafi verið í blóð borin sú röggsemi sem alltaf hefur einkennt hana. Þau amma og afi voru mikið dugnaðarfólk og sinntu búinu sínu vel en voru jafnframt mjög virk í félagsmálum og voru því allar stundir vel nýttar. Oft dvöldum við vikum saman hjá ömmu og afa og fékk maður verk- efni við hæfi, oft á tíðum það sama og fullorðna fólkið. Lærðum við að vinna hvort sem það var að sinna búfénu, heyskap, matargerð eða þrifum. Alltaf var gestkvæmt í Hlíðarholti og allir voru velkomn- ir, amma stóð vaktina og ávallt svignuðu borðin undan veitingum. Sem dæmi um það má nefna rétt- ardagsveislurnar hennar sem stóðu frá hádegi fram á nótt og sviðakjammar voru soðnir í stórum þvottapotti svo nóg væri til fyrir alla sem ráku inn nefið. Þær eru líka minnisstæðar versl- unarferðirnar í Stykkishólm þar sem maður hossaðist á milli þeirra ömmu og afa í framsætinu á Land Rovernum. Þá fór afi til að hitta frændur sína sem stýrðu slátur- húsinu en amma fór til að versla í Hólmkjör út í reikning og Land Roverinn gjörsamlega fylltur af mat og öðrum nauðsynjum. Oft græddum við á þessum stórkaup- um hennar ömmu og fengum sæl- gæti í poka frá þeim frændum okkar í Hólmkjör. Amma var virk í félagsmálum og lét hún heimilið og búskapinn ekki aftra sér frá þátttöku og var því dugleg að vinna sér í haginn. Hún var einnig mikil hannyrða- kona og var hún alltaf með eitt- hvað á prjónunum, það var ætíð nóg til í prjónakistunni hennar og ósjaldan var maður leystur út með sokka eða vettlingapari eftir heimsókn til ömmu. Já, það er margs að minnast en upp úr stendur að hjá þeim ömmu og afa var ekkert kynslóðabil hvort sem var í leik eða starfi. Hin síðari ár eftir að amma varð ein og afkom- endurnir fluttust sumir í burtu hefur stórfjölskyldan verið dugleg að hittast í „sveitinni“ og eiga saman góðar stundir, þessar ferð- ir eru gullkorn sem börnin okkar munu geyma alla tíð. Þessar stundir voru ömmu líka mjög ánægjulegar því henni þótti alltaf best að hafa hópinn sinn hjá sér. En nú er komið að kveðjustund og þegar maður eldist og þroskast skilst betur hversu dýrmætt það var að hafa fengið að vera hjá þeim ömmu og afa og munum við búa alla tíð að því sem þau kenndu okkur. Við kveðjum því elsku ömmu okkar með þessum orðum og biðjum góðan guð að gæta hennar. Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð hjartans þakkir fyrir liðna tíð lifðu sæl á ljóssins friðarströnd leiði sjálfur Drottinn þig um hönd (Guðrún Jóhannsdóttir) Kristjana Elísabet, Vilborg, Jón Þór og fjölskyldur. Þá er hún Kristjana amma okk- ar fallin frá, eða amma í sveitinni eins og við kölluðum hana alltaf. Við systkinin nutum þess að heimsækja ömmu í sveitina. Alltaf var hægt að finna sér eitthvað skemmtilegt að gera, jafnvel æv- intýralegt, og frábrugðið því sem við kaupstaðarbörnin vorum vön. Sérstaklega hlakkaði Þráinn til að fá nýbakaða skúffuköku og mjólk sem amma passaði upp á að væri alltaf á boðstólum þegar við kom- um í heimsókn. Einnig var til- hlökkunin mikil þegar amma og afi komu í heimsókn til Sauðár- króks. Þegar ég hugsa um hana ömmu kemur oft upp minningin þegar ég, tíu ára stelpuskott, heimsótti hana í sveitina, ein í nokkra sum- ardaga. Ég er ekki frá því að hafa fullorðnast um nokkur ár þennan stutta tíma. Ein af mörgum minningum er þegar við fórum út að borða á Hót- el Búðum, amma á nýja græna Subarunum, þar sem ég, eins og fín frú, pantaði mér snigla í fyrsta skiptið. Við eyddum heilum degi niðri í Búðakirkju þar sem amma var að taka á móti ferðamönnum og sýna kirkjuna. Eins og vana- lega talaði hún íslensku við ferða- mennina og þeir útlensku við hana á móti og allir voru glaðir. Elsku amma, veikindin stóðu stutt yfir. Við erum þakklát fyrir stundina sem við áttum saman í Hlíðarholti um páskana síðustu. Ekki síst erum við þakklát fyrir að hafa fengið að hitta þig á Land- spítalanum þegar þú veiktist og þó að þú værir mjög veik, og ættir erfitt með að tjá þig, gastu alla- vega sagt okkur systkinunum skýrt hvað við ættum að kjósa og hvað ekki. Elsku amma okkar, takk fyrir allt sem þú hefur gefið okkur í gegnum tíðina. Afi tekur vel á móti þér. Hvíldu í friði. Þráinn Freyr og Margrét Guðný. Látin er elskuleg systir mín, Kristjana Elísabet Sigurðardótt- ir. Hún var fjórða í röðinni af okk- ur systkinunum í Hrísdal en alls vorum við ellefu talsins börn hjónanna í Hrísdal, þeirra Mar- grétar og Sigurðar. Ég var tíu árum yngri en Krist- jana og þegar ég man fyrst eftir mér þá var hún þegar orðin hjálp- arhella á heimilinu, eins og hún var reyndar alla tíð. Heimilið var mannmargt og því oft þröngt á þingi í gamla bænum í Hrísdal þar sem fæði og skæði voru að stórum hluta unnin heimavið að hætti þess tíma. Það er svo ótal margt sem rifj- ast upp úr djúpi minninganna á svona stundum sem ekki er hægt að koma öllu á blað. Til dæmis minnist ég þess þegar þið Þráinn byrjuðuð að búa og eignuðust ykkar fyrsta barn, Þá var ég hjá ykkur um sumarið sem einskonar liðléttingur. Það sumar var mér lærdómsríkt og góð reynsla þar sem ég hafði aldrei verið svona lengi að heiman. Þá var gott að eiga góða að. Þegar ég þurfti að fara á sjúkrahús voru þau hjónin svo elskuleg að hlaupa undir bagga með því að taka Hauk til sín í sveitina í nokkrar vikur, en það varð upphafið að nokkurra sumra sveitadvöl. Hann var ekki einn systkinanna til að njóta góðs af dvöl í Hlíðarholti. Ólöfu langaði til að upplifa ævintýrið að vera í sveit og var hún part af sumri hjá þeim í sveitinni. Þetta var þeim báðum góð reynsla í leik og starfi. Á sama hátt var öll fjölskylda okkar ætíð velkomin hjá frænd- fólkinu í Hlíðarholti sem við erum bundin ævarandi tryggð og vin- áttu. Hún Kristjana var afburða verkmanneskja, samviskusöm og raunsæ. Hún var félagslynd og fylgdist vel með og lagði ætíð góð- um málum lið. Jafnframt því minnumst við þess hvað hún var glaðvær og hláturmild og sá spaugilegu hliðina á amstri dag- anna. Þú ert því kært kvödd af fjöl- skyldu okkar með hjartans þökk fyrir allt sem þú varst í lífi þínu. Blessuð sé minning Kristjönu Sigurðardóttur. Lena og Oddur. Elsta móðursystir mín er látin; nýorðin 89 ára. Móðir mín Áslaug og Kristjana giftu sig saman 9. júní 1946 og við þá athöfn var ég skírð. Haldið var mikið brúkaup að Hofstöðum þar sem veislan stóð lengi. Makar þeirra Svein- björn og Þráinn Vigfús voru báðir úr Staðarsveit. Mikil átthaga- tengsl til beggja sveitanna voru þessu fólki í blóð borin. Kristjana og Þráinn hófu búskap í Böðvars- holti en foreldrar mínir fluttu suð- ur. Það breytti engu um sterk tengsl þessara fjölskyldna því móðir mín kom að vinna á Vega- mótum nokkur sumur og faðir minn kom í sínum fríum til að heyja bæði hjá tengdaföður sínum og einnig út í Staðarsveit hjá móð- ur sinni og víðar ef þurfti. Sam- gangur milli heimilanna var því í því horfi sem samgöngur leyfðu á þessum árum. Að því kom að ég fékk að fara í sveit til móðursystur minnar í tvö sumur, þá 11 og 12 ára. Þessi tími er í minningunni mjög merkilegur og margs að minnst. Þau Kristjana og Þráinn höfðu þá myndað nýbýli sem fékk nafnið Hlíðarholt. Þau reistu sér hús og var þar ávallt gestkvæmt enda þau bæði samhent um að taka vel á móti vinum og ættingj- um. Þarna voru þau með kúabú og töluvert af fé auk hænsna sem voru óþekkar og vildu liggja á eggjum. Þá tíndust þær í hlöðunni og földu sig vel. Þetta var eitt æv- intýranna okkar krakkanna að leita að þessum prökkurum. Svo var nú stuð þegar Þórður á Dag- verðará kom með tófuskottin og sagði okkur tröllasögur af fjöllum en var svo líka með yrðlinga í poka sem hann gaf okkur krökkunum. Smíðaðir voru kofar fyrir þá og þess gætt að þeir slyppu ekki en það kom þó fyrir. Mér fundust þeir fallegir. Kristjana mín mjólk- aði kýrnar sínar og var það þessi helgistund sem hefur fylgt mínu fólki að gott sé að eiga sér góða kú! Þau hjónin voru mjög ákveðin á pólitískum vettvangi og hefur þingmaður Snæfellinga Gunnar Thoroddsen örugglega haft þar mikil áhrif í anda ungmenna- félagshreyfinga þess tíma. Krist- jana var afar virk í félagsmálum í Staðarsveit og lauk því með að hafa umsjón með Búðakirkju allt til 80 ára aldurs. Ég naut þess að koma með hóp til hennar í kirkj- una þar sem hún sagði okkur sögu hennar. Það sem er mér og minni fjölskyldu minnisstæðast og okk- ur kært er það góða og farsæla samband sem foreldrar mínir og þau höfðingshjón Kristjana og Þráinn áttu út lífið. Mér eru marg- ar ferðir þeirra vestur minnis- stæðar og hversu þau komu glöð til baka, kannski búin að fara á sjó með Rikka út í Ólafsvík og gera að aflanum hjá Kristjönu. Það átti nú vel við hann föður minn. Þær syst- ur voru miklir mátar og fór t.d. móðir mín í Borgarnes á móti systur sinni þegar hún átti von á honum Fúsa sínum. Báðar svo gjafmildar á sína gestrisni og hjálpsemi. Að lokum komst faðir minn vestur til að kveðja sveitina sína og Kristjönu viku fyrir andlát sitt en að því hafði hann stefnt svo hann gæti farið sáttur. Við hjónin komum til móðursystur minnar með hópinn okkar árið 2007 en þá vorum við í skoðunarferð um ræt- ur mínar og foreldra minna og því var það partur af okkar ferð að koma til Kristjönu. Hafðu þökk fyrir alla samveru. Þórunn Sveinbjörnsdóttir. Ég varð þeirrar gæfu aðnjót- andi að dvelja sem drengur nokk- ur sumur hjá þeim Kristjönu, móðursystur minni, og Þráni manni hennar í Hlíðarholti. Þetta voru sumrin þegar Kristján Eld- járn varð forseti, fyrsti maðurinn fór til tunglsins og félagsheimilið á Lýsuhóli var „klárað“. Það verkaðist þannig að ég var sendur í sveit alla leið frá Ísafirði til frænku minnar á Snæfellsnesi, þar sem bjó allt öðruvísi fólk en heima. Það var góðæri í sveitinni. Mikil uppbygging, nýrækt, glænýir traktorar, endalaus skurðgröftur og nýjar girðingar upp um allar hlíðar. Krakkaskari á öllum bæjum. Hlíðarholt og Böðvarsholt voru þar engin und- antekning. Fjórir strákar í Böðv- arsholti og þrír strákar í Hlíðar- holti auk mín. Þannig var stemmingin þegar ég dvaldi í Hlíðarholti hjá Kristjönu frænku. Þetta var góður tími og minnis- stæður. Það skorti ekkert á agann á börnunum. Kristjana var ströng og hélt hlutunum í röð og reglu en um leið var hún ljúf og fyrirgaf flestar yfirsjónir. Mér er það sér- staklega minnisstætt þegar við strákarnir vorum við einhverjar tilraunir í bílskúr þeirra bræðra Þráins og Gunnars á meðan hjón- in brugðu sér til Ólafsvíkur. Eitt- hvað fipaðist okkur svo að neisti hljóp í bensínbrúsa og skipti eng- um togum að skúrarnir og allt sem í þeim var brann til ösku. Máttum við þakka fyrir að ekki fór verr. Við hlökkuðum ekki mikið til þeirrar stundar að þau hjónin snéru heim og sátum hnípnir und- ir vegg, reyttum gras og bjugg- umst við hinu versta. Ég get ekki Kristjana Elísabet Sigurðardóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.