Morgunblaðið - 11.05.2013, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 11.05.2013, Blaðsíða 45
MINNINGAR 45 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MAÍ 2013 ✝ Gísli SölviJónsson fædd- ist á Sléttu í Sléttu- hreppi 8. janúar 1937. Hann lést á Fjórðungssjúkra- húsinu á Ísafirði 28. apríl 2013. Foreldrar Gísla voru Jón Guðnason, f. 18. desember 1889, d. 29. júní 1968, og María Em- ilía Albertsdóttir, f. 16. febrúar 1911, d. 23. febrúar 1989. Systkini Gísla eru Guðni f. 1931, látinn, Hulda, f. 1933, Hanna, f. 1935, Hermann, f. 1940, og Ingvi, f. 1943, látinn. Hinn 19. september 1959 kvæntist Gísli eftirlifandi eig- inkonu sinni, Soffíu Margréti Skarphéðinsdóttur, f. 17. júní 1938. Hún er dóttir hjónanna Skarphéðins Njálssonar, f. 29.3. 1899, d. 3.2. 1995, og Steinvarar flutti þá til Ísafjarðar með fjöl- skyldu sinni. Eftir gagnfræða- skóla stundaði hann sjómennsku frá Ísafirði. Árið 1961 flutti hann með fjölskyldu sína að Kirkjubóli við Skutulsfjörð og hóf þar búskap, fyrst í stað í fé- lagi við tengdaforeldra sína. Ár- ið 1972 brá fjölskyldan búi og flutti á Ísafjörð, Gísli hóf þá störf hjá Hraðfrystihúsinu Norðurtanga hf. og starfaði þar sem verkstjóri til ársins 2000. Frá þeim tíma, eins og starfs- kraftar hans leyfðu, vann hann að ýmsum útgerðarstörfum með Skarphéðni syni sínum. Sveitin átti alltaf hug og hjarta Gísla og hafði hann yndi af fé, kindum og fallegum fengilegum hrútum, uppáhaldstíminn hans var á vor- in þegar sauðburður nálgaðist. Hann átti alla tíð nokkrar kind- ur sér til ánægju og eyddi öllum sínum frítíma í að hugsa um þær og skipuðu þær sérstakan sess í lífi hans. Útför Gísla Sölva fer fram frá Ísafjarðarkirkju í dag, 11. maí 2013, og hefst athöfnin kl. 14. Ingibjargar Gísla- dóttur, f. 14.7. 1920, d. 6.2. 1989. Börn Gísla Sölva og Soffíu Mar- grétar eru: 1) Skarphéðinn, f. 1957, giftur Ey- rúnu Leifsdóttur, f. 1954. 2) Sölvi Magnús, f. 1959, fráskilinn. 3) Stein- vör Ingibjörg, f. 1960, gift Stefáni Guðjónssyni, f. 1952. 4) Jón Finnbogi, f. 1963, giftur Erlu Bryndísi Kristjáns- dóttur, f. 1968. 5) Veigar Sig- urður, f. 1964, giftur Suchödu Dísu Gíslason, f. 1963. 6) Njáll Flóki, f. 1974, giftur Magneu Ingibjörgu Hafsteinsdóttur, f. 1977. 7) Dóttir, f. 1967, andvana. Barnabörnin eru ellefu og barnabarnabörnin eru fjögur. Gísli ólst upp á Sléttu í Sléttu- hreppi til ellefu ára aldurs og Mér tregt er um orð til að þakka þér, hvað þú hefur alla tíð verið mér. Í munann fram myndir streyma. Hver einasta minning er björt og blíð, og bros þitt mun fylgja mér alla tíð, unz hittumst við aftur heima. Ó, elsku pabbi, ég enn þá er aðeins barn, sem vill fylgja þér. Þú heldur í höndina mína. Til starfanna gekkstu með glaðri lund, þú gleymdir ei skyldunum eina stund, að annast um ástvini þína. Þú farinn ert þangað á undan inn. Á eftir komum við, pabbi minn. Það huggar á harmastundum. Þótt hjörtun titri af trega og þrá, við trúum, að þig við hittum þá í alsælu á grónum grundum. Þú þreyttur varst orðinn og þrekið smátt, um þrautir og baráttu ræddir fátt og kveiðst ekki komandi degi. (Hugrún) Skarphéðinn, Sölvi, Steinvör, Jón, Veigar og Njáll. Gísli Jónsson er látinn. Ég kynntist Gísla ungum þegar for- eldrar hans Jón Guðnason og Emelía Albertsdóttir fluttu til Ísa- fjarðar frá Sléttu í Jökulfjörðum árið l947. Þau keyptu smábýli á Ísafirði, þar sem var túnblettur og gripahús. Þau höfðu haft með sér búfénað frá Sléttu. Ég man sér- staklega þegar Gísli kom í fyrstu göngur, hann var svo glaður að vera með. Við Gísli giftumst systr- um, Þórleifu og Soffíu, foreldrar þeirra Skarphéðinn Njálsson og Steinvör Gísladóttir voru nýlega flutt frá Krossnesi í Árneshreppi í Strandasýslu að Kirkjubóli í Skut- ulsfirði. Við Gísli hófum byggingu tveggja íbúðarhúsa við Selja- landsveg á lóðum sem Ísafjarðar- bær hafði keypt af föður Gísla og keyptum saman vörubíl, ókum öllu byggingarefni sjálfir og unn- um mikið saman við smíði húsanna. Gísli var snemma sjálfur með kindur, það var alla tíð hans uppáhalds-„hobbý“. Þegar tengdaforeldrar okkar hættu bú- skap, tóku Gísli og Soffía dóttir þeirra við búskap á Kirkjubóli og bjuggu þar í mörg ár. Gísli fór síð- an í sjómennsku og varð svo verk- stjóri hjá Hraðfrystihúsinu Norð- urtanga. Þegar togarinn Egill rauði strandaði undir Grænuhlíð í Ísafjarðardjúpi 26. jan. l955, var Gísli Jónsson, þá l7 ára, leiðsögu- maður björgunarsveitarinnar frá Hesteyri að Sléttu og strandstað. Þetta var mikil svaðilför, en tókst vel. Gísli Jónsson var sæmdur af- reksverðlaunum sjómannnadags- ins l955. Snemma á þessu ári varð ljóst í hvað stefndi með heilsu Gísla, en hann missti aldrei kjark- inn. Ég hitti Gísla á sjúkrahúsinu daginn sem hann lagðist inn. Hann talaði um væntanlegan sauðburð, sem hann langaði að vera við. Hann lést daginn eftir, 28. apríl. Við vottum Soffíu, börn- um þeirra og fjölskyldum og systkinum Gísla innilega samúð. Konráð Jakobsson og Þórleif. Ég treysti þér máttuga mold. Ég er maður sem gekk út að sá. Ég valdi mér nótt, ég valdi mér logn þegar vor yfir dalnum lá. Haginn er ennþá hvítur, en heimatúnin græn. Grundirnar anga, gróðurinn angar til guðs í hljóðri bæn. Ég fyllist fögnuði vorsins og friðarins milda blæ. (Guðmundur Ingi Kristjánsson.) Ég vil minnast Gísla Jónssonar í nokkrum orðum. Gísli var giftur föðursystur minni Soffíu og var mikill samgangur milli heimila meðan foreldrar mínir bjuggu á Ísafirði. Þau Fía og Gísli bjuggu í félagsbúi við ömmu og afa á Kirkjubóli í Skutulsfirði, og eftir að gömlu hjónin fluttu út á Ísa- fjörð bjuggu Fía og Gísli þar ein í nokkur ár. Gísli var mjög um- hyggjusamur maður og frænd- rækinn. Það leið ekki sá dagur að hann heimsótti ekki Steinu ömmu og Skarphéðin afa í Fjarðarstræti 39. Í bernsku ávarpaði ég Gísla Jónsson alltaf með fullu nafni, lík- lega í virðingarskyni, enda fannst mér hann merkilegur maður sem átti í kofa bæði hrúta, lömb og fal- legar ær og í nágrannakofanum bjuggu sniðugar gæsir. Það er óhætt að segja að hann hafi haft veðraðan skráp og gat hann stundum verið stuttur í spuna. Undir niðri var Gísli ljúfur og hlýr, afar bóngóður og tilfinninga- næmur þegar þess þurfti. Hann bar mikinn kærleik til æskuslóð- anna á Sléttu en einnig til Árnes- hrepps, hvar hann sótti helst kynbótafé í litla fjárstofninn sinn og naut þess að dvelja í sumarhúsi hans og Fíu á æskuslóðum hennar á Krossnesi. Barnabörnin þeirra voru ákaflega hænd að afa sínum, enda var hann mjög stoltur af þeim öllum. Hann var ófeiminn við að tíunda afrekin þeirra og hélt góðu sambandi við þau sem bjuggu langt í burtu. Fyrir hönd foreldra minna og systkina votta ég Fíu og fjölskyldu innilega sam- úð okkar – við kveðjum Gísla Jónsson með trega. Blessuð sé minning hans. Sigríður Gísladóttir. Grænahlíð er sæbrött hamra- hlíð, yzt við Ísafjarðardjúp og nær allt frá Rit til Staðarskarða. Teisti er beint framhald hennar, en inn- ar tekur við allmikið undirlendi og verður þar allt víðara og grasi gróið. Þar er bærinn Slétta, sem Sléttuhreppur dregur nafn sitt af, skammt utan við mynni Jökul- fjarða. Þarna var bernskusveit Gísla Jónssonar, sem nú hefir lok- ið lífsgöngu sinni eftir langvarandi veikindi. Þar höfðu forfeður hans búið allt frá árinu 1887, sótt þar sjó og yrkt jörðina. Gísli fluttist með foreldrum sín- um til Ísafjarðar tíu ára gamall. Hann varð fljótlega þekktur með- al félaga sinna sem Gísli í Strýtu, kenndur við æskuheimili sitt, eins og þá var títt. Hann var strax í æsku annálaður kappsmaður, vinnuþjarkur, eins og hann átti kyn til. Vinnusemi var lífsins mesta dyggð í huga hans. Nánast allir mannlegir brestir voru fyr- irgefanlegir, ef eljusemi var fyrir hendi. Sjálfur vann hann alla tíð langan vinnudag. Hann var lengst af með fjárbúskap og sinnti gegn- ingum fyrir og eftir vinnu. Þegar Gísli var sautján ára gamall vakti hann athygli alþjóðar fyrir dugnað sinn. Þann 26. janúar 1955 strandaði togarinn Egill rauði við Grænuhlíð í foráttu- brimi. Björgun skipverja af sjó var talin óframkvæmanleg við þær erfiðu aðstæður, sem voru á strandstað, þegar skipið strand- aði. Björgunarsveit frá Ísafirði fór þá um nóttina norður undir leið- sögn Gísla. Ekki var lendandi í nánd við strandstaðinn. Gengu björgunarmenn um nóttina í mik- illi ófærð frá Hesteyri að strand- staðnum. 29 skipverjum af Agli rauða var bjargað við hinar erf- iðustu aðstæður, var 13 bjargað af sjó, en 16 frá landi. Það var sam- dóma álit að björgunarsveitirnar hefðu sýnt fádæma dirfsku og þrek við erfiðar aðstæður. Fyrir þetta hlaut Gísli afreksverðlaun sjómannadagsins „fyrir frábæran dugnað og jafnframt sem tákn allra þeirra miklu hetjudáða, sem þar voru unnin“. Ungur að árum hóf hann bú- skap á Kirkjubóli í Skutulsfirði, en fluttist síðan aftur til Ísafjarðar. Lengst af starfaði hann sem verk- stjóri hjá Norðurtanganum, þar sem hann sá um löndum og salt- fiskverkun félagsins. Hann kom vel að sér fólki og var alla tíð hjúa- sæll. Hann stóð ævinlega vörð um lítilmagnann, hvort sem voru börn eða fullorðnir, því að hann hafði einstakt hjartalag. Á löngum starfsferli hafði hann öðlazt mikla starfsreynslu og fagþekkingu og naut þess að leiðbeina unglingum, sem voru að koma á vinnumark- aðinn. Hann var mikill fyrirtæk- ismaður, samvizkusamur með af- brigðum og bar gott skynbragð á mikilvægi öflugs atvinnurekstrar fyrir samfélagið. Að leiðarlokum er mér ljúft að þakka Gísla Jónssyni einstaklega ánægjulegt samstarf og samvinnu um langt árabil. Eftir lifir minn- ingin um traustan og heilsteyptan mann, minning sem mér þykir vænt um. Aðstandendum hans öll- um sendi ég einlægar samúðar- kveðjur. Jón Páll Halldórsson. Gísli Sölvi Jónsson ÚTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is útfararstjóri útfararþjónusta Önnumst alla þætti útfararinnar Þegar andlát ber að höndum Arnór L. Pálsson framkvæmdastjóri Ísleifur Jónsson Frímann Andrésson útfararþjónusta Jón Bjarnason útfararþjónusta Hugrún Jónsdóttir uðmundur Baldvinsson útfararþjónusta G Þorsteinn Elíasson útfararþjónusta Ellert Ingason útfararþjónusta REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST ✝ Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur stuðning og samúð við andlát og útför eigin- manns míns, sonar míns, föður okkar, afa, bróður og mágs, ÓSKARS JÓHANNS BJÖRNSSONAR blikksmíðameistara, Lóurima 14, Selfossi. Sérstakar þakkir til stjórnenda og starfsfólks Stjörnublikks og starfsfólks Vallaskóla á Selfossi fyrir ómetanlegan stuðning og aðstoð. Guð geymi ykkur öll. Sigríður Haraldsdóttir, Björn Jóhann Óskarsson, Aðalbjörg Katrín Óskarsdóttir, Hákon Daði Hreinsson, Erna Karen Óskarsdóttir, Bjarki Rafn Kristjánsson, Jóhanna Ósk Óskarsdóttir, afastrákarnir, Guðlaugur Gunnar Björnsson, Elsa Birna Björnsdóttir, Guðmunda Rut Björnsdóttir, Pétur R. Gunnarsson, Sigurður Guðni Björnsson, Lilja G. Viðarsdóttir. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýju við andlát og útför okkar ástkæra ÁRNA ST. HERMANNSSONAR, lengst af búandi í Þorlákshöfn. Ingibjörg Kristjánsdóttir, Jóhanna Lára Árnadóttir, Ólafur Lárus Baldursson, Magnea Ásdís Árnadóttir, Ólafur Árnason, Sigurlaug Árnadóttir, Árni Jón Eyþórsson, Hermann Valur Árnason, Jón Ingi Árnason, Þórunn Árnadóttir, Sveinbjörn Guðmundsson og aðrir aðstandendur. ✝ Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför JÓHANNS VÍKINGSSONAR. Guðný K. Óladóttir, Sigurborg Skúladóttir, Guðrún Lovísa Víkingsdóttir, Viðar Vésteinsson, Skúli Víkingsson, Ingibjörg Kaldal, Halldór Víkingsson, Ingvar Víkingsson. ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs föður, tengdaföður, afa og langafa, HALLGRÍMS MATTHÍASSONAR fyrrverandi kaupmanns á Patreksfirði, Lækjasmára 4, Kópavogi. Sérstakar þakkir fá Halla Skúladóttir, starfsfólk 11E, Landspítala og heimahjúkrun Karitas, fyrir þeirra hlýju og umönnun. Guð blessi ykkur. Hrafnhildur Guðjónsdóttir, Guðjón Hallgrímsson, Davíð J. Hallgrímsson, Sesselja Sigurðardóttir, María M. Hallgrímsdóttir, Tómas Eyjólfsson, Pétur St. Hallgrímsson, Eygló Tryggvadóttir, Arna Hallgrímsdóttir Sæten, Magnar Sæten, Guðmundur Kr. Hallgrímsson, Sigurrós B. Björnsdóttir, Hallgrímur Hallgrímsson, Majken Hallgrímsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Þökkum ættingjum og vinum innilega fyrir auðsýnda samúð og hlýju við andlát og útför okkar hjartkæru SIGRÍÐAR ÓSKAR GEIRSDÓTTUR, Hátúni 12, Reykjavík. Signý Þ. Óskarsdóttir, Þorkell G. Geirsson, Egill Þorkelsson, Agnes Þorkelsdóttir, Jón Eiríksson. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og útför ÞÓRÐAR PÉTURSSONAR húsasmíðameistara frá Hafnardal. Sérstakar þakkir til starfsfólks öldrunar- deildar Sjúkrahússins á Ísafirði og heima- hjúkrunar á Hlíf fyrir góða umönnun. Hilmar Friðrik Þórðarson, Guðmunda Brynjólfsdóttir, Pétur Sigurður Þórðarson, Kristín Gunnlaugsdóttir, Níels Jón Þórðarson, Finnur Guðni Þórðarson, Aðalheiður María Þráinsdóttir, Áslaug Jóhanna Jensdóttir, Magnús Helgi Alfreðsson og fjölskyldur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.