Morgunblaðið - 11.05.2013, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 11.05.2013, Blaðsíða 56
56 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MAÍ 2013 Eitt af því sem ég kann aðmeta við Bubba Mort-hens er að hann skilurhvað felst í því að vera listamaður. Hann skilur að þetta hefur með virkni að gera, að vera að, frekar en að sitja aðgerðalaus úti í horni og draga upp stórkostlegar áætlanir um eitthvað sem aldrei verður. Bubbi minnir mig að þessu leytinu til á Woody Allen sem dælir út kvikmyndum af miklum móð, mis- góðum svo sannarlega en það sem einkennir hann er að hann er lifandi listamaður, með eitthvert fjör í gangi. Þessir menn eru því óhjá- kvæmilega mistækir, með öðrum orðum mannlegir, og í því einu og sér liggur fegurð. Styrkur Bubba sem listamaður – allan þennan ótrú- lega feril – kristallast nefnilega í þessu. Hann þorir að láta vaða, hvað sem svo verður. Stormurinn er fjórða platan sem Bubbi vinnur með þeim Benz- inbræðrum, Berki og Daða (sú þriðja, jólaplata, átti að koma út um síðustu jól en var frestað um ár). Þetta hefur verið afskaplega vel lán- uð vegferð en þessi varða er hiklaust sú myndarlegasta til þessa. Það hef- ur verið mikill og góður andi yfir samstarfi tríósins og viss stígandi í því. Tilraunir Bubba með sálar- tónlist á fyrstu „bræðraplötunni“, Ég trúi á þig (2011), voru t.d. upp og ofan og Þorpið (2012), þrátt fyrir mjög svo sterka hljóðmynd og gott „flæði“, er dálítið köflótt hvað gæði lagasmíða varðar. Stormurinn er aftur á móti merki- lega heilsteypt verk. Þrátt fyrir að vera fimmtán laga og yfir klukku- stund á lengd rúllar hún fumlaust áfram. Undirspil allt er naum- hyggjulegt og einfalt, gítarleikur að mestu og stöku áhrifshljóð þegar við á. Þetta styður við heildarmyndina, því að þrátt fyrir að lögin séu ólík innbyrðis eru þau öll bundin saman sterkum þræði sem Bubbi og bræð- urnir eru farnir að spinna meist- aralega. Platan byrjar með „Allt var það krónunni að kenna“ þar sem heyra má þetta einstaka gítarplokk eða -pikk Bubba sem hann skilar af miklu listfengi. Lagið er stutt, snarpt og pólitískt en ádrepur um eldfim mál einkenna plötuna nokk- uð. „Ég sakna þess að unga fólkið skuli ekki fjalla meira um samtím- ann og maður hefði kannski haldið, eftir svona ástand eins og hrunið, að allt myndi fyllast hér af trúbadorum með beitt sverð og nýjan skjöld en það er ekki að gerast,“ sagði Bubbi í viðtali við Helga Snæ Sigurðsson í Morgunblaðinu nú á miðvikudaginn og þessi rýnir deilir þessari furðu hans. Bubbi lýsir því þá yfir á bloggi sínu fyrir Pressuna 20. mars síðast- liðinn að: „Fyrir mér er tónlistar- maðurinn eða -konan í raun skæru- liði sem liggur í leyni, tilbúinn að skjóta þig í hausinn með hárbeittum nótum og orðum sem vekja þig, hræða, gleðja og fá þig til að sjá hluti sem þú sást ekki og heyrðir ekki.“ Á þessum nótum er að finna nokkra, já nokkra, bálka eða sögu- ljóð þar sem Bubbi myndast við að skjóta okkur í hausinn. Kirkjan fær t.a.m. sínar gusur í samnefndu lagi sem er tæpar átta mínútur. „Skort- ur á ljósi var alltaf kirkjunnar styrk- ur,“ segir Bubbi, beittur vel og hnit- miðaður. Titillag plötunnar, „Stormurinn“, hefur þá Guðmundar- og Geirfinnsmálið að umfjöllunar- efni; virkilega sterkt lag, drungalegt og napurt: „Nakin og staurblind á báðum, gyðja réttlætis reyndist fá skell,“ segir þar. „Tíðindalaust af vesturvígstöðvunum“ fjallar um hrikaleik fíkniefna en rosalegasti bálkurinn – og besta lag plötunnar – er hið tæplega átta mínútna langa „Hoggið í stein“. Þar fara menn út fyrir þægindarammann; það kraum- ar og ólgar undir framvindunni sem einkennist af ágengum kassagít- arleik og ýlfrandi rafgíturum. Lagið skríður rólyndislega áfram en á ógn- andi hátt engu að síður. Mjög áhrifa- ríkt og það rennur kalt vatn milli skinns og hörunds meðan það varir. Glæsilegt! Sagnabálkar eftir Dylan eins og „The Lonesome Death of Hattie Carroll“ og „Desolation Row“ koma óneitanlega upp í hug- ann og söngrödd og túlkun Bubba hreyfir við manni, hann er ástríðu- fullur og einlægur sem aldrei fyrr. Bubbi nýtir ekki bara bálkana undir þessar „kýlis-stungur“, „Best er bara að þegja“ er snoturt lag sem fjallar um heimilisofbeldi og ljúf áferðin gerir það áhrifaríkara en ella: „Þú finnur bara kolamola þar sem hjartað var/Best er bara að þegja.“ En þetta er ekki eintómt svartnætti, hér er pláss fyrir bæði ljós og skugga. Hið gítarplokkandi „Lipurtá“ er í björtum, amerískum þjóðlagagír, „Ruggaðu mér í svefn“ er í dæmigerðum blúsgangi og „Af- mælið“ er „tex-mex“ gjörningur að hætti Los Lobos. „Karlskröggur“ er evrópskara, Brel-áhrif og skandin- avísk vísnatónlist í einni hræru. Plötunni er þá lokað með nokkurs konar útgöngustefi, hinu fallega „Trúðu á ljósið“. Já, púff segir maður bara. Það er mikið í gangi inni í Storminum, segja má að platan beri þannig nafn með rentu. En það er vigt í henni sem verður ekki fengin með öðru en aldri og reynslu. Það leikur öryggi og æðruleysi um hana sem maður heyrir t.d. á nýjustu plötum Leon- ards Cohens eða plötunum sem Cash gerði fram í andlátið. Galdur plötunnar liggur í því hversu sönn hún er. Þennan hrein- leika finnur þú einfaldlega í gegnum þá alúð sem lögð hefur verið við hvert og eitt lag, hvort sem um er að ræða tilkomumikla níðþunga bálka eða léttleikandi gítarstemmur. Þú skynjar að aðstandendur vita ná- kvæmlega hvað það er sem þeir vilja fá fram. Frábær plata, eins hnökra- laus og mannlega er unnt. „Það er svo margt sem ég ætla þér að segja“ Morgunblaðið/Einar Falur Æðruleysi „Það leikur öryggi og æðruleysi um hana sem maður heyrir t.d. á nýjustu plötum Leonards Cohens eða plötunum sem Cash gerði fram í andlátið,“ segir m.a. um Storminn, nýjustu breiðskífu Bubba Morthens. Bubbi – Stormurinn bbbbb Bubbi Morthens (söngur, kassagítar, rafgítar, munnharpa), Börkur Birgisson (rafgítar, bakraddir), Daði Birgisson (pí- anó, bakraddir), Valdimar Kolbeinn Sig- urjónsson (kontrabassi), Magnús Ein- arsson (mandólín), Matti Kallio (harmónikka). Lög og textar eftir Bubba fyrir utan textann í „Karlskröggur“ (höfundur ókunnur, þýðing Eva Hauks- dóttir). Börkur og Daði stýrðu upp- tökum, Daði hljóðblandaði og þeir ásamt Bubba útsettu. Hljómjöfnun var í höndum Bobs Katz í Digital Domain, Flórída, Bandaríkjunum. ARNAR EGGERT THORODDSEN TÓNLIST Komdu í bíó! Þú finnur upplýsingar um sýningartíma okkar og miðasölu á www.emiði.is og www.miði.is Stórkostleg ævintýramynd fyrir alla fjölskylduna -bara lúxus sími 553 2075 www.laugarasbio.is ÍSL TAL KEMUR FYRSTA STÓRMYND SUMARSINS FRÁ ÞEIM SEM FÆRÐU OKKUR Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU POWE RSÝN ING KL. 10 :40 - T.K. kvikmyndir.is H.V.A -Fréttablaðið LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar L L 12 12 12 16 STAR TREK 3D Sýnd kl. 5:20 - 8 - 10:40(P) MAMA Sýnd kl. 8 - 10:10 IRON MAN 3 3D Sýnd kl. 2 - 5 - 8 - 10:40 LATIBÆR - BÍÓUPPLIFUN Sýnd kl. 2 - 4 OBLIVION Sýnd kl. 5:30 THE CROODS 3D ÍSL TAL Sýnd kl. 2 Stórmyndin sem tekin var upp á Íslandi -Empire -Hollywood Reporter
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.