Morgunblaðið - 11.05.2013, Blaðsíða 56
56 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MAÍ 2013
Eitt af því sem ég kann aðmeta við Bubba Mort-hens er að hann skilurhvað felst í því að vera
listamaður. Hann skilur að þetta
hefur með virkni að gera, að vera að,
frekar en að sitja aðgerðalaus úti í
horni og draga upp stórkostlegar
áætlanir um eitthvað sem aldrei
verður. Bubbi minnir mig að þessu
leytinu til á Woody Allen sem dælir
út kvikmyndum af miklum móð, mis-
góðum svo sannarlega en það sem
einkennir hann er að hann er lifandi
listamaður, með eitthvert fjör í
gangi. Þessir menn eru því óhjá-
kvæmilega mistækir, með öðrum
orðum mannlegir, og í því einu og
sér liggur fegurð. Styrkur Bubba
sem listamaður – allan þennan ótrú-
lega feril – kristallast nefnilega í
þessu. Hann þorir að láta vaða, hvað
sem svo verður.
Stormurinn er fjórða platan sem
Bubbi vinnur með þeim Benz-
inbræðrum, Berki og Daða (sú
þriðja, jólaplata, átti að koma út um
síðustu jól en var frestað um ár).
Þetta hefur verið afskaplega vel lán-
uð vegferð en þessi varða er hiklaust
sú myndarlegasta
til þessa. Það hef-
ur verið mikill og
góður andi yfir
samstarfi tríósins
og viss stígandi í
því. Tilraunir
Bubba með sálar-
tónlist á fyrstu „bræðraplötunni“,
Ég trúi á þig (2011), voru t.d. upp og
ofan og Þorpið (2012), þrátt fyrir
mjög svo sterka hljóðmynd og gott
„flæði“, er dálítið köflótt hvað gæði
lagasmíða varðar.
Stormurinn er aftur á móti merki-
lega heilsteypt verk. Þrátt fyrir að
vera fimmtán laga og yfir klukku-
stund á lengd rúllar hún fumlaust
áfram. Undirspil allt er naum-
hyggjulegt og einfalt, gítarleikur að
mestu og stöku áhrifshljóð þegar við
á. Þetta styður við heildarmyndina,
því að þrátt fyrir að lögin séu ólík
innbyrðis eru þau öll bundin saman
sterkum þræði sem Bubbi og bræð-
urnir eru farnir að spinna meist-
aralega.
Platan byrjar með „Allt var það
krónunni að kenna“ þar sem heyra
má þetta einstaka gítarplokk eða
-pikk Bubba sem hann skilar af
miklu listfengi. Lagið er stutt,
snarpt og pólitískt en ádrepur um
eldfim mál einkenna plötuna nokk-
uð. „Ég sakna þess að unga fólkið
skuli ekki fjalla meira um samtím-
ann og maður hefði kannski haldið,
eftir svona ástand eins og hrunið, að
allt myndi fyllast hér af trúbadorum
með beitt sverð og nýjan skjöld en
það er ekki að gerast,“ sagði Bubbi í
viðtali við Helga Snæ Sigurðsson í
Morgunblaðinu nú á miðvikudaginn
og þessi rýnir deilir þessari furðu
hans. Bubbi lýsir því þá yfir á bloggi
sínu fyrir Pressuna 20. mars síðast-
liðinn að: „Fyrir mér er tónlistar-
maðurinn eða -konan í raun skæru-
liði sem liggur í leyni, tilbúinn að
skjóta þig í hausinn með hárbeittum
nótum og orðum sem vekja þig,
hræða, gleðja og fá þig til að sjá
hluti sem þú sást ekki og heyrðir
ekki.“
Á þessum nótum er að finna
nokkra, já nokkra, bálka eða sögu-
ljóð þar sem Bubbi myndast við að
skjóta okkur í hausinn. Kirkjan fær
t.a.m. sínar gusur í samnefndu lagi
sem er tæpar átta mínútur. „Skort-
ur á ljósi var alltaf kirkjunnar styrk-
ur,“ segir Bubbi, beittur vel og hnit-
miðaður. Titillag plötunnar,
„Stormurinn“, hefur þá Guðmundar-
og Geirfinnsmálið að umfjöllunar-
efni; virkilega sterkt lag, drungalegt
og napurt: „Nakin og staurblind á
báðum, gyðja réttlætis reyndist fá
skell,“ segir þar. „Tíðindalaust af
vesturvígstöðvunum“ fjallar um
hrikaleik fíkniefna en rosalegasti
bálkurinn – og besta lag plötunnar –
er hið tæplega átta mínútna langa
„Hoggið í stein“. Þar fara menn út
fyrir þægindarammann; það kraum-
ar og ólgar undir framvindunni sem
einkennist af ágengum kassagít-
arleik og ýlfrandi rafgíturum. Lagið
skríður rólyndislega áfram en á ógn-
andi hátt engu að síður. Mjög áhrifa-
ríkt og það rennur kalt vatn milli
skinns og hörunds meðan það varir.
Glæsilegt! Sagnabálkar eftir Dylan
eins og „The Lonesome Death of
Hattie Carroll“ og „Desolation
Row“ koma óneitanlega upp í hug-
ann og söngrödd og túlkun Bubba
hreyfir við manni, hann er ástríðu-
fullur og einlægur sem aldrei fyrr.
Bubbi nýtir ekki bara bálkana
undir þessar „kýlis-stungur“, „Best
er bara að þegja“ er snoturt lag sem
fjallar um heimilisofbeldi og ljúf
áferðin gerir það áhrifaríkara en
ella: „Þú finnur bara kolamola þar
sem hjartað var/Best er bara að
þegja.“ En þetta er ekki eintómt
svartnætti, hér er pláss fyrir bæði
ljós og skugga. Hið gítarplokkandi
„Lipurtá“ er í björtum, amerískum
þjóðlagagír, „Ruggaðu mér í svefn“
er í dæmigerðum blúsgangi og „Af-
mælið“ er „tex-mex“ gjörningur að
hætti Los Lobos. „Karlskröggur“ er
evrópskara, Brel-áhrif og skandin-
avísk vísnatónlist í einni hræru.
Plötunni er þá lokað með nokkurs
konar útgöngustefi, hinu fallega
„Trúðu á ljósið“.
Já, púff segir maður bara. Það er
mikið í gangi inni í Storminum,
segja má að platan beri þannig nafn
með rentu. En það er vigt í henni
sem verður ekki fengin með öðru en
aldri og reynslu. Það leikur öryggi
og æðruleysi um hana sem maður
heyrir t.d. á nýjustu plötum Leon-
ards Cohens eða plötunum sem
Cash gerði fram í andlátið.
Galdur plötunnar liggur í því
hversu sönn hún er. Þennan hrein-
leika finnur þú einfaldlega í gegnum
þá alúð sem lögð hefur verið við
hvert og eitt lag, hvort sem um er að
ræða tilkomumikla níðþunga bálka
eða léttleikandi gítarstemmur. Þú
skynjar að aðstandendur vita ná-
kvæmlega hvað það er sem þeir vilja
fá fram. Frábær plata, eins hnökra-
laus og mannlega er unnt.
„Það er svo margt sem ég ætla þér að segja“
Morgunblaðið/Einar Falur
Æðruleysi „Það leikur öryggi og æðruleysi um hana sem maður heyrir t.d.
á nýjustu plötum Leonards Cohens eða plötunum sem Cash gerði fram í
andlátið,“ segir m.a. um Storminn, nýjustu breiðskífu Bubba Morthens.
Bubbi – Stormurinn bbbbb
Bubbi Morthens (söngur, kassagítar,
rafgítar, munnharpa), Börkur Birgisson
(rafgítar, bakraddir), Daði Birgisson (pí-
anó, bakraddir), Valdimar Kolbeinn Sig-
urjónsson (kontrabassi), Magnús Ein-
arsson (mandólín), Matti Kallio
(harmónikka). Lög og textar eftir Bubba
fyrir utan textann í „Karlskröggur“
(höfundur ókunnur, þýðing Eva Hauks-
dóttir). Börkur og Daði stýrðu upp-
tökum, Daði hljóðblandaði og þeir
ásamt Bubba útsettu. Hljómjöfnun var í
höndum Bobs Katz í Digital Domain,
Flórída, Bandaríkjunum.
ARNAR EGGERT
THORODDSEN
TÓNLIST
Komdu
í bíó!
Þú finnur upplýsingar um
sýningartíma okkar og miðasölu á
www.emiði.is og www.miði.is
Stórkostleg ævintýramynd fyrir
alla fjölskylduna
-bara lúxus sími 553 2075
www.laugarasbio.is
ÍSL TAL
KEMUR FYRSTA STÓRMYND SUMARSINS
FRÁ ÞEIM SEM FÆRÐU OKKUR
Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU
POWE
RSÝN
ING
KL. 10
:40
- T.K.
kvikmyndir.is
H.V.A
-Fréttablaðið
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
L
L
12
12
12
16
STAR TREK 3D Sýnd kl. 5:20 - 8 - 10:40(P)
MAMA Sýnd kl. 8 - 10:10
IRON MAN 3 3D Sýnd kl. 2 - 5 - 8 - 10:40
LATIBÆR - BÍÓUPPLIFUN Sýnd kl. 2 - 4
OBLIVION Sýnd kl. 5:30
THE CROODS 3D ÍSL TAL Sýnd kl. 2
Stórmyndin sem tekin var upp á Íslandi
-Empire
-Hollywood
Reporter