Morgunblaðið - 11.05.2013, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 11.05.2013, Blaðsíða 1
L A U G A R D A G U R 1 1. M A Í 2 0 1 3  Stofnað 1913  109. tölublað  101. árgangur  FJÖLMENNINGU Í REYKJAVÍK FAGNAÐ SKIPTIR MÁLI HVER HLEYP- UR HRAÐAST? ÖRYGGI OG ÆÐRU- LEYSI LEIKUR UM PLÖTU BUBBA SUNNUDAGUR FIMM STJÖRNU STORMUR 56MARGBROTIN MENNING 10 Hörður Ægisson hordur@mbl.is Slitastjórn gamla Landsbankans (LBI) hefur farið þess á leit við Seðlabanka Íslands að bank- inn veiti LBI undanþágu frá lögum um gjaldeyr- ismál svo hægt yrði að greiða út til forgangs- kröfuhafa yfir 200 milljarða í erlendum gjaldeyri sem féll til eftir 12. mars 2012. Samkvæmt áreið- anlegum heimildum Morgunblaðsins hefur Seðla- bankinn hins vegar ekki viljað ljá máls á því að slík undanþága verði veitt á þessari stundu. LBI hefur í þrígang greitt út samtals 677 milljarða króna til forgangskröfuhafa. Síðast greiddi LBI út 82 milljarða til kröfuhafa í októ- ber 2012. Hingað til hefur slitastjórnin getað greitt út til kröfuhafa, án samþykkis Seðlabank- ans, með gjaldeyri sem var til í reiðufé fyrir breytingu sem var gerð á gjaldeyrislögunum 12. mars 2012. Slitastjórn LBI taldi ekki tímabært að tjá sig um málið þegar eftir því var leitað. Heimildir blaðsins herma að óvíst sé hvort Seðlabankinn muni veita heimild fyrir slíkum út- greiðslum meðan ekki hefur tekist að semja um endurfjármögnun eða lengingu á 310 milljarða erlendum skuldabréfum milli gamla og nýja Landsbankans. Að sögn kunnugra er sú afstaða talin nauðsynleg svo hægt verði að setja þrýsting á kröfuhafa Landsbankans – Breta og Hollend- inga – um að setjast að samningaborðinu og end- ursemja um skilmála skuldabréfanna. Þreifingar hafa átt sér stað milli Seðlabankans og fulltrúa kröfuhafa um þau mál á síðustu vikum. Fékk ekki undanþágu  Slitastjórn Landsbankans vildi greiða forgangskröfuhöfum yfir 200 milljarða  Fékk ekki heimild frá SÍ þar sem um var að ræða gjaldeyri eftir 12. mars 2012 MFær ekki heimild til að hraða » 26 Þegar ferðast er um ókunnar slóðir er jafnan ómissandi að hafa kort við höndina, jafnvel þótt verið sé að skoða ekki stærri borg en Reykjavík. Stoppa þarf af og til, sama þótt regnið falli, og kanna hvort haldið sé í rétta átt enda enginn verri þótt hann vökni, eins og máltækið segir. Gott er fyrir landsmenn alla að hafa það í huga næstu daga enda rigning í veðurkortunum og sums staðar von á snjókomu. Morgunblaðið/Ómar Blaut og áttavillt í höfuðborginni Kortið kemur að góðum notum á ferðalögum Pétur Blöndal pebl@mbl.is David Moyes, nýráðinn fram- kvæmdastjóri Manchester United, hefur oft komið til Íslands með fjöl- skyldu sinni. Faðir hans og alnafni er mikill Íslandsvinur og hefur haft milligöngu um íþróttaferðir til Skot- lands, auk þess að greiða götuna fyrir þjálfara og leikmenn á milli landanna. Smám saman tók sonurinn Kenny við þessum samskiptum, en tengslin héldust áfram góð við fjölskylduna, samstarf sem varð að vináttu í ára- tugi. „Ég man að í einni af heimsókn- um Davids eldri til Íslands höfðum við samband við KSÍ vegna miða á bikarúrslitaleik,“ segir Hörður Hilm- arsson. „Ég hélt að ég þekkti flesta í fótboltahreyfingunni á Íslandi, en David gamli heilsaði öllum í heið- ursstúkunni, bæði þeim sem ég þekkti og hinum líka!“ Þegar Moyes yngri var 15 ára 1978 bjó hann í Vestmannaeyjum í nokkr- ar vikur, æfði og spilaði fótbolta með Tý og sinnti þjálfun í fyrsta skipti. „Hann bjó hérna þrjár, fjórar vikur, ætlaði að vera allt sumarið, en þá fékk hann tilboð um að komast á samning hjá Celtic,“ segir Ólafur Jónsson sem hýsti unglinginn. „Það var ekkert vandamál að hafa ungling á heimilinu. Þetta var ósköp venju- legur og geðugur strákur, dálítið grimmur við sjálfan sig, metnaðar- gjarn og stífur á mataræðinu. Hann ætlaði sér greinilega að ná langt í fót- bolta.“ Nánar í Sunnudagsblaði Morgun- blaðsins og á íþróttasíðum. Moyes hóf ferilinn hjá Tý í Eyjum  Moyes-fjölskyldan er vinmörg á Íslandi eftir áratuga samstarf við ófá íþróttalið AFP Á hliðarlínunni David Moyes dvaldi nokkrar vikur í Eyjum og hefur þjálfað íslenska knattspyrnumenn.  Landhelgis- gæslan fór um borð í fjórðungi færri skip árið 2012 en árið 2010. Árið 2010 var farið um borð í 325 skip en 185 skip í fyrra. Ásgrímur L. Ásgrímsson, framkvæmdastjóri að- gerðasviðs Landhelgisgæslunnar, segir að stór hluti skýringarinnar sé sá að í fyrra hafi varðskipið Þór ver- ið tekið í notkun og mikill tími farið í að þjálfa áhöfnina í notkun skipsins og búnaðar þess. Í ár eigi að fara um borð í fleiri skip en í fyrra. Tveir norskir loðnuskipstjórar hafa verið ákærðir fyrir að hafa í janúar veitt rangar upplýsingar um heildarveiði. Skeikaði samtals 245 tonnum. »6 Fóru um borð í mun færri skip en 2010  Aðeins 7,5 lítrar af bensíni voru eftir á tanki flugvélar, sem flogið var frá Grænlandi, þegar hún lenti á Keflavíkurflugvelli, 27. sept- ember 2010. Í miðju flugi varð ljóst að vindar voru mun meiri en reiknað hafði verið með í upphafi. Flugmennirnir óskuðu eftir að fá forgang til lend- ingar. Rannsóknarnefnd flugslysa hefur lokið rannsókn og skilað skýrslu. Lentu á síðustu bensíndropunum  Refir sem lifa á búsvæðum við sjávarsíðuna hafa safnað miklu magni af kvikasilfri í líf- færum sínum. Aftur á móti er lítil kvikasilfurs- mengun í refum sem nýta fæðu inn til landsins. Þetta kemur fram í grein sem vís- indamenn frá Leibniz í Þýskalandi, Háskólanum í Moskvu í Rússlandi og Háskóla Íslands og Melrakka- setri hafa birt. »21 Mikið kvikasilfur í melrakka við sjóinn Fjöldi skipa er nú á karfamiðum á Reykjaneshrygg. Úthafskarfaveiðar íslenskra skipa máttu hefjast á mið- nætti í fyrrinótt og þegar stundin rann upp voru tólf íslenskir frystitog- arar komnir á miðin og var ágætur afli fyrsta sólarhringinn. Á heimasíðu HB Granda er haft eftir Heimi Guðbjörnssyni, skip- stjóra á Helgu Maríu AK, að um 15 rússneskir togarar, fjórir til fimm Spánverjar og svipaður fjöldi fær- eyskra og norskra togara hafi verið á veiðisvæðinu við lögsögumörkin. Fjöldi skipa á karfa á Reykjaneshrygg
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.