Morgunblaðið - 11.05.2013, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 11.05.2013, Blaðsíða 26
FRÉTTASKÝRING Hörður Ægisson hordur@mbl.is Slitastjórn gamla Landsbankans (LBI) hefur farið þess á leit við Seðlabanka Íslands að hann veiti LBI undanþáguheimild frá lögum um gjaldeyrismál svo hægt sé að greiða út til forgangskröfuhafa yfir 200 milljarða í erlendum gjaldeyri sem féll til eftir 12. mars 2012. Sam- kvæmt áreiðanlegum heimildum Morgunblaðsins þá hefur Seðlabank- inn hins vegar ekki viljað ljá máls á því að slík undanþága verði veitt á þessari stundu. Slitastjórn gamla Landsbankans taldi ekki tímabært að tjá sig um málið þegar eftir því var leitað. Kröfuhöfum verður gerð grein fyrir stöðu mála á kröfuhafafundi sem verður haldinn þann 30. maí næst- komandi. Heimildir Morgunblaðsins herma að óvíst sé hvort Seðlabankinn muni veita þrotabúinu undanþáguheimild fyrir slíkum útgreiðslum til for- gangskröfuhafa, sem eru einkum tryggingasjóðir innistæðueigenda í Bretlandi og Hollandi, meðan ekki hefur tekist að semja um endurfjár- mögnun eða lengingu á erlendum skuldabréfum milli gamla og nýja Landsbankans. Að sögn kunnugra er sú afstaða talin nauðsynleg svo hægt verði að setja þrýsting á kröfuhafa Landsbankans um að setjast að samningaborðinu og endursemja um skilmála skuldabréfanna. Þreifingar hafa átt sér stað milli Seðlabankans og fulltrúa kröfuhafa Landsbankans í tengslum við þau mál á undanförn- um vikum. Már Guðmundsson seðlabanka- stjóri hefur ítrekað sagt að það sé nauðsynlegt að lengja í skuldabréf- unum milli nýja og gamla Lands- bankans í því augnamiði að létta á ár- legri endurgreiðslubyrði bankans í gjaldeyri. Fram kemur í nýju riti Seðlabankans um fjármálastöðug- leika að miðað við spár um undir- liggjandi viðskiptaafgang þá er „af- borgunarferill skuldabréfa Landsbankans of þungur fyrir hag- kerfið í heild“. Áætlaðar afborganir af skuldabréfum Landsbankans eru yfir 300 milljarðar króna á árunum 2015 til 2018, eða sem nemur 3-3,5% af landsframleiðslu á tímabilinu. Þær endurgreiðslur einar og sér eru sam- bærilegar að stærð og spár um und- irliggjandi viðskiptaaafgang gera ráð fyrir á þeim árum. Þarf að halda varasjóð Fram til þessa hefur slitastjórnin aðeins greitt út til forgangskröfuhafa með gjaldeyri sem þrotabúið átti til í reiðufé fyrir þá breytingu sem var gerð á gjaldeyrislögunum 12. mars árið 2012. Með þeirri lagabreytingu voru almennar undanþágur fjár- málafyrirtækja í slitameðferð frá fjármagnshöftum felldar úr gildi þannig að ekki væri hægt að greiða út gjaldeyri til kröfuhafa nema með samþykki Seðlabankans. Sá gjald- eyrir sem búin áttu í reiðufé við setn- ingu laganna fellur þó ekki undir þessa lagabreytingu. Því hefur LBI getað greitt út til forgangskröfuhafa án þess að óska eftir sérstakri und- anþágu frá Seðlabankanum. Samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins á LBI enn nokkuð af lausafé í gjaldeyri sem féll til fyrir 12. mars 2012. Hins vegar álítur slitastjórn Landsbankans nauðsynlegt að halda eftir stórum hluta þess gjaldeyris svo hægt verði að standa undir mögu- legum útgreiðslum sem gæti komið til vegna óútkljáðra dómsmála. Miðað við síðasta ársuppgjör LBI þá átti búið um 170 milljarða í gjald- eyri í reiðufé og jafnframt um 70 milljarða í erlendum skuldabréfum og hlutabréfum. Eftir því sem Morg- unblaðið kemst næst er stærstur hluti þessarar fjárhæðar erlendur gjaldeyrir sem féll til eftir lagasetn- inguna í marsmánuði 2012. Hefur greitt 677 milljarða LBI greiddi síðast út hluta- greiðslur til forgangskröfuhafa í október 2012 að andvirði 82 milljarða króna. Aðrar greiðslur voru inntar af hendi í maí sama ár (162 milljarðar) og í desember 2011 (432 milljarðar) en samtals hefur slitastjórnin greitt út að jafnvirði nálægt 677 milljörðum króna. Enn á eftir að greiða for- gangskröfuhöfum um 650 milljarða króna, eða rétt tæpan helming. Alls námu eignir þrotabús Lands- bankans 1.543 milljörðum króna um síðustu áramót. Áætlað er að um 1.318 milljarðar verði greiddir út til forgangskröfuhafa. Almennir kröfu- hafar gætu því átt von á því að fá um 225 milljarða í sinn hlut. Á síðasta ári jukust áætlaðar heimtur búsins um 170 milljarða og skýrðist sú aukning að mestu vegna sölunnar á bresku verslunarkeðjunni Iceland Foods. Fær ekki heimild til að hraða útgreiðslum til kröfuhafa  LBI vildi greiða yfir 200 milljarða til kröfuhafa  SÍ veitti ekki undanþágu Seðlabankinn LBI þarf undanþágu frá gjaldeyrislögum til að greiða út til forgangskröfuhafa með gjaldeyri sem féll til eftir 12. mars 2012. Morgunblaðið/Eggert Þrýst á kröfuhafa » Slitastjórn gamla Lands- bankans hefur áhuga á að greiða út yfir 200 milljarða til forgangskröfuhafa með er- lendum gjaldeyri sem féll til eftir 12. mars 2012. » Þarf undanþágu frá lögum um gjaldeyrismál. Seðlabank- inn ekki reiðubúinn að veita slíka heimild á þessari stundu. » Talið mikilvægt að þrýsta fyrst á kröfuhafa Landsbank- ans að setjast að samnings- borðinu og endursemja um 310 milljarða erlendar skuldir nýja Landsbankans. 26 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MAÍ 2013 STUTTAR FRÉTTIR ● Tap japanska raftækjaframleiðand- ans Panasonic nam 7,5 milljörðum Bandaríkjadala, eða rúmum 750 millj- örðum jena, sem jafngildir rúmlega eitt þúsund milljörðum íslenskra króna, á síðasta rekstrarári en því lauk í lok mars. Árið á undan nam tapið 772,17 millj- örðum jena. Er þetta eitt mesta tap sem japanskt fyrirtæki hefur skilað í gegnum tíðina. Aftur á móti nam rekstrarhagnaður Panasonic 160,94 milljörðum jena á síðasta rekstrarári en mikil end- urskipulagning hefur átt sér stað í rekstri þess að undanförnu. Salan hjá Panasonic dróst aftur á móti saman um 6,9% á milli ára. Mikið tap Panasonic ● Afkoma Seltjarnarnesbæjar var já- kvæð um 229 milljónir á síðastliðnu ári. Þetta kemur fram í ársreikningi Sel- tjarnarness fyrir árið 2012, sem var samþykktur á fundi bæjarstjórnar 8. maí. Seltjarnarnesbær lækkaði útsvar 1. janúar 2013 og er nú álagningar- prósentan 13,66%. Í ársreikningum kemur m.a. fram að langtímaskuldir bæjarins eru 263 millj- ónir króna, samkvæmt fréttatilkynn- ingu sem sveitarfélagið hefur sent á fjölmiðla. Afkoman í fyrra jákvæð um 229 milljónir króna                                         !"# $% " &'( )* '$* ++,-.+ +,/-01 ++1-.2 /3-.,, /3-41. +,-35. +/4-3. +-+.25 +11-,1 +04-/0 ++,-,2 +,5-3+ ++,-35 /3-142 /3-05. +,-3,2 +/4-4+ +-+1/1 +1,-4 +04-., /+-14.+ ++2-+1 +,5-40 ++,-51 /3-,+ /3-02. +,-+4/ +/4-1. +-+1.+ +1,-25 +00-++ Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á Bæjarlind 16 Kópavogur Sími 553 7100 www.linan.is Opið mánudaga til föstudaga 12 - 18 laugardaga 11 - 16 Hönnun: Jahn Aamodt Stóll kr. 267.500 Stóll + skemill kr. 334.900 Tímalaus skandinavísk hönnun þar sem hreinar línur, gæði og þægindi haldast í hendur. Stillanlegt bak og hnakkapúði sem tryggja hámarks þægindi. Fáanlegur í hnotu, eik eða svartbæsaður. Frábært úrval af leðri og áklæðum í boði. TIMEOUT –– Meira fyrir lesendur NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is PÖNTUNARFRESTUR AUGLÝSINGA: fyrir kl. 14 þriðjudaginn 21. maí. Garðar og grill Blaðið verður með góðum upplýsingum um garðinn, pallinn, heita potta, sumarblómin, sumar- húsgögn og grill ásamt girnilegum uppskriftum SÉRBLAÐMorgunblaðið gefur út glæsilegt sérblað um garða og grill föstudaginn 24. maí
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.