Morgunblaðið - 11.05.2013, Blaðsíða 52
52 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MAÍ 2013
Sölustaðir: Apótek Hafnarfjarðar og Garðabæjar, Árbæjarapótek, Austurbæjarapótek,
Femin.is, Garðsapótek, Heimkaup.is, Lyfja, Lyfjaval, Rimaapótek og Urðarapótek
Þú færð
silkimjúka
fætur
eftir aðeins
eitt skipti
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Dagskrá þín krefst þess að þú gerir
margt í einu, en samt ekki alltaf. Farðu út á
meðal fólks og ræddu málin því þá færðu
ferskar hugmyndir.
20. apríl - 20. maí
Naut Það skiptir sköpum að nota rétt verk-
færi við sérhvert verk, því annars áttu á
hættu að ráða ekki við hlutina. Þú ert í miklu
vinnustuði núna.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Rómantíkin ræður ríkjum þessa
dagana og þú ert í sjöunda himni því allt virð-
ist ætla að ganga upp hjá þér. Gættu þess að
ríghalda ekki í einhvern af óöryggi.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Einbeittu þér að því að reyna að sjá
fyrir sem flesta hluti varðandi verkefni þitt.
Foreldrum er ráðlagt að hafa góðar gætur á
smáfólkinu, slysahætta liggur í loftinu.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þótt heimurinn sé alltaf að minnka eru
enn margir staðir mjög svo framandi og lítt
sem ekkert kannaðir. Gaumgæfðu alla mögu-
leika og reyndu að forðast óþarfa áhættu.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú gerir þér grein fyrir því hvað það er
mikil ást í hversdagslífi þínu. Ef hópurinn er
ekki nægilega góður er rétti tíminn til þess að
gera breytingar núna.
23. sept. - 22. okt.
Vog Kannski fannstu peningana sem þú varst
að leita að í gleymdu veski. Margir sem hafa
fengið óskir sínar uppfylltar gera lítið úr þeim
við aðra.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þótt þér virðist lífið eitt allsherj-
arveisluborð, sem þú eigir bara að ganga í, þá
ertu ekki einn í heiminum. Láttu ekki einkalíf
og atvinnu ganga hvað á annars hlut.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Bogmaðurinn hefur þurft að
sætta sig við þrengingar á undanförnum ár-
um. Gríptu inn í þegar tækifæri til leiðréttinga
býðst.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Mundu að þú getur aldrei gert svo
vel að öllum líki. Komdu þér í keppnisskap, en
kepptu bara um það sem er þess virði, láttu
allt annað eiga sig.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Vandað fólk í hópnum í kringum
þig færir þér gæfu. En gættu þess að velja
þér ekki takmark bara af því að það virðist
nánast ómögulegt.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Fiskurinn áttar sig á því á næstu vik-
um hversu mikil ást og umhyggja er í kring-
um hann. Bíddu til morguns því þá verða allar
aðstæður heppilegri.
Karlinn á Laugaveginum stikaðiupp Frakkastíginn þegar ég
sá hann. Hann var í gömlu stígvél-
unum sínum og með sexpensara á
höfðinu, í bláu vinnufötunum og
hélt á slitinni úlpu. Það er ekki til
setunnar boðið, sagði hann og bætti
við:
Hvort það gerir þér gott eða miður
eins og gamalla bænda er siður,
sagði kerling vor,
það er komið vor
svo að kartöflur setjum við niður!
Og hraðaði för sinni. Þar sem
ljóðabókin Nei kemur nú út í 3. út-
gáfu gerði ég það mér til gamans
að fletta gömlum Munin. Þar fann
ég þessa klausu eftir okkur Ara
Jósefsson undir yfirskriftinni Man-
söngur úr Rokkdansi frá 17. öld:
Gamlir menn í Borgarfirði herma,
að þar í sveit hafi eitt sinn verið
flökkuskáld nokkurt og umferð-
arprédikari, sem menn nefndu
Snata gamla. Hafa honum verið
eignaðar stökur þessar, en þær
fundust á skinnbrókum fornlegum:
Kærleiksbrímann kveikir þrá,
hvunndagsgríman víkur frá,
einn ég hími inni á krá
er að ríma ljóðin smá.
Til ástar fann við fyrstu sýn,
með fljóðið rann ég heim til mín,
ég alltaf kann við afmorsgrín,
ungan svanna og rekkjulín.
Nú ég kokkáll orðinn er,
einn ég rokka um veröld hér,
af mér plokkast ástin hver,
áttu bokku handa mér?
Rokkar stanzlaust físufans,
fáir dansa Óla skans.
Er það vansinn okkar lanz
ástarsjansinn rokkgæjans.
Einn ég mæni í ástarpín
á þig, væna silki-hlín.
Í öllum bænum, elskan mín,
í einum grænum brennivín.
Sagt er, að Snati gamli hafi geng-
ið í skóla. Lá hann eitt sinn timbr-
aður, en kvað til skýringar:
Segið það meistara mínum,
að mig leggi í rúmið
flensa úr framandi landi
og frostkalt húmið.
Maður sat gegnt stúlku á kaffi-
húsi og varð að orði:
Augun laus við leiðan kvíða
lífsins hlýða æðarslætti.
Varir rauðar vona og bíða,
vakir þrá í hverjum drætti.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af gömlum
rokkdansi
Í klípu
„SKO, ÞÚ FÆRÐ BORGAÐ FYRIR AÐ
STÖÐVA ALLA SAMKEPPNI Á OKKAR
SVÆÐI. ÉG VIL SEM MINNST VITA UM
HVAÐA AÐFERÐIR ÞÚ NOTAR.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„EIN AF ÖLLU, FJÓRUM SINNUM Á DAG.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... blanda af því að
gefa og þiggja.
APÓ
TEK
VIÐ JÓN FÓRUM ÚT Á
LÍFIÐ Í KVÖLD, GRETTIR.
HANN ...
DANSAÐI.
ÉG VILDI AÐ
ÞÚ HEFÐIR
EKKI ÞURFT
AÐ SJÁ ÞAÐ.
MÉR HEFUR
ALLTAF LIÐIÐ VEL
Í ÞESSU HÚSI ...
... EN ÞAÐ ER
EINS OG
EITTHVAÐ
VANTI!
EINS OG
HVAÐ?
HLÖÐU, TIL
DÆMIS!
Aldrei hefði Víkverja grunað aðþættir um starf ljósmóður á
nítjándu öld í Englandi ættu eftir að
heilla hann. Þættirnir, Call the Mid-
wife II, sem Ríkisútvarpið sýnir eru
hreint út sagt yndislegir enda bresk-
ir!
x x x
Fyrri þáttröðin var sýnd síðastasumar, og tolldi Víkverji þá ekki
lengi við skjáinn, því við blasti hver
konan á fætur annarri öskrandi af
öllum lífs og sálarkröftum (eðlilega!)
og fljótlega birtist lítill spriklandi
hvítvoðungur. Víkverja fannst þetta
ekki beint sjarmerandi sjónvarps-
efni.
x x x
Kannski hafði það eitthvað að gerameð þennan eina þátt sem Vík-
verji sá nýverið, að hann var ekki ein-
göngu fullur af konum í barnsnauð.
Að vísu fæddist eitt heilbrigt sprikl-
andi barn, líkt og verður að vera í
þætti sem ber heitið Ljósmóðirin.
Það var telpukorn, vart komið af
fermingaraldri, sem fæddi dreng upp
á eigin spýtur því hún hafði haldið
þunguninni leyndri og skildi barnið
eftir á tröppunum hjá nunnunum.
x x x
Sagan af þessari stúlku, ein og sér,var áhrifarík en það var önnur
saga sem fékk Víkverja til að fella
tár. Hún var um tötralegan einstæð-
ing, gamla konu sem heillaðist af
ungviðinu og sótti í að kjassa börnin
þegar mæðurnar sáu ekki til. Mæð-
urnar brugðust ókvæða við þegar
þær urðu varar við konuna nálægt
börnunum.
x x x
Einstæðingurinn hafði gengið ígegnum ýmislegt. Hún hafði
misst eiginmann sinn og stóð uppi
bláfátæk ekkja með barnahóp sem
hún gat ekki brauðfætt. Hún vann
fyrir sér og börnum sínum, lokuð inni
á einhvers konar stofnun. Börnin
hennar dóu öll og var sú skýring gef-
in að þau hefði ekki þrifist. Þau voru
jörðuð í almenningskirkjugarði og
fékk móðirin ekki að vera viðstödd.
Ætli saga þessarar konu sé nokkurt
einsdæmi. víkverji@mbl.is
Víkverji
Lofsöngur Maríu Og María sagði:
Önd mín miklar Drottin og andi
minn gleðst í Guði, frelsara mínum.
(Lúkasarguðspjall 1:46-47)