Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.05.2013, Síða 13

Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.05.2013, Síða 13
5.5. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13 væri að drífa sig. Heilt yfir væri hann með í vörinni í kringum 20 klukkustundir á dag. Mikið magn er af nikótíni í ís- lenska neftóbakinu, þó er ekki vitað hver talan er nákvæmlega. Nikótín þrengir æðarnar, það verður minna súrefnisflæði, meiri meiðslahætta, og fólk er lengur að ná sér af meiðslum. Þetta vita þjálfarar í af- reksíþróttum núna. Þjálfarar og íþróttafélög eru að taka á þessu í dag og segir Jóhanna að það sé ekki lengur töff að vera með í vör- inni. Viðhorfið sé að breytast smátt og smátt. „Snæfell var fyrsta liðið sem gerði samning við sína leikmenn um að vera tóbakslausir í körfunni 2010. Liðið varð Íslandsmeistari. Strax um haustið skrifuðu leikmenn undir samning um að vera tóbakslausir um áramót – ef ekki yrði þeim hent úr liðinu. Fleiri félög tóku þetta upp í framhaldinu.“ Erfitt að hætta að taka í vörina Tollgæslan gerði 66 kíló af sænsku munntóbaki upptæk í fyrra. Gjarn- an er talað um að hægt sé að ganga útfrá því að 10-15% af magni sem sé í umferð sé gert upptækt í toll- inum. Þannig má áætla að náist má áætla að um 600 kíló af sænsku munntóbaki séu notuð hér á landi árlega, sem þó er eflaust vanáætlað. Jóhanna telur að auðvelt sé fyrir ungt fólk að útvega sér munntóbak þrátt fyrir bann. Hún segir einnig að fólk verði mun háðara því að taka í vörina en að reykja. Það sé hennar reynsla. „Það eru margir duglegir að tala um að lungun skemmist ekki af því að taka í vör- ina. Tala hins vegar ekkert um að munnholið og tennur skemmist. Krabbameinsrannsóknamiðstöðin í Heidelberg benti til dæmis á það að krabbamein í vélinda og brisi væri algengara hjá þeim sem nota snus en reykja. Sykursýki líka. Það er fjórum sinnum meira nikótín í þessu hefðbundna snusi en í einni sígar- ettu. Ég er mest að vinna í tóbaks- meðferðinni og við segjum að það sé auðvelt að hætta að reykja miðað við þetta. Fíknin er svo miklu meiri,“ segir Jóhanna að lokum. Morgunblaðið/Eva Björk Tóbakinu hent í dósir. 50 grömm í dós. Verkfærin á bak við framleiðsluna. Skófla og tunna. Tóbakið á leið í malara. Morgunblaðið/Eva Björk Smiðjuvegi 2 (við hliðina á Bónus) • Kópavogi • sími 544 2121 Opið virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga kl. 11-16 • www.rumgott.is ÞÉR ER BOÐIÐ Í FRÍA LEGU- GREININGU Rúmgott er eini aðilinn á Íslandi sem býður upp á legugreiningu. ÍS LE N SK GÆ I60 ÁR Skeifunni 8 | sími 588 0640 | casa.is Leður án snúnings 289.000,- Leður m/snúningi 325.000,- WAVE lounge

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.